Morgunblaðið - 09.02.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1980
5
Mótefnamælingar
við rauðum hundum
Hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi:
Tekið á móti söfnunar-
baukum í dag frá 104
NÚ stendur yfir herferð
gegn fósturskemmdum
Flugleiðir:
Fokkervélarnar
frá Kóreu koma
á sunnudaginn
TVÆR FOKKER flugvélar Flug-
leiða, sem keyptar voru í Kóreu
eru nú á heimleið, en tvær vélar,
sem seldar hafa verið til Finn-
lands, voru komnar áður og eru
hinar síðari nú í Ankara og fara
væntanlega frá Luxemborg áleið-
is til íslands á sunnudag.
Um þessar mundir er nú verið
að breyta Fokkervélunum, sem
Finnar keyptu og er gert ráð fyrir
að þær verði afhentar 15. og 30.
marz. Sams konar breytingar þarf
einnig að gera á vélunum, sem
Flugleiðir hyggjast eiga áfram, en
einkum er um að ræða ný radíó-
og flugleiðsögutæki, er auka eiga
öryggi vélanna, en þær fara síðan
í áætlunarflug innanlands.
Leiðrétting
I Mbl. í gær stóð að fargjöld
Landleiða hefðu hækkað um 13%.
Það rétta er, að þau hækkuðu um
9%.
Leiðrétting
PRENTVILLA slæddist inn í
grein sr. Bjartmars Kristjáns-
sonar, Nafn Jesú, er var í Mbl. á
fimmtudag. Var í upphafi greinar-
innar talað um Móse, en átti að
standa Hósea.
Segja upp þjón-
ustu frétta-
stofu Reuters
DAGBLÖÐIN Tíminn og Þjóð-
viljinn hafa nú um skeið ekki birt
erlendar fréttir, en að undan-
förnu hafa þau bæði birt bæði
daglegar fréttir og fréttaskýr-
ingar. Hafa blöðin nú sagt upp
þjónustu Reuter fréttastofunnar
og er það gert af fjárhagsástæð-
um.
Arni Bergmann ritstjóri Þjóð-
viljans kvaðst vera talsmaður
erlendra frétta, en eigi að síður
hefði það orðið ofan á að hætta að
hafa fréttir á hverjum degi og
birtar eru jafnan ýmsar greinar
og fréttaskýringar um erlend mál-
efni. Hefur Jón Ásgeir Sigurðsson,
er vann m.a. við erlend fréttaskrif
á Þjóðviljanum, látið af því starfi
sínu.
Jón Sigurðsson ritstjóri Tímans
kvað það hafa verið ákveðið í
haust að leggja niður erlend
fréttaskrif í blaðinu, en það hefði
fyrst og fremst verið af fjárhags-
ástæðum og borið fyrst þar niður,
þegar rætt var um sparnaðarleið-
ir. Síðar hefði verið ákveðið að
hætta kaupum á þjónustu Reuter
fréttastofunnar, en áfram yrðu í
blaðinu erlendar fréttaskýringar
svo sem verið hefði um árabil.
Kjartan Jónasson er annaðist er-
lendar fréttir tók við starfi frétta-
stjóra Tímans, en hefur nú látið af
því starfi og horfið að námi.
vegna rauðra hunda.
I því skyni verður reynt
að afla upplýsinga um mót-
efni gegn rauðum hundum
hjá öllum konum í
Reykjavík á barneignar-
aldri. Að lokinni mælingu
verður þeim konum sem
reynast ekki hafa mótefni
gegn sjúkdómnum gefinn
kostur á bólusetningu.
Verður öllum konum
16—40 ára, sem ekki er
fyrirliggjandi mótefna-
mæling hjá, sent bréf
næstu vikurnar, þar sem
þær eru hvattar til að koma
í sýnitöku á mæðradeild
Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur.
(fréttatilkynning).
ALMENNA fjársöfnunín í
Kópavogi fyrir byggingu
Hjúkrunarheimilis aldr-
aðra hefur tekið mikinn
kipp eftir að fyrsta skóflu-
stungan var tekin fyrir
u.þ.b. hálfum mánuði.
Framkvæmdir eru í fullum
gangi og fjárþörfin er því
mikil. Af þeim sökum verð-
ur skrifstofa söfnunarinnar
í Hamraborg 1 opin í dag
milli kl. 10 og 4 og eru
bæjarbúar hvattir til þess
að koma baukum sínum til
skila og fá nýja í staðinn.
BILASYNING
í dag og á morgun kl. 2 — 6
Komiö og skoðið
nýjustu árgerðirnar