Morgunblaðið - 09.02.1980, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1980
8
II
I
jHpóöur
á morgun
OOMKIRKJAN: Kl. 11 messa, sr.
Þórlr Stephensen. Kl. 2 messa,
sr. Hjalti Guðmundsson. Dóm-
kórinn syngur, organleikari Mar-
teinn H. Friðriksson.
LANDAKOTSSPÍTALI: Kl. 10
messa, sr. Þórir Stephensen.
Organleikari Birgir Ás Guð-
mundsson.
ÁRBÆJARPREST AK ALL:
Barnasamkoma í safnaðarheimili
Árbæjarsóknar kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta í safnaðarheimil-
inu kl. 2. Ársfundur hins ísl.
biblíufélags eftir messu. Sókn-
arprestur.
ÁSPRESTAKALL: Messa kl. 2 að
Norðurbrún 1. Sr. Grímur
Grímsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL:
Barnastarf í Ölduselsskóla og
Breiðholtsskóla kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta í Breiðholtsskóla
kl. 14. Sr. Jón Bjarman.
BUSTAÐAKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 2.
Organleikari Guöni Þ. Guð-
mundsson. Miövikud. 13. febr.:
Æskulýðsfundur kl. 20.30. Sr.
Ólafur Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL:
Barnasamkoma í safnaðarheimil-
inu viö Bjarnhólastíg kl. 11.
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 2. Sr. Þorbergur Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAPRESTA-
KALL: Laugard.: Barnasamkoma
í Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h.
Sunnudagur: Barnasamkoma í
Fellaskóla kl. 11 árd. Guðsþjón-
usta í safnaöarheimilinu aö
Keilufelli 1 kl. 2 e.h. Séra Erlend-
ur Sigmundsson messar. Sr.
Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 2.
Organleikari Jón G. Þórarinsson.
Almenn samkoma n.k. fimmtu-
dag kl. 20.30. Sr. Halldór S.
Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Biblíudag-
urinn. Messa kl. 11. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson. Messa kl. 2. Sr.
Karl Sigurbjörnsson. Fyrirbæna-
messa kl. 10.30 árd. þriðjudag.
Munið kirkjuskóla barnanna kl. 2
á laugardögum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10
árd. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 árd. Sr. Arngrím-
ur Jónsson. Messa kl. 2. Sr.
Tómas Sveinsson. Organleikari
dr. Orthulf Prunner.
KÁRSNESPRESTAKALL:
Barnasamkoma í Kársnesskóla
kl. 11 árd. Guðsþjónusta í Kópa-
vogskirkju kl. 11 árd. Sr. Arni
Pálsson.
LANGHOLTSPREST AKALL:
Barnasamkoma kl. 11. Jenna og
Hreiöar, Jón Stefánsson og
sóknarpresturinn sjá um stund-
ina. Guðsþjónusta kl. 2, organisti
Jón Stefánsson, prestur sr. Sig.
Haukur Guðjónsson. Sóknar-
neíndin.
LAUGARNESPRESTAKALL:
Laugardagur 9. febr.: Guðsþjón-
usta að Hátúni 10b kl. 11.
Sunnudagur 10. febr.: Barna-
guðsþjónusta kl. 11 í kjallara-
salnum. Messa kl. 11 (athugið
breyttan tíma). Ástráður Sigur-
steindórsson predikar. Altaris-
GUÐSPJALL DAGSINS:
Lúk. 8.: Ferns konar sáð-
jörð.
LITUR DAGSINS:
Grænn. — Litur vaxtar og
þroska.
ganga. Þriðjudagur 12. febr.:
Bænaguðsþjónusta kl. 18 og
æskulýðsfundur kl. 20.30. Föstu-
dagur 15. febr.: Húsmæðrakaffi
kl. 14.30. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
10.30 árd. Guösþjónusta kl. 2
e.h., kirkjukaffi. Muniö starf aldr-
aöra kl. 3 á laugardögum. Sr.
Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESSÓKN: Guös-
þjónusta kl. 11 árd. í Félagsheim-
ilinu. Sr. Guðm. Óskar Ölafsson.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Messa
kl. 2. Organteikari Siguröur ís-
ólfsson. Prestur séra Kristján
Róbertsson.
GRUND Elli- og hjúkrunarheimili:
Altarisganga kl. 10. árd. Séra
Þorsteinn Björnsson.
KIRKJA Óháöa safnaðarins:
Messa kl. 14. Sr. Emil Björnsson.
DÓMKIRKJA Krists konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30
árd. Hámessa kl. 10.30 árd.
Lágmessa kl. 2 síðd. Alla virka
daga er lágmessa kl. 6 síðd.
nema á laugardögum þá kl. 2
síöd.
FELLAHELLIR: Kaþólsk messa
kl. 11 árd.
FÍLADELFÍUKIRKJAN: Almenn
guösþjónusta kl. 8 síðd. Einar J.
Gíslason.
HJÁLPRÆDISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 10 árd. — Helgun-
arsamkoma kl. 11 árd. Bæn kl.
20 og hjálpræöissamkoma kl.
20.30.
KIRKJA Jesú Krists hinna síðari
daga heilögu: — Mormónar:
Samkomur að Höfðabakka 9 kl.
14 og kl. 15.
NÝJA POSTULAKIRKJAN: Háa-
leitisbraut 58: Messa kl. 11 og kl.
17.
GARÐAKIRKJA: Barnasamkoma
í skólasalnum kl. 11 árd. Messa
kl. 2 síðd. Séra Bragi Friðriksson.
KAPELLA St. Jósefssystra í
Garðabæ: Hámessa kl. 2 síöd.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Sókn-
arprestur.
VÍÐIST AÐ ASÓKN: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 árd. að Hrafnistu.
— Guðsþjónusta í upphafi
kristniboðsviku í Hrafnistu kl. 14.
Benedikt Arnkelsson prédikar.
Halldór Vilhelmsson syngur ein-
söng. Altarisganga. Séra Sigurð-
ur H. Guömundsson.
KAPELLA St. Jósefsspítala
Hafn.: Messa kl. 10 árd.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30 árd. Virka daga er messa
kl. 8 árd.
KÁLFATJARNARSÓKN: Barna-
samkoma í Stóruvogaskóla kl. 2
síðd. Séra Bragi Friöriksson.
NJARÐVÍKURPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli í Ytri-Njarövík-
urkirkju kl. 11 árd. Messa í
Innri-Njarðvíkurkirkju kl. 2 síðd.
Sóknarprestur.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 árd. — Munið
skólabílinn. — Messa kl. 14.
Síöasta samkoma kristniboös-
vikunnar verður kl. 20.30. Sókn-
arprestur.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Messa kl. 2
síðd. Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Guös-
þjónusta kl. 2 síðd. Sóknarprest-
ur.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 14.
— Guðfræðinemendur aðstoða
við messurnar. — Sóknarprest-
ur.
AKRANESKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2
síöd. Séra Hugh Martin prédikar.
— Séra Björn Jónsson.
BIBLÍUDAGUR1980
sunnudagur 10.febrúar
GJÖFUM til styrktar starfi HINS ÍSL. BIBLÍUFÉLAGS verður
að venju veitt viðtaka viö allar guðsþjónustur í kirkjum
landsíns á morgun og næstu sunnudaga, þar sem ekki er
messaö á biblíudaginn, svo og á kvöldsamkomum safnað-
anna og kristilegu félaganna. Aðalverkefni Biblíufélagsins
eru nú: Ný, vönduð BIBLÍU-útgáfa, þegar í setningu og
væntanleg innan árs, og fjárstuðningur við starf Sameinuðu
Biblíufélaganna að útbreiðslu Ritningarinnar m.a. í Ethíopíu
og Austur-Evrópu.
Flensborgarskóli
Mötuneyti
framhaldsskóla
Mikið hefur verið rætt og skraf-
að meðal framhaldskólanema,
undanfarin ár, um nauðsyn þess
að viðunandi mataraðstöðu verði
komið upp í framhaldsskólum.
Landsamband mennta- og fjöl-
brautaskólanema hefur um þó
nokkurt skeið haft þetta sem aðal
baráttumál sitt og á síðasta lands-
þingi sambandsins sem haldið var
í október mánuði síastliðnum kom
greinilega í ljós sú samstaða sem
ríkir meðal nemenda á fram-
háldskólastigi um þetta brýna
hagsmunamál. Á þinginu voru
kröfur L.M.F. í mötuneytismálinu
settar fram og baráttan skipulögð.
Landsambandið gerir þær sjálf-
sögð í kröfur að mötuneytum verði
kor iið upp nú þegar í þeim skólum
þar sem mötuneyti er ekki fyrir
hendi í dag. Einnig krefst L.M.F.
þess að hið opinbera greiði launa-
kostnað starfsmanna í mötuneyt-
um framhaldsskólanna, því undir
slíkum kostnaði geta nemendur
ekki staðið sjálfir, en að sjálf-
sögðu myndu nemendur greiða
allan hráefniskostnað.
Aðstaða í hinum ýmsu skólum
aðildarfélaga L.M.F. er mjög
mismunandi. í þeim skólum sem
heimavist er starfrækt er matar-
aðstaða nemenda mjög góð, í
öðrum skólum er aðstaðan mjög
slæm. Ymsir skólar hafa þó vísi að
mötuneytum sem eru þó langt í
frá að vera fullnægjandi. Þá eru
og til þeir skólar sem nemendum
er einungis boðið uppá gos og
sælgæti, í þeim hópi er Flensborg-
arskólinn í Hafnarfirði. Engin
getur, né hefur, borið á móti því að
mötuneyti er nauðsynlegt réttlæt-
ismál nemenda Flensborgarskóla.
Nemendur eru í skólanum óslitið
frá klukkan 8.00 á morgnanna til
klukkan um 4.00 á daginn, eða í
alls átta tíma. Að vísu eru nokkrar
stuttar frímínútur á þessum tíma,
þar á meðal tuttugu mínútna
„matarhlé" í hádeginu sem dugar
því engum nemanda til þess að
fara heim til sín og matast. Þetta
mun vera einsdæmi í þióðfélaginu
að stórum hópi fólks er ekki
gefinn kostur á að matast á sínum
átta stunda vinnudegi.
Aðalstjórn nemendafélgs Flens-
borgarskóla hefur að sjálfsögðu
reynt eftir fremsta megni að
þrýsta á bæjaryfirvöld að hefja
framkvæmdir við mötuneytisað-
stöðu fyrir nemendur Flensborg-
arskóla. Eftir mikla baráttu náð-
ist loks sá áfangi að í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar var lögð fram eftir-
farandi ályktunartillaga af hálfu
bæjarstjórnarmeirihlutans: „í
framhaldi af þeim ráðstöfunum,
sem gerðar hafa verið í Flensborg-
arskóla, í þeim tilgangi að gera
neméndum kleift að kaupa sér
næringu í skólanum, ályktar bæj-
arstjórn, að stefnt skuli að því að
auka og bæta við þá aðstöðu, sem
þar er nú fyrir hendi í þessu efni,
með það markmið í huga, að
nemendur geti átt þess kost að fá
keyptan hollan mat í skólanum.
Skal að því stefnt, að þetta komist
í framkvæmd eigi síðar en í
byrjun vorannar 1980.
Jafnframt skal athugað, hvort
ekki sé unnt, að nemendur og
kennarar hafi sameiginlegt mötu-
neyti og sé tilgangur þeirrar
athugunar að nýta betur eða spara
vinnuafl við þessa starfsemi.
Er bæjarstjóra falið að kanna
þetta mál nánar og fylgja því
eftir."
Eins og sjá má á þessari tillögu
höfðu augu bæjaryfirvalda loks
opnast fyrir þessu sjálfsagða
réttlætismáli. En þessi tillaga var
lögð fram í febrúarmánuði í fyrra
og síðan virðist sem augu bæjar-
stjórnarmeirihlutans hafi eitt-
hvað tekið að lokast þegar nær dró
framkvæmdum því enn í dag mega
nemendur Flensborgarskóla næra
sig á ropvatni og annarri ólyfjan
þessa átta tíma, sem þeir eru í
skólanum. Þrátt fyrir það að
framkvæmdir séu enn ekki hafn-
ar, leyfðu nemendur sér þó að
vona að gert yrði ráð fyrir fram-
kvæmdum þessum á næstu fjár-
hagsáætlun sem væntanlega verð-
ur afgreidd í þessum mánuði, og
bæjarstjórn stæði þar með við
gefin loforð.
En það virðist þó til of mikils
ætlast. í uppkasti því að fjárhags-
áætlun sem bæjarstjóri hefur gert
er ekki gert ráð fyrir einni einustu
krónu til þessara framkvæmda.
Þrátt fyrir þaö að ekki sé gert
ráð fyrir þessum framkvæmdum í
drögum þeim sem bæjarstjóri
hefur lagt fram, verðum við nem-
endur Flensborgarskóla að vona
að í umræðum um þessi drög
bæjarstjóra í bæjarstjórn og í
bæjarráði, sjái bæjarfulltrúar sér
fært að reyna að hrinda þessu
máli í farsæla höfn hið fyrsta og
að nemendur framhaldsskólanna
geti í framtíðinni setið við sama
borð og aðrir þjóðfélagshópar
hvað varðar mötuneyti.
Emil Lárus Sigurðsson,
Oddviti N.F.F.
Flensborg.
Afríkuför Alis:
Kaldar
kveðjur
í Nígeríu
Lajd fOS, Nairobi 7. febr. AP.
BLÖÐ í Nígeríu fjölluðu
kuldalega um Afríkuför Mu-
hammeðs Ali sama dag og
hann kom þangað. Eitt
blaðanna „Daily Times“
hafði eftir viðskiptafrömuði
nokkrum að Carter sýndi
mikið vanmat á greind Af-
ríkumanna, með þvi að
senda mann eins og Ali sem
væri ekki diplómati. Annað
blað sagði, að Ali væri
stjórnmáladúkka Carters og
för hans til þess eins gerð að
draga athyglina frá
dvinandi vinsældum Carters
með löndum sínum.
Við komu sína til Lagos
sagði Ali að hann væri ekki
svo vitlaus að hann léti
Bandaríkj aforseta nota sig
sem verkfæri og að fráleitt
væri að álykta að hann ynni
gegn hagsmunum svertingja
með þessari för sinni. Hann
kvaðst ekki til Nígeríu kom-
inn til að verja Bandaríkin
heldur til að setja fordæmi í
því að berjast gegn óréttlæti í
heiminum og til þessa sækt-
ist hann eftir stuðningi
svartra bræðra sinna og
systra.
Ekki er ljóst enn, hvort
ráðamenn í Nigeríu fást til að
hitta Ali, en það hefur ekki
tekizt nema í Kenya þar sem
forseti fékkst til að ræða við
Ali.