Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980
25
ennum
ipp á
Mayen
Sovétmenn settu sér það tak-
mark öðrum þræði að reka
fleyg í milli íslands og Norð-
manna með tilliti til aðildar
landanna að Atlantshafsbanda-
laginu. „Þetta er spurning, sem
ég get ekki svarað. Hún er fyrir
ráðherra, en ekki ráðuneytis-
stjóra," svaraði Hörður.
Hörður kvaðst svo í lokin
vilja minna á, að Sovétmenn
ættu einmitt nú í samninga-
viðræðum við Norðmenn um
Barentshaf.
/ /
ru a
af
Mayen
lagsins. „Ég hef ekki nokkra trú
á því,“ svaraði utanríkisráð-
herra. „Ég veit satt að segja
ekki, hvernig slíkt ætti að
gerast. En þá veit ég nú heldur
ekki, hvað þeir hugsa, Sovét-
menn.
Satt að segja finnast mér
þessar vangaveltur bera full-
mikinn keim af hugarburði. í
það minnsta tel ég mig geta
sagt það, að til þeirra liggja
engar íslenzkar ástæður."
nisleg
ni
) væri, jafnvel þótt skip fari
i landi í stað innflutningsins.
)
úr
l Sú ríkisstjórn, sem þannig boð-
I ar sérstaklega í málefnasamningi
i að efla innlendan skipasmíðaiðn-
i að, framkvæmir þveröfuga
stefnu. Þessi fljótfærnislega og
yfirborðskennda ákvörðun
i Steingríms Hermannssonar mun
því rýra kjör sjómanna og útgerð-
í ar og draga þrótt úr innlenda
í skipasmíðaiðnaðinum,“ sagði
i Kjartan Jóhannsson.
'ldur tónleika
i
1
allir starfandi kóra innan skól-
anna. Er þessari leiðréttingu hér
með komið á framfæri.
1 Kór Menntaskólans við Sund
heldur tónleika í Bústaðakirkju á
, morgun, sunnudag klukkan 17.
r Stjórnandi kórsins er Vilhjálmur
t Guðjónsson.
Vatnaskógur í vetrarríki.
ólafur Jóhannsson:
Hjónarifrildi á kvöldvöku.
Páskafríið vel notað á kristilegu
skólamóti i Vatnaskógi og Vindáshlið
MIÐVIKUDAG fyrir páska er
mikið um að vera hjá Kristi-
legum skólasamtökum, KSS. í
skólum er byrjað páskafrí og
KSS-ingar kunna að notfæra
sér það. Áðurnefndan merkis-
dag hefjast þriggja sólarhringa
kristileg skólamót á vegum
KSS. Mótin eru haldin í sumar-
búðum KFUM og KFUK í
Vatnaskógi og Vindáshlið.
Mér datt i hug að þig langaði
e.t.v. til að vita eitthvað um
þetta uppátæki. Vonandi svalar
eftirfarandi lýsing einhverju af
forvitni þinni. Viljirðu hins
vegar vita meira, skaltu byrja á
því að fletta Kristilegum skóla-
samtökum upp i símaskránni.
Og sértu á aldrinum 14—20
ára, er þér meira en velkomið
að kynnast kristilegu skólamóti
af eigin raun. 2.-5. apríl n.k.
Mörg ár eru síðan fyrst var
haldið kristilegt skólamót.
Lengst af hafa þau verið haldin
tvisvar á ári, vor og haust.
Seinustu árin hefur orðið að
tvískipta vormótinu vegna fjölda
þátttakenda. í Vatnaskógi eru
þá yfirleitt vel á annað hundrað
þátttakendur en allmiklu færri í
Vindáshlíð.
Þessir unglingar eru ekki ein-
göngu af Reykjavíkursvæðinu,
þótt KSS starfi einungis þar.
Akurnesingar, Keflvíkingar og
Selfyssingar eiga alltaf fulltrúa í
hópnum. Og stundum koma
m.a.s. einhverjir frá Akureyri,
Isafirði og Vestmannaeyjum.
Að mörgu
er að hyggja...
Helgina fyrir páska fara
nokkrir hraustir félagsmenn á
undan öðrum mótsgestum í
Vatnaskóg og Vindáshlíð. Þeir
eiga að undirbúa komu hópsins.
Það þarf að gera lágmarks-
hreingerningu og ekki sakar að
hita skálana upp. Þá má alls
ekki gleyma músaveiðunum og
snjómokstrinum. Allt verður að
vera eins og best verður á kosið
þegar mótin hefjast.
En þetta er alls ekki byrjunin.
Rætur aðdragandans ná allt
aftur undir áramót. Að mörgu er
að hyggja varðandi dagskrárat-
riði, næringaröflun og annað það
sem þarf t.þ.a. ekkert fari úr-
skeiðis. Að baki hverju móti er
mikið amstur. Stundum andvök-
ur og áhyggjur.
En venjulega hefst þetta allt
saman á endanum. Þess vegna
safnast væntanlegir mótsgestir
saman við KFUM-húsið að Amt-
mannsstíg 2B um hádegisbilið
umræddan dag. Að vísu ekki
allir, því sumir drejfbýlingar
fara beint á mótsstað. Við hinir
höldum hópinn í langferðarenni-
reið. Og þegar búið er að hringja
í þá sem sváfu yfir sig, er lagt af
stað óstundvíslega.
Stutt gaman,
en gaman...
Vonandi fer allur farangur á
réttan stað, ekki síst matur og
ráðskona, því annað gæti verið
bagalegt. Það er helst að ein-
hverjir hafi skilið óþarflega
mikið af kuldaflíkum eftir
heima. Um hávetur getur orðið
býsna kalt í sumarskálum
sumarbúðanna.
Þar sem ökuferðin endar, taka
fæturnir við. Þegar vel árar,
þurfa þeir ekki að taka mörg
skref. En stundum fá allir góðan
gongutúr, jafnvel í stórhríð.
Skólamótsfarar láta það ekki á
sig fá. Og það gerir ekkert til
þótt farangurinn sé mikill.
Sterkara kynið fer fúslega fleiri
ferðir ef með þarf.
Svo hefst mótið sjálft. Á
kristilegu skólamóti eru biblíu-
lestrar og aðrar samverustundir
um Guðs orð á morgnana og
síðdegis. Kvöldvökur eru að
loknum kvöldverði. Reynt er að
láta mótsgesti taka sem mestan
þátt í þessum samverustundum.
T.d. er alltaf mikið sungið á
skólamótum.
Milli matartímanna og sam-
verustundanna gera mótsgestir
allt að því það sem þeim dettur í
hug. Sé Eyrarvatn nægilega
frosið, er það t.d. óspart notað til
skautaiðkana og annars konar
sprikls og leikja. Annars er
alltaf hægt að finna eitthvað sér
til dundurs, jafnt úti við sem
innan dyra.
Eftir allt gamanið og allar
góðu stundirnar kemur laugar-
dagsmorguninn alltof fljótt en
þá er mótinu slitið og allir fara
heim til sín. Flestir eru þreyttir
en ánægðir og strax farnir að
hlakka til næsta móts.
Þröngt mega sáttir eta. Eitthvað alvarlegt að gerast á kvöldvöku.
i