Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980 11 Staðnir að verki Um langa hríð hefur grænlenzka fiskimenn grunað að Vestur-Þýzku verksmiðjutogararnir, sem voru að veiðum við Austur- og Vest- ur-Grænland, væru ekki ætíð með eintóman karfa í pokanum. Þeir þóttust reyndar vissir um það, grænlenzku fiskimennirnir, að Vestur-Þjóðverjarnir sem leyfi höfðu til karfaveiða væru á þorsk- veiðum, sem eru háðar kvóta sam- kvæmt fiskveiðisamþykkt Efna- hagsbandalagsríkjanna. Græn- lendingarnir hafa árum saman sagzt hafa veitt oft á tíðum sam- hliða Vestur-Þjóðverjunum og sjálfir ekki fengið annað en þorsk á svæðinu og talið algerlega útilokað að svo hafi ekki einnig verið um þjóðverjana. Fiskveiðieftirlits- menn við 'Grænland hafa verið sömu skoðunar og grænlenzku fiskimennirnir, að Þjóðverjarnir hafi verið á þorskslóð en ekki karfaslóð langtímum saman. Á síðustu mánuðum hafa fiskveiði- eftirlitsmennirnir gert sér tíðari ferðir um borð í þýzku verksmiðju- togarana og aðvarað þá stranglega og er talið að það hafi borið nokkurn árangur en ekki fullan árangur sem á daginn er komið. Fiskveiðieftirlitið var þá enn hert nú í byrjun vetrar og árangurinn varð snarlega sá, að innan þriggja daga vofu þrír Vestur-Þýzkir verk- smiðjutogarar staðnir að ólögleg- um þorskveiðum. Allir þessir þrír verksmiðjutogarar eru eign útgerðarfyrirtækja í Vest- ur-Þýzkalandi og tveir þeirra eign Nordsee Hochseefischerei, en það útgerðarfyrirtæki er sjálft hluti af Unilever-hringnum mikla. í hundruðum verzlana þessa mikla hrings um alla Evrópu er þessi stolni þorskur seldur flakaður og frystur. Höfðu veitt 10% heildarkvótans Því trúir enginn, að fiskveiði- brotin séu tilviljanakennd og sprottin að frumkvæði hinna ein- stöku skipstjóra. Verksmiðju- togararnir þykjast halda á Græn- landsmiðin til að veiða karfa, sem Standa stórfyr- irtæki bak við wrska- jjofn- aðinná Græn- lands- miðum? þeir hafa leyfi til, en snúa heim með fullar lestar af þorskflökum. í einu þekktu tilviki lagði aflinn sir hjá verksmiðjutogara, sem kom af Grænlandsmiðum á 2.2 milljónir danskra króna sem svarar nú til 154 milljóna íslenzkra króna. Afla- magnið var 200 tonn af flökum eða um 600 tonn uppúr sjó. Þeir þrír togarar, sem teknir voru í áðurnefnt skipti virðast hafa veitt um 10% af heildarþorsk- kvótanum á Grænlandsmiðum fyrir árið 1980. Þetta hefur getað gerzt vegna slælegs eftirlits. Útlend veiðiskip þurfa aðeins að tilkynna það með skeyti utan af miðunum, þegar þau halda heim, hver aflinn sé og hvaða fisktegundir sé um að ræða. Það hafa að vísu verið teknar „stikk- prufur" og einstaka sinnum farið um borð í skipin, en það sýnir sig að það eftirlit hefur ekki nægt. Nú eru því uppi mjög háværar kröfur um að eftirlitið sé stórlega hert. Röng staðar- ákvörðun Það komst upp um verksmiðju- togarana svo sannanlegt væri með þeim hætti, að varðskipið „beskytt- eren“ sigldi framhjá Vestur-Þýzka verksmiðjutogaranum „BX Geeste" frá Bremerhaven er 96 metra togari 3576 brúttó tonn. Togarinn var að veiðum við Vestur-Græn- land á 61. gr. n.br. og 50 gr. v.l., þegar Beskytteren sigldi framhjá honum. Þessi staður kom ekki heim og saman við þann stað, sem togarinn hafði gefið upp og aflinn reyndist allur annar en grænlenzka fiskveiðieftirlitinu hafði verið gefinn upp. Togarinn hafði leyfi til karfaveiða, en aflinn reyndist þorskur. Hann var kominn með 189 tonn af þorskflökum. Áhöfn togarans, 70 menn, unnu í skorpu að fiskaðgerðinni. Við réttarhöld yfir skipstjóran- um í Nuuk (Godthaab) laugardag- inn 22. febrúar viðurkenndi skip- stjórinn brot sitt. Þessi skipstjóri hafði í 14 ár stundað veiðar við Grænland og fengið aðvörun fyrir nokkrum mánuðum. Lögreglufull- trúi ákvað sektina í lögreglurétti 200 þús. danskar krónur (15.4 millj. ísl.) og upptök alls afla, sem virtur var á 2.2 milljónir (169 millj. ísl.) þessu vildi skipstjórinn ekki una og áfrýjaði til dómstóia. Hann fékk síðan að halda á veiðar eftir að hafa sett 3 milljón króna tryggingu (210 milljón ísl. kr.) Ekki borgaði sig fyrir skip- stjórann eða útgerðina að áfrýja úrskurði lögregluréttarins. Sektin var þyngd í 500 þús. kr. danskar eða 36 milljónir íslenzkar. Hins vegar var verðmæti upptekins afla lækkað að mati í 1.9 millj. eða 158 millj. ísl. kr. Skammt stórra högga á milli Þótt þessi dómur væri óneitan- lega þungur, þótti mörgum græn- lenzkum ekki nóg aðgert, einkum það, að verksmiðjutogaranum skyldi leyft að halda á veiðar aftur áður en endanlegur dómur féll. Nú reyndist skammt stórra högga á milli hjá landhelgisgæzl- unni. Daginn sem skipstjórinn á Geeste mætti fyrst fyrir rétti, eða þann 17. febrúar, voru tveir aðrir Vestur-Þýzkir verksmiðjutogarar staðnir að ólöglegum veiðum og nú milli Austur-Grænlands og íslands. Það var varðskiprð „Ingólf" sem kom að verksmiðju- togurunum að ólöglegum veiðum á þessu svæði (sem ekki er nánar tilgreint í blaðinu en að það hafi verið milli Islands og Aust- ur-Grænlands) Þetta voru togararnir „Heidelberg" og „Júlíus Pickenpack". Báðir reyndu þeir að stinga varðskipið af en Heidelberg gafst upp eftir sjö tíma eftirför en Júlíusi tókst að komast undan og stefndi inní íslenzka lögsögu (forsvandt mod islandsk farvand). Danska utanríkisráðuneytið hafði samband við Vestur-Þýzk yfirvöld meðan á eltingarleiknum stóð og þau skipuðu togurunum að stoppa. Skipstjórinn á Heidelberg hlýddi en ekki hinn, sem fyrr segir, og Julius Pickenpack hvarf útá víðáttu „ hins bláa hafs.“ Þann 29. febrúar, þegar greinin í Berlingske aften er birt, er sagt, að enginn viti þá enn hvar skipið sé statt. Vestur-Þýzk yfirvöld .höfðu ekki náð sambandi við skipið og út- gerðarfyrirtækið svaraði ekki í síma. Vestur-Þýzk stjórnvöid hétu Þýski verksmiðjutogarinn höfninni í Nuuk (Godtháb). því, að skipstjórinn skyldi leiddur strax fyrir rétt og hann skilaði sér til hafnar og dómurinn yrði ekki vægari en sá sem hann hefði fengið fyrir grænlenzkum dómstóli. Heidelberg reyndist vera með um 200 tonn af ólöglegum þorsk- flökum að verðmæti 2.3 milljónir d.kr. (165.6 millj. ísl. kr.) en talið var að Júlíus Pickenpack væri með um það 43 tonn af þorskflökum. Skipin send til þess að stela fiski Þessar fiskveiðibrot Vestur-Þýzku verksmiðjutog- aranna urðu strax pólitískt hita- maí. Þetta var kallaður „atvinnuþjófnaður af grófasta tagi“ og „að yfirlögðu ráði“ skipin hafi beinlínis verið send til að „stela fiski". Það þótti til dæmis sannað í réttarhöldunum yfir skip- stjórarnum á „Geeste", að skipið hafi átt að brjóta fiskveiðisam- þykktina. Hinn illi bifur á auð- hringum blandaðist í málið og Grænlandsmálaráðherrann, Jörgen Peder Hansen lét þessi orð falla ásamt fleirum álíka. „Það má með engu móti borga sig fyrir fjölþjóðfyrirtæki (multinational selskaber) að verja fjármagni sínu til óiöglegra fisk- veiða en eitt slíkt fjölþjóðafyrir- tæki hefur vitandi vits brotið samkomulag og reglur um fisk- veiðar.“ Jonathan Motzfeldt (Landstyrets formand) tók ekki vægar til orða. „Sjóræningjaveiðar þýzkra togara í Norður-Atlantshafi er ekki aðeins þjófnaður, lygi og svik við Gæn- lendinga, heldur einnig gagnvart Danmörku, sem er í Efnahags- bandalaginu." Sú er þó ekki skoðun danskra stjórnvalda né Græn- landsmálaráðuneytisins, að Efna- hagsbandalagið geti tekið á sig sök af fiskveiðilagabrotum einstakra togara. Hlutaðeigandi útgerðar- félög verði að bera ábyrgð og skaða af þeim. Þessi er einnig skoðun formanns Atassuts-flokksins grænlenzka en hinsvegar telur formaður Siumut-flokksins, Lars Emil Johansen, að þessi fisk- veiðibrot hljóti að koma til kasta Efnahagsbandalagsins, þar sem „Geeste“ frá Bremerhaven í þau séu brot á þess eigin fiskveiði- samþykktum. Hann hefur enn fremur sagt. Sú upphæð, sem Efnahagsbandalagið hefur látið Grænlendingum í té í ýmsu formi nemur nú um 600 milljónum króna (43.2 ísl. milljarðar ísl. kr. ) en hvað er það á móti öllu, sem Eb.-fiskimenn hafa stolið frá okkur ...“ Fulltrúi Grænlendinga í Efna- hagsbandalags ráðinu segir: „Ef afleiðingarnar eiga ekki að verða hættulegar fyrir samband okkar við EB., verða Efnahagsbandalagið að vera betur vakandi yfir fisk- veiðum meðlimaríkjanna við Grænland. Það hafa komið fram kröfur um enn hærri sektir en í áðurnefndum dómum, og upptöku veiðarfæra auk afla, afturköllun leyfa til veiða, stóraukið eftirlit, til dæmis sé skipunum gert að koma við í grænlenskri höfn til skoðunar áður en þau sigla heim af miðunum og einnig þurfi að fylgjast með lönduðum afla í heimahöfnum, en þar sé nú ekkert eftirlit með samsteningu aflans. Þannig hljóðar tyrirsögnin á grein þeirri, sem hér er snarað úr danska blaðinu Berlingske Aften 29. febrúar, ogfjallar um fiskveiðibrot Vestur-Þýzkra verksmiðju- togara við Grænland. Ákærandinn í einu réttarhaldinu í febrúar tók svo til orða: „ Við eigum í höggi við fjársterk útlend fyrirtæki, sem afráðnum hug og fullkomnu purkunarleysi eru að ræna fátæktþjóðfélag þeirri auðlind, sem það byggir tilveru sína / 44 a. Mál þetta allt er orðin pólitísk hrollvekja, og snertir ekki aðeins Vestur-Þjóðverja, Grænlendinga ogDani, heldur einnig Efna- hagsbandalagið í heild. Grænlenzkir stjórn- málamenn eru sárir og reiðir og krefjast mikilla bóta, aukinnar gæzlu ogaukinnar stjórnar á veiðum útlendinga við Grænland. Það er almennt álit Grænlendinga, að þessar ólöglegu þorskveiðar hafi átt sér stað árum saman.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.