Morgunblaðið - 28.02.1980, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980
Kemur gagntil-
boð frá ríkinu?
SÁTTAFUNDUR var haldinn
í gær milli samninganefndar
ríkisins og samninganefndar
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja. Fundurinn var stuttur, þar
sem samninganefnd ríkisins ósk-
aði eftir frestun á fundinum, þar
til ríkisstjórnin hefði fjallað um
kjaramál opinberra starfsmanna
og samkvæmt upplýsingum Bald-
urs Kristjánssonar, blaðafulltrúa
BSRB er búizt við því að fjármál-
aráðherra afhendi gagntilboð á
föstudag eða mánudag.
Búizt er við, að ríkisstjórnin
muni fjalla um samningamálin á
fundi sínum í dag. Samningamenn
BSRB hafa á undanförnum sáttaf-
undum lýst þeirri skoðun sinni, að
næsti leikur í málinu væri, að
ríkisvaldið gerði BSRB gagntilboð.
Á sáttafundinum í gær óskuðu
fulltrúar ríkisins eftir frestun á
meðan ákvörðun yrði tekin um
gagntilboð.
Svo sem menn rekur minni til,
sagði Ragnar Arnalds, fjármála-
ráðherra í samtali við Morgun-
blaðið fyrir skömmu, að ekkert
svigrúm væri nú til grunnkaups-
hækkana miðað við þær ströngu
verðlagsforsendur, sem menn
hefðu sett sér. Verðlagsforsend-
urnar eru í málefnasamningi
ríkisstjórnarinnar og segir þar að
verðlag megi ekki hækka umfram
8% hinn 1. marz, 7% hinn 1. júní
og 5% hinn 1. september. Banda-
lag starfsmanna ríkis og bæja
hefur gert kröfu um grunnkaups-
hækkun, sem er á bilinu frá 18%
og upp í 39%.
Mik Magnússon blaðafulltrúi varnarliðsins:
Viðvörunarkerfið ekki byggt
Skin milli skúra.
Ljósm. Mbl. RAX.
Upp á bjöllum á staðnum Guðmundur Bjarnason alþingismaður:
Þingflokkur framsóknarmanna
mat bindingu Byggðasjóðs til-
vinnandi vegna samstöðunnar
„ÞETTA aðvörunarkerfi er ekki
þannig. að á staðnum séu tengdar
einhverjar bjöllur, sem hringja,
heldur gefur það merki inni í
Friðjón Sigurðsson skrifstofustjóri
Alþingis.
stjórnklefanum hjá varðmönnun-
um,“ sagði Mik Magnússon, blaða-
fulltrúi varnarliðsins í samtali við
Mbl. í gær vegna þeirra ummæla
Magnúsar Gíslasonar í samtali við
Mbl„ að hann hefði ekki heyrt
þjófabjöllu hringja áður en her-
menn komu og bcindu byssum að
honum og starfsfélaga hans í fjar-
skiptastöðinni í Rockville.
Þá sagði Mik, að aðvörunarkerfið
væri búið rafhlöðum, sem kæmu til,
ef rafmagn færi af einhverjum
ástæðum af byggingunni, en í henni
væri auk þeirrar geymslu, sem þeir
Magnús fóru í, tollvörugeymsla og
hennar vegna væri aðvörunarkerfið.
„Þetta er mjög leiðinlegt atvik,"
sagði Mik. „Staðreyndin er hins
vegar sú, að af einhverjum ástæðum
fór viðvörunarkerfið í gang og varð-
mennirnir brugðust við eins og
reglur mæla fyrir um, ef aðvörun-
arkerfið gerir viðvart um innbrot
eða skemmdarverk."
Friðjóni Sigurðssyni
veitt „kommandör“-orðan
MARGRÉT Danadrottning hefur
sæmt Friðjón Sigurðsson, skrif-
stofustjóra Alþingis, svonefndri
„kommmandor“-orðu af Danne-
brog.
Sendiherra Dana afhenti Frið-
jóni orðuna í gær við athöfn að
viðstöddum m.a. forsætisráðherra
og forseta sameinaðs alþingis.
„ÞAÐ VAR nokkur andstaða í
þingflokknum gegn þvi að binda
Byggðasjóð á þennan hátt, en okk-
ur fulltrúum Framsóknarflokksins
1 fjárhags- og viðskiptanefnd efri
deildar var falið að leita samkomu-
lags um málið. Það gerðum við. Það
má svo sem segja, að við framsókn-
armenn höfum teygt okkur langt tii
að skapa sem breiðasta samstöðu
um málið, en það var mat þing-
flokksins að slíkt væri tilvinnandi í
þessu tilfelli,“ sagði Guðmundur
Bjarnason alþingismaður, er Mbl.
ræddi við hann i gærkvöldi, en i
leiðara Tímans í gær er fjallað um
samkomulag það, sem tókst með
framsóknarmönnum, alþýðubanda-
lagsmönnum og sjálfstæðismönnum
varðandi 3ja milljarða króna útveg-
un til útflutningsuppbóta.
I leiðara Tímans segir m.a.:
„Hið sanna í málinu er að and-
stæðingar Byggðasjóðs á Alþingi, og
þeir eru allt of margir þar, höfðu í
hyggju að binda fjármagn sjóðsins
fyrirfram með sérstakri samþykkt
Alþingis, þvert ofan í þá staðreynd
að sjóðurinn er sjálfstæð stofnun í
opinberri eigu og stjórn hans á að
fara með þá fjármuni sem henni er
falið að ráðstafa."
Og ennfremur segir m.a. í leiðar-
anum:
„Framsóknarmenn eru því and-
vígir að fé Byggðasjóðs verði með
einu pennastriki þessara aðila bund-
ið, enda hefur sjóðurinn ærnu hlut-
verki að gegna og sú aðferð hæpin að
skylda þannig sjálfstæða stofnun
sem á að ráðstafa fjármagni sínu
samkvæmt eigin skipulagsreglum.
Ef ekki verður samkomulag um
annað mundu framsóknarmenn þó
o
INNLENT
Jón og Margeir náðu jöfnu
gegn erlendu stórmeisturunum
Skákmeistararnir á Reykja-
víkurskákmótinu voru jafntefla-
glaðir í 4. umferðinni, sem tefld
var á Hótel Loftleiðum í gær-
kvöldi. Fjórum af sjö skákum
lyktaði með jafntefli.
Fyrstir til að ljúka sinni skák
urðu Torre og Miles, sem sömdu
stórmeistarajafntefli eftir 15
leiki. Byrne og Schiissler skiptu
upp á mönnom í gríð og erg og
þeir sömdu einnig jafntefli eftir
32 leiki. Stórmeistarinn Vasjukov '
og Margeir Pétursson tefldu litlu
lengur og jafntefli var samið eftir
36 leiki. Góður árangur hjá Mar-
Naln 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. Vlnn.
25« t W. BfOwnelBandar i B 1 Vi Vi 'h 2Vi
2530 2. R. Byme (Bandar.) 0 ■ 'h 0 1 1%
2420 3. H. Sctiússlef (Svtijód) 'h 'h Vi 'h 2
2435 4. Jón L. Árnason 'k 'h 'h 'h 2
2475 5. Guómundur Sigurjónsson 0 'h 'h 0 1
2545 6. A. Miles (England) 1 Vi 1 'h 3
2425 7. Margeir Pétursson 0 1 1 Vi 2Vi
2445 8. Helgi Ólalsson 1 Ví 1 0 l'h
2405 9. K. Helmers (Noregur) 0 0 'h 0 'h
2425 10. Haukur Angantýsson 1 'h 0 0 1»
2545 11. E. Vasjukov (Sovélr.) 'h 'h ð 'h 1»
2520 12. E.Torre(Fillppseyjar) 'h 'k 'h 'h 2
2535 13. V. Kupreitshilc (Sovétr.) 1 'h 'h 1 3
2545 14. G.Sosonko(HoHandi) 0 1 1 2Vi
StaAan að loknum fjórum umferðum.
geiri, sem stýrði svörtu mönnun-
um. Jón L. Árnason stýrði einnig
svörtu mönnunum gegn stór-
meistaranum Browne og eftir að
Browne hafði yfirsést vinnings-
leið í tímahraki mátti hann telj-
ast góður að halda jöfnu gegn
Jóni.
Sosonko var ekki lengi að inn-
byrða vinninginn gegn Helmers,
en sá síðarnefndi gaf taflið í 24.
leik. Guðmundur Sigurjónsson
lenti í ævintýri gegn Kupreichik.
Skák þeirra tefldist eins og skák,
sem Guðmundur tefldi í telex-
keppninni við Áustur-Þjóðverja
1978. Þá stýrði Guðmundur hvítu
mönnunum en í gærkvöldi hafði
hann svart. Hann taldi að and-
stæðingi sínum í telexkeppninni
hefði yfirsést vænleg leið og
reyndi hana nú gegn Kupreichik
en þegar til kom stóðust ekki
áætlanir Guðmundar og hann
varð að gefa skákina eftir 42 leiki.
Áhorfendur fylgdust spenntir
með skák Hauks Angantýssonar
og Helga Ólafssonar. Eftir 35 leiki
var staðan þessi og flestir töldu
jafnteflið blasa við.
En skákin tefldist svona: 36.
Hb6 - Bf3, 37. Bc5 - Be2!, 38.
Kf2 - Dg4, 39. Hb7+ - Kf6, 40.
Hb6+ og gaf um leið. Menn sögðu
að Haukur tefldi aðeins til vinn-
ings, aldrei til jafnteflis, en þarna
virðist hann hreinlega hafa teflt
til taps.
Sjá skákþátt á bls. 32.
leggja þyngsta áherslu á að málið fái
farsælan framgang sem fyrst."
Mbl. spurði Guðmund, hvort hann
teldi að meirihluti þingflokks fram-
sóknarmanna hefði verið því and-
vígur að binda Byggðasjóð í þessu
sambandi: „Ég þori ekki að segja af
eða á um það,“ svaraði Guðmundur.
„Það fór engin atkvæðagreiðsla
fram.
En andstaða framsóknarmanna
gegn slíkri bindingu Byggðasjóðs er
ekkert ný af nálinni. Þegar sjálf-
stæðismenn báru fram tillögu um að
Byggðasjóður greiddi þetta, þá voru
framsóknarmenn á móti og Stefán
Valgeirsson stóð þá m.a. að tillögu
um að ríkið greiddi þetta allt, ef ég
skil rétt það, sem gerðist á Alþingi
áður en ég tók þar sæti.
Þegar ljóst var að ekki næðist
þessi breiða samstaða um annað en
að Byggðasjóður væri að einhverju
leyti inni í myndinni, þá lögðum við
framsóknarmenn áherzlu á að fá
heimildarákvæði í frumvarpið en
ekki skyldu og einnig vildum við fá
inn orðalagið „að einhverju leyti“.
En það sem samkomulag varð svo
um var að skylda Byggðasjóð til að
greiða allt að helmingi upphæðar-
innar og hvað það orðalag varðar, þá
legg ég áherzlu á „allt að helmingi“.“
Mbl. spurði Guðmund, hvort ekki
hefði að hans mati átt að vera hægt
að afgreiða málið fyrir þinghlé.
Hann sagði: „Við álitum að þetta
ætti að geta farið svona í gegn.
Það var svo mat ráðherranna, sem
réð, og ég vil ekki tjá mig um það. Ég
legg hins vegar áherzlu á, að í þessu
þinghléi verði unnið að málinu og
eftir yfirlýsingum manna að dæma,
þá á það að geta fengið skjóta
afgreiðslu, þegar þing kemur saman
á ný.“
Símasambands-
laust við Snæ-
fellsnes utanvert
SÍMASAMBANDSLAUST hefur
verið við Snæfellsnes utanvert
síðan í fyrrakvöld og mikil trufl-
un á vali til Suðurlands síðan á
mánudagsmorgun.
Loftlína til Grundarfjarðar bil-
aði um áttaleytið í fyrrakvöld og
um tveimur tímum seinna varð
bilun í fjölsímanum frá Stykkis-
hólmi til Ólafsvíkur og þá einnig
sambandslaust við staði utar á
nesinu.
Á Suðurlandi varð bilun á streng
milli Hvolsvallar og Selfoss sem
olli verulegum truflunum á sjálf-
virku vali inn á Suðurlandssvæðið.