Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980 39 Daniel Jóhannssun Pétur Jóhannsson Hjálmar Einarsson Gidlfaxa og Eiriki Finnssyni ingjum þeirra okkar dýpstu samúð og biðjum Guð að gefa þeim styrk í miklu mótlæti. Kristján J. Jónsson. Að kvöldi mánudags 25. febrúar s.l. barst mér sú harmafregn að tveggja rækjubáta frá ísafirði væri saknað og með þeim fjögurra vaskra sjómanna á besta aldri. Mig setti hljóðan og hugsaði: „Getur þetta verið, er enn ein fórnin færð af sjómannastétt- inni?“ Jú, sú varð því miður raunin. Um miðjan þennan dag brast á með aftaka S-V veðri, er allflestir rækjubátar voru á sjó og áttu 3 bátar frá Vestfjörðum ekki aftur- kvæmt úr þeim róðri. Tveir frá ísafirði og einn frá Bíldudal. Mikill harmur er nú kveðinn að aðstandendum manna þeirra er þar fórust. Bið ég góðan guð um styrk þeim til handa. ólafur Össurarson, æskuvinur minn, fermingarbróðir og svili fórst ásamt yngri broður sínum Valdemar á bát þeirra bræðra m/b Gullfaxa. Ólafur var nýorðinn 48 ára gamall. Hann var sonur þeirra sæmdarhjóna Guðbjargar Her- mannsdóttur og Össurar Valde- marssonar frá Isafirði, en Össur er nýlátinn eftir langvinna sjúk- dómslegu. Óli Össurar en það var hann jafnan kallaður af þeim sem þekktu hann byrjaði snemma sjó- mennsku eftir að skyldunámi lauk og var á sínum yngri árum á vertíðum bæði sunnan lands og vestan á vetrum og allmörg sumur á síldveiðum norðanlands, eins og algengt var með unga menn á þeim árum. Varð Óli fljótlega eftirsóttur í skiprúm sökum dugnaðar, sam- viskusemi og frábærrar snyrti- mennsku í hvívetna. Árið 1960 keypti hann ásamt Guðjóni Lofts- syni mági sínum m/b Mumma, lítinn en góðan bát sem þeir stunduðu rækju og handfæraveið- ar á, og varð þessi bátur þeim hin mesta happafleyta um árabil. Árið 1968 keypti Óli svo m/b Gullfaxa, ásamt Ægi Ólafssyni svila sínum, sem þeir gerðu út um árabil í góðri sambúð og oftast með frá- bærum árangri. Árið 1974 keypti Valdemar bróðir Óla hlut Ægis í m/b Gullfaxa og voru þeir bræður sameignarmenn allt til þess er hið hörmulega slys varð og þeir fórust með bát sínum í því aftakaveðri sem öllum er í fersku minni. Voru þeir bræður sérlega sam- hentir og báturinn þeirra Gullfaxi bar af öðrum bátum hvað snyrti- mennsku og alla umgengni snerti. Ekki brást heldur aflasældin þar sem Óli var. Hún var söm sem fyrr. Óli giftist eftirlifandi konu sinni Hjördísi Óskarsdóttur frá Hrísey 5. janúar 1962 og eignuðust þau þrjú mannvænleg börn: Ómar 23 ára, þá Valdemar, en hann misstu þau hjón aðeins 4 ára gamlan af slysförum fyrir nær 13 árum. Margrét er yngst, 11 ára gömul. Óli átti einn son áður er Jón heitir og býr hann í Keflavík. Með þeim feðgum var ávallt mjög gott samband. Að þeim hjónum Óla og Hjör- dísi, var þungur harmur kveðinn er þau misstu svo snögglega Valdemar litla, efnilegan indælan dreng, en með gagnkvæmri ást og trú yfirstigu þau sorg sína og þökkuðu guð af alhug er þeim fæddist einu og hálfu ári síðar dóttirin Margrét. Óli var hamingjusamur í fjöl- skyldulífi sínu, heimili sitt mat hann ofar öllu öðru og er það rómað fyrir frábæra gestrisni og höfðingsskap og voru þau hjón um það mjög samhent. Eitt er það sem ég tel fremur öðru best hafa lýst mannkostum Óla, en það var hversu hjálplegur hann var þeim sem voru hjálpar- þurfi, bóngóður og gjafmildur þeim er minna máttu sín, að ógleymdri hans sérlega léttu lund. Foreldrum sínum reyndist hann ávallt hið besta svo og systkinum sínum og öllu venslafólki. Nú er leiðir hafa skilist að sinni vil ég þakka kærum vin fyrir ævilanga vináttu sem aldrei hefur fallið skuggi á. Ég vil þakka umhyggju hans íyrir börnunum mínum, en hann setti sig aldrei úr færi að gera allt sitt besta fyrir þau og þá ekki hvað síst er hann vissi að geta okkar foreldranna náði ekki til. Skarð Óla stendur autt og verð- ur ekki fyllt en mikil huggun harmi gegn er fögur minning um góðan dreng sem mun lýsa ástvin- um hans öll ókomin ár. Ég þakka Óla samfylgdina með hrærðum hug með þeirri fullvissu að hann sé nú alsæll hjá skapara vorum og hafi nú sameinast sínum elskaða syni og föður sem á undan voru gengnir. Öllum ástvinum hans votta ég mína dýpstu samúð. Megi guð styrkja aldraða móður hans sem missti tvo sonu sína; eftirlifandi systkini hans og venslafólk; elsk- aða eiginkonu hans, Hjördísi; syn- ina Jón og Ómar, Margréti litlu og elskuleg barnabörnin. í guðs friði. Pétur Geir Helgason — Daníel Jóhannsson Fæddur 12. ágúst 1955 Dáinn 25. febrúar 1980 Þriðjudagurinn 26. febr. sl. var dimmur dagur í fjölskyldu okkar. Snemma morguns hringdi systir mín til mín og sagði að Danni væri týndur. Þann dag hraut margt tár af hvarmi. Já, bilið er stutt milli blíðu og éls. í dag fer fram minningarathöfn um sjómennina ísfirsku, sem týndust í mann- skaðaveðrinu hinn 25. febr. sl. Einn þessara manna var Daníel Jóhannsson. Hann fæddist á Isa- firði hinn 12. ágúst 1955. Faðir hans, Jóhann, býr þar enn aldrað- ur og lasburða, en móðir hans, Ásdís, starfar hér syðra. Kynni okkar Daníels, sem voru alltof stutt, hófust er hann trúlof- aðist systurdóttur minni, Láru Lárusdóttur, sem hafði farið til náms í Hússtjórnarskólann á ísa- firði, að loknu landsprófi hér í Reykjavík. Okkur datt ekki í hug, að Reykjavíkurstúlkan kynni svona vel við sig á Isafirði eins og raun bar vitni um, en ástæðan kom brátt í ljós. Hún hafði hitt ungan Isfirðing, og nú var ekki að sökum að spyrja. Brúðkaup þeirra var haldið hér á heimili foreldra hennar um jólaleytið árið 1977, og hittust þar fjölskyldur brúðhjón- anna. Strax við fyrstu kynni féll mér sérstaklega vel við Daníel. Hann var einlægur, skemmtilegur, lifandi, jákvæður ungur maður, algjörlega fjaslaus og ósérhlífinn. Myndarlegur á velli og fríður sýnum. Framtíðin virtist blasa björt við ungu hjónunum. Þau bjuggu á ísafirði og var faðir Daníels fyrst í heimili með þeim og féll vel á með þeim Láru, enda vildi hann allt fyrir hana gera. En ungu hjónin hugsuðu til þess að fá sér rýmra húsnæði og höfðu því selt gömlu íbúðina og voru tekin til við að byggja nýtt hús. Var tilhlökkunin mikil, að geta nú í sumar flutt í það. Þau höfðu nú líka eignast tvo syni, Lárus, sem nú er tveggja ára og lítinn dreng fæddan í janúar sl., sem þau höfðu ákveðið að gefa nafn afa síns. En nú hefur hann hlotið nafn afa síns og föður, Jóhann Daníel. Þrátt fyrir stutta samveru á fjölskylda mín Daníel margt gott að þakka. Ég minnist þess, að á síðastliðnu vori, hafði brugðist sumaratvinna, sem yngri sonur okkar átti von á. Ég hringdi til Daníels og bar mig upp við hann. Ekki leið nema klukkustund, þá talaði hann við mig og kvaðst vera búinn að útvega pilti vinnu á Isafirði, það væri bara verra með húsnæði, en hann gæti þá bara sofið í stofunni hjá þeim. Varð það svo úr, að hann var þar allt sl. sumar og veit ég að nú saknar hann vinar í stað. Dóttir okkar, jafnaldra Láru, dvaldi einnig um tíma hjá þeim og mat hún Daníel mjög mikils. Veit ég að hugur systkinanna hefur verið hjá Láru og drengjunum að undanförnu. Þar sem góðir menn fara eru guðsvegir, en guðsvegir eru líka órannsakanlegir, og vér mennirnir getum litlu ráðið um, hvað fram- tíðin ber í skauti sér. Tíminn læknar sárin og bjartar minn- ingar eru líka auður á ævibraut. Foreldrar og systkini Láru hafa nú misst einn úr hópi, sem hefur verið mjög samheldinn og er þeirra söknuður einnig mikill. Að endingu sendi ég og fjöl- skylda mín samúðarkveðjur til foreldra og systkina Daníels. Láru og litlu sonunum biðjum við guðs- blessunar á ófarinni ævibraut. Sigfríður Nieljohníusdóttir — Haukur Böðvarsson Fæddur 18. september 1949 Dáinn 25. febrúar 1979 Bróðurkveðja í dag, laugardag, fer fram frá Isafjarðarkirkju minningarathöfn um skipverjana af rækjubátunum m/b Éiríki Finnssyni og m/b Gullfaxa, sem fórust í ísafjarðar- djúpi í ofsaveðrinu sem gekk yfir vestanvert landið mánudaginn 25. febrúar sl. Mig langar í nokkrum orðum að minnast míns kæra bróður og vinar, Hauks, skipstjóra á m/b Eiríki Finnssyni, bátnum sem bar nafn afa okkar í móðurlegg. Haukur var næstelstur fjögurra barna hjónanna Iðunnar Eiríks- dóttur og Böðvars Sveinbjörnsson- ar, beggja frá ísafirði. Móður sfn'a missti Haukar í maí 1974, og var það honum eins og okkur öllum þungbær raun. Einstaklega mikill trúnaður og skilningur einkenndu öll þeirra samskipti, og studdi mamma hann með ráðum og dáð, þegar Haukur hóf sinn skipstjóra- feril, rétt tvítugur að aldri. Ungur fór Haukur á sjóinn, 14 ára fór hann fyrst á handfæri, eins og gjarnt var um unga drengi í þá daga. Ég ætla ekki að telja upp öll þau skip sem hann stjórn- aði á sínum tíu ára skipstjórnar- ferli, þau voru mörg, stór og smá, allt frá litlum rækjubátum upp í 250 lesta línuveiðara. Allan sinn feril aflaði Haukur afburða vel, sótti sjóinn af ákafa og dugnaði, stundum svo að okkur landkröbbunum þótti nóg um. Eins var til tekið hve vel hann gekk um skipin sín, og gleggsta dæmið var báturinn hans sem hvarf með honum í djúpið þennan hörmungadag. Síðustu vikurnar var hugur hans um borð í nýja bátnum hans, sem lá hér við bryggju í viðgerð, stærri og betur búinn, og ætlaði Haukur sér stóran hlut í síaukn- um veiðum á rækju á djúpslóð. En enginn má sköpum renna. Þessum vösku drengjum er kippt fyrir- varalaust frá okkur, frá hálfunnu verki. Ég kveð minn kæra Hauk með tár í augum og hugsa til allra þeirra stunda með söknuði sem við áttum saman. Ég bið algóðan Guð að varðveita hann, styrkja okkur eftirlifendur og gefa okkur smá skerf af því góða sem Haukur hafði að geyma. Þess sama bið ég félögum hans öllum sem fórust þennan hörm- ungadag, og bið Guð að styrkja foreldra, eiginkonur og börn sem urðu að sjá af sínum kærustu á vit djúpsins, vitandi að góðar minn- ingar létta undir og gefa lífinu tilgang. Eiríkur Frá fornu fari hefur ísafjarðar- djúp verið hin mikla gullkista, sem byggðarlögin umhverfis það, jafnt hinir stærri kaupstaðir sem hin smærri býli, hafa ausið af. Það hefur að sjálfsögðu verið misgjöf- ult, sum ár eða árabil orðið fisklítið, en á öðrum tímum fisk- gengd mikil. Sjósókn hefur því verið mikil frá verstöðvunum við Djúp, en lífsbaráttan hefur þar jafnan verið hörð og áhættusöm, enda byggðarlögin oft fengið þung og stór áföll af mannsköðum á ýmsum tímum. Hinn 25. febrúar s.l. varð ísa- fjörður fyrir miklu áfalli, er fjórir dugandí sjómenn létu lífið. Veður eru oft válynd þar vestra, og þegar vindur blæs út úr þröngum fjörð- um og fjallaskörðum, verður hann oft svo harður og sterkur, að enginn mannlegur máttur fær rönd við reist. Svo var og þennan dag, er flestir bátar, er rækjuveið- ar stunda í Djúpinu, voru á sjó og lentu í meiri og minni erfiðleikum. En tveir bátar fengu ekki rönd við reist. Annar var m/b Eiríkur Finnsson, sem Haukur Böðvars- son stýrði. Haukur var fæddur á ísafirði 18. september 1949, sonur hjón- anna Iðunnar Eiríksdóttur, sem látin er fyrir nokkrum árum, og Böðvars Sveinbjarnarsonar, fram- kvæmdastjóra Niðursuðuverk- smiðjunnar á ísafirði hf. Haukur ólst upp í foreldrahúsum við gott atlæti og umhyggju foreldra sinna. Hann vann þau störf, sem títt er um unga menn á þeim slóðum, en svo kom að því, að hann valdi sér þá grein, sem varð hans ævistarf. Hann réðist til sjós og reyndist þar fljótlega liðtækur mjög og dugandi sjómaður. Haust- ið 1967 lá leið hans til náms í sjómannafræðum, er hann innrit- aðist í Stýrimannaskólann í Vest- mannaeyjum. í febrúarmánuði 1968 lauk hann þaðan fiskimanna- prófi hinu minna, en gerði hlé á námi sínu þar um eins árs skeið. Ástæðan til þess var ekki sú, að hann ætlaði sér ekki annan og meiri hlut, heldur sú samvisku- sémi, sem einkenndi hann alla tíð. Hann hafði ekki hlotið tilskilinn siglingatíma, er hann hóf námið, en lokapróf vildi hann því aðeins taka, að hann uppfyllti öll þau skilyrði, sem sett voru til fullra réttinda að prófi loknu. Næsta vetur á eftir notaði hann því til að afla sér nauðsynlegra réttinda, og settist aftur í skólann haustið 1969. Hinn 9. maí 1970 útskrifaðist hann með fyrstu einkunn, og hlaut jafnframt sérstök verðlaun skól- ans fyrir góða ástundun við nám- ið. Á næstu árum stundaði Hauk- ur fiskveiðar, ýmist sem stýri- maður eða skipstjóri á bátum frá ísafirði og nærliggjandi verstöðv- um og kynnti sér flestar þær veiðiaðferðir, sem þá tíðkuðust. Vildi hann afla sér sem víðtæk- astrar þekkingar og reynslu og vera þannig viðbúinn að grípa niður, þar sem tækifærin buðust við þær veiðar, sem henta þóttu á hverjum tíma. En hugur hans stefndi þá að því að eignast eigið far og stunda rækjuveiðar á þeim tímum, sem þær voru stundaðar, en aðrar veiðar eftir atvikum á hverjum tíma. Hann hóf rækju- veiðar fyrst á Morgunstjörnunni haustið 1975, en ári síðar á báti, sem hann hafði keypt og gaf nafn afa síns og nefndi Eirík Finnsson. En þeir voru mjög handgengnir hvor öðrum, allt þar til Eiríkur lést, 1956. Ég minnist þess, að Haukur hringdi til mín og sagði mér frá bátskaupunum og nafn- giftinni. Var hann þá mjög ánægð- ur og horfði björtum augum til framtíðarinnar. Haukur Böðvarsson var dugandi sjómaður og hlífði sér hvergi. Hann sótti sjóinn af festu og kappi, og mér er kunnugt um það, að vandamenn hans höfðu oft áhyggjur af kappi hans, og hann var jafnframt í röð mestu afla- manna sinnar samtíðar þar vestra. En jafnan skilaði hann öllu sínu heilu í höfn, þar til komið var að skapadægri, þegar miskunnar- laus náttúruöflin tóku völdin og fóru sínu fram. Alls fórust fjórir dugandi sjó- menn frá Isafirði þennan dag, og á því bærinn um sárt að binda. Það er að vísu ekki í fyrsta sinni, sem slíkir atburði gerast þar vestra. Oft hefur Ægir konungur greitt ísfirðingum og öðrum við Djúp, þung högg og stór, en þetta er eitt hið stærsta um langt árabil, er brestur í burðarásum bæjarlífs- ins. Með Hauki Böðvarssyni hvarf af sjónarsviðinu góður drengur, dug- andi maður og þrekmikill. Að slíkum mönnum er alltaf mikill sjónarsviptir, og sárastur. harmur þeirra, sem næstir stóðu að skyld- leika, foreldra, systkina og ann- arra vandamanna. Ég kveð frænda minn í þeirri vísu von, að handan við móðuna miklu bíði hans vinir, sem taka honum tveim höndum, og þar öðlist hann vett- vang, er híhfði dirfsku hans og dugnaði og þreki. Guð blessi eftirlifandi föður hans og systkini og frændsystkini, sem hann var alla tíð mjög ræktarlegur við. Ég kveð hann með söknuði og segi að lokum: Far vel, frændi. Frændi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.