Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980 í þessari grein er skýrt frá staðreyndum um flúorblöndun — hvað flúorblöndun er, hvern- ig hún hófst, þróun hennar og hvaða áhrif hún hefir. Einnig verða teknar til umfjöllunar fullyrð- ingar um samband flúor- blöndunar og krabba- meins og þeir menn kynntir sem að baki þeim fullyrðingum standa. r ii Að kvöldi 10. febrúar 1976 sátu milljónir Hollendinga viö sjónvarpsskerminn og lögöu viö hlustirnar venju fremur. Fréttirn- ar um mútuhneyksli í Bandaríkj- unum höföu þá nýverið borist til Evrópu ásamt órörómi um aö Bernhard prins af Hollandi væri flæktur í málið. En þeir sem sátu og fylgdust meö fréttunum þetta kvöld voru grunlausir um hvílík áhrif næsta sjónvarpsfrétt ætti eftir að hafa á þeirra hagi. Þarna var um aö ræöa viðtal viö dr. phil. Dean Burk, amerísk- an lífefnafræöing sem áöur fyrr hafði unniö viö krabbameins- stofnun Bandaríkjanna, þá ríkisstofnun sem framkvæmir eöa styöur megnið af krabba- meinsrannsóknum sem geröar eru í Bandaríkjunum. Boöskapur dr. Burks var geigvænlegur. Hann hélt því fram aö flúorblönd- un drykkjarvatns í baráttunni gegn tannskemmdum myndi hafa í för meö sér þúsundir nýrra dauösfalla af völdum krabbam- eins í Bandaríkjunum. Einnig hélt hann því fram aö tölfræðilegar rannsóknir sem hann og annar lífefnafræöingur, dr. phil. John Yiamouyannis, heföu framkvæmt sýndu fram á samhengi milli flúorblöndunar og krabbameins. Hann fræddi hlustendur á aö flúorblöndun væri nokkurskonar opinbert fjöldamorö. Afrit af skýrslu Burk-Yiam- ouyannis haföi veriö sent til hollenskra þingmanna fyrir sjón- varspútsendinguna. Skömmu seinna var tiilaga frá heilbrigðis- ráöherranum um aö blanda flúori í allt drykkjarvatn í Hollandi stöövuö í þinginu. í ágústlok 1976 var bannaö meö konungs- bréfi aö flúorblanda drykkjarvatn í Rotterdam og í öörum hollensk- um borgum sem slíkt höföu gert árum saman. Vaxandi órói Þaö sem geröist í Hollandi var ekkert einangraö fyrirbæri. Flúorblöndun hefur oröiö fyrir vaxandi andróöri í Bandaríkjun- um og víöar sem hugsanlegur osakavaldur krabbameins og annarra sjúkdóma þrátt fýrir víðtækan stuðning lækna og tannlækna og annars heilsu- verndarstarfsliðs. Fyrir þrem árum höfnuöu kjós- endur í Los-Angeles reglugerö um aö flúorblanda drykkjarvatn borgarinnar eftir áróðursherferö, en þar var haldiö fram aö samband væri milli flúors og krabbameins. Frá því 1973 hafa hundruð kjósenda í minni borg- um í Bandaríkjunum gert slíkt hiö sama, oft af ótta viö krabbamein eða aöra sjúkdóma sem voru sagðir hafa átt rætur sínar að rekja tjl flúorblöndunar. A hverju byggist þessi ótti? Er vísindalegur ágreiningur um ör- yggi flúorblöndunar? J. Delaney þingmaður demokrata frá New York formaöur allsherjarnefndar fulltrúadeildarinnar svarar þess- ari spurningu afdráttarlaust ját- andi. Sem ákafur andstæðingur flúorblöndunar hefur Delaney lagt fast aö þinginu aö stööva flúorblöndun meöan beöið er eftir árangri áframhaldandi rann- sókna. í haust sem leiö hóf ein nefnd þingsins vitnaleiöslu í mál- inu. Doktorarnir Burk og Yiam- ouyannis gerðu þar grein fyrir sínum skoöunum og slíkt hið sama geröu fulltrúar frá Banda- ríska tannlæknafélaginu, Krabbameinsfélagi Bandaríkj- anna og framámenn í flúorrann- sóknum. Einnig voru kynntar fjölmargar umfangsmiklar vísindalegar rannsóknir og um- sagnir sérfraðöinga um flúor- blöndun. Þessar vitnaleiðslur leiddu í Ijós — og var þaö skoöun Neytendasamtaka Bandaríkj- anna einnig — aö verið væri aö leiöa milljónir Bandaríkjamanna á villigötur varðandi mál sem bæöi heföi geysimikil áhrif á heilbrigöi þeirra og tannlækn- ingakostnaö. Flúorblöndun neysluvatns er eina framkvæmd- in í heilbrigðismálum sem millj- ónir Bandaríkjamanna hafa feng- ið útkljáö meö beinni atkvæða- greiðslu. Vitnaleiðslunnar var mjög lítiö getið í fjölmiölum, aö undanteknum þeim blööum sem eru vön aö birta efni á móti flúorblöndun. í þessari grein er skýrt frá staðreyndum um flúorblöndun — hvað flúorblöndun er, hvernlg hún hófst, þróun hennar og hvaöa áhrif hún hefur. Einnig veröa teknar til umfjöllunar full- yröingar um samband flúor- blöndunar og krabbameins og þeir kynntir sem aö baki þeim fullyrðingum standa. Síöar verö- ur fjallaö um aðrar fullyrðingar sem oft hafa verið notaðar gegn flúorblöndun, m.a. um ofnæmi, meöfædda vansköpun og hjarta- og æöasjúkdóma. Um „Colorado- bletti“ á tönnum Flúoríö eru efnasambönd með frumefninu flúor. Flúoríö finnast í ýmsu formi nánast í öllum jarö- vegi, jurtum og dýrum, sömuleiö- is í blóöi, beinum og tönnum mannsins. Það finnst einnig í litlu magni í öllum náttúrulegum vatnsbólum. En flúormagniö í vatni er mjög mismunandi. í Bandaríkjunum er flúormagn vatns í náttúrunni allt frá u.þ.b. 8 ppm í suðvestur ríkjunum niöur í einungis 0.05 ppm í noröaustur ríkjunum. (Ppm — parts per million = mg í lítra). Flúorblöndun er einfaldlega jöfnun á náttúrulegu flúormagni í um 1 ppm — skammtur sem gerir glerung tannanna sterkari og minnxar verulega tann- skemmdir, einkum hjá þeim sem fá flúorblandaö drykkjarvatn frá unga aldri. Talan 1 ppm (sem er frá 0.7 til 1.2 ppm, allt eftir aðstæðum hvers staðar) er ekki valin af handahófi. Ákvöröun hennar kom í kjölfar langvinnra rannsókna, sem má líkja viö fullkomna leynilögreglusögu meö óvæntum endi. Tveir vísindamenn, sem unnu viö rannsókn á útlitsgöllum tanna uppgötvuöu efniö snemma á þessari öld. F.S. McKay og G.V. Black leituöu orsakanna fyrir blettum sem mynduöust á gler- ungi tanna, mislitun á glerungin- um þekkt undir nafninu „Color- ado brúnir blettir" og „Texas tennur“. Fyrir lok ársins 1916 höfðu þeir með rannsóknum sínum útilokað allt nema eitt- hvert óþekkt efni í drykkjarvatni. Þegar það væri fundið mætti fjarlægja þaö úr vatninu. Þaö leið þó langur tími eöa allt til 1931 þar til efniö varö þekkt sem flúoríö. Meöan á þessum rannsóknum stóð haföi McKay tekiö eftir ööru. Sem starfandi tannlæknir haföi hann uppgötvaö aö ótrú- lega lítiö bar á tannskemmdum hjá fólki sem haföi bletti á glerungi. Áhugamál heilbrigðisyf- irvalda var á þeim tíma hvernig hægt væri aö fjarlægja flúor úr vatninu. En uppgötvun McKays vakti áhuga heilbrigðisyfirvalda á áframhaldandi rannsóknum í þeim tilgangi aö fá meiri vitn- eskju um áhrif flúors á tennur. Á næstu 10 árum stjórnaöi dr. H.T. Dean viö heilsuverndarþjón- ustuna hópi fólks sem rannsak- aöi ástand tanna hjá 7257 börn- um í 21 borg meö mismunandi magn flúors í náttúrulegu drykkj- arvatni. Útkoman var ótvíræö. Því meira sem var af flúori í vatninu þeim mun faerri tann- skemmdir hjá börnunum. Þegar vatniö haföi um 1 ppm eöa meira flúoríö haföi barniö nálægt 60% minnni tannskemmdir en þau börn sem drukku vatn meö óverulegu magni af flúoríði. Þá fundu þeir enga bletti á glerungi þar sem innihaldiö var 1 ppm. Hins vegar varö þeirra vart þegar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.