Morgunblaðið - 28.02.1980, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980
Minning:
Guörún Arndrésdóttir
Kornerup-Hansen
Fædd 11. október 1901.
Dáin 20. febrúar 1980.
Guðrún Andrésdóttir, Korner-
up-Hansen, eða Dúna, sem mér er
tamast að nefna hana og ég,
vorum jafnaldrar, bæði fædd árið
1901, hún þó einum átta mánuðum
síðar en ég. Það er óhjákvæmilegt
náttúrulögmái að eitt sinn skal
hvér deyja og „ungur má en
gamall skal“. Þetta verður gamalt
fólk áþreifánlega vart við. Vinir
og jafnaldrar hverfa af sjónar-
sviðinu hver af öðrum og veldur
það jafnan trega. Minningar
tengdar þeim skýrast og það er
eins og atburði og umhverfi meira
en sjötíu ára gamalt, verði nálægt
á ný, jafnvel svo að líkast er því að
þetta sé nýliðið, nokkurra mánaðá
eða ára gamait.
Ég held að það hafi verið
haustið 1905 að foreldrar mínir
fluttu í Suðurgötu 5. Reykjavík
var í þá daga næsta frábrugðin því
sem nú er, og lífið langtum
einfaldara. Okkar megin við göt-
una voru aðeins fjögur hús, nr. 5,7
og nokkru ofar Brunnhús og eitt
hús þar fyrir sunnan. Vestan
hennar nr. 2, 4, 6, 8, 10 og 12. í
öllum þessum húsum bjó barna-
fólk og urðu þessi börn leikfélagar
og vinir okkar systkinanna. Leik-
völlur okkar var Suðurgatan, tún-
in umhverfis, reyndar allt ná-
grennið, því umferðin var lítil,
aðeins gangandi fólk og öðru
hverju hestvagnar.
í Suðurgötu 10 bjuggu hjónin
Andrés Andrésson og Kristín
Pálsdóttir ásamt fimm börnum
sínum og var Dúna næstyngst
þeirra.
ANdrés hjá Bryde var hann
oftast nefndur, því hann starfaði
hjá Brydeverzlun, sem var í þá
daga með meiriháttar fyrirtækj-
um hér á landi. Hafði hann með
hendi verkstjórn og umsjón með
starfseminni utanhúss í meira en
þrjátíu ár. Hann llezt árið 1916
eftir langvarandi veikindi.
Kristín, móðir Dúnu, var talin
mikil fríðleikskona og gædd beztu
eiginleikum góðrar móður og hús-
móður. Hún lifði mann sinn í
fjórtán ár, varð bráðkvödd árið
1930.
Hún var mikil snyrtimanneskja.
Minnist ég kartöflugarðs er hún
hafði við húsið Suðurgötumegin
og rófugarðsins er var vestan við
húsið. Báðir þessir garðar voru
sérlega vel haldnir og vel um þá
gengið.
Bræður Dúnu voru, taldir eftir
aldri: Haraldur, fæddur 1894,
dáinn 1949, vélstjóri að mennt.
Var fyrst á togurum, stofnaði
síðar Nýju Blikksmiðjuna ásamt
Einari Pálssyni. Axel, f. 1895,
dáinn 1966, stundaði fyrst verzl-
unarstörf, varð síðan landskunnur
knattspyrnuþjálfari yngstu kyn-
slóðarinnar. Baldur, f. 1897, dáinn
1972. Hann var cand. theol. 1922.
Stundaði hann framhaldsnám í
kirkjutónlist og samdi sjálfur lög.
Starfaði hann hjá borgarstjóra-
embættinu frá árinu 1929 til
dauðadags. Páll, fæddur 1899,
dáinn 1955, vann við verzlunar-
störf o.fl. Magnús, fæddur 1904,
dáinn 1966. Réðist tólf ára til O.
Johrlson & Kaaber og varð síðar
meðeigandi og forstjóri fyrirtæk-
isins.
Andrés, faðir Dúnu átti tvo syni
áður en hann kvæntist, Bertel,
skipstjóra sem lifir í Reykjavík í
hárri elli og Andrés Magnús,
stórkaupmaður og athafnamaður,
sem lengi var búsettur í Dan-
mörku og Kanada. Hann er nú
nýdáinn.
Guðrún var næst yngst í systk-
inahópnum, fædd 11. október 1901.
Ólst hún upp með bræðrum sínum.
í þá daga var meiri skilnaður
telpna og drengja í leik, heldur en
nú tíðkast, býzt ég við, nema í
hópleikjum. Minnist ég Dúnu úr
slíkum leikjum enda var hún bæði
tápmikil og rösk.
Ung að árum fór hún til dvalar
erlendis bæði til tungumálanáms
og til þess að læra húsverk eins og
títt var um ungar stúlkur í þá
daga. Var hún eitt ár á heimili
Þórarins Olgeirssonar í Grimsby.
Síðar var hún við afgreiðslustörf í
Reykjavíkur Apóteki og enn síðar
í Vöruhúsinu. Árið 1929 réðist
danskur verzlunarmaður til Vöru-
hússins. Var það Christian August
Otto Kornerup-Hansen. Þar
kynntust þau Dúna og gengu í
hjónaband 9. desember árið 1929.
Stofnuðu þau heimili sitt í Suður-
götu 10.
Kornerup-Hansen var mikill
ágætismaður, sem ávann sér
verðskuldað traust allra sem áttu
við hann samskipti. Á margan
hátt var hann snillingur. Þau
hjónin breyttu í sameiningu kart-
öflugarðinum í Suðurgötunni, sem
áður var nefndur, í skínandi fal-
legan skrúðgarð, sem síðar fékk
fyrstu verðlaun Fegrunarfélags
Reykjavíkur. En garðyrkjan var
ekki eina frístundaiðjan hans.
Hann hóf snemma framleiðslu á
axlaböndum og líkum smávarn-
ingi. Þetta smájókst, hægt í
fyrstu, en varð smám saman, með
hjálp hans ástríku eiginkonu og
ýmsum breytingum á verkefnavali
að fyrirtækinu Fönix, sem hann
stofnaði árið 1935. Nú er þetta
orðið stórt og rótgróið innflutn-
ingsfyrirtæki í höndum sona
þeirra hjóna.
Af því, sem að framan er sagt,
má marka, að Dúna var vel gift, en
mikið jafnræði var milli þeirra
hjóna og samhugur. Dúna var
manni sínum hinn ákjósanlegasti
lífsförunautur, enda var það í
samræmi við skapgerð hennar og
uppeldi. Mann sinn missti Dúna
árið 1965 og var að honum mikil
eftirsjá.
Þeim hjónum varð þriggja
barna auðið. Þau eru: Andrés
Reynir Kristjánsson (hann tók
upp þann íslenzka sið að kenna sig
við fornafn föður síns), f. 24.2.
1931, nú forstjóri Fönix. Hann er
kvæntur Dóru Þórhallsdóttur,
Þorgilssonar bókavarðar og
Bergþóru Einarsdóttur. Eiga þau
þrjú börn, Þórhall, sem nú starfar
við fyrirtækið Fönix, Kristján
Ottó, sem er að ljúka námi í
húsasmíði og Guðrúnu er vinnur í
Landsbanka íslands.
Kristín Edda, f. 5.12. 1932, vann
við skrifstofustörf að loknu námi,
síðar flugfreyja hjá Flugfélagi
Islands. Hún er gift Gunnari
Skaftasyni flugsiglingafræðingi.
Eiga þau þrjú börn, Skafta er lauk
stúdentsprófi á sl. ári, Kristján
sem er menntaskólanemi og Guð-
rúnu Eddu, sem fermist í vor.
Viðar, f. 21.6. 1934, búfræði-
kandidat frá Hvanneyri. Hann var
um skeið kennari við þann skóla
en gerðist síðan meðstjórnandi
Fönix ásamt með bróður sínum.
Kona Viðars er Hólmfríður Egils-
dóttir, Þorgilssonar skipstjóra og
Sigríðar Guðmundsdóttur.
Þar kom að húsið Suðurgata 10
var orðið óhentugt fyrir um-
fangsmikla starfsemi fyrirtækis-
ins. Byggðu þá bræðurnir myndar-
legt hús við Hátún, þar sem
fyrirtækið er nú til húsa. Um
svipað leyti reisti Andrés Reynir
íbúðarhús fyrir fjölskyldu sína og
móður að Tómasarhaga. Dúna bjó
á efri hæðinni en Reynir, Dóra og
börn þeirra á neðri hæðinni.
Svo vill til að Anna dóttir okkar
og Dóra eru miklar vinkonur, allt
frá barnæsku. Þess vegna höfum
við hjónin verið tíðir gestir á
heimili þeirra að Tómasarhaga.
Þar höfum við Dúna oft haft
tækifæri til þess að rifja upp
gamlar endurminningar frá Suð-
urgötudögunum, okkur báðum til
mikillar ánægju.
Fyrir nær tveimur árum kenndi
Dúna þeirra veikinda sem loks
drógu hana til dauða. Voru veik-
indi hennar mjög þungbær og
vandmeðfarin, en hún dvaldi
heima eins lengi og fært þótti,
þótt stundum þyrfti hún að dvelja
á sjúkrahúsi.
Má með sanni segja að Dóra
tengdadóttir hennar hafi stundað
hana af stakri natni og umhyggju,
Edda dóttir hennar var einnig
einkar umhyggjusöm um velferð
móður sinnar, en eðlilega kom það
mest í Dóru hlut, þar sem hún bjó
í sama húsi.
Dúna sýndi mikinn kjart og
æðruleysi í veikindum sínum. Hún
tók oft þátt í gleðistundum á
heimili sonar síns og tengdadóttur
með okkur, alltaf kát og hress að
sjá, þótt vitað væri að hún væri
sárþjáð. Margar ógleymanlegur
endurminningar geymi ég frá
slíkum samverustundum. Ég held
líka að samkvæmishættir þeirra,
sonar hennar og tengdadóttur,
hafi verið henni að skapi. Heimilið
í Suðurgötu 10 var alla tíð mjög
helgað að söng og hljóðfæraslætti.
Svo er einnig á Tómasarhaganum.
Bæði aldnir og ungir leika þar á
fleiri en eitt hljóðfæri og eru
söngelskir „fram í fingurgóma".
Dúna átti sér fleiri hugðarefni
en garðyrkju og hljómlist. Árið
1941 gerðist hún félagi í Rebekku-
stúku í Oddfellowreglunni, en sú
regla starfar sem kunnugt er að
menningar og líknarmálum. Vann
hún þeim félagsskap af lífi og sál,
enda komst hún þar til æðstu
metorða.
Rétt um ellefu dögum fyrir
andlát sitt heimsótti Dúna okkur,
ásamt þeim Dóru og Andrési
Reyni, þótt nokkuð langt sé á
milli, því nú erum við flutt í
Mosfellssveit. Ég lýsi því ekki
hversu vænt mér þótti um þessa
heimsókn. Þar kvöddumst við
hinzta sinni. Ég held að við höfum
bæði haft grun um að nú væri ekki
langt eftir.
Eg votta öllum aðstandendum
samúð okkar Önnu konu minnar.
Við blessum minningu þessarar
gömlu æskuvinkonu minnar, sem
verður jarðsungin í dag frá Dóm-
kirkjunni kl. 1.30.
Gunnar Bjarnason
fyrrverandi skólastjóri
Vélskólans.
+
Faöir minn, tengdafaöir og afi
JOHN SÆTHER,
fyrrv. skipstjóri,
Kostöi, Kristiansand, S.
Noregl
lést sunnudaginn 24. febrúar í Kr. S.
Guórún M. Jónsdóttir Hrafn V. Fríðriksson
og barnabörn.
t
Móöir okkar
LOVÍSA M. VIGFÚSDÓTTIR,
Garöastræti 45,
lést aö heimili sínu 23.2. Jaröarförin fer fram föstudaginn 29.2. kl.
10.30 f.h. frá Fossvogskirkju.
Gunnar Þjóöólfsson
Ragnar Þjóöólfsson.
+
Móöir mín og tengdamóöir,
GUONÝ GUÐJÓNSDÓTTIR,
Bragagötu 23,
sem lést í Borgarspítalanum 23. febrúar veröur jarösett frá
Fossvogskirkju, föstudaginn 29. febrúar kl. 15.00.
Hlynur Árnason Sigríöur Jóna Friöriksdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö andlát og
jaröarfarir mæðginanna,
STEFÁNS EINARSSONAR
og
SIGURLAUGAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Vestmannaeyjum.
Erna Fannberg Fannbergsdóttir,
Elsa Einarsdóttir,
Erla Einarsdóttir,
Alfreö Einarsson
og aörir vandamenn.
+
Öllum þeim er auösýndu okkur samúö og vinarþel viö andlát og
útför
PÉTURS KRISTÓFERS RAGNARSSONAR,
færum við okkar innilegustu þakkir.
Guöný Pétursdóttir, Ragnar Ágústsson,
Ágúst Ragnarsson,
Rafn Ragnarsson,
Ragnar Ragnarsson,
Kristjana Olafsdóttir.
Bróöir okkar + VALUR B. EINARSSON,
Öldugötu 2,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 29. febrúar kl.
13.30. Kristbjörg Einarsdóttir Guöjón Einarsson Eggert Einarsson Jón Þ. Einarsson.
+
Þökkum auösýnda samúð við andlát og jarðarför bróöur okkar
GUÐBERGS I. GUÐMUNDSSONAR
Gyóa Guðmundsdóttir, Þórdís S. Guömundsdóttir.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför
konu minnar og móöur okkar
FJÓLU PÁLSDÓTTUR,
Flókagötu 2, Hafnarfiröi.
Einar Kristjánsson og dætur.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö við fráfall og útför
GUNNLAUGSJÓNSSONAR
Hátúni 28, Keflavík
Guörún Halldórsdóttir,
Jón Gunnlaugsson,
Halldór Gunnlaugsson,
Sigrún Gunnlaugsdóttir,
Guörún Gunnlaugsdóttir,
Leifur Gunnlaugsson
og barnabörn.
Elín Einarsdóttir,
Borgný Samúelsdóttir,
Karl Guöjónsson,
Hugrún Gunnlaugsdóttir,
+
Eiginmaöur minn, faðir okkar, sonur og afi,
OVE LUND JÖRGENSEN
Ljósheimum 16 B
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 29. febrúar kl.
15.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag íslands.
Anna María Magnúsdóttir
María Lund Jörgensen Eva Lund Jörgensen
Frederikke Jörgensen Harald Jörgensen
og barnabörn.