Morgunblaðið - 09.02.1980, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1980'
KIPAUTGCRB BÍKISINS
m/s Esja
fer frá Reykjavík fimmtudaginn
14. þ.m. austur um land til
Seyðisfjaröar og tekur vörur á
eftirtaldar hafnir: Vestmanna-
eyjar, Hornafjörð, Djúpavog,
Breiðdalsvík, Stöðvarfjörð, Fá-
skrúðsfjörð, Reyðarfjörö, Eski-
fjörð, Neskaupstað og Seyðis-
fjörð.
Vörumótttaka alla virka daga til
13. þ.m.
.SKIPAUTGCRÐ RIKISINS
m/s Hekla
fer frá Reykjavík föstudaginn
15. þ.m. vestur um land í
hringferð og tekur vörur á
eftirtaldar hafnir: Patreksfjörð,
(Tálknafjörð og Bíldudal um
Patreksfjörð), Þingeyri, ísafjörð,
(Flateyri, Súgandafjörö og Bol-
ungarvík um isafjörö), Norður-
fjörð, Siglufjörð, Ólafsfjörð,
Akureyri, Húsavík, Raufarhöfn,
Þórshöfn, Bakkafjörð, Vopna-
fjörð og Borgarfjörð eystri.
Vörumóttaka alla virka daga til
14. þ.m.
Laugardagskvikmynd sjónvarpsins:
Frank Sinatra í essinu sínu
LAUGARDAGSKVIKMYND sjónvarpsins að
þessu sinni er bandaríska bíómyndin Astin
hefur hýrar brár. en hún er frá árinu 1955.
Myndin fjallar um Charlie nokkurn, sem er
aðstoðarmaður leikara og umboðsmaður
þeirra, og býr í New York. Hann er pipar-
sveinn, en eins og í mörgum góðum ævintýrum
er hann umvafinn fögrum fljóðum sem eiga sér
þá ósk heitasta að hreppa hann sem eigin-
mann!
Leikararnir í þessari mynd eru ekki af verri
endanum, því sjálfur Frankie „boy“ Sinatra
leikur aðalhiutverkið ásamt þeim Debbie
Reynolds og David Wayne.
Frank Sinatra þarf ekki að kynna sérstak-
lega fyrir kvikmyndaunnendum, né heldur
þeim er unna rómantískum og sefjandi söng
eins og þeim er bandarískir einir geta
framleitt, en með útliti sínu og rödd hefur
Sinatra heillað yngismeyjar og ráðsettar frúr í
áratugi.
Önnur hlið hans hefur hins vegar ekki þótt
eins fögur, en þar er um að ræða tengsl hans
við mafíuna bandarísku, en það er önnur saga
sem ekki er ástæða til að rekja hér að sinni.
Hér er sá frægi hjartaknúsari Frank
Sinatra (lengst til hægri) í hlutverki sinu
í myndinni Tender Trap, sem sýnd verður
klukkan 21.45 í sjónvarpi í kvöld.
i
Cleo
Lainc
og
eiginmaður hennar John Dankworth.
Sjónvarp klukkan 20.55 í kvöld:
Þáttur með hinni frábæru Cleo Laine
í sjónvarpi í kvöid er þáttur með hinni kunnu
söngkonu Cleo Laine. Með henni koma fram
nokkrir félagar hennar og vinir, þeir Henry
Mancini. Stephane Grappelli. John Williams og
Charlie Watts.
Cleo þarf ekki að kynna íslenskum áheyrendum,
svo oft sem hún hefur komið hingað til lands og
skemmt íslendingum bæði á hljómleikum lista-
hátíða og í sjónvarpsþáttum. Fyrrnefndir vinir
hennar eru heldur ekki af verri endanum, svo sem
gítarsnillingurinn John Williams og Charlie Watts,
einn liðsmanna hinnar heimskunnu bresku rokk-
hljómsveitar Rolling Stones.
Þá kemur eiginmaður Cleo einnig oftast nær
fram með henni, hinn frábæri John Dankworth, og
er ólíklegt annað en svo verði einnig í þættinum í
kvöld.
Þátturinn rjieð Cleo Laine hefst klukkan 20.55 í
sjónvarpinu í kvöld, og þýðandi hans er Kristmann
Eiðsson.
Cleo og Dankworth á sviði Laugardalshallarinnar á tónleikum á listahátíð í Reykjavík. í fremstu röð
áheyrenda má þekkja ýmsa kunna borgara, svo sem Jón Steinar Gunnlaugsson hdl., Baidvin
Tryggvason sparisjóðsstjóra, Ernu Finnsdóttur, Birgi ísleif Gunnarsson, Hrafn Gunnlaugsson,
Vilhjálm Hjálmarsson, Ólaf B. Thors og fleiri og fleiri.
Útvarp Reyklavtk
um rondóform.
17.50 Söngvar í léttum dúr.
Tilkynningar.
L4UG4RD4GUR
9. febrúar
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi
7.20 Bæn )
7.25 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
8.0Ó Fréttir. Tónleikar.
8.L. Veðurfr. Forustugr.
dagbl. (útdr.) Dagskrá. Tón-
leikar.
8.50 I.eikfimi
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga:
Kristín Sveinhjörnsdóttir
kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10
Veðurfregnir).
1J .20 Börn hér og börn þar.
Málfríður Gunnarsdóttir
itjórnar barnatíma. Lesari:
Svanhildur Kaaber.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
SÍÐDEGIÐ
13.30 í vikulokin. Umsjónar-
menn: Guðjón Friðriksson,
Óskar Magnússon og Þór-
unn Gestsdóttir.
15.00 í dægurlandi. Svavar
Gests velur íslenzka dægur-
tónlist til flutnings og fjall-
ar um hana.
15.40 íslenzkt mál. Jón Aðal-
steinn Jónsson cand. mag.
talar.
16.00 Fréttir. Tiikynningar.
16.15 Vcðurfregnir.
16.20 Heilabrot. Sjötti þáttur:
Um útvarp fyrir börn og
unglinga. Stjórnandi: Jakob
S. Jónsson.
17.00 Tónlistarrabb; — XII.
Atli Ileimir Sveinsson fjallar
LAUGARDAGUIi
9. febrúar 1980
16.30 íþróttir. Umsjónar-
maður Bjarni Felixson.
18.30 Lassie. Önnur mynd af
þrettán í bandarískum
myndaflokki um tíkina
Lassie og evintýrí hennar.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.55 .Enska knattspyrnan
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og
dagskrá
20.30 Spítaialíf. Bandarískur
gamanmyndaflokkur. Þýð-
andi Ellert Sigurbjörnsson.
20.55 Cleo. Tónlistarþáttur
l___________________________
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
með Cleo Laine og félögum
hennar, Henry Mancini,
Stephane Grappelli, John
Williams og Charlie Watts.
Þýðandi Ellert Sigur-
hjörnsson.
21.45 .„Ástin hefur hýrar
hrár“ (Tender Trap).
Bandarísk híómynd frá ár-
inu 1955. Aðalhlutverk
Frank Sinatra. Dehbie
Reynolds og David Wayne.
Charlie er umhoðsmaður
leikara og búsettur í New
York. Hann er piparsvcinn
en margar stúlkur virðast
telja hann hið ákjósan-
legasta mannsefni. Þýð-
andi Itagna Ragnars.
23.30 Dagskrárlok
KVÖLDIÐ
19.35 „Babbitt“. saga eftir Sin-
clair Lewis, í þýðingu Sig-
urðar Einarssonar. Gísli
Rúnar Jónsson leikari les
(11).
20.00 Harmonikuþáttur. í um-
sjá Bjarna Marteinssonar,
Högna Jónssonar og Sigurð-
ar Alfonssonar.
20.30 Sagnaskemmtun. Fjallað
um skringilegar sögur og
nokkrar þeirra sagðar. Um-
sjónarmaður þáttarins:
Birna G. Bjarnleifsdóttir.
21.15 A hljómþingi. Jón Örn
Marinósson velur sígilda
tónlist, spjallar um verkin
og höfunda þeirra.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.30 Lestur Passíusálma (6).
22.40 Kvöldsagan: „Úr fylgsn-
um fyrri aldar" eftir Friðrik
Eggerz. Gils Guðmundsson
les (5).
23.00 Danslög. (23.45 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.