Morgunblaðið - 28.02.1980, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980
7
Bragögæöi
stjórnar-
sáttmálans
í leiðara Þjóöviljans sl.
þriðjudag er greint frá
fögnuði flokksróðsfundar
Alþýðubandalagsins með
efnisatriði stjðrnarsátt-
mála núverandi ríkis-
stjórnar. Það sem einna
mesta kæti vakti hjá
kommúnistum, að sögn
Þjóövíljans, var m.a.:
• Komið er í veg fyrir
byggingu nýrrar flug-
stöðvar á Keflavíkur-
flugvelli.
• Hraða ber störfum ör-
yggismálanefndar „til
þess að betri grundvöllur
skapist" fyrir mati „á eðli
herstöövarinnar," eins og
það er oröað.
• Ásókn erlends fjár-
magns í íslenzkt atvinnu-
l(f „er stöðvuð".
• „Styrkur Alþýðu-
bandalagsins andspænis
þessum flokkum,“ þ.e.
lýðræðisflokkunum, „og
stéttarlegum samherjum
þeirra kemur fram í því
stöðvunarvaldi sem Al-
þýðubandalaginu hefur
tekizt að skapa ...“
Síöan er vitnað til sam-
þykktar flokksráðsins um
stuðning við ríkisstjórn-
ina „svo lengi sem ríkis-
stjórnin framfylgir þeirri
stefnu, sem um hefur
verið samið“l
19 skattaukar
á 13 mánuöum
Síðasta vinstri stjórnin,
sem sat í 13 mánuði,
lagði á 19 nýja skatta og
skattauka: 1) hækkun
sérstaks tímabundins
vörugjalds úr 16 í 30% á
tilteknar vörutegundir, 2)
sérstakan tekjuskatts-
auka á einstaklinga, 3)
sérstakan tekjuskatts-
auka á félög, 4) eignar-
skattsauka á félög og
einstaklinga, 5) sérstakt
gjald á sölu feröagjald-
eyris, 6) hækkun eigna-
skattshlutfalls einstakl-
inga úr 0,8% í 1,2%, 7)
hækkun eingaskattshlut-
falls félaga úr 0,8% í
1,6%, 8) afnám verðstuð-
ulsfyrningar í atvinnu-
rekstri, 9) afnám flýtifyrn-
ingar á fasteignum, 10)
lækkun flýtifyrningar-
hlutfalls, 11) nýtt 50%
skattþrep (í stað skyldu-
sparnaðar), 12) hækkun
skatthlutfalls félaga í
65%, 13) hækkun á mati
eigin húsaleigu til tekju
skatts, 14) hækkun vöru-
gjalds úr 16 í 18%, 15)
nýbyggingargjald á hús-
næði annað en íbúðar-
húsnæði, 16) sérstakan
skatt á verzlunar- og
Svipmvnd frá Alþingi
skrifstofuhúsnæði, 17)
hækkun flugvallaskatts,
18) almennt vörugjald
hækkað úr 18 í 24% og
19) almennur söluskattur
hækkaöur úr 18 í 20%.
Engin ríkisstjórn hefur
afrekað svo miklu í skatt-
álagningu á svo skömm-
um tíma og samtímis
rekið ríkissjóð með jafn
risavöxnum halla, en
hvort tveggja var sam-
virkandi í stigmögnun
verðbólgu, sem tókst
með „ágætum".
Loforö
Sjálfstæöis-
þingmanna
Frambjóðendur Sjálf-
stæöisflokks lofuðu því
hátíðlega, fengju þeir til
þess stjórnunaraöstöðu,
að afnema alla nýja
vinstristjórnarskatta og
skattauka, utan hækkun
söluskatts. Nú hafa
nokkrir þingmenn, sem
kjör hlutu út á þessa
stefnumörkun, aðstööu
til aö fylgja orðum sínum.
Fróðlegt verður að vita,
hve langt þeir komast í
efndum — í samstarfi við
skattasmiðina, ríkisaf-
skipta- og eyðsluflokk-
ana, Alþýðubandalag og
Framsóknarflokk.
Þá er það mörkuð
stefna Sjálfstæðisflokks-
ins að afnema í áföngum
tekjuskatt á almennar
launatekjur. Þess vegna
bíða menn nú spenntir
eftir ákvörðun stjórn-
valda varðandi skatt-
stiga, sem í raun ræöur
þyngd tekjuskattsins, en
hin nýja ríkisstjórn hefur
heitið tillögum þar um
strax upp úr þinghléi,
sem lýkur 10. marz.
Af ávöxtunum skulið
þér þekkja þá, segir
máltækið, og skatta-
ávextir nýrrar ríkisstjórn-
ar koma bráðlega á dag-
inn.
FERMINGARFÖTIN
I AR ERU ÞAÐ ULLARTWEEDFÖT M/VESTI OC COMBI SETT
(FRÁ KR.65000 M/VESTI) SEM STRÁKARNIR VILJA
JAKKARNIR ERU AUÐVITAÐ MEÐ MJÓUM BOÐUNC ENDA
HÁTÍSKAN ÍDAG: EINNIG Á SAMA STAÐ SKYRTUR(KR.5950)/
SKÓR(KR. 21500) OC MJÓ BINDl(KR.3500).
TOKAMOX
bílskúrshurðir
Þær renna hljóðlaust upp undir loft, engin
hætta á að vindhviöur skelli huröinni á bílinn
eöa snjór hindri þær. Þær eru svo léttar, aö
barn getur stjórnaö þeim.
Timburverzlunin
Volundur hf.
KLAPPARSTIG 1 SIMI 18430
/*
— 1x2
26. leikvika — leikir 23. febr. 1980.
Vinningsröö: 11)C — 1XX — 122 — 121
1. vinningur: 11 réttir — kr. 598.000.-
5554 32621 (2/11,6/10)+ 40581 (1/11,6/10)
2. vinningur: 10 réttir — kr . 16.800.
200 3339 9820 11844+ 31159(2/10) 32964(2/10)
273 3708 10433 11845(2/10}+ 31855 33036(2/10)
407+ 4044 10829(2/10>+ 11846+ 32608 34556(2/10)
618 4191 10830+ 11859 32622(2/10) 40156 40951
1332 9202 11778 12516+ 32623(2/10) 40173 41579
2584 9519+ 11848(2/10y+ 30927 32644(2/10) 40914 42215
Kærufrestur er til 17. marz kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera
skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboösmönnum og aðalskrif-
stofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til
greina.
Handhafar nafnlausra seöla verða að framvísa stofni eða senda
stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna
fyrir útborgunardag.
GETRAUNIR — íþróttamiðstöðin — REYKJAVÍK
OPNUM
AFTURIDAG
eftir gagngerar
breytingar
Við bjóöum alla gömlu rót-
grónu viðskiptavinina og
nýja velkomna.
Efnalaugin
Glæsir
Laufásvegi 17—19, sími 18160.