Morgunblaðið - 28.02.1980, Page 1

Morgunblaðið - 28.02.1980, Page 1
48 SÍÐUR 49. tbl. 67. árg. FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Sendiráðstaka í Bogota: Halda á þriðja tug diplómata Bogota, 27. febrúar. AP. VOPNAÐIR marxískir skærulið- ar réðust í kvöld inn í sendiráð Dóminikanska lýðveldisins i Kól- umbiu og tóku i gislingu að minnasta kosti 14 sendiherra auk annarra sendiráðsmanna, alls á þriðja tug diplómata. Að sögn utanrikisráðuneytisins i Bogota eru sendiherrar Banda- rikjanna, Dóminikanska lýðveld- isins, Brazilíu. Venezúela, Costa Rica, Mexíkó, Uruguay, Austur- rikis, E1 Salvador, Egyptalands, Guatemala, Haaiti, Sviss og Vati- kansins i gislingu skæruliðanna. Einn hermaður féll þegar skæruliðarnir ruddust inn í sendi- ráðið. I sendiráðinu var móttaka vegna afmælis fullveldis Dóm- inikanska lýðveldisins. Ekki er vitað til að neinn hafi særst í árásinni en samkvæmt fyrstu fréttum sagði, að sendiherra Bandaríkjanna hefði særst, — fengið þrjú skot í sig og væri alvarlega slasaður. Það var síðar borið til baka. Hermenn dreif þegar í stað að sendiráðinu og skutu þá leyniskyttur að þeim. Að sögn sjónarvotta særðust fimm manns, 3 hermenn og tveir veg- farendur. Skelfingu lostnir farþegar Boeing 707-þotuChinaAirlineshlaupaút úr logandi brakinu en þotan hrapaði í lendingu í Manila. Sjá frétt á bls. 16. Simamynd AP Islamabad. 27. febrúar. AP. AFGÖNSK stjórnvöld hafa gripið til umfangsmikilla fjöldahandtaka og margir hafa verið teknir af lifi vegna uppreisnar afgönsku þjóðarinnar síðustu daga, að því er pakistanska fréttastofan APP skýrði frá í dag. Umfangsmiklar kúgunaraðgerðir á I.endur íbúum i nokkrum hverfum Kabúl hafa átt sér stað, að því er fréttastofan skýrði frá, og er sagt að stjórnvöld hafi einbeitt sér að ibúum hverfanna Kakir Khaana, Chadalwal, Sherpur, Pul-e-Baghe-Uoomi og Taimani í Kabúl, en í þessum hverfum hefur andstaðan gegn stjórninni verið mest. Dagblaðið Jang skýrði frá því í kvöld, að nokkur hundruð pólitískir fangar hafi verið fluttir burt úr landi í fangelsi í Sovétríkjunum. Flestir fanganna eru trúarleiðtogar að því er heimildir sögðu. Haft var eftir diplómatískum heimildum að meðal þeirra, sem teknir hafa verið af lífi, sé Maulana Zaibullah, þekktur íslamskur menntamaöur. Fréttastofan hafði eftir uppreisnarmönnum að barist hefði verið af hörku síðustu daga og mannfall verið mikið í liði beggja. Uppreisnarmenn réðust á búðir afg- anskra hermanna í Kabúl og féllu 400 stjórnarhermenn auk þess sem mikið af hergögnum var eyðilagt. Barist er af hörku víðs vegar um landið. Embættismenn í opinberum stofnunum hafa mætt mjög illa til vinnu síðustu daga og lamað stofn- anirnar. Fjölmargar verzlanir voru lokaðar í Kabúl í dag, sjöunda daginn í röð, en að sögn vestrænna diplómata hafa ur.i 20% verzlunar- eigenda opnað á ný. Yfirvöld í Kabúl skipuðu foreldrum að sækja börn sín til fyrrum aðalstöðva leynilög- reglunnar en mörg börn voru hand- tekin í óeirðunum þegar þau köst- uðu grjóti að sovéskum skriðdrek- um. í Washington var haft eftir leyni- þjónustuheimildum, að sovéskar orrustuþotur hafi varpað sprengjum á tvö þorp tvo daga í röð fyrr í mánuðinum vegna þess, að afgansk- ir stjórnarhermenn hefðu drepið 13 sovéska ráðgjafa. Á síðustu vikum hafa borist áreiðanlegar fréttir um að afganskir stjórnarhermenn hafi skotið að sovéskum hermönnum nærri Khos, Kandahar og Herat. Útvarpið í Kabúl skýrði frá því í dag, að uppreisnarmenn hefðu eyði- lagt vegi og matvælabirgðir. Brezka blaðið Evening News birti í dag forsíðufrétt eftir stjórnmálarit- stjóra sinn, John Dickinson, þar sem hann skrifaði um þreifingar sov- éskra stjórnvalda til að koma samn- ingaviðræðum af stað. „Áþreifingar koma- frá sovéskum ráðamönnum, nákomnum Brezhnev forseta,“ skrifaði Dickinson og ennfremur: „Þeir koma með þá óvæntu tillögu, að kannað verði hvort friðargæzlu- sveitir Sameinuðu þjóðanna verði sendar til Afganistans." Það sem þykir renna stoðum undir frétt Evening News er, að líkur benda til að Victor Louis, sovéskur borgari, sé heimildamaður blaðsins en sovésk stjórnvöld hafa stundum kosið að koma ýmsum áþreifingum á fram- færi með hans hjálp. Fréttir hafa áður birst í Evening News eftir Victor Louis. Zimbabwe — Rhódesía: Prófkjörin í New Hampshire: Reagan og Carter sigruðu Concord. 27. febrúar. AP. JIMMY Carter, forseti Banda- ríkjanna. vann sigur á helsta andstæðingi sínum. Edward Kennedy. í prófkjöri demókrata í New Hampshire. í prófkjöri repúblikana vann Ronald Reag- an nokkuð óvæntan stórsigur yfir helsta keppinaut sínum. George Bush. „Við höldum baráttunni áfram. Fyrir fjórum árum lýsti Carter sig sigurvegara eftir að hafa fengið 28% atkvæða. Nú fengum við næstum 40% at- kvæða og lýsum yfir sigri,“ sagði Edward Kennedy á fundi með stuðningsfólki sínu. Úrslit prófkjörsins urðu: Demókratar: Jimmy Carter 53.586 eða 49% atkvæða. Hlaut 10 fulltrúa. Edward Kennedy 41.540 eða 38% atkvæða. Hlaut 9 fulltrúa. Jerry Brown 10.727 eða 10% atkvæða. Carter hefur unnið 55 fulltrúa á flokksþingið, Kennedy 36 og Jerry Brown engan, en til að fá meirihluta fulltrúa þarf 1666 atkvæði. Repúblikanar: Ronald Reagan 72.940 eða 50% atkvæða. Hlaut 13 fulltrúa. George Bush 33.471 eða 23% atkvæða. Hlaut 5 fulltrúa. How- ard Baker 18.832 eða 13% at- kvæða. Hlaut 2 fulltrúa. John Anderson 14.706 eða 10% at- kvæða. Hlaut 2 fulltrúa. Philip Crane 2.628 eða 2% atkvæða. John Connolly 2.241 eða 2% atkvæða. Bob Dole 608 atkvæði. Til að fá meirihluta fulltrúa þarf 998 atkvæði á flokksþing- inu. George Bush og Ronald Reagan hafa báðir unnið 22 fulltrúa, aðrir minna. Sjá grein Önnu Bjarnadóttur. fréttaritara Mbl. í VVashingtun. um prófkj(>rin í New llamp- shire á hls. 17. Fjöldaaf tökur og handtökur í Kabúl Meir en 800 þúsund kusu á fyrsta degi Salisbury, 27. febrúar. AP. YFIR 800 þúsund svartir íbúar Zimbabwe-Rhódesíu streymdu í dag til kjörstaða og greiddu atkvæði á fyrsta degi kosninganna í landinu. Alls staðar voru langar bið- raðir fyrir framan kjörstaði, allt upp í fjögurra kílómetra langar. Hvarvetna mátti sjá vopnaða verði gráa fyrir járnum. Ótti um ofbeldi og hryðjuverk hefur hingað til reynst ástæðulaus en kjör- fundir standa í þrjá daga. Kjörsókn á fyrsta degi kosn- inganna nú var mun meiri en í fyrra þegar skæruliðaforingjarnir Joshua Nkomo og Robert Mugabe tóku ekki þátt í kosningunum. Alls eru tæplega 3 milljónir svartra íbúa landsins á kjörskrá. Kosið er um 80 þingsæti af 100 en hvíti minnihlutinn hefur þegar kosið 20 þingmenn og vann flokkur Ian Smiths öll þingsætin. Einu vand- ræðin, sem spurðist um, var að brezkir eftirlitsmenn áttu fullt í fangi með að halda unglingum innan 18 ára aldurs frá því að kjósa. Hvarvetna fögnuðu íbúar landsins kosningunum. „Ég kaus frið,“ sagði einn kjósandi í Salis- bury og annar í Bulawayo sagði: „Ég kom á kjörstað til að binda enda á stríðið." Svartir kjósendur í úthverfi Salisbury taka í hönd Soames, lávarði, landstjóra Breta i Zimbabwe-Rhódesíu. stmamynd ap.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.