Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980 „Hún f auk þarna vetrarvinnan64 Milljóna tjón þegar ný rúta „HÚN FAUK þarna vetrarvinn- an okkar,“ sagði Guðmundur Laugdal Jónsson bifreiðasmiður og bifreiðarstjóri á Selfossi í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. Um kiukkan 15 i gærdag fauk rúta útaf veginum undir Ingólfsfjalli og voru þeir tveir i Skeiðavegur: Kona fót- brotnaði í hörðum árekstri KONA á sextugsaldri fótbrotnaði að því er talið er i hörðum árekstri, sem varð á Skeiðavegi í Árnessýslu klukkan 22,32 í gær- kvöldi. Hún var flutt á sjúkrahús- ið á Selfossi. Áreksturinn varð milli tveggja fólksbifreiða. Önnur bifreiðin beygði af Skeiðavegi inn á afleggj- arann að Borgarkoti og í veg fyrir bifreið, sem kom á móti. Var áreksturinn mjög harður, og eru báðar bifreiðarnar mikið skemmdar. Konan sem slasaðist var farþegi í bifreiðinni, sem ók í veg fyrir hina. Ekki voru aðrir bílar á ferð á þessum hluta Skeiðavegar á þess- um tíma en fyrrnefndir tveir bílar. Eigi að síður lentu þeir í árekstri. fauk undir Ingólfsfjalli rútunni Guðmundur og nafni hans Tyrfingsson. Hann slasaðist á öxl og liggur nú á sjúkrahúsinu á Selfossi. Þeir nafnarnir hafa unnið að því í vetur að byggja yfir bílinn, sem er af Benz gerð og tekur 30 farþega. Voru þeir í reynsluakstri og höfðu aðeins ekið 6—7 kíló- metra, þegar óhappið varð. „Bíllinn tókst bara skyndilega á loft, fór heila veltu og hafnaði úti í móa,“ sagði Guðmundur. Bifreiðin er mjög mikið skemmd og skiptir tjónið milljónum, en rúta af þessari stærð kostar 35— 40 milljónir króna. „Það er sorg- legt að sjá vetrarvinnuna fara svona á nokkrum sekúndum," sagði Guðmundur. ísafjörður: í DAG, laugardag, fer fram í tsafjarðarkirkju minningarathöfn um sjómennina fjóra, sem fórust í ísafjarðardjúpi í mannskaðaveðri nú 25. febrúar s.l. Þá Hauk Böðv- arsson og Daníel Jóhannsson af m.b. Eiríki Finnsyni og ólaf Össur- arson og Valdimar Össurarson af m.b. Gullfaxa. Minningarathöfnin hefst kl. 2 og flytur sóknarpresturinn, séra Jakob Hjálmarsson, minningarræðuna. Séra Gunnar Björnsson sóknar- prestur í Bolungarvík leikur einleik á selló og Sunnukórinn syngur. Eftir athöfnina í kirkjunni verður gengið að minnisvarða sjómanna og lagðir þar blómsveigar. Þar sem gert er ráð fyrir miklu fjölmenni við minningarathöfnina hefur verið komið fyrir sætum við hátalara í Góðtemplarahúsinu fyrir þá sem ekki komast að í kirkjunni. Að minningarathöfninni lokinni verður erfisdrykkja húsinu. í Oddfellow- Úlfar. Verzlunarskólakórinn hélt tónleika á Lækjartorgi í gærdag. Allmargt manna hlýddi á kórinn og var söng hans vel tekið enda yljaði hann mönnum í norðangarranum. Ljósm. Mbl.: Ól.K. Mag. Lítil stúlka fauk og slasað- ist á höfði í NORÐANROKINU, sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið i gærdag varð það slys um tvöleytið, að vindurinn hreif með sér stúlku, sem var á gangi á Engihjalla i Kópavogi og feykti henni nokkurn spöl. Stúlkan meiddist á höfði og var flutt á slysadeild Borgarspitalans. Nokkrar skemmdir urðu vegna foks. Þakplötur fuku á fimm stöðum í Kópavogi og í gærkvöldi fauk mótafleki á bifreið á Boðagranda í Reykjavík og skemmdi hana tals- vert. Þá fauk þak af vinnuskúr í Blesugróf og rúður brotnuðu í hús- um, m.a. í Sjónvarpshúsinu við Laugaveg. Ingólfur Falsson, forseti FFSÍ Ögrun st jórnvalda við samtök sjómanna að aðhafast ekkert til lausnar fiskverðsvandanum Minningarathöfn um skipverjana fjóra FARMANNA- og fiskimanna- samband íslands , og Sjómannasamband íslands hafa ákveðið að kalla saman fund stjórna sambandanna og formanna allra sambands- félaga næstkomandi miðviku- dag, 26. marz og munu eiga rétt til setu á fundinum um 40 til 45 manns. Tilefni fund- arins er að ræða drátt á fiskverðsákvörðun og aðgerð- ir þar að lútandi. . Samkvæmt upplýsingum Ingólfs Falssonar, forseta Farmanna- og fiskimanna- sambands íslands, er fundur- inn haldinn til þess að knýja á stjórnvöld um aðgerðir, sem geri kleift, að ákveða nýtt fiskverð. Fiskverð, sefm tryggi sjómönnum sambærilega hækkun launa sinna og laun annarra þjóðfélagsþegna hafa hækkað um. Ingólfur sagði, að FFSÍ vildi að þessu tilefni ítreka fyrri mótmæli sín gegn óhóflegum drætti á fiskverðsákvörðun. Lítur sambandið á það sem hreina ögrun stjórnvalda við samtök sjómanna, að hafast ekkert að til lausnar þessum vanda. • • Benedikt Ogmundsson skipstjóri látinn BENEDIKT Ögmundsson fyrrverandi togaraskipstjóri í Hafnarfirði lézt á Borgarspít- alanum í Reykjavík í gær, 77 ára að aldri. Benedikt var skipstjóri á togurum Bæjarút- gerðar Ilafnarfjarðar í rúm 30 ár og einn af kunnustu togara- skipstjórum landsins. Benedikt Ögmundsson var fæddur í Hafnarfirði 4. október 1902, sonur Guðbjargar Krist- jánsdóttur og Ögmundar Sig- urðssonar skólastjóra. Hann lauk prófi frá Stýrimannaskól- Þorlákshöfn: Mun meiri afli kominn á land Þorlákshöfn, 21. marí, MIKILL afli hefur borizt hér á land að undanförnu en aflinn er þó mjög misjafn hjá bátunum. íslenzkir fataframleiðendur: „Eins og línudansarar sem leika listir sínar án öryggisnets44 — segir Haukur Björnsson „ÞAÐ MÁ líkja stöðu íslenskra fataíramleiðenda í dag við línu- dansara, sem leikur listir sínar án öryggisnets“, sagði Haukur Björnsson fataframleiðandi á þingi Félags ísl. iðnrekenda á fimmtudaginn. Haukur sagði, að íslenskur fataiðnaður hefði ekki fengið góðar spár, er hann hóf göngu sína fyrir u.þ.b. 10 árum síðan. í dag væri staðan allt önnur og íslenzkur fataiðnaður kominn á góðan rekspöl. „Þó vofir grýla yfir og það getur gerst hvenær sem er að fótunum verði kippt undan okkur. Þá á ég við, að með algjörri fríverzlun eigum við það á hættu að lenda í samkeppni við innflutning frá löndum, sem hafa ódýran vinnukraft og á ég þar sérstaklega við Asíulönd." Haukur spurði Þórhall Ásgeirs- son ráðuneytisstjóra, hvort ekki mætti á einhvern hátt með sérstökum tollaákvæðum eða innflutningskvótum koma í veg fyrir að slíkt gæti gerst, því það gæti riðið fataiðnaðinum að fullu á einum degi, eins og hann orðaði það. Ráðuneytisstjóri svaraði því til, að auðvitað yrði að taka slíkt til athugunar, ef til kæmi. Hann sagðist persónulega vera þeirrar skoðunar, að heilbrigðara yrði þá að beita tímabundnum tak- mörkunum en tollum. Hann upp- lýsti einnig, að nokkur Vestur- landa hefðu með sér samstarf um slíkar takmarkanir við t.a.m. Hong Kong vegna þessa. Stærri bátarnir, sem sækja langt eða allt austur fyrir Eyjar, hafa fiskað óhcmju vel. Hinir, sem hafa haldið sig á heimamiðum, hafa haft heldur lítið, eru með allt niður í 2—400 tonn. Þrír aflahæstu bátarnir eru Friðrik Sigurðsson með 978 tonn, Jón á Hofi með 809 tonn og Höfrungur III með 732 tonn. Heildarafli báta frá áramótum til og með 20. marz er 10.450 tonn í 838 löndunum. Meðalafli í róðri er um 12,4 tonn. Á sama tíma í fyrra var bátaafli 8.309 tonn í 792 löndunum, meðalafli 10,4 tonn. Togararnir hafa einnig fiskað vel. Þeir hafa landað 13 sinnum frá áramótum. Afli þeirra er 1890 tonn eða 145 tonn í löndun. Hér var landað 11.799 tonnum af loðnu og mun það vera lokatala að þessu sinni. Af þessu magni fór innan við 1000 tonn í vinnslu, þ.e. frystingu o.fl. í fyrra var aftur á móti landað 15.715 tonnum af loðnu. Enn er einn mánuður eftir af vertíðinni. Aprílmánuður hefur oft reynzt hvað fengsælastur. -Ragnheiður. Benedikt ögmundsson anum og var stýrimaður á togurum í allmörg ár. Þegar Bæjarútgerð Hafnarfjarðar var stofnuð 1931 var Benedikt ráð- inn skipstjóri á fyrsta togara fyrirtækisins, Maí. Þegar BÚH lét byggja nýsköpunartogarann Júlí í Bretlandi 1947 tók Bene- dikt við stjórn hans og hann varð svo skipstjóri á nýjum togara, Júní, sem byggður var í Bretlandi 1951. Þegar BÚH lét smíða nýjan Maí í Þýzkalandi 1960 varð Benedikt skipstjóri hins nýja skips og hann var með Maí til ársins 1962, þegar hann lét af skipstjórn. Kona Benedikts var Guðrún Eiríksdóttir. Hún lézt í ágúst 1959.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.