Morgunblaðið - 28.02.1980, Síða 29
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980
Framtal
kaupári nýju íbúöarinnar. Ef ekki
er keypt eöa byggt íbúðarhúsnæði
innan tilskilins tíma telst söluhagn-
aöurinn, framreiknaður, meö
skattskyldum tekjum á ööru ári frá
því að hann myndaðist.
Hagnaður af sölu
annarra ófyrnan-
legra fasteigna er
Alltaf skattlagöur á söluári og er
engin heimild til að fresta eða færa
söluhagnað til lækkunar á stofn-
verði annarra eigna nema um sé
að ræða söluhagnað af landi
bújarða og ófyrnanlegum náttúru-
auðæfum á bújöröum. Hér getur
verið m.a. um aö ræða sölu á
sumarbústað, hesthúsi, bátaskýli,
landi eða lóð, náttúruauðæfum og
réttindum tengdum þessum eign-
um.
Við sölu ofangreindra eigna
ákvaröast söluhagnaður sem
mismunur:
1) söluverðs að frádregnum bein-
um sölukostnaði og
2) framreiknaðs stofnverðs sem
áður fenginn söluhagnaður hef-
ur verið dreginn frá
eða
að vali skattaðila ef fasteignin
var í eigu hans í árslok 1978
3) gildandi fasteignamats í árslok
1979
eða aðeins
4) 50% af söluverði að frádregn-
um beinum sölukostnaöi, óháð
stofnveröi eða fasteignamats-
verði og framreikningi þess.
Sameiginleg ákvæði
varðandi sölu eigna
Ef hluti söluandvirðisins er
greiddur með skuldaviðurkenn-
ingu (skuldabréfi) til minnst þriggja
ára má dreifa þeim hluta söluhagn-
aðarins, sem svarar til hlutdeildar
skuldaviðurkenningarinnar í heild-
arsöluverði, til skattlagningar á
afborgunartíma bréfanna, þó að
hámarki í sjö ár. Til skuldaviður-
kenningar i þessu sambandi teljast
ekki þær skuldir sem hvíla á hinni
seldu eign og kaupandi tekur að
sér að greiða.
Ef söluverð er bætur vegna
altjóns eða eignarnáms má dreifa
söluhagnaöinum meö jöfnum fjár-
hæðum á allt að fimm ár aö
meötöldu söluári án framreiknings,
eða fresta skattlagningunni um
tvenn áramót, ef keypt er sams
konar eign innan þriggja ára og
færist þá söluhagnaöurinn án
framreiknings til lækkunar á stofn-
verði þessarar eignar.
Upplýsingar um kaup og sölu
skulu koma fram á framtali í
„Greinargerð um eignabreytingar".
Þar skal enn fremur tilgreina ef um
skattskyldan söluhagnað er að
ræöa hvort skattlagningu skuli
frestað, sbr. framanritaða mögu-
leika. Framteljendum er bent á að
útfylla einnig sérstakt eyðublaö
skattyfirvalda um „Kaup og sölu
eigna" ef þeir hafa keypt og/eöa
selt fasteignir á árinu.
Verðbreytingar-
stuðull
Samkvæmt ákvæöum 5. mgr.
IV. tl. ákvæði til bráðabirgða í
lögum nr. 40 18. maí 1978 um
tekjuskatt og eignarskatt með
síðari breytingum, hefur ríkisskatt-
stjóri reiknaö veröbreytingastuöul
fyrir eignir sem skattaöili hefur
eignast á árunum 1964 til 1978
sem nota skal sem margföldun-
arstuöul skv. ákvæðum IV. og V. tl.
ákvæöi til bráöabirgöa í greindum
lögum.
Margföldunarstuöull umræddra
ára er sem hér segir:
Ársins 1978: 1,4551
“ 1977: 2,1558
1976: 2,7625
“ 1975: 3,4650
“ 1974: 5,1541
“ 1973: 7,5762
“ 1972: 9,4085
“ 1971: 11,1809
“ 1970: 12,8280
“ 1969: 15,0316
“ 1968: 18,4961
“ 1967: 20,0168
“ 1966: 20,8932
“ 1965: 24,5645
“ 1964: 28,0271
Verðgildi spari-
skírteina ríkissjóðs
þann 31. des. 1979
Flokkur Margföldunar- stuðull nafnverðs
1968—l.fl. 41,8865
1968—11. fl. 39,3944
1969—1. fl. 29,2381
1970—1. fl. 26,8060
1970—11. fl. 19,2248
1971—1. fl. 17,9575
1972—1. fl. 15,6520
1972—11. fl. 13,3966
1973—1. fl. 10,0846
1973—11. fl. 9,2886
1974—1. fl. 6,4099
1975—1. fl. 5,2243
1975—11. fl. 3,9879
1976—1. fl. 3,7838
1976—11. fl. 3,0725
1977—1. fl. 2,8538
1977— 11. fl. 2,3904
1978— l.fl. 1,9481
1978 —II. fl. 1,5375
1979 — 1. fl. 1,3001
1979 —II. fl. 1,0088
Dæmi: Framteljandi á spariskírt-
eini ríkissjóðs I. fl. ársins 1972 að
nafnverði 10.000 kr. Verðgildi þess
í árslok 1979, sem ber að telja til
eignar, sbr. leiðbeiningar um lið E
5, er því 10.000 x 15,6520 =
156.520 kr.
Verðgildi lána
Húsnæðismálastofn-
unar ríkisins
Til þess að finna út eftirstöðvar
skuldar við Húsnæðismálastofnun
ríkisins með áföllnum verðbótum á
höfuðstól þeirra, verður skuldari
að hafa viö hendina síðustu kvittun
fyrir afborgun af láni því sem um er
að ræða.
Ef lánið er eldra en frá 1974 og
merkt lánaflokki E (eða öðrum
bókstaf framar í stafrófinu) ber
kvittun meö sér raunverulegar
eftirstöðvar láns og er það skráð í
reit, sem merktur er „eftirstöðvar
án vísitölu".
Ef lán er frá 1. júlí 1974 eða
yngra er það merkt bókstafnum F
og síðan númeri lánaflokks. Til
þess að fá út eftirstöövar láns með
áföllnum verðbótum verður aö
margfalda eftirstöðvar án vísitölu,
sem skráö er á kvittunina, með
þeirri tölu sem skráð er við
lánaflokkinn í töflunni, sem fylgir
skýringum þessum. Nákvæmlega
sama gildir um G-lán, þ.e. lán til
kaupa á eldri íbúðum.
Til þess að auðvelda þetta hefur
eftirfarandi tafla verið tekin saman
og sýnir hún lánaflokk nýbygg-
ingarlána og G-lána annars vegar
og hins vegar þá tölu, sem marg-
falda ber með eftirstöðvar skuldar,
eins og þær eru skráðar á kvittun-
ina. Útkoman er eftirstöðvar með
áföllnum verðbótum.
Dæmi 1
Jón Jónsson byggði hús á árinu
1974 og fékk í október það ár
nýbyggingarlán að fjárhæð
900.000 kr. Á kvittun hans fyrir
afborgun af láninu 1979 kemur
fram að lán þetta er merkt F-1 og
eftirstöðvar lánsins nema í dag
700.000 kr.
Samkvæmt meðfylgjandi tölfu á
hann að margfalda eftirstöövarnar
með 2,34, 700.000 x 2,34 =
1.638.000 kr. Eftirstöðvar skuldar-
innar að viðbættum áföllnum verð-
bótum nema því í árslok 1979
1.638.000 kr.
Dæmi 2
Jón Jónsson kaupir gamla íbúð
á árinu 1977 og fær til þess lán úr
Byggingarsjóði ríkisins í ágúst það
ár, G-lán að fjárhæð 600.000 kr.
Á kvittun fyrir greiðslu af láni
þessu kemur fram að það er merkt
G-17 og eftirstöðvar lánsins nema
520.000 kr.
Samkvæmt töflunni á hann að
margfalda 520.000 x 1,63 =
847.600 kr. Eftirstöðvar skuldar-
innar aö viðbættum verðbótum
nema því í árslok 1979 847.600 kr.
Tafla til notkunar viö
útreikning verðbóta
á vísitölutryggð lán
frá Húsnæðismála-
stofnun ríkisins:
Tegundir léns Margföldunar- tafla til upphækkun- ar höfuðstðls.
F 1 G 6 2,34
F 2 G 7 2,15
F 3 G 8 2,05
F 4 G 9 2,10
F 5 G 10 2,02
F 6 G 11 2,01
F 7 G 12 1,95
F 8 G 13 1,88
F 9 G 13 1,88
F 10 G 14 1,79
F 11 G 15 1,73
F 12 G 18 1,65
F 13 G 17 1,63
F 14 G 18 1,49
F 15 G 19 1,41
F 18 G 20 1.34
F 17 G 21 1,51
F 18 G 22 1,38
F 19 G 23 1,29
F 20 G 24 1,23
F 21 G 25 1,16
F 22 G 26 1,15
F 23 G 27 0.0 i 1