Morgunblaðið - 09.02.1980, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1980
Nýjar að-
ferðir gegn
hvítblæði
Atlanta, Georgíu, 8. fehrúar. AP.
VÍSINDAMENN við Emory-
háskóla segja að þeir hafi fund-
ið upp nýja aðferð til að rækta
hvítbiæðifrumur í tilraunaglös-
um og að þessi aðferð muni
auðvelda frekari rannsóknir.
Þótt áður hafi tekizt að rækta
hvítblæðifrumur úr börnum sem
ganga með sjúkdóminn segir dr.
Abdel H. Ragab að það hafi
aðeins borið takmarkaðan ár-
angur.
Hann sagði að aðferðin hefði
fundizt við að samræma aðferðir
sem áður hafa verið notaðar til
að rækta aðeins eðlilegar blóð-
frumur í rannsóknarstófum.
Með aðferðinni sé vonað að
takast megi að rækta fleiri
hvítblæðifrumur úr fleiri sjúkl-
ingum.
Vísindamennirnir hafa eink-
um haft áhuga á að finna aðferð
til að rækta hvítblæðifrumur úr
börnum með hvítblæði til þess
að prófa ný lyf. Ragab sagði að
vonir stæðu til að prófa mætti
ný lyf á frumunum sjálfum en
ekki sjúklingunum.
Hann sagði að frumurnar sem
voru ræktaðar í tilraunaglösun-
um 'hefðu verið teknar úr tveim-
ur börnum sem þjáðust af al-
gengustu tegund hvítblæðis.
Ragab segir að vísindamennirnir
reyni að finna lyf eða sambland
af lyfjum sem eyði sýktustu
frumunum þannig að heilbrigðar
frumur verði fyrir sem minnstu
tjóni.
Miklar rigningar hafa verið í suðurhluta Kaliforníu, þótt i sönglaginu fræga segi að aldrei rigni í þeim
heimshluta. Vatnsaginn myndaði viða læki er grófu sig fljótt niður í lausan jarðveginn, og m.a. gróf einn
lækurinn þetta gljúfur í veg á einni nóttu. Átti Tom nokkur Wilson sér einskis ills von er hann ók til vinnu
sinnar einn morguninn, en engu að siður hafnaði bifreið hans ofan i gljúfrinu, sem var 15 metra djúpt.
Bifreið hans eyðilagðist en hann slapp litt meiddur.
Giap víkur í víðtækum
hreinsunum í Víetnam
Bangkok, 8. febrúar. AP
VÍETNAMAR kunngerðu i dag
víðtækar breytingar á stjórninni
í Hanoi og þær gera meðal
annars ráð fyrir að Nguyen Duy
Trinh utanríkisráðherra og Vo
Nguyen Giap landvarnarráð-
herra láti af störfum.
Víetnamska fréttastofan segir að
alls hafi verið gerðar breytingar á
átta ráðherraembættum, en gat
þess ekki hvaða ástæður lægju til
grundvallar. Sérfræðingar segja að
valdamenn í Hanoi hafi að undan-
förnu látið í ljós óánægju með
Mikil flóð í
V -Þýzkalandi
Bonn, 8. febrúar — AP
FLÓÐIN í Rín eru heldur í
rénun en víða flæðir enn yfir
Ákærður fyrir
að hafa myrt
Joy Adamson
Nairobi. 8. febrúar — AP.
FYRRUM starfsmaður metsölu-
höfundarins Joy Adamsons hefur
verið ákærður fyrir að hafa myrt
hana í Nairobi í Kenýa. Hann er
23 ára gamall, heitir Paul Nak-
ware Ekaio og er af Turkunaætt-
flokknum. Joy Adamson rak hann
eftir rifrildi og svo virðist sem
hann hafi myrt hana í hefndar-
skyni. í fyrstu var talið að Joy
Adamson, sem samdi metsölubók-
ina „Borin frjáls", hefði orðið ljóni
að bráð.
(/( !'()Íst
1978 — 11 Rússum vísað úr
landi í Kanada fyrir njósnir.
1977 — Sovétríkin og Spánn
taka upp stjórnmálasamband.
1971 — A.m.k. 64 fórust í
jarðskjálfta í Los Angeles.
1967 — Um 100 fórust í jarð-
skjálfta í Kólombíu.
1962 — Jamaica fær sjálfstæði.
1950 — Joseph McCarthy segir
bandaríska utanríkisráðuneytið
morandi af kommúnistum.
1943 — Orrustunni á Guadal-
canal lýkur með sigri Banda-
ríkjamanna.
1941 — Erwin Rommel sendur
með herlið frá Ítalíu til Norður-
Afríku.
1934 — Balkanbandalagið stofn-
að. j
1898 — Paul Kruger endurkos-
inn forseti Transvaai.
1891 — Menelik keisarí afneitar
bakka. Skipaíerðir um fljótið
hafa verið stöðvaðar og er búist
við að svo verði fram í næstu
viku.
Flóðunum veldur óvenjumildur
vetur í V-Evrópu. Leysingar hafa
verið í Ölpunum og miklar rign-
ingar. í dag rigndi enn og var spáð
áframhaldandi rigningu um helg-
ina.
Við Köln var vatnsborð árinnar
5 metrum hærra en venjulega og í
Bonn náði vatnselgurinn að dyr-
um v-Þýzka þinghússins. Sums
staðar hefur fólk orðið að ferðast
á bátum til að komast leiðar
sinnar. Flóðin hafa orðið einum
dreng að bana. Það var í Bæheimi,
að vatnselgurinn hreif níu ára
gamlan dreng með sér og hefur lík
hans ekki fundist. Tjónið nemur
milljónum marka. Allir flutningar
hafa verið stöðvaðir um Dóná, þar
sem hún rennur um Bæheim og
flæddi hún einnig yfir bakka sína.
tilkalli ítala til verndar Eþíópíu.
1849 — Lýst yfir stofnun lýð-
veldis í Róm undir forystu Mazz-
ini.
1801 — Lunéville-friður Austur-
ríkismanna og Frakka flýtir
fyrir upplausn Hins heilaga
rómverska ríkis.
1788 — Jósef II af Austurríki
segir Tyrkjum stríð á hendur —
Warren Hastings leiddur fyrir
rétt fyrir meinta glæpi á Ind-
landi.
1718 — Franskir landnemar
koma til Louisiana.
1567 — Henry Darnley, eigin-
maður Maríu Skotadrottningar,
myrtur.
1544 — Tilraun Sir Thomas
Wyatts að taka London barin
niður.
Afmæli — L.S. Jameson, suður-
afrískur stjórnmálaleiðtogi
Vo Nguyen Gian
frammistöðu vissra áhrifamanna í
stjórninni og flokknum.
Fréttastofan segir að eftirmaður
Giaps verði Van Tien Dung hers-
höfðingi, höfundur sigurs kommún-
ista í Suður-Víetnam 1975 og sá
maður sem almennt hefur verið
talið að hafi stjórnað ráðuneytinu í
nokkurn tíma.
Eftirmaður Trinhs er Nguyen Co
Thach aðstoðarutanríkisráðherra og
æðsti maður efnahagsmála lands-
ins, Le Thanh Nghi, formaður
skipulagsnefndar ríkisins, hefur 1
orðið að víkja fyrir staðgengli
sínum, Nguyen Lam.
Hins vegar hafa þessir þrír gam-
alreyndu leiðtogar kommúnistabylt-
ingarinnar haldið stöðum sínum
sem varaforsætisráðherrar. Ekki er
ljóst hvort hár aldur og heilsuleysi
séu skýringin á brottvikningu Giaps
og Trinhs eða dugleysi.
Auk þess hefur Tran Quoc Hoan
innanríkisráðherra verið sviptur
embætti og við því tekur Pham
Hung varaforsætisráðherra og
fyrrverandi Viet Cong-Ieiðtogi sem
er fjórði valdamesti maðurinn í
stjórnmálaráðinu.
I tilkynningunni er ekki minnzt á
breytingar í stjórnmálaráðinu, sem
fer með hin raunverulegu völd í
Víetnam, en venjulega fara fram
breytingar á því um leið í svona
tilfellum.
Tveir nýir varaforsætisráðherrar
voru skipaðir — Huu og Lam —
þannig að þeir eru orðnir níu.
Þrír valdamestu mennirnir í
stjórnmálaráðinu halda völdum
sínum óskertum — Le Duan, aðal-
ritari kommúnistaflokksins, Trung
Chinh, forseti þingsins, og Pham
Van Dong forsætisráðherra.
Hingað til hafa hreinsanir ekki
verið algengar í Víetnam og flestir
hinna gömlu leiðtoga sem tóku þátt
í byltingunni hafa verið allsráðandi
— menn eins og Giap, Dong, Duan
og Chinh, enda voru þeir skjólstæð-
ingar Ho Chi Minhs.
Frakkar hundsa
viðræður í Bonn
Bonn, 8. febrúar. AP.
CYRUS Vance utanríkisráðherra
ræðir við utanríkisráðherra
Vestur-þjóðverja, Hans—Dietr-
.9. tebru.ii
(1853—1917) — Anthony Hope,
brezkur rithöfundur (1863—
1933) — Sir Edward Carson,
írskættaður stjórnmálaleiðtogi
(1854-1935).
Andlát — 1881 Fyodor Dost-
oyevsky, rithöfundur — 1894
Adolpe Sax, hljóðfærasmiður.
Innlent — 1827 Kambsránið —
1832 d. Baldvin Einarsson —
1670 d. Friðrik III - 1910 d. Páll
Melsteð — 1939 Vélbáturinn
„Þengill" talinn af með níu
mönnum — 1941 þýzk loftárás á
Ölfursárbrú — 1967 Ríkið semur
um kaup á Viðeyjarstofu — 1972
Geymir Lýsis & Mjöls í Hafnar-
firði rifnar — 1887 f. Jónas
Rafnar.
Orð dagsins — Ekkert getur
skaðað góðan mann, hvorki i lífí
né dauða — Sókrates, grískur
heimspekingur (469—399 f. Kr.).
ich Genscher, 20.—21. íebrúar í
Bonn um Afganistan-málið að
sögn talsmanna Genschers í dag.
Utanríkisráðherrar Bretlands
og Ítalíu munu einnig sitja fund-
inn til að samræma viðbrögð
vesturveldanna við hernámi Rússa
í Afganistan, en í París sagði
talsmaður Frakklandsforseta að
Frakkar myndu ekki sitja þennan
fund.
Talsmaðurinn sagði að Frakkar
væru hlynntir því að halda áfram
samráði við bandamenn sína um
hinar ýmsu hliðar ástandsins í
alþjóðamálum, en teldu að sam-
eiginlegur fundur mundi ekki
stuðla að því að draga úr viðsjám í
alþjóðamálum eins og nú væri
ástatt.
Carter forseti hefur sagt að
Bandaríkin muni beita sér fyrir
því að Ólympíuleikarnir verði
færðir frá Moskvu ef Rússar flytji
ekki herlið sitt frá Afganistan
fyrir 20. febrúar, daginn eftir
ráðherrafundinn.
Diplomatar segja að tilgangur
Bonn-fundarins verði að sam-
ræma viðbrögð vesturveldanna við
innrásinni í Afganistan.
Fréttir
í stuttu máli
Harðnandi
stálverkfall
London. 8. febrúar (AP).
LEIÐTOGAR stálverkamanna
gengu út af fundi með yfirmönn-
um brezka stálfyrirtækisins í
dag. Þeir sögðu að fundurinn
sem átti að binda enda á sex
vikna verkfall stálverkamanna
hefði leitt til þess að verkfallsm-
enn stæðu í sömu sporum og
þegar verkfallið hófst. Ástæðan
væri sú að villt hefði verið um
fyrir þeim og nýtt tilboð hefði
ekki verið lagt fram eins og gefið
hefði verið í skyn.
Skæruliða-
leit
San Sebastian, 8. febrúar (AP).
FRANSKA lögreglan lokaði í
dag landamærunum að Spáni og
leitaði að hryðjuverkamönnum
Baska eftir að hafa tekið einn
æðsta leiðtoga hryðjuverka-
manna, Txomin Iturbe, til fanga
og sært hann í viðureign. Tveir
aðrir skæruliðar samtakanna
ETA voru teknir til fanga, en sá
fjórði slapp.
Konur í
herþjónustu
Washington, 8. febrúar (AP).
JIMMY Carter forseti mun
hvetja til þess að konur verði
skráðar til herþjónustu að sögn
talsmanna hans í dag. Enginn
forseti hefur áður hvatt til slíks.
Carter mun trúlega takmarka
herskráningu við fólk á aldrin-
um 19—20 ára.
Skýrslu illa
tekið
Buenos Aires, 8. febúar (AP).
HERFORINGJASTJÓRNIN í
Argentínu lét í ljós óánægju sína
í dag með skýrslu bandariska
utanríkisráðuneytisins um
mannréttindabrot í landinu og
sagði að slík „afskipti" sköðuðu
samskipti landanna. Ráðuneytið
vísaði þessu á bug og sagði að
samkvæmt bandarískum lögum
ætti þingið að sjá til þess að
slíkar skýrslur væru samdar.
Diplómatar telja að sambúð
þjóðanna versni ekki.
Veður
Akureyri 3 alskýjaó
Amsterdam 10 skýjaö
Aþena 16 heióskirt
Barcelona 13 þokumóóa
Berlin 5 skýjaó
BrUssel 10 skýjaó
Chicago -2 snjókoma
Oublin 8 skýjað
Feneyjar 11 þokumóöa
Frankfurt 8 skýjaó
Qenf 7 heióskírt
Helsinki -9 heiðskírt
Jerúsalem 13 heióskírt
Jóhannesarborg 25 heióskírt
Kaupmannahöfn 1 skýjaó
Las Palmas 25 heiðskirt
Lissabon 17 skýjaó
London 11 rigning
• Los Angeles 23 heiöskírt
Madrid 11 heiðskírt
Malaga 15 skýjað
Mallorca 14 léttskýjaö
Miami 17 heiðskírt
Moskva -9 skýjað
New York 2 heiðskírt
Parí8 11 heiðskírt
Reykjavík 5 lóttskýjaö
Rio de Janeiro 34 skýjaö
Rómaborg 14 heiðskírt
Stokkhólmur -5 skýjað
Tel Aviv 17 heiðskírt
Tókýó 6 akýjað
Vancouver 8 skýjað
Vínarborg 10 skýjað