Morgunblaðið - 28.02.1980, Page 22

Morgunblaðið - 28.02.1980, Page 22
Framtal MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980 21 erlendum bönkum færast í lið E 6). Einnig færist hér nafnverö inn- stæöna á sérstökum reikningi hjá ríkissjóði (skyldusparnaöur 1978), sbr. lög nr. 77/1977 um skyldu- sparnaö og ráðstafanir í ríkisfjár- málum. Samtala þessara eigna færist í reit [11] Skyldusparnaöarskírteini 1975 og 1976 eru framtalsskyld og skal færa á nafnverði í þar til gerðan reit en ekki teljast með í samtölu- dálki þar sem þessi skírteini eru alltaf skattfrjáls. Hringvegshappdrætti ríkissjóðs eru hvorki framtalsskyld né skatt- skyld. (Sama gildir um skyldu- sparnaðarinnstæður sem ung- mennum á aldrinum 16—25 ára er skylt aö spara). Sérstök athygli er vakin á því aö ef börn á framfæri framteljenda eiga eignir skv. þessum liö (E 5) skulu þær færðar, ásamt vöxtum, í liö E 8 í framtali eöa á sérframtal barns. Athygli er einnig vakin á því að eignir skv. þessum lið (E 5) geta veriö eignarskattfrjálsar. Skatt- frelsi ræðst af skuldastööu fram- teljanda um áramót, sbr. leiðbein- ingar við „Ákvörðun eignarskatts- stofns". Vaxtafærsla Vaxtatekjur þ.m.t. verðbóta- þáttur og gengishagnaður af inn- stæðum skal færa í vaxtadálk. Sama gildir um vaxtatekjur, gjald- fallnar verðbætur og gengishagn- að á afborganir og vexti af verö- bréfum, öðrum en verötryggöum spariskírteinum ríkissjóðs, sem telja ber til eignar í þessum lið (E 5) enda sé verðbréfaeign þessi ekki tengd atvinnurekstri eða sjálf- stæðri starfsemi framteljanda. Samtala þessara vaxtatekna, sbr. reit [12] færist einnig sem tekjur í reit [73] á 4. síðu framtals (C-tekj- ur). Vaxtatekjur, þ.m.t. verðbætur á höfuðstól og vexti, spariskírteina ríkissjóðs ber ekki að telja fram sem vaxtatekjur fyrr en þær fást greiddar, annað hvort við innlausn eða sölu spariskírteinanna. Vaxta- tekjur, þ.m.t. verðbætur á höfuð- stól og vexti, af innleystum eða seldum spariskírteinum ríkissjóðs á árinu 1979 ber að tilgreina að fullu í vaxtadálk þessa liðar (E 5) innan sviga en skal ekki teljast með í samtölu vaxtatekna í reit [12]. Vaxtatekjur skv. þessum lið geta verið tekjuskattsfrjálsar. Skattfrelsið ræðst af vaxtagjöldum á árinu, sbr. leiðbeiningar við „Útreikningur vaxtatekna til frá- dráttar". Vaxtatekjur, þ.m.t. verðbætur, af innleystum skyldusparnað- arskírteinum áranna 1975 og 1976 eru undanþegnar skattskyldu, en þeirra ber að geta í liðnum „Grein- argerð um eignabreytingar" á 4. síðu framtals. Enn fremur ber þar að gera grein fyrir innlausn skyldu- sparnaðarinnstæðu ungmenna, bæði höfuöstól, vaxtatekjum og verðbótum af henni. Sama gildir um vinninga í Hringvegshapp- drætti ríkissjóðs (Happdrættis- skuldabréf ríkissjóös). E 6. Veröbréf o.fl. Eignafærsla Hér skal sundurliða allar verð- bréfaeignir sem ekki ber að telja fram undir lið E 5, t.d. veðskulda- bréf, víxla o.fl., einnig þótt þessar eignir séu geymdar í bönkum eða séu þar til innheimtu. Einnig skal færa hér allar útistandandi skuldir, stofnsjóðsinneignir, stofnfjáreign- ir, inneignir orlofsfjár o.fl. Eignir þessar skal telja til eignar á nafnverði, að viðbættum áföllnum vöxtum og verðbótum á höfuöstól í árslok. Innstæður i erlendum bönkum, að viöbættum vöxtum, teljast til eignar í íslenskum krón- um, viðað viö kaupgengi hlutað- eigandi gjaldmiðils í árslok. Eignir barna teljast hér með. Samtala þessara eigna færist í reit [13]. Vaxtafærsla Vaxtatekjur, þ.m.t. gengishagn- aöur og gjaldfallnar veröbætur og gengishagnaöur á afborganir og vexti, af eignum þeim sem hér um ræðir, sem ekki eru tengdar at- vinnurekstri eöa sjálfstæðri starf- semi, svo og gengishagnað af peningaeign í erlendum gjaldmiðli, skal færa í vaxtadálk. Velja má milli tveggja aðferða viö uppgjör vaxta (ekki verðbóta). Annars vegar aö færa gjaldfallna vexti, hins vegar aö færa reiknaða áfallna vexti ársins. Hvort sem notuð er fyrri eða síðari aðferðin verður að gæta þess að sömu aðferð sé beitt viö allar eignir sem telja skal í liö E 6 og sömuleiöis allar skuldir. Ef notuð er aðferðin aö reikna áfallna vexti skal þess einnig gætt að ógreiddir, reiknaöir áfallnir vextir bætast við eign eöa skuld, eftir því sem við á. Framtelj- endur sem skipta um uppgjörsaö- ferð vaxta frá fyrra ári skulu gæta þess að tekjufæra (eöa gjaldfæra) ekki áfallna vexti frá fyrra ári, aftur í ár. Sérstök athygli er vakin á því að með vöxtum teljast gjaldfallnar verðbætur á afborganir og vexti (ekki á höfuðstól) hvor aðferðin sem notuð er. Hafi maður keypt veröbréf, víxla eða aörar kröfur, meö afföllum (undir nafnverði), skulu afföllin (mismunur nafnverðs og kaup- verös) færast til tekna í vaxtadálk með hlutfallslegri fjárhæð ár hvert eftir afborgunariima. Sé krafan látin af hendi áður en afborgunartíma er lokiö telst sá hluti af eftirstöðvum affallanna, sem fæst greiddur, til tekna á afhendingar- eða söluári. Vaxtatekjur, þ.m.t. veröbætur, gengishagnaður og afföll samtals skv. reit [14] færast sem tekjur í reit [74] á 4. síöu framtals (C-tekj- ur). E 7. Aðrar eignir Hér skal færa skattskyldar eign- ir sem ekki hefur þegar verið getið um hér að framan. T.d. hjólhýsi, tjaldvagn, bát, hesta sem ekki eru notaöir í búrekstri o.fl. (fatnaður, bækur, húsgögn og aðrir persónu- legir munir eru ekki framtalsskyld- ir). Eignir þessar skal færa á kaup- eða kostnaðarveröi nema hesta og önnur húsdýr sem færast til eignar skv. matsveröi ríkisskattstjóra. E 8. Innstæður og verðbréf barna Hér skal færa innlendar inn- stæður barna, fædd 1964 eða síðar, sem eru á framfæri framtelj- enda, svo og spariskirteini ríkis- sjóðs, sbr. skýringu viö lið E 5, ef ekki er þörf á aö gera sérframtal fyrir barnið (sjá leiðbeiningar um útfyllingu barnaframtals). Fram komi nafn barns og heildarfjárhæö þessara eigna, með vöxtum, í árslok. Innstæöur skv. þessum liö skal ekki færa í samtöludálk og reiknast ekki meö í eignar skatts- stofni. T 14 C-tekjur Reitur [71] Hafi framteljandi leigutekjur eða arð af skipum, loftförum og hvers konar öðru lausafé, t.d. vélum og áhöldum, en tekjur þessar teljast þó ekki falla undir atvinnurekstur eða sjálfstæöa starfsemi hans skal hann skila rekstraryfirliti. Á þessu rekstaryfirliti er hvorki heimilt að telja til gjalda vaxtagjöld né fyrn- ingar. í þennan reit skal framtelj- andi færa hreinar tekjur eða arö af eignum þessum skv. rekstraryfir- liti. Reitur [72] Hafi framteljandi leigutekjur, arð eöa landskuld eftir hvers konar fasteignir eða fasteignaréttindi en tekjur þessar teljast þó ekki falla undir atvinnurekstur eða sjálf- stæða starfsemi hans skal hann skila rekstraryfirliti. Á þessu rekstraryfirliti er hvorki heimilt að telja til gjalda vaxtagjöld né fyrn- ingar. í þennan reit skal framtelj- andi færa hreinar tekjur, arð eða landskuld af eignum þessum. Heildarleigutekjur af einstökum íbúðum sem telja ber hér til tekna mega þó aldrei lægri vera en sem nemur 2,7% af gildandi fasteigna- mati (í árslok 1979) hlutaöeigandi íbúöarhúsnæðis (þ.m.t. bílskúrs) og lóöar. Hundraðshluti þessi miö- ast við ársleigu. Sé umrætt íbúð- arhúsnæði látiö í té án endurgjalds ber aö telja leigutekjur af því til tekna á sama hátt. Heildarleigu- tekjur af íbúðarhúsnæði ber að telja til tekna á þennan hátt af öllu íbúðarhúsnæöi í eigu framtelj- anda, aö undanteknu því íbúöar- húsnæði sem hann hefur til eigin þarfa. Reitur [73] Hér skal færa vaxtatekjur skv. reit [12] á 1. síðu eins og gerö hefur veriö grein fyrir í lið E 5. Athygli skal vakin á því að vaxta- tekjur þ.m.t. veröbætur á höfuö- stól og vexti, spariskírteina ríkis- sjóös sem innleyst voru eða seld á árinu 1979 skulu ekki teljast með í þessum reit. Um skattfrelsi vaxtatekna skv. þessum reit vísast til leiöbeiningar við liöinn „Útreikningur vaxtatekna til frádráttar". Reitur [74] Hér skal færa vaxtatekjur skv. reit [14] á 1. síöu eins og gerð hefur veriö grein fyrir í lið E 6. Reitur [75] Hér skal færa arö af hlutabréf- um skv. reit [09] á 1. síöu eins og gerð hefur veriö grein fyrir í lið E 4. Reitur [76] Hér skal færa skattskyldan sölu- hagnaö af fasteignum og eignar- hlutum í félögum enda hafi eignir þessar ekki verið notaðar í tengsl- um við atvinnurekstur eða sjálf- stæða starfsemi framteljanda. Hagnaður áf sölu lausafjár, annars en eignarhluta í félögum, telst ekki til skattskyldra tekna manns, enda geri hann líklegt að sala þess falli ekki undir atvinnurekstur eða sjálf- stæða starfsemi hans eöa að eignarinnar hafi ekki verið aflað í þeim tilgangi að selja hana aftur með hagnaði. Greinargerö um sölu og útreikning skattskylds sölu- hagnaðar skal gera í liðnum „Greinargerð um eignabreytingar" eða á sérstöku fylgiskjali með framtali. Varðandi reglur um þenn- an söluhagnaö sjá „Söluhagnaöur eigna". Reitur [77] Hér færast sérhverjar aðrar skattskyldar tekjur, sem ekki skal tilgreina annars staðar á skátt- framtalseyöublaöinu, svo sem fé er samvinnufélög færa félagsaðil- um sínum til séreignar í stofnsjóði vegna viöskiþta þeirra, eigin vinna við íbúöarhúsnæöi til eigin afnota sem fæst endurgreidd viö sölu og lögð var fram á síöustu fimm árum fyrir söludag, eigin vinna viö íbúð- arhúsnæði til eigin afnota unnin í venjulegum vinnutíma, svo og öll önnur skattskyld vinna eigenda við húsbyggingu. Enn fremur verö- mæti skiptivinnu í sambandi við eigin húsbyggingu. Athygli skal vakin á því aö eignaauki sem stafar af aukavinnu sem lögö er fram utan venjulegs vinnútíma við byggingu íbúðar- húsnæöis til eigin afnota telst ekki til skattskyldra tekna, en ber þó að tilgreina á húsbyggingarskýrslu. T 15 Frádráttur B Reitur [81] í þennan reit færist sá hluti vaxtatekna skv. reit [73] sem er umfram vaxtagjöld eins og útskýrt er í kaflanum um „Útreikning vaxtatekna til frádráttar". Reitur [82] Hér er heimilt að færa til frádráttar arð sem framteljandi og börn hans hafa fengið, sbr. reit [75] að hámarki 10% af nafnverði hvers einstaks hlutabréfs eða hlut- ar. Aldrei má frádráttur þessi þó vera hærri en 250.000 kr. hjá einhleypingi og 500.000 kr. hjá hjónum. Reitur [83] Hér má færa til frádráttar sömu fjárhæö vaxta af stofnsjóðsinneign í samvinnufélögum og talin var með vaxtatekjum í liö E 6. Enn fremur má færa hér til frádráttar fé sem samvinnufélög færöu félagsaöilum sínum til sér- eignar í stofnsjóöi, sbr. reit [77] vegna viðskipta hans utan atvinnu- rekstrar eða sjálfstæðrar starf- semi, þó að hámarki 5% af þeim viðskiptum. Fjárhæðir í reitum [81] [82] og [83] skal leggja saman og færa í samtöludálk. T 16. Hreinar tekjur skv. framtali barns í þennan lið skal færa nöfn barna (fædd 1964 og síðar) sem eru á framfæri framteljanda og hafa tekjur sem skattleggja ber hjá framteljanda, sbr. leiðbeiningar um útfyllingu skattframtals barns 1980. Hreinar tekjur skv. lið B 10 á skattframtali barns skal færa í dálkinn aftan við nafn þess og hreinar tekjur allra barnanna fær- ast síðan í einni samtölu í reit [84] T 17. .Samtala eignartekna o.fl. Niðurstöðutalan úr þessum kafla færist nú í reit [59] á síöu 2 og/eöa 3. Ef um einhleyping er að ræða færist fjárhæðin á síðu 2 (reit 59). Ef um hjón er að ræða færist fjárhæðin hjá því hjóna sem hefur hærri tekjur skv. samtölu í lið T 9 á sérframtölum þeirra (síðu 2 eða 3) og skiptir ekki máli í því sambandi hvort tekjur þær, sem færðar eru í þessum kafla séu af séreign ann- ars hvors hjónanna. S 1. Skuldir og vaxtagjöld Hér skal greina frá skuldum í árslok, þar með taldar áfallnar verðbætur á höfuöstól, nema skuldirnar séu í tengslum við atvinnurekstur framteljanda eöa sjálfstæða starfsemi hans og ber að tilgreina á efnahagsreikning. Þó skal færa hér skuldir umfram eignir skv. efnahagsreikningi með áorðnum leiðréttingum, sbr. leið- beining við reit [01]. Skuldir í erlendum verðmæli skal telja á sölugengi í árslok. Skuldir barna innan 16 ára aldurs skal þó færa á sérframtal þeirra. Tilgreina skal nafn og nafnnr. skuldareiganda eða nafn stofnunar eða sjóðs. Ef ókunnugt er um eigandá skal tilgreina hver tekur viö afborgun- um og vöxtum. Eftirstöðvar skulda, sem hingaö til hafa verið taldar fram á nafn- veröi, en eru verðtryggðar, ber nú að hækka um áfallnar verðbætur á höfuðstól þeirra. Hér með teljast m.a. vísitölutryggð lán frá Hús- næðismálastofnun ríkisins, en upplýsingar um upphækkun höf- uöstóls þessara lána ásamt al- mennum leiöbeiningum og dæm- um, eru birtar í lok leiðbein- inganna. Um upphækkun höfuð-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.