Morgunblaðið - 28.02.1980, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980
Skákskýrinj?arnar i ráðstefnusalnum hafa verið vinsælar hjá áhorfendum.
Herzlumuninn hefur skort hjá Jóni
í FYRSTU þremur umferðunum hefur Jón L.
Árnason mætt báðum rússnesku þátttakendunum.
Jón hefur haft hvítt í báðum skákunum og heldur
betur velgt þeim undir uggum, hafði peði meira í
hróksendatöflunum í báðum skákunum. Rússarnir
hafa hins vegar teflt endatöflin af nákvæmni og eftir
bið hefur þeim tekist að hanga á jafnteflinu.
Ilerzlumuninn hefur aðeins skort hjá Jóni að vinna
skák, en hann hefur eins og þeir Torre og Schússler
gert allar skákir sínar hingað til jafntefli.
Biðskák þeirra Hauks Angan-
týssonar og Miles úr annarri um-
ferð lauk einnig með jafntefli, en sú
staða var fræðilegt jafntefli eins og
báðar biðstöður Jóns. Miles reyndi
þó lengi að snúa á Hauk, en hann
gaf sig hvergi og að lokum varð
niðurstaðan patt.
Á World Open skákmótinu í
Philadelphiu í sumar fékk Miles
einnig betra endatafl gegn Hauki,
en þá tókst okkar manni einnig að
halda sínu. Haukur á lof skilið fyrir
þrautseigju sína, því að Miles er
einn sá erfiðasti andstæðingur sem
hægt er að hugsa sér í slíkum
töflum.
Þeir Guðmundur Sigurjónsson og
Vasjukov sættust á jafntefli
símleiðis á mánudagskvöldið, enda
hafði hvorugur eftir miklu að
slægjast í biðstöðunni.
Eftir að hafa teflt biðskákina við
Miles á þriðjudaginn varð Haukur
aftur að setjast að tafli, nú í þriðju
umferðinni við Margeir Pétursson.
Haukur fékk strax erfiða stöðu
eftir byrjunina og eftir að Margeiri
tókst að sprengja upp stöðuna með
peðsfórnum varð ekki við neitt
ráðið.
Hvítt: Margeir Pctursson.
Svart: Haukur Angantýsson.
Kóngsindversk vörn.
1. c4 - Rf6, 2. Rc3 - g6, 3. RÍ3 -
Bg7. 4. e4 - d6. 5. d4 - 0-0. 6. Be2
— Bg4 (Engan veginn slæmur
leikur, þó að vitanlega sé 6. — e5,
hér mun algengari leikur. Fram-
haldið sem fylgir í kjölfarið er hins
vegar ónákvæmt teflt af hálfu
svarts, t;d. er 7. — Rfd7, miklu
betri leikur en 7. — Rc6.) 7. Be3 —
Rc6?!, 8. d5 - Bxf3, 9. Bxf3 -
Re5, 10. Be2 - c6, 11. 04) - Dc7,
12. 14 - Red7, 13. IIcl (Hvítur
hyggst hagnýta sér óvenjulega
stöðu svörtu drottningarinnar á c7.
13. Khl kom hins vegar sterklega
til greina, svo og 13. h3.) — e6, 14.
Khl (Upphafið á mjög athyglis-
verðri áætlun. Athugið að hvítur
gat ekki leyst vandamál biskupsins
á e3 með því að leika hér 14. Dd2
vegna 14. — Hfe8 og 15. Bf3 yrði nú
svarað með e5! og 15. Bd3 með Rg4.)
— Hfe8, 15. Bgl — exd5,16. cxd5
— c5 (Svartur missir lið eftir 16. —
Rxe4?, 17. Rxe4 — Hxe4, 18. Bd3 —
Hxf4, 19. dxc6 — bxc6, 20. Hxc6 og
síðan 21. Hxd6.) 17. Bf3 - Da5?!
(Þessi leikur kemur að vísu drottn-
ingunni úr skotlínu hróksins á cl,
en hún kemur ekki til með að taka
þátt í átökunum á kóngsvæng frá
a5. Eðlilegur leikur var 17. — a6, þó
að hvítur hefði vitanlega reynt að
hleypa upp taflinu með því að leika
18. a3 og síðan b4, vegna hins
sterka biskupapars síns.) 18. g4! —
h6 (Slæmt var 18. — Hec8,19. g5 —
Rh5, 20. Bg4.) 19. h4 - b5, 20. g5
- hxg5, 21. hxg5 - Rh7,
22. e5! (Sígilt leikbragð í slíkum
stöðum. Hvítur fórnar peði eða
peðum til þess að koma mönnum
sínum í árásarstöður.) — b4
(Svartur óttaðist að vonum opnun f
línunnar eftir 22. — dxe5, 23. d6 —
Had8, 24. Bd5.) 23. Re4 - dxe5, 24.
f5! (Lykilleikurinn í áætlun hvíts.)
— gxf5, 25. Bh5! (Möguiegt, því
svartur kembir ekki hærurnar eftir
25. - fxe4, 26. Bxf7+ - Kh8, 27.
Dh5.) - f4. 26. Dg4 - He7?
(Tapar strax, en eftir 26. — Had8,
27. Hf3 - Dxa2, 28. Hdl hefur
hvítur einnig öll ráð svarts í hendi
sér, þó hann hafi þrem peðum
minna.) 27. d6 — He6, 28. Df5 —
Bf6 (Jafngildir uppgjöf, en eftir 28.
— Hf8, 29. g6! hefði svartur ekki
Urslit í
3. umferð
ÚRSLIT urðu þessi f 3. um-
ferð:
SchUssler — Browne 'h:'h
Jón L. — Kupreicik Vixxh
Guðmundur — Torre VrM
Miles — Vasjukov 1:0
Margeir — Huukur 1:0
Helgi — Helmers lhM
Byrne — Sosonko 1:0
Skák
eftir Margeir
Pétursson og
Leif Jósteinsson
heldur komist hjá miklu liðstapi.)
29. gxf6 - Rdxf6, 30. Hxc5 -
Da6, 31. Bxf7+! - Kh8, 32. Hf3 -
De2,33. Hh3 - Dxe4+, 34. Dxe4 -
Rxe4,35. Bxe6 — Rxc5, 36. Bf5! og
hvítur vann auðveldlega.
Sænski alþjóðameistarinn Harry
Schussler hefur vakið athygli fyrir
ágæt tilþrif og örugga tafl-
mennsku. Ekki þykir mönnum
hann þó litríkur og það kom á óvart
í þriðju umferðinni þegar að hann
þrálék ekki gegn Browne, þegar
hann átti kost á því eftir byrjunina.
Ástæðan var sú að bandaríski
stórmeistarinn hafði stakt peð á
miðborðinu, sem gat sig hvergi
hreyft. Browne tókst þó síðar að
þvinga fram uppskipti á miklu liði
og eftir það var jafnteflið örugg-
lega í höfn.
Helgi Ólafsson og Helmers tefldu
stutta og litlausa jafnteflisskák,
sennilega báðir að jafna sig eftir
mótlætið í annarri umferð.
Guðmundur Sigurjónsson virtist
vægast sagt haétt kominn í skák
sinni við Torre eftir byrjunina. Þá
brá hann á það ráð að fórna
skiptamun og tókst með þvi að
hræra upp í stöðunni:
Svart: Torre.
Ilvitt: Guðmundur.
28. De2 (Hvítur hefði verið reglu-
lega hætt kominn eftir 28. Bf4 —
c3!) - d3. 29. De3 - Rd4,30. Hacl
- Rc2, 31. Dg5 - Rxel, 32. Hxel
- Hd4, 33. Bc3 - Hd5, 34. Re4 -
De6, 35. Dh4 - h6, 36. Rd2
(Hvítum hefur tekist að staðla
stöðuna á skemmtilegan hátt og
mótspil hans vegur fyllilega til
jafns við hinn glataða skiptamun.)
- IIcd8, 37. He4 - DÍ5, 38. Dg3
- h5, 39. Hf4 - De6, 40. IIh4 -
DÍ5, 41. Hf4 - De6, 42. Hh4 -
Df5, 43. HÍ4. Jafntefli.
í framhjáhlaupi skal vakin at-
hygli á því að fæst jafnteflanna á
mótinu hafa verið litlausar skákir,
heldur hefur þeim skákum oftast
lokið með þráskák eða þráleik eða
jafnvel verið tefldar í botn eins og
raunin hefur verið á með biðskák-
irnar.
Enski stórmeistarinn Miles fór
ómjúkum höndum um kollega sinn
Vasjukov líkt og Karpov á dögun-
um. Sterkasta hlið Englendingsins
hafa jafnan verið enda-töflin og
það má segja að Vasjukov hafi
undirritað sinn eigin dauðadóm
þegar að hann skipti upp á drottn-
ingum:
26. — Df6 (Sem áður segir forðast
flestir eins og heitan eldinn að
skipta upp á drottningum þegar
þeir tefla við Miles, en Vasjukov
átti ekki annarra kosta völ, því
hvítur hótaði bæði 27. Dxf7 og 27.
Bxc5), 27. Dxf6 — Bxf6, 28. Bxc5
- dxc5, 29. Hb3 (Hótar 30. Bxa6.)
- Ha8. 30. d6 - Kg7. 31. Hd3 -
Hd8,32. f4 - Kf8,33. Hd2 - Hd7,
34. e5 - Bd8,35. Ha2 - g5,36. g3
(Svartur er ömurlega leiklaus. Nú
bregður hann á það ráð að gefa peð,
en ekkert dugar.) — b5?!, 37. axb6
- Bb7+, 38. Kgl - gxf4 (Ef 38. -
Bxb6, þá 39. Hb2 - Bd8, 40. Hxb7
- Hxb7, 41. Bd5 og hvítur verður
peði yfir.) 39. Rxf4 — Bg5, 40. h4
- Bd8. 41. Rd5 - Hb8, 42. Rc7 og
hvítur vann.
Hvítt: R. Byrne.
Svart: G. Sosonko.
Sikileyjarvörn.
1. e4 - c5, 2. Rf3 - Rc6, 3. d4 -
Spennandi
skákir í dag
FIMMTA umferð Reykja-
vikurskákmótsins verður
tefld á Hótei Loftleiðum í dag
klukkan 17—22. í 5. umferð
tefia saman:
Jón L. — Byrne,
Guðmundur — Browne,
Miies — Kupreichik,
Margeir — Torre,
Helgi — Vasjukov,
Helmers — Haukur,
SchUssler — Sosonko.
Fyrrnefndu skákmcnnirnir
hafa hvítt.
cxd4, 4. Rxd4 - e5, 5. Rb5 - a6,
6. Rd6+ - Bxd6, 7. Dxd6 - Df6, 8.
Dxf6 - Rsf6, 9. Rc3 - Rb4. 10.
Bd3 — d5 (LaBourdonnais afbrigði
eftir frönskum meistara frá fyrri
hluta 19. aldar. Hér er þó venjulega
leikið Rxd4, 11. RxR — d5, o.s.frv.)
11. exd5 - Rfxd5, 12. Rxd5 -
Rxd5, 13. Bd2 - Be6, 14. 04W) -
0-0-0
(Upp er nú komið endatafl þar
sem hvítur hefur peðameirihluta á
drottningarvæng og biskupaparið.
Lærdómsríkt er að sjá hvernig
Byrne vinnur úr stöðunni.) 15.
Hhdl - Rf4, 16. Bxf4 - exf4
(Svartur tekur á sig tvípeð til að
losna við biskupaparið, það hefði
skipti miklu máli ef honum hefði
tekist að skipta riddaranum fyrir
hvítreitabiskupinn.) 17. Be4 —
Hxdl+, 18. Hxdl — g5 (Hæpinn
leikmáti, skárra var að losa um
hrókinn með h6.) 19. a4 — h5
(Svartur ryðst fram með peðin á
kóngsvængnum og tekur á sig
bakstætt peð á b7, sem erfitt er að
valda, auk þess sem peðafylkingin á
kóngsvæng riðlast fljótlega.) 20.
A5! - Kc7, 21. Hd4 - f5, 22. Bd5
— Bc8, 23. h4! (Splundrar svörtu
peðafylkingunni og vinnur peð í
leiðinni. Svarta staðan er nú töpuð
og aðeins tæknileg úrvinnsla eftir
sem aldursforseti mótsins leysir
óaðfinnanlega.) 23. — gxh4, 24.
Hxf4 - h3. 25. gxh3 - h4, 26.
Kd2 - Kd6, 27. Bf3 - Ke5, 28.
Ke3 - Hh6, 29. Hc4 - Í4+. 30.
Hxf4 - Bxh3, 31. Bxb7 - Bfl. 32.
Hd4 - h3, 33. f4+ - Ke6, 34. Kf2
- Bb5, 35. Kg3 - h2, 36. Bhl -
Bfl, 37. f5+ - Ke7, 38. Hh4 -
Hxh4, 39. Kxh4 - Kf6,40. Kg3 -
Kxf5, 41. Kxh2 - Ke5, 42. c3 -
Kd6, 43. b4 og svartur gafst upp.