Morgunblaðið - 28.02.1980, Síða 48
Sími á ritstjórn -jrHfin
og skrifstofu: IUIUU
y
Lækkar
hitakostnaðinn
FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980
Fryst loðnuhrogn:
Útlit fyrir um 500 tonna sölu
hjá S.H. á 1450 dollara tonnið
„ÉG Á von á því, að þetta
verði um 500 tonn í allt,“
sagði Hjalti Einarsson
I framkvæmdastjóri Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihús-
I anna, er Mbl. spurði hann
í gær um sölu á frystum
loðnuhrognum til Japans,
sem verið er að ganga frá.
Verðið mun vera 1450 doll-
arar tonnið, en áður höfðu
íslendingar og Norðmenn
boðið 1950 dollara, en Jap-
anir 1000 dollara.
Verðlagsráð sjávarútvegsins
hefur ákveðið lágmarksverð á
loðnuhrognum til frystingar 120
krónur hvert kíló, en á síðustu
vetrarloðnuvertíð var verðið 240
krónur kílóið.
Kristján Ragnarsson, formaður
LIÚ, sagði í samtali við Mbl. í
gærkvöldi, að hann ætti ekki von á
því að nein hrogn yrðu hirt til
frystingar, vegna hins lága verðs
sem yrði, þegar að veiðum til
hrognafrystingar kæmi.
Hjalti Einarsson sagði, að jap-
anskir kaupendur væru áhuga-
litlir um kaupin vegna þess að
þeim þætti verðið hátt og því
bókaði hver sig með lítinn kvóta,
„aðallega til að halda viðskiptun-
um gangandi upp á framtíðina,"
sagði Hjalti. Hann sagði vafasamt
að reynt yrði að selja meira að
þessu sinni, þar sem það gæti
valdið erfiðleikum við sölur á
næsta ári.
Lesendaþjónusta Morgunblaðsins:
Spurt og svar-
að um skattamál
ílringiö inn spurningar um skatta-
mál — Morgunblaðið leitar svara
MORGUNBLAÐIÐ birtir í dag
leiðbeiningar ríkisskattstjóra um
gerð skattaframtals og eru þessar
leiðbeiningar 12 síður í blaðinu í
dag. Er lesendum bent á að taka
þessar 12 síður úr blaðinu og hafa
þær við höndina þegar þeir út-
fylla skattaskýrslur sinar. Jafn-
framt mun Morgunblaðið veita
lcsendum sínum þá þjónustu að
taka við spurningum um skatta-
mái og afla svara við þeim.
Eru lesendur Morgunblaðsins
hvattir til að hringja til blaðsins
eða senda spurningarnar skriflega
um hvaðeina, sem þeir hafa huga á
að vita um skattamál, um gerð
skattaframtals og hin ýmsu álita-
efni, sem koma til sögunnar hjá
hverjum og einum. Mun Morgun-
blaðið birta svör við spurningum
lesenda nokkrum dögum eftir að
þær berast.
Þeir lesendur, sem vilja notfæra
sér þessa þjónustu, eru beðnir um
að hringja í Asdísi Rafnar, lög-
fræðing og blaðamann hjá Morg-
unblaðinu, í síma 10100 kl. 14—16
frá mánudegi til föstudags eða
senda skriflegar spurningar á
hennar nafn, Morgunblaðinu, Að-
alstræti 6, Reykjavík.
Niðurstaða Hæstaréttar í Guð-
mundar- og Geirfinnsmálum:
Ákærðu taldir sek-
ir um manndráp
Hækkar verð á búvöru
að meðaltali um 8%?
SEX-MANNANEFNDIN hefur
íjaliað um hækkun verðlags-
grundvallar landbúnaðarins og
hækkar grundvöllurinn um 5V4%.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun ríkisstjórnin fjalla
um hækkun grundvallarins i dag
og verður að ákvörðunum stjórn-
arinnar teknum, ljóst, hvað land-
búnaðarvörur hækka mikið hinn
1. marz, en að óbreyttum niður-
greiðslum mun hækkunin að með-
altali vera um 8%.
Einstakar vörutegundir munu þó
hækka meira en 8% og aðrar
minna. Morgunblaðið hafði í gær
spurnir af því að nýmjólk myndi,
miðað við óbreyttar niðurgreiðslur,
hækka um tæplega 11%, smjör um
rúmlega 12% og kjöt um rúmlega
6%. Enn er þó ekki ljóst, hvort
ríkisstjórnin eykur niðurgreiðslur
og geta því þessar tölur, sem hér
eru nefndar breytzt við ákvörðun
ríkisstjórnarinnar. Hið eina, sem
óumbreytanlegt er — ólíklegt er að
ríkisstjórnin hafni verðlagsgrund-
vellinum — er því hækkun grund-
vallarsins, sem er eins og sagði
5%%.
DÓMUR Hæstaréttar í Guðmundar-
og Geirfinnsmálum var birtur í gær,
en áður höfðu aðeins birzt dómsorð.
t dómnum kemst Hæstiréttur m.a.
að þessum niðurstöðum:
• Ekkert mark er tekið á afturköll-
un játninga ákærðu í málunum og
fyrri játningar lagðar til grundvallar
við dómsuppkvaðningu.
• Sannað þykir, að ákærðu Kristján
Viðar Viðarsson, Sævar Marínó Ciec-
ielski og Tryggvi Rúnar Leifsson hafi
í félagi átt í átökum við Guðmund
Einarsson að Hamarsbraut 11 í
Hafnarfirði aðfaranótt 27. jan. 1974
og misþyrmt honum svo, að hann
hlaut bana af.
• Sannað þykir, að ákærðu Kristján
Viðar Viðarsson, Sævar Marínó Cies-
ielski og Guðjón Skarphéðinsson hafi
ráðist að Geirfinni Einarssyni í
Dráttarbrautinni í Keflavík að kvöldi
19. nóv. 1974 og veitt honum svo
mikla áverka, að hann hlaut bana af.
• Með vísan til 108. greinar laga um
meðferð opinberra mála þykir var-
hugavert að telja, að það sé nægju-
lega sýnt fram á að ákærðu hafi
framið þessi voðaverk af ásettu ráði
svo að refsing verður ekki ákveðin
samkvæmt 211. grein almennra
hegningarlaga heldur beri að færa
háttsemi þeirra til 218. greinar, sem
fjallar um vísvitandi líkamsárás, og
215. greinar, sem fjallar um mann-
dráp af gáleysi.
I 108. greininni, sem að framan er
vikið að, segir, að sönnunarbyrði um
sekt sökunauts og atvik, sem telja má
honum til óhags, hvíli á ákæruvald-
inu. Dómari meti hverju sinni, hvort
nægileg sönnun, sem eigi verði ve-
fengd með skynsamlegum rökum, sé
fram komin um hvert atriði, er
varðar sekt og ákvörðun refsingar og
aðrar afleiðingar bröts, þar á meðal
hverja þýðingu skýrslur sökunauts
hafi.
Sjá: „Talið sannað að ákærðu
hafi banað Guðmundi og Geir-
finni“ á bls. 14 og 15.
Nýju BÚR-togararnir:
Jón Baldvins-
son og Ottó
N. Þorláksson
FULLTRÚAR borgarstjórnarmeiri-
hlutans i útgerðarráði Bæjarútgerð-
ar Reykjavíkur samþykktu á útgerð-
arráðsfundi í gær, að togarar þeir,
sem BUR á nú í smíðum. skuli hcita
Jón Baldvinsson og Ottó N. Þorláks-
son. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
greiddu hins vegar atkvæði nöfnun-
um Þormóður goði og Þorkell máni.
Fyrri togarinn, sem smíðaður er í
Portúgal, á að bera nafnið Jón Bald-
vinsson, en hinn togarinn, sem Stálvík
smíðar, verður skírður Ottó N. Þor-
láksson.
Björgvin Guðmundsson formaður
útgerðarráðsins neitaði því í samtali
við Mbl. í gærkvöldi, að útgerðarráð
hefði afgreitt nafngiftir togaranna í
gær.
Þrekraun björgunarsveitarmanna við Djúp:
„Fórum margoft á bólakaf
þegar brotin riðu yfir ...“
..I»AÐ mátti engu muna að illa færi. því við fórum sex í sjóinn
i hrimgarðinum þegar hátnum hvolfdi um CiO metra frá landi
og hrotin riðu stanzlaust vfir þarna. hitastigið í sjónum var
aðeins 0.5 gráður en það hatti mikið að við vorum allir
ullarkladdir." sagði Iíúnar Eyjólfsson formaður hjörgunar-
sveitarinnar Skutuls á ísafirði í samtali við Mhl. í gær. en 10
félagar út sveitinni tóku land á Snæfjallastrond við IJjúpið s.l.
mánudag til þess að ganga fjorur í samhandi við skipsskaðana
þar.
Fjórir úr hópnum fóru fyrst í
land á zodiak-gúmmíbát og gekk
allt vel, en síðan fóru sex í seinni
ferðinni með fyrrgreindum af-
leiðingum. Var báturinn vélar-
laus.
„Menn voru orðnir allþrekaðir
þegar komið var í land,“ sagði
Rúnar, „en við vorum fljótir að
hressast og það var hægt að hita
upp í húsinu sem við komumst í.
Eftir að bátnum hvolfdi héngu
þrír utan á honum, tveir flutu
frá og urðu að synda í gegnum
brimgarðinn og ég náði í ár sem
ég hélt mér á um leið og ég
reyndi að krafsa mig aö landi..
Strákarnir voru svo tilbúnir til
þess að taka á móti okkur í
fjörunni og veitti ekki af því við
höfðum margoft farið á bólakaf
á leiðinni þegar brotin riðu yfir
og líklega höfum við verið um 5
mín. að komast þessa 60 metra.
Við vorum allir vel klæddir og í
björgunarvestum, en þeir sem
héngu á bátnum ultu með honum
margar veltur án þess að sleppa
takinu. Maður hugsaði um það
eitt að vera rólegur, slappa af og
ég held að það hafi haft allt að
segja. Ef við hefðum farið að
basla eitthvað með látum er
hætt við að þrekið hefði verið
búið áður en við náðum landi.
Við erum þakklátir fyrir að
sleppa allir.“
Björgunarsveitarmenn Skut-
uls ganga fjörur á Snæfjalla-
strönd.
l.jÓKiti. Mhl. UAX.