Morgunblaðið - 09.02.1980, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1980
29
Ummæli norskra blaða
um kvikmyndina Lilju
Stúdentaráð H.I:
Mótmælir inn-
rás Sovétmanna
í Afganistan
STÚDENTARÁÐ Háskóla
íslands heíur gert eftirfarandi
samþykkt um innrás Sovétríkj-
anna i Afganistan:
Við viljum nota þann atburð,
sem er innrás Sovétríkjanna í
Afganistan, til að mótmæla kúgun
og óréttlæti hvar sem er í heimin-
um, til að mótmæla heimsvalda-
stefnu stórveldanna.
Við lýsum yfir stuðningi við
afgönsku þjóðina í baráttu hennar
gegn afturhaldi og kúgun og
hörmum hvernig Afganistan hef-
ur orðið vettvangur valdatafls
stórveldanna.
Við lýsum yfir stuðningi við þau
öfl, sem vinna að umbótum og
róttækum breytingum á afgönsku
þjóðfélagi, sem um aldaraðir hef-
ur einkennst af kúgun og órétt-
læti.
Við mótmælum umfjöllun vest-
rænna fjölmiðla um Afganistan-
málið. Þeir virðast hafa meiri
áhuga á að magna upp kalda-
stríðsáróður en vekja athygli á
eymdarlífi 17 milljón Afgana.
Heldur tón-
leika á Kjar-
valsstöðum
HALLDÓR Haraldsson píanóleik-
ari heldur tónleika á Kjarvals-
stöðum mánudaginn 11. febrúar
næstkomandi í boði stjórnar Kjar-
valsstaða.
Halldór valdi flygilinn sem keypt-
ur var fyrir Kjarvalsstaði í fyrra. Þá
var honum boðið að reyna hljóðfærið
og halda tónleika, en af ýmsum
ástæðum hefur ekki verið hægt að
halda þá fyrr en nú. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20:30 og er öllum
heimill aðgangur á meðan húsrúm
leyfir. Á efnisskránni eru verk eftir
Scubert, Beethoven, Tsjaikovski,
Prókoffíev, Skrjabín og Chopin.
Kvikmyndin Lilja, byggð á
samnefndri sögu Halldórs Lax-
ness, var nýlega sýnd í norska
sjónvarpinu. Blöð í Noregi fjöll-
uðu um myndina í sjónvarps-
gagnrýni sinni og eru mjög
samdóma. Hér fylgir útdráttur
gagnrýni helstu blaða um mynd-
ina.
Dagbladet segir í fyrirsögn:
Gott frá íslandi. Síðan segir í
umsögninni: Síðan var sýnd
stutt kvikmynd frá íslandi,
„Lilja“ eftir samnefndri smá-
sögu Halldórs Laxness. Ég hef
ekki lesið þá sögu, og því get ég
ekki dæmt um, hvort kvikmynd-
in sé gerð í „anda“ sögunnar,
eins og það er orðað. Hins vegar
get ég sagt að þetta var góð
kvikmynd, gædd þeim eiginleik-
um, sem einkenna hina vel
rituðu smásögu: Nákvæmni og
tilfinning sameinast, það mikla í
hinu smáa. Og síðar segir í
umsögninni: Kvikmyndin var
gerð með afburða skynbragði á
miðilinn sjálfan — meira skyn-
bragði en við erum vanir að sjá
úr þessari átt. Hér var til staðar
viðkvæm tilfinning fyrir verkun-
inni, málfræðinni, frá fyrstu
mynd til hinnar síðustu. Ef tekið
er tillit til þess að við eigum að
venjast þröngri og erfiðri fæð-
ingu íslenskra sjónvarpskvik-
mynda var þessi kvikmynd einn-
ig hressandi í þeim skilningi.
Nationen segir í fyrirsögn:
Lilja og útigöngumaðurinn.
Síðan segir í umsögninni: Einnig
var sýnd „Lilja“, stutt íslensk
frásögn, án efa sú besta sem við
höfum fengið þaðan. Myndin var
gerð eftir sögu Halldórs Kiljans
Laxness og var hann sjálfur
sögumaður.
Kvikmyndinni tókst að temja
grundvallaratriðin í frásagnar-
list Laxness: hina einkennilegu
samsuðu hins hrjúfa og óvæmna,
allt að því grófu hnyttni, og
hinnar miklu viðkvæmni undir
yfirborðinu.
Verdens Gang segir í fyrir-
sögn: Tvær góðar stundir. Síðan
segir í umsögninni: Kvikmyndin
einkenndist af dempuðum tóni.
Rödd útigöngumannsins, sem
eitt sinn hafði bundið vonir við
að verða söngvari, var tregðu-
bundin, uppgjöfin var fullkomn-
uð. Nú lifði hann aðeins í
minningunum um konuna sem
hann ekki fékk.
Jafnvel gamanyrði stúdent-
anna og spenningurinn sem
myndast þegar þeir komast yfir
líkið, svo ekki sé minnst á
jarðarförina, hafði yfirbragð
hógværrar sorgar.
Leikstjóranum hafði sannar-
lega tekist að veita okkur Lax-
nessstemmningu, hið ljóðræna
við hlið harðneskjulegs verul-
eika.
Hlutverkunum var skilað lif-
andi í öllum smáatriðum.
Arbeiderbladet segir í fyrir-
sögn: Kvikmynd frá íslandi.
Síðan segir í umsögninni: Islend-
ingar geta sannarlega búið til
kvikmyndir. Virkilega heil-
steyptar kvikmyndir. Við höfum
séð margar atrennur áður, en
aldrei hefur mynd verið gerð af
jafn miklu öryggi og einfaldri
framkvæmd eins og „Lilja" eftir
sögu Halldórs Laxness. Og enn
einu sinni sannreynum við hve
mikilvægt það er fyrir kvik-
myndagerðarmann að byggja á
sönnu skáldi, þegar handrit er
annars vegar. Á sama hátt og við
upplifum að leikstjórnin er allt
sem máli skiptir. Án þess að
skugga sé varpað á hina mörgu
leikara okkar sem við sjáum
vikulega í sjónvarpsleikritum.
Stutt sjónvarpskvikmynd krefst
ákveðinnar og öruggrar hand-
leiðslu, sem þó á ekki að sjást.
Eins og menn vita er ávallt
erfiðast að framkvæma það ein-
falda og augljósa. Þannig kom
„Lilja“ okkur fyrir sjónir; á
tæpum hálftíma endursýnir
myndin allt litróf sögunnar; frá
hjartnæmum og viðkvæmum til-
finningum til kaldhæðni og
fyndni.
Várt Land segir í fyrirsögn:
Örlög útigöngumanns. Síðan
segir í umsögninni: Islenska
sjónvarpið hefur gert góða kvik-
mynd eftir smásögu Halldórs
Laxness. Það var skemmtileg
hugmynd leikstjóra að fá sjálfan
rithöfundinn til að le^a hluta úr
„Lilju" við myndina.
Hrafn Gunnlaugsson náði
góðu jafnvægi milli grófgerðrar
fyndni og ljóðrænnar stemmn-
ingar, með þeim afleiðingum að
samúðin með aðalpersónunni,
útigöngumanninum, var ávallt í
forgrunni. Lausnin ljáði kvik-
myndinni sterkan lokahljóm í
orðknöppum einfaldleik sínum.
Sambandinu milli hins þögla
öldungs og hins skrafhreifa stú-
dents var lýst af mikilli nær-
færni, og vináttan milli
útigöngumannsins og telpunnar
Lilju var dregin upp á hjart-
næman hátt.
Stúlkan og gamli leikarinn
léku hlutverk sín af dásemd, er
þau gengu hönd í hönd meðan
hún hlustaði á sögur hans.
Gagnrýnandinn Nills Magnus
Brugge kallar gagnrýni sína:
Ljóðræna stuttfilmu. Síðan segir
í umsögninni: Hin stutta kvik-
mynd sem aðeins tók um hálf-
tíma í sýningu, hefur hlotið
verðlaun á kvikmyndahátíð í
Reykjavík 1978, og verkaði einn-
ig miklu meir sannfærandi en
nokkuð það, sem sýnt hefur verið
áður af íslenskum kvikmyndum í
norsku sjónvarpi.
Og síðan segir Brugge:
Eins og fram kemur af þessari
stuttu umsögn um söguþráðinn,
var þetta kvikmyndasaga sem
hæglega hefði getað endað í
væmni og sætleika, en gerði það
sem sagt ekki. Þessi stutta
kvikmynd kom til dyranna eins
og hún var klædd, yfirlætislaus
og ljóðræn án allrar væmni og
hinir þokukenndu, hógværu litir
féllu að efninu og undirstrikuðu
hina brothættu ljóðrænu
stemmningu, sem einkenndu
myndina.
Þess misskilnings gætir í um-
fjöllun flestra norsku blaðanna
að kvikmyndin Lilja sé gerð af
íslenska sjónvarpinu. Myndin er
hins vegar einkaframtak nokk-
urra einstaklinga og var ekki
gerð á vegum íslenska sjón-
varpsins.
Kvikmyndahandrit sömdu
þeir Hrafn Gunnlaugsson og
Snorri Þórisson. Hrafn leik-
stýrði en Snorri kvikmyndaði.
Aðstoðarleikstjóri var Guðný
Halldórsdóttir. Hljóðupptaka
var í höndum Jóns Þórs Hann-
essonar og Ragnheiður Harwey
sá um förðun. Dreifingaraðili er
íslenska leikritamiðstöðin.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
að leysa út vörur
fyrir verzlanir og innflytjendur.
Tilboö sendist augl. Mbl. merkt:
„Ú — 4822".
Gerum skattframtöl
einstaklinga
og fyrirtækja. Lögmenn Jón
Magnússon hdt., Sigurður Sigur-
jónsson hdl„ Garöastræti 16,
sími 29411. ,
Skattframtöl —
Reikningsskil
Tek að mór gerö skattframtala
fyrir einstaklinga og minni fyrir-
tæki.
Ólafur Geirsson viösk.fr.
Skúlatúni 6, sími 21673 e. kl
17.30.
Bólstrun
klæðningar
Klæöum eldri húsg., ákl. eöa
leöur. Framl. hvíldarstóla og
Chesterfieldsett.
Bólstr., Laugarnesvegi 52, s.
32023.
Innl. — Erl. frímerki
F.D.C. 4 bl„ heilar arkir, heil
umslög, vélstimpluö umslög. Erl.
frímerkjabækur fyrir byrjendur.
Sími 13468. Pósth. 1308 Rvík.
Heimahverfi
Til sölu 3ja herb. íbúö í háhýsi —
laus strax — tilboð óskast.
Uppl. ( síma 73052 í dag kl.
17619.
□ Akur 5980. 2177=6.
17—19.
Sunnudagur
10.2 kl. 13.00
Strandaganga sunnan Straums-
víkur, Lónakot og víðar, létt
ganga með Einari Þ. Guöjohns-
en. Verð 2000 kr„ frítt f. börn m.
fullorönum. Fariö frá B.S.Í.
benzínsölu.
Myndakvöld í Snorrabæ 13.2.
Ásbjörn Sveinbjarnarson sýnlr.
Árshátíö Útivistar veröur í
Skföaskálanum, Hveradölum,
laugard. 16.2. Farseölar á
skrifst. Útivistar, Lækjarg. 6a,
sími 14606.
Útivist.
KFUM og K Hafnarfirðí,
Kristniboðsvika
Sunnudagur. kristniboössam-
koma í húsi KFUM og K„
Hverfisgötu 15 kl. 8,30. Vitnis-
buröur Jónína Guömundsdóttir.
Ræöumaöur séra Frank M. Hall-
dórsson. Einsöngur Árni Sigur-
jónsson. Mánudagur: kristni-
boösþáttur. Heigi Hróbjartsson
kristniboöi. Ræöumaöur séra
Valgeir Ástráösson. Einsöngur
Helgi Hróbjartsson. Allir vel-
komnir.
Fíladelfía
Almenn barnaguösþjónusta kl.
14.00. Fjölþreytt dagskrá.
Skólastjóri Björg Halldórsdóttir.
Sunnudagaskólar Fíladelfíu.
Barnaguösþjónusta Geröaskóla
kl. 14.00. Sunnudag Njarövík kl.
11.00. Grindavík kl. 14.00. Mun-
iö svörtu börnin. Öll börn vel-
komin.
Kristján Reykdal.
Árshátíð
knáttsþyrnufélagsins Fram verö-
ur haldin laugardaginn 23.
febrúar n.k. i' Átthagasal Hótel
Sögu kl. 19.00. Nánar auglýst
síöar.
Stjórnin.
Kvenfélagiö
Fjallkonurnar
Námskeiö í framsögn í umsjá
Sigríöur Hannesdóttur veröur
haldiö á vegum félagsins. Hefst
það miövikudaginn 13. febrúar.
Uppl. í símum Guðlaug 71727,
Ágústa 74897.
tFERÐAFELAG
'ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SIMAR 11798 og 19533.
Sunnudagur 10.2 kl.
13.00
Stóri-Meitill 500
1. Gönguferð á St. Meitil og
nágrenni hans.
2. Skíðaganga í nágrfenni Meitl-
anna. Fararstjórar Sturla Jóns-
son og Páll Steinþórsson. Verö
kr. 2500 gr. v/bílinn. Fariö frá
Umferöarmiöstöðinni að austan-
veröu.
ATH. Þeir sem eiga .útfylltar
„Feröa- og Fjallabækur" eru
beönir aö koma meö þær á
skrifst. til þess aö nöfn viökom-
andi komist (árbókina 1980.
Feröafélag íslands.
AUGLYSINGASÍMINM ER: .
22480
J»ergtmW«Í!tl>
R:@