Morgunblaðið - 28.02.1980, Page 16

Morgunblaðið - 28.02.1980, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980 Hreyfill féll af í lendinguimi - 132 af 135 komust lífs af er Boeing 707 hrapaði Manila. 27. febrúar. AP. HREYFILL datt af Boeing 707 flugvél taiwanska flugfélagsins í lendingu á flugvellinum í Manila, eldur kom upp i flugvélinni og sprenging varð í henni, en flug- félagið segir að allir þeir 135 sem voru í vélinni hafi komizt lífs af að þremur undanskildum. Ekkert lík fannst í flugvélinni og bollalagt er hvort þremenn- ingarnir hafi komizt lífs af án þess að tilkynna það yfirvöldum. Sjötíu og fjóra farþega af 124 farþegum sem voru í flugvélinni og sjö af 11 manna áhöfn sakaði ekki í slysinu. Gert var að minni- háttar sárum 10 farþega í sjúkra- húsum og 37 farþegar og fjórir af áhöfninni voru lagðir í sjúkrahús, aðallega vegna brunasára. Flugstjórinn, Wu Hung, sagði, Bóka mark aöur inn Góöar bækur Gamalt verö Fimmtudaginn 28.febrúar frá Föstudaginn 29.febrúar frá Laugardaginn l.marz frá Sunnudaginn 2.marz frá Mánudaginn 3.marz frá Þriðjudaginn 4.marz frá Miðvikudaginn ö.marz frá Fimmtudaginn 6.marz frá Föstudaginn 7.marz frá Laugardaginn 8.marz frá Sunnudaginn 9.marz frá . 9-18 . 9-22 . 9-18 .14-18 . 9-18 . 9-22 . 9-18 . 9-18 . 9-22 . 9-18 .14-18 Bókamarkaöunn SÝNINGAHÖLLINNI ÁRTÚNSHÖFÐA að flugvélin hefði tekið óvænta dýfu þegar hún lenti og hann hefði ekki getað náð aftur valdi á henni. Starfsmaður á flugvellinum sá eld í tveimur af fjórum hreyflum flugvélarinnar. Minnstu munaði að flugvélin kæmi niður á þjóðvegi utan flugbrautarinnar en hún lenti aðeins 20 metrum frá að- flugsljósunum. Starfsmenn flugturnsins höfðu enga hugmynd um að eitthvað væri í ólagi í flugvélinni. Þeir höfðu veitt flugstjóranum lend- ingarleyfi. Wu flugstjóri hefur 30.000 flugtíma að baki og var í 30 ár í flugher kínverskra þjóðernis- sinna á Taiwan. Ein þeirra, sem voru lögð í sjúkrahús, var flugfreyjan Wang Wen Hwang, sem starfsmenn flugfélagsins segja að hafi bjargað nokkrum mannslífum með því að halda kyrru fyrir í brennandi flugvélinni þótt hún hafi skað- brennzt á höndum og fótum. í flugvélinni voru 93 taiwanskir farþegar og vitað er að í henni voru níu japanskir og fimm bandarískir farþegar. Flugvélin var á leið frá Taiwan og átti að fara þangað aftur eftir viðkomu í Manila. Starfsmaður á flugvellinum sagði að rétt áður en flugvélin snerti jörðina hefði einn fjögurra hreyfla hennar dottið af og flugvélin misst jafnvægið. Flugvélin skoppaði og rann eftir flugbrautinni og nam staðar fyrir framan flugstöðvarbygginguna. Eldur kom upp í vélinni og sprenging fylgdi í kjölfarið. Seinna hermdu fréttir að engin lík hefðu fundizt eftir nákvæma leit í flugvélinni. % toðjSSÍ____ „ , mm Fyrrverandi stjórnarhermenn bera eldflaugaskotpall og fall- byssu i Kunar-héraði í Afganistan. Sakharov sendir saksóknara bréf — krefst skýringa á Moskvu, 26. febrúar. AP. Andófsmaðurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Andrei Sakharov krafðist þess í dag að fá að vita á hvaða forsendum og hverj- ir hefðu sent hann í útlegð til Gorki. Kona hans, Yel- ena Bonner, las bréf Sakh- arovs fyrir fréttamönnum í Moskvu en bréfið sendi Sakharov til saksóknarans í Moskvu. í opinberri yfirlýsingu stjórnvalda í janúar sagði, að æðsta ráðið hefði svipt hann titlum og orðum. Og í árásum á Sakharov í sovéskum fjöl- miðlum var útlegð hans til Gorki lýst sem „aðgerð stjórn- valda“. Mál hans hefur ekki komið fyrir dómstóla. Vitnaleiðslur í máli Wallenbergs VITNALEIÐSLUR verða haldnar í Stokkhólmi 1.—3.maí um hvarf sænska diplómatsins Raoul Wall- enbergs í Búdapest í lok siðari heimsstyrjaldarinnar og heims- kunnir menn munu yfirheyra sjón- arvotta og sérfræðinga. Sænska Raoul Wallenberg- nefndin efnir til vitnaleiðslnanna í samvinnu við alþjóðlegu Sakharov- nefndina í Kaupmannahöfn. Nefnd- in telur að Wallenberg sé á valdi Rússa og nefndir frá nokkrum löndum styðja baráttu hennar og systur og bróður Wallenbergs fyrir því að honum verði sleppt úr haldi. Wallenberg var sendur til Búda- pest í júlí 1944 til að reyna að bjarga Gyðingum frá gasklefum nazista og sovézkt herlið tók hann Þetta gerðist 1973 — Indíánar leggja undir sig þorpið Wounded Knee, Suð- ur-Dakota, og taka 10 gísla. 1959 — Bretar og Egyptar semja um skaðabætur út af Súez-deilunni. 1953 — Vináttusamningur Grikkja, Tyrkja og Júgóslava undirritaður. 1946 — Gæsagangur lagður niður í svissneska hernum. 1942 — Landganga Japana á Jövu. 1933 — Mannréttindi takmörk- uð í Þýzkalandi. 1924 — Bandarískir hermenn ganga á land í Honduras. 1922 — Brezkri verndarstjórn lýkur í Egyptalandi. 1921 — Rússar gera samninga við Afgani. 1919 — Henry Cabot Lodge hefur baráttuna gegn aðild Bandaríkjanna að Þjóðabanda- laginu. 1900 — Ladysmith leyst úr umsátri í Suður-Afríku. 1877 — Friðarsamningur Tyrkja og Serba undirritaður. 1876 — Karlistastríðinu lýkur á Spáni með flótta Don Carlos. 1868 — Disraeli verður forsæt- isráðherra í stað Derby. 1825 — Samningur Breta og Rússa um réttindi á Kyrrahafs- svæðinu. 1813 — Prússar samþykkja að berjast með Rússum í Saxlandi og Slésíu. 1808 — Austurríkismenn ganga í lið með Napoleon — Frakkar taka Barcelona. 1653 — Enskur floti sigrar Hollendinga út af Portland. 1594 — Brezki líflæknirinn, Roger Lopez, líflátinn fyrir meint samsæri um að byrla Elísabetu drottningu eitur. Afmæli. Raphael, ítalskur list- frelsissviptingunni Yelena Bonner sagði, að tekið hefði verið fyrir allar bréfasendingar til Sakharovs frá vísindaakademíunni. Hún sagði, að maður sinn hefði skrifað akademíunni bréf, þar sem hann fór fram á að fá að sitja árlegan fund akademí- unnar í næsta mánuði. Ekkert svar hefði hins vegar borist. til fanga þegar það sótti inn í borgina 17. janúar 1945. Á timabil- inu júlí 1944 til janúar 1945 bjarg- aði Wallenberg un 20.000 Gyðingum beinlínis frá útrýmingu og um 100.000 óbeint. Rússar hafa alltaf haldið því fram að Wallenberg hafi látizt í Ljubljanka-fangelsi 1947. En nokk- ur vitni hafa séð hann eftir þann tíma að sögn Wallenberg-nefndar- innar, sá síðasti í Byturka-fangélsi 1975 og í maí 1978 fréttist um hann óbeinlínis. Tilraunir sænsku stjórnarinnar til að fá Wallenberg leystan úr haldi hafa hingað til ekki borið árangur segir í tilkynningu frá Wallenberg nefndinni. Wallenberg hefði orðið 67 ára 20. febrúar sl. Veður víða um heim Akureyri 0 snjókoma Amsterdam 9 skýjað Aþena 8 skýjað Barcelona 16 heiðskírt Berlín -2 snjókoma BrOssei 6 skýjað Chicago -6 skýjað Feneyjar 11 j>okumóða Franklurt 12 heiðskírt Genf 7 skýjað Helsinki 0 skýjað Jerúsaiem 12 rigning Jóhannesarb. 22 skýjað Kaupmannahöfn -3 skýjað Las Palmas 18 skýjaö Lissabon 16 heiðskírt London 5 skýjað Los Angeles 30 skýjað Madrid 11 rigning Malaga 11 skýjaö Mallorca 14 skýjað Miami 20 heiöskírt Moskva -S skýjað New York -1 skýjað Osló -3 heiðskírt París 7 heiðskírt Reykjavík 2 þokumóða Rio de Janeiro 37 skýjað Rómaborg 11 heiðskírt Stokkhólmur 1 skýjað Tel Aviv 18 rigning Tókýó 13 skýjað Vancouver 12 rigníng Vínarborg 9 heiöskírt 28. febrúar jkf*-*-4 málari (1483—1520) — Michel de Montaigne, franskur rithöfund- ur (1533—1592) — Vladimir Nij- insky, rússneskur dansari (1890—1950) — Linus Pauling, bandarískur vísindamaður (1901---). Andlát. 1869 Alphonse de La- martine skáld — 1916 Henry James, rithöfundur — 1941 Al- fonso XIII Spánarkonungur. Innlcnt. 1176 d. Klængur biskup Þorsteinsson — 1648 d. Kristján IV — 1875 f. Sigurður Eggerz ráðherra — 1873 d. Guðmundur próf. Johnsen — 1950 27 kínverskir og brezkir sjómenn drukkna við Reykjanes — 1955 V.R. verður launþegafélag — 1968 Flóð í Ölfusá og 100 hross- um bjargað við Elliðaár. Orð dagsins. Hræsni er virðing- in sem lestirnir sýna dyggðunum — La Rochefoucauld (1613— 1680). »*■<*»*»* <mím«*« « *« * * * #-***m>

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.