Morgunblaðið - 28.02.1980, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980
Meirí kraftur
minni eyösla
meö
rafkertunum
frá BOSCH
BOSCH
BRÆÐURNIR ORMSSON %
^rA [flCMljia 9 SÍMI 38820
VARAHLLTIR
PRLSTOLITE KERTI
OLÍLSIGTI
LOFTSIGTI
BREMSLKLOSSAR
BREMSLBORÐAR
ALRHLÍFAR
HOSLKLEMMLR
BLOKKÞÉniR
\ A I NSK ASSAÞÉ LIIR
HOLTSCATALOY
BODY EYLI.IR
PAKKMNGARLÍM
Gl N — GL.M
EIRE - GLM
PLST ÞÉTTIEFNI
PLSTKI EMMLR
GEWIASAMBO.ND
GEYMASKÓR
INNSOGSBARKAR
KERTAIA KLAR
EELGl KROSSAR
II MGLOS
DEKKJAHRINÍ.IR
LOETD.ELl R
«»g inargt fldra.
Sondum í póstkrnfu um
land allt.
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20 SIMI 84633
A.
jSKIPAUTGCBB RÍKISINS
M/s Baldur
fer frá Reykjavík þriöjudaginn
4 mars og tekur vörur á
eftirtaldar hafnir: Þingeyri. Pat-
reksfjörð, (Tálknafjörð og
Bíldudal um Patreksfjörð) og
Breiöafjarðarhafnir
Vörumóttaka alla virka daga til
3 mars
HITABLÁSARAR
Útvarp í kvöld klukkan 22.30:
Tuttugasti og annar
lestur Passíusálma
Lestur Passíusáima er á
dajjskrá útvarps í kvöld kiukkan
22.30. eins og venia er til fyrir
páska ár hvert. I kvöld er á
dagskrá 22. lestur.
Höfundur Passíusálmanna, séra
Hallgrímur Pétursson, er talinn
hafa fæðst að Hólum í Hjaltadal
eða þar í grennd um 1614, en faðir
hans var hringjari á Hólum. Hóf
Hallgrímur nám í Hólaskóla þegar
hann hafði aldur til, en skömmu
síðar varð honum á að yrkja
kersknivísur um fyrirmenn á
staðnum. Má þar til dæmis nefna
eftirfarandi vísu um Arngrím
Jónsson lærða:
Eins og forinn feitur,
fénu mörgu hjá
stendur strembileitur
stórri þúfu á,
þegir og þykist frjáls
þetta kennir prjáls
reigir hann sig og réttir upp
rófuna til hálfs
sprettir úr sporum með státi
og sparðar af gravítáti.
Kveðskapur þessi varð til þess,
að Hallgrímur varð að hætta námi
við Hólaskóla og mun hann síðan
hafa ferðast til Danmerkur.
Herma sagnir, að hann hafi kom-
ist í þjónustu járnsmiðs í Kaup-
mannahöfn eða Glúkstad, en verið
losaður úr vistinni af Brynjólfi
Sveinssyni sem heyrði ragnið í
Hallgrími út á götu og rann á
hljóðið. Kom Brynjólfur Hallgrími
í Frúarskólann, og var hann kom-
inn að því að ljúka námi þaðan,
þegar fólk það, sem keypt hafði
verið laust frá Alsír, kom þangað
árið 1636. Var Hallgrímur fenginn
til að rifja upp guðsorð með þessu
fólki. Festi haiin ást á einum
þessara nemanda sinna, Guðríði
Símonardóttur, sem þó var tíu
árum eldri en Hallgrímur, hvarf
frá námi og fylgdi henni til
íslands. Guðríður var reyndar gift
kona, og hafði maður hennar orðið
eftir á Islandi, en hún taldi hann
dáinn. Var það lán þeirra Guð-
ríðar og Hallgríms, að maður
hennar dó um svipað leyti og þau
komu út, en sambúð þeirra hefði
ella talist mjög alvarlegur frillu-
lifnaður.
.
Ilallgrímur Pétursson. Mynd-
in er gerð af séra Hjalta
Þorsteinssyni í Vatnsfirði, ef
til vill teiknuð eftir minni.
Fyrstu árin eftir heimkomuna
bjuggu þau á Suðurnesjum að því
er virðist við mjög þröngan kost,
en árið 1644 vígði Brynjólfur
biskup Hallgrím til Hvalsnesþinga
og gaf honum um leið prestbúnað
allan svo og hest með reiðtygjum.
Er mælt, að sumum stórútvegs-
bændum þar syðra hafi þótt held-
ur óvirðing að því að hafa svo
fátækan prest sem Hallgrímur
var, og því hafi þeir heldur amast
við honum. Hvalsnesprestakalli
gegndi Hallgrímur uns honum var
veitt Saurbæjarprestakall í Hval-
firði árið 1651. Hallgrímur var
prestur í Saurbæjarþingum uns
hann baðst lausnar frá prestskap
árið 1669. Hann andaðist að Fer-
stiklu 27. október 1674. Banamein
hans var holdsveiki, og hafði
Hallgrímur kennt þess meins um
alllangt skeið. Guðríður Símonar-
dóttir (Tyrkja-Gudda) lifði mann
sinn, en hún dó 18. desember 1682.
Hallgrímur Pétursson er eitt
mesta trúarskáld þjóðarinnar frá
öndverðu. Þekktasta verk hans eru
Passíusálmarnir 50, en þeir hafa
ásamt Vídalínspostillu átt ríkan
þátt í að móta trúarlíf þjóðarinn-
ar. Þá hefur sálmur Hallgríms,
Allt eins og blómstrið eina, verið
sunginn yfir moldum flestra
íslendinga um þriggja alda skeið,
ef til vill fyrst við jarðarför
Ragnheiðar Brynjólfsdóttur bisk-
ups. Af öðrum þekktum verkum
Hallgríms má nefna Aldarhátt,
Leirkarlsvísur, og Heilræðavísur
(Ungum er það allra best). (Byggt
á íslandssögu Lýðs Björnssonar).
Leikrit vikunnar í útvarpi:
Italskur, ósvikinn gamanleikur
í útvarpi í kvöld. fimmtudags-
kvöld 28. febrúar klukkan 20.10.
verður flutt leikritið „Stúlkan á
svölunum" eftir ítalska höfund-
inn Eduardo Anton. Þýðinguna
gerði Árni Guðnason. en Baldvin
Halldórsson er leikstjóri.
Meðal leikenda má nefna Helgu
Bachmann, Þorstein O. Stephen-
sen, Helgu Valtýsdóttur, Jón Sig-
urbjörnsson, Erling Gíslason og
Nínu Sveinsdóttur. Leikritið, sem
er rösk klukkustund að lengd, var
áður flutt í útvarpinu 1963.
Læknir sest að í litlu þorpi, þar
sem kjaftasögur ganga manna
milli, og ekki er Lidía, ráðskona
læknisins, barnanna best. Ung
stúlka í þorpinu, Bernardína, er
alltaf að sjá karlmenn á hælunum
á sér.
Að dómi flestra þorpsbúa er
hún ekki neitt augnayndi, og þar
að auki stamar hún. En það er
hægt að læknast af stami með
ýmsu móti...
Þetta er ósvikinn gamanleikur,
eins og svo margir aðrir eftir
Eduardo Anton. Utvarpið hefur
flutt tvö önnur leikrit eftir hann,
„Unnustu fjallahermannsins" 1962
og „Ásýnd ófreskjunnar" 1967.
Útvarp Reykjavík
FIM41TUDIkGUR
28. febrúar
MORGUNINN___________________
7.00 Voðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. (8.00
Fréttir).
8.1 i) \ eðurfregnir. Forustugr.
daghl. (útdr.). Dagskrá.
Tónleikar.
8.15 Tilkynningar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Ilallveig Thorlacius heldur
áfram að lesa „Sögur af
Ilrokkinskeggja" f endur-
sögn K.A. Miillers og þýð-
ingu Sigurðar Thorlaciusar
(8).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Morguntónleikar.
Kammersveitin í Wurttem-
berg leikur Tvær litlar sin-
fóníur eftir William Boyce;
Jorn Faerber stj. / Arthurs
Grumiaux og Nýja fílharm-
oníusveitin í Lundúnum
leika Fiðlukonsert nr. 1 í
d-nioll eftir Felix Mendels-
sohn.
11.00 Verzlun og viðskipti.
IJmsjón: Ingvi Hrafn Jóns-
son.
11.15 Tónleikar.
Þulur velur og kynnir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tii-
kynningar.
SIDDEGID_____________________
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Tónleikasyrpa. Léttklassísk
tónlist. dans- og dægurlög og
lög leikin á ýmis hljóðfæri.
14.45 Til umhugsunar.
Þuríður J. Jónsdóttir félags-
ráðgjafi fjallar um fíkniefni.
15.00 Popp.
Páll Páísson kynnir.
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Tónlistartími barnanna.
Stjórnandi: Egill Friðleifs-
son.
16.40 Útvarpssaga barnanna:
„Dóra verður átján ára“ eft-
ir Ragnheiði Jónsdóttur. Sig-
rún Guðjónsdóttir les (3).
17.00 Síðdegistónleikar.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og
dagskrá
20.40 Reykjavikurskákmótið
Friðrik ólafsson flytur
skákskýringar.
20.55 Prúðu leikararnir
Gestur leikbrúðanna að
þessu sinni er leikkonan
Dyan Cannon. Þýðandi
Þrándur Thoroddsen.
21.20 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður nelgi E.
Ilelgason fréttamaður.
Sylvia Sass syngur Tvær
aríur úr óperum eftir Giu-
seppe Verdi með Sinfóníu-
hljómsveit Lundúna; Lam-
berto Gardelli stj. / Sinfóníu-
hljómsveit íslands leikur
„Sögusinfóníuna" op. 26 eft-
ir Jón Leifs; Jussi Jalas stj.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
KVÖLDIÐ
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál.
Helgi Tryggvason fyrrum yf-
irkennari flytur þáttinn.
19.40 íslenzkir einsöngvarar
og kórar flytja.
22.20 Hver mun bjarga börn-
um okkar?
Bandarisk sjónvarpskvik-
mynd. Aðalhlutverk Shir-
ley Jones og Len Cariou.
Foreldrar Marjory og
Tommy eru gersamlega
ófærir uppaiendur og því
er bornunum komið fyrir
hjá barnlausum hjónum,
Söru og Matt. Þeim þykir
brátt afar vænt um börnin
og gera ráðstafanir til að
ættleiða þau, en þá koma
foreldrarnir til sögunnar
og taka börnin frá þeim.
Þýðandi óskar Ingimafs-
son.
23.55 Dagskrárlok
20.10 Leikrit: „Stúlkan á svöl-
unum" eftir Eduardo Anton.
Áður flutt árið 1963. Þýð-
andi: Árni Guðnason. Leik-
stjóri: Baldvin Halldórsson.
Persónur og leikendur:
Bernardína/Helga Bach-
mann, Faðir hennar/Jón
Sigurbjörnsson, Móðir
hennar/Helga Valtýsdóttir,
Tína/Margrét Guðmunds-
dóttir, Vittorio/Erlingur
Gíslason, Læknirinn/Þor-
steinn ö. Stephensen. Aðrir
leikendur: Þóra Friðriks-
dóttir, Flosi Ólafsson og
Nina Sveinsdóttir.
21.15 Einsöngur í útvarpssal:
Eiður Ágúst Gunnarsson
syngur tvö íslenzk þjóðlög
og lög eftir Þórarin Guð-
mundsson og Sigvalda
Kaldalóns. ólafur Vignir Al-
bertsson leikur á pianó.
21.45 Leikkona í meira en
hálfa öld.
Þóra Borg heldur áfram
frásögn sinni af eigin lífi og
starfi í viðtali við Ásdisi
Skúladóttur.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.30 Lestur Passíusálma (22).
22.40 Að vestan.
Finnbogi Hermannsson
kennari á Núpi í Dýrafirði
sér um þáttinn, þar sem
fjallað er um öldrunarmál.
Rætt við þrjá ísfirðinga:
Guðmund Ingólfsson forseta
bæjarstjórnar, Rannveigu
Guðmundsdóttur félags-
ráðgjafa og séra Jakob
Iljálmarsson.
23.05 Kvöldstund
með Sveini Einarssyni.
✓ 23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
SKJÁNUM
FÖSTUDAGUR
29. febrúar