Morgunblaðið - 28.02.1980, Síða 27
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980
Framtal
Reitur [50]
Framteljendur sem gengið hafa í
hjónaband á árinu eiga rétt á
frádrætti vegna kostnaðar við
stofnun heimilis. Frádráttur er
306.000 kr. hjá hvoru hjóna og
færist í reit [50] hjá báðum.
Reitur [51]
í þennan reit á að færa námsfrá-
drátt þeirra framteljenda, sem
stunda nám og eru orðnir 16 ára.
Námsfrádráttur þessi skal nema
helmingi af tekjum skv. lið T 4 að
viðbættum fjárhæðum lífeyris-
tekna sbr. leiðbeiningar um T 5, tl.
1 — 3 og reit jú8|, þó aö hámarki
130.000 kr. niiðaö við ti mánaða
nám á tekjuárinu. Sé nám stumlað
skemur en 6 mánuði lækkar há-
mark frádráttarins hlutfallsiejra.
Ef nám er t.d. stundað í 3 mánuði
(-r hámark frádráttar 3/0 af
130.000 kr. eða 21.'):000 kr. Rtdkna
skal með heilum mánuðum. Brot
úr mánuði telst heill mánuður oj{
frádrátturinn skal hækkaður í
heilt þúsund króna. Enn fremur
skal ftéra tii frádráttar í þennan
reit hlutfallslej{ar eftirstöðvar
(>ess námskostnaðar sem stofnað
var til eftir 20 ára aldur ou
ákvarðaður var við álajíninj;u.
tekjuskatts jrjaldárin 1975—1979
(í framtölum áranna 1975—1979).
T 7. Samtala hreinna
tekna skv. liðum
T 4 — T 6
Hér færist samtala úr liðum T 4
til T 6. Hér eftir er um tvær leiðir
að velja. Fremri dálkurinn er út-
fylltur ef valinn er frádráttur D og E
(liðir T 8 og T 11) en aftari
dálkurinn ef valinn er fastur frá-
dráttur.
Frádráttur D og E eða
fastur frádráttur
Framteljendum er nú heimilt að
velja milli tveggja frádráttarreglna.
Annars vegar má færa frádrátt D
og E skv. liðum T 8 og T 11 og
útfyllist þá fremri dálkur, hins
vegar má velja fastan frádrátt sem
er 10% af samtölu í lið T 4 að
viðbættum fjárhæðum lífeyris-
tekna sem taldar eru til tekna í lið
T 5, sbr. tl. 1—3 í leiðbeiningum
um T 5, ef það á við og útfyllist þá
aftari dálkur.
Ef um hjón er að ræða eða
sambýlisfólk sem skattleggst sem
hjón skulu báðir aðilar velja sömu
frádráttarreglu. Sérstök athygli er
vakin á því að ef frádráttur D og E
er hagstæðari öðru hjóna en fastur
frádráttur er hagstæðari hinu hjón-
anna þarf að athuga hvar í skatt-
stiganum tekjumismunur hvors um
sig verður skattlagður, eftir því
hvor frádráttarreglan er notuð.
fyrir hjónin sameiginlega. Slík at-
hugasemd skal koma fram í at-
hugasemdalið á 4. síðu framtals og
skal þá ekki setja x í reit fyrir val
frádráttar á sömu síðu.
T 8. Frádráttur D,
fastur frádráttur
Reitur [55]
Hér skal færa iðgjöld af lífeyr-
istryggingu til lífeyrissjóða, vá-
tryggingafélaga eða stofnana sem
fjármálaráðherra hefur samþykkt.
Tilgreina skal nafn lífeyrissjóösins,
vátryggingafélagsins eða stofnun-
arinnar. Hafi framteljandi keypt sér
réttindi hjá lífeyrissjóði vegna fyrri
ára skal færa hér 20% (1/5 hluta)
þeirra iðgjalda sem hann greiddi
vegna þessara réttindakaupa. Sé
um réttíndakaup að ræða, auk
iðgjalda ársins 1979, óskast fjár-
hæðirnar tilgreindar í tvennu lagi
innan þessa reits.
Reitur [56]
Hér skal færa iðgjald sem
launþegi greiðir sjálfur til stéttar-
félags síns, sjúkrasjóös eða styrkt-
arsjóðs, þó ekki umfram 5% af
þeim tekjum sem almennt eru til
viömiöunar slíkum greiðslum. Til-
greina skal nafn stéttarfélagsins.
Reitur [57]
Hér skal færa greitt iðgjald af
lífsábyrgð, þó að hámarki 66.000
gjafir til menningarmála, sbr. lið T
11. Ef valinn er fastur frádráttur,
ræður samtala í aftari dálki, en ef
valinn er frádráttur D og E ræður
samtala í fremri dálki.
T 10. Eignatekjur o.fl.
Reitur [59]
Hér skal færa niðurstöðutölu,
sbr. lið T 17 á 4. síðu framtals. Ef
um hjón er að ræöa eða sambýlis-
fólk, sem skattleggst sem hjón,
færist fjárhæðin í viðeigandi sam-
töludálk hjá því hjóna sem hefur
hærri tekjur skv. lið T 9.
T 11. Frádráttur E
Reitur [60]
í þennan reit færist í einni
fjárhæð samtala vaxtagjalda skv.
reitum [87] [88] og [90] á 4. síðu
framtals. Ef um hjón er að ræöa
eða sambýlisfólk, sem skattleggst
sem hjon, færist fjárhæðin í þenn-
an reit hjá því hjóna sem hefur
hærri tekjur skv. lið T 9.
Reitur [61]
Hér má færa til frádráttar ein-
stakar gjafir til menningarmála,
vísindalegra rannsóknastarfa, við-
urkenndrar líknarstarfsemi og
kirkjufélaga. Gjafir þessar samtals
mega þó ekki fara yfir 10% af
tekjuskattsstofni gefandans eins
og hann er áður en gjöfin hefur
verið dregin frá honum. Hver gjöf
má ekki vera undir 10.000 kr.
Skilyrði fyrir frádrætti er að kvittun
frá viðurkenndri stofnun, sjóði eða
félagi fylgi framtali. Ef um hjón er
að ræða eða sambýlisfólk, sem
skattleggst sem hjón, færist fjár-
hæðin í þennan reit hjá því hjóna
sem hefur hærri tekjur skv. lið T 9.
Fjárhæðir í reitum [60] og [61]
skal leggja saman og færa í
samtöludálk ef valinn er frádráttur
D og E.
T 12. B-tekjur
í þennan lið skulu þeir sem hafa
með höndum atvinnurekstur eða
sjálfstæða starfsemi færa hreinar
tekjur skv. meðfylgjandi rekstrar-
reikningi með áorðnum leiðrétting-
um á sérstöku eyðublaði eöa meö
athugasemd á rekstrarreikningi,
sýni rekstrarreikningurinn ekki
réttar skattskyldar hreinar tekjur
skv. lögum um tekjuskatt og eign-
arskatt. Ef um er að ræða tap á
rekstri færist engin tala í þennan
lið.
Hjá hjónum færast hreinar tekj-
ur hjá því hjóna sem fyrir rekstrin-
um stendur, en getur þó skipst
milli hjónanna ef um sameigin-
legan rekstur er að ræða.
T 13. Tekjuskatts-
stofn
Þessi liður sýnir endanlegan
tekjuskattsstofn framteljanda.
Framteljendum er bent á aö bera
saman tekjuskattsstofn skv. afritl
af framtali sínu og tekjuskattsstofn
skv. álagningarseðli, þegar álagn-
ing gjalda hefur farið fram. Telji
framteljandi tekjuskattsstofn sinn,
þ.m.t. rekstrartöp, eða tekjuskatt
ekki rétt ákveðinn, getur hann sent
skattstjóra eða umboðsmanni
Dæmi: NN og maki hafa eftirfarandi skattstofna:
NN Maki
Tekjuskattstofn, ef valinn e;
fastur frádráttur 5.400.000 2.700.000
Tekjuskattstofn, ef valinn er
frádráttur D og E 5.300.000 2.900.000
Mismunur
100.000-
200.000-
Bæði
8.100.000
8.200.000
100.000
Tekjuskattsstofn NN er 100.000
kr. lægri ef valinn er frádráttur D
og E en tekjuskattsstofn makans
er 200.000 kr. hærri. Hjá hjónun-
um í heild er frádráttur D og E þvt'
100.000 kr. hærri en fastafrádrátt-
ur þeirra í heild. Stefni hjónin að
því að tekjuskattur beggja í heild
verði sem lægstur er þessi mis-
munur ekki afgerandi. Vegna
mismunandi tekjuskattsstofna
þeirra gæti heildarfjárhæð álagðra
tekjuskatta þeirra orðið lægri með
því að nota regluna um fastan
frádrátt en það ræöst af tekju-
skattsstofni þeirra hvors um sig
annars vegar og af tekjuskattsstig-
anum hins vegar.
Það eru einungis hjón, þ.m.t.
sambýlisfólk, sem skattleggst sem
hjón, sem myndu velja andstæöar
frádráttarreglur ef ekki þyrfti aö
taka tillit til hins, sem þurfa að
geta sér grein fyrir hvar í skattstig-
anum tekjur hvors um sig skatt-
leggjast. Þegar svo stendur á sem
hér er lýst er hjónum ráðlagt að
útfylla framtaliö eftir báðum frá-
dráttarreglum og fara fram á það
við skattstjóra að hann velji þá
frádráttarreglu sem hagstæðari er
kr. Tilgreina skal nafn líftrygginga-
félags og skírteinisnúmer líftrygg-
ingarinnar.
Fjárhæðir í reitum [55] — [57]
skal leggja saman og færa í fremri
samtöludálk, ef valinn er frádráttur
D og E. Hjón skulu velja sömu
frádráttarreglu.
Reitur [58]
Þeir sem velja fastan frádrátt í
stað frádráttar D og E skulu færa
hér 10% af samtölu í lið T 4, að
viðbættum fjárhæöum lífeyris-
tekna sem taldar eru til tekna í lið
T 5, sbr. tl. 1—3 í leiðbeiningum
um lið T 5, ef það á viö. Hjón og
sambýlisfólk, sem skattleggst sem
hjón, skulu velja sömu frádráttar-
reglu.
T 9. Samtala
Hér færist samtala hreinna
tekna skv. T 7 og frádráttur skv. T
8 í fremri samtöludálk eða frá-
dráttur skv. reit [58] í aftari
samtöludálk. Það ræðst af þessari
samtölu hjá hvoru hjónanna færa
skal eignatekjur o.fl., sb. lið T 17 á
4. síðu framtals og vaxtagjöld og
Viðhald húscigna er ekki lcngur frádráttarbært til skatts
hans skriflega rökstudda kæru,
studda nauðsynlegum gögnum,
innan 30 daga frá og með dag-
setningu auglýsingar skattstjóra
um að álagningu sé lokið.
Fengin meðlög
Hér skal gera grein fyrir meðlög-
um sem framteljandi hefur fengið
með börnum yngri en 17 ára,
þ.m.t. barnalífeyrir úr almanna-
tryggingum, ef annaö hvort for-
eldra er látið eöa barn ófeðrað.
Fram komi nafn barns, fd. og -ár,
svo og heildarfjárhæö meðlags.
Barnsmeðlög eru ekki skatt-
skyld hjá móttakanda fari þau ekki
yfir fjárhæð barnalífeyris sem
greiddur er úr almannatrygging-
um, sbr. tl. 7 í leiðbeiningum við lið
T 5.
Greidd meðlög
Hér skal gera grein fyrir með-
lagsgreiðslum sem framteljandi
greiðir með börnum innan 17 ára
aldurs. Fram komi nafn barns, fd.
og -ár, heildarfjárhæð greidds
meðlags, svo og nafn og nafnnúm-
er forráðanda sem greiðsluna fær.
Helming greiddra meðlaga með
börnum innan 17 ára aldurs má
færa til frádráttar í reit [47] sbr.
leiðbeiningar um þann reit.
Skattframtal
barns 1980
Skattframtal þarf að gera fyrir
þau börn á framfæri framteljenda,
sem hafa haft tekjur á s.l. ári og
fædd eru 1964 eöa síðar. Sömu-
leiöis fyrir börn sem skulda um
áramót. Þó skal ekki telja fram á
framtali barns arö af hlutabréfum.
Send hafa verið út árituð fram-
talseyðublöð fyrir öll börn sem
fædd eru árin 1964, 1965 og 1966.
Ef barn á framfæri framteljanda,
sem fengið hefur áritað framtal,
hefur ekki haft tekjur og skuldar
ekki, þarf ekki að endursenda
skattyfirvöldum eyðublaðið. Fram-
talseyðublöð fyrir börn sem ekki
hafa fengið áritað framtal, en gera
þarf framtal fyrir, fást hjá skatt-
stjórum eða umboösmönnum
þeirra.
Áritun framtals
Rita skal nafn, nafnnr. fd. og -ár
barns í viöeigandi reit efst til
vinstri. Nafn foreldris (forráðanda)
og nafnnr. skal færa hægra megin
og skiptir ekki máli hvort skráð er
nafn föður eða móður.
Tekjuframtal vegna
sérskattlagningar
Launatekjur barns sem er innan
16 ára aldurs á tekjuárinu skulu nú
skattleggjast sérstaklega hjá því.
Aðrar tekjur en launatekjur ber
hins vegar að skattleggja hjá
foreldri (forráðanda).
Launatekjur barnsins og frá-
dráttur sem draga má frá þeim
færast í liðina B 1 — B 4 á framtali
þess. Einstakir reitir innan hvers
liðar eru merktir með sama númeri
og samsvarandi reitir á framtali
foreldris og vísast til leiðbeininga
um útfyllingu þeirra reita hér að
framan eftir því sem við á.
Tekjuframtal vegna
sérskattlagningar
hjá forráðanda
Allar aðrar tekjur barnsins en
launatekjur skal færa í þennan
hluta framtalsins, þ.e. B 5 — B 10.
Þó skal aldrei færa arð af hluta-
bréfum á barnaframtal (færist
beint í E 4 á framtal foreldris
(forráðanda)).
Um útfyllingu einstakra reita
vísast til leiðbeininga við samsvar-
andi reiti á framtali foreldris (for-
ráðanda) sem hafa þar sömu
númer. Liðurinn B 5 samsvarar
liðnum T 5 á framtali foreldris
(forráöanda).
Athygli er vakin á því að trygg-
ingabætur og lífeyrir, t.d. barnalíf-
eyrir, sem greiddar eru foreldrum
vegna barna þeirra, teljast tekjur
forelda og má ekki færa á barna-
framtal.
Tekjur, að frádregnum frádrætti
skv. þessum kafla barnaframtals,