Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 21
HVAÐ ER AÐ GERAST I RÆNUM MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980 21 Nokkrir leikaranna i Spegilmanninum sem frumsýndur verður i Hafnarfirði í dag. Talið frá vinstri: Nornin (Ásta Magnúsdóttir), Spegilmaður (Þórarinn Eyfjörð), Blíða (Ingibjörg Eyjólfsdóttir) og Dúkkumaður (Sæmundur Jóhannesson). BARNALEIKRIT Spegilmaðurinn í Hafnarfirði LITLA leikfélagið í Garði verður með leiksýningu fyrir börn í Hafnarfirði um helgina, nánar til tekið í Víðistaðaskóla. Frumsýn- ingin verður klukkan tvö í dag, laugardag. Leikritið nefnist Spegilmaðurinn, og er eftir Brian Way en í þýðingu Sigur- jóns Kristjánssonar. Sérkennilegt er við þessa sýn- ingu, að leikið er á hringsviði, og eru áhorfendur því allt um kring, og gefst þeim gott tækifæri til að taka þátt í sýningunni. Sem fyrr segir er þetta barna- leikrit, og er það einkum ætlað börnum á aldrinum fimm til átta ára. DYR OG FUGLAR Þessi góðlegi landselur er eitt þeirra dýra sem gefur að lita í Sædýrasafninu sunnan Hafnarfjarðar, en safnið er opið nú um helgina eins og alla aðra daga ársins. Sædýrasafnið Sædýrasafnið fyrir sunnan Hafn- arfjörð er opið nú um helgina, eins og alla aðra daga ársins, milli klukkan 10 á morgnana og sjö á kvöldin, og þangað er upplagt að aka með börnin úr Reykjavík, Kópavogi, Hafnar- firði eða víðar að af Suðurlands- undirlendinu. I Sædýrasafninu eru nú um tuttugú tegundir fugla og dýra, víðs vegar að úr heiminum. Þar eru til dæmis mörgæsir frá Suður- skautslandinu, Snæugla frá Grænlandi, íslenskar geitur, hænuungar, þvottabjörn frá Norður-Ameríku, kengúrur frá Ástralíu, apar frá Mið-Ameríku, ljóns frá Afríku, ísbirnir frá norðurpólnum, gæsir, endur, kind- ur, kanínur, naggrísir og margt fleira. Auk þessara dýra- og fuglateg- unda eru svo í Sædýrasafninu um eða yfir tuttugu tegundir fiska. HÁSKÓLATÓNLEIKAR Einleikur Helgu FIMMTU Háskólatónleikar vetr- arins verða haldnir i dag, laugar- daginn 22. mars 1980. Að þessu sinni verða tónleikarnir haldnir i Forsal Þjóðminjasafnsins við Hringbraut og hefjast kl. 17.15. Aðgangur er öllum heimill. A þessum tónleikum leikur Helga Ingólfsdóttir einleik á nýj- an sembal Tónlistarskólans í Reykjavík. Semballinn er smíðaður í sembalsmiðju Willian Dowd í París og er eftirlíking af frönskum 18. aldar sembal, bæði hvað smíði og skreytingu snertir. Helga Ingólfsdóttir hefur haldið fjölda tónleika á íslandi og erlend- is og er vel þekkt fyrir túlkun sína á gamalli og nýrri tónlist. Á tónleikunum verður frumflutt Sembalsónata eftirt Jón Ásgeirss- Helga Ingólfsdóttir semballeik- ari. on og einnig verður flutt „Da“, fantasía eftir Leif Þórarinsson. Auk þess verða flutt tvö vel þekkt sembalverk eftir J.S.bach, Tokk- ata í e-moll og Forleikur (Over- ture), partíta í frönskum stíl í h-moll. KEFLAVÍK Fimm kvikmyndasýn ingar i Nýja Bíói Nýja Bíó í Keflavik er með fimm kvikmyndasýningar nú um helgina. eina í dag, laugardag, og fjórar á morgun sunnudag. Klukkan fimm síðdegis í dag verður sýnd myndin Summernight Fever, en á morgun verður síðan sýnd hin fræga mynd Kjarna- leiðsla til Kína klukkan- fimm, en með aðalhlutverk í þeirri mynd fara sem kunnugt er þau Jack Lerrrmon og Jane Fonda. Klukkan 7.15, 9.15 og 11.15 verður svo sýnd myndin Að duga eða drepast, sem er með þeim Harry Reams og Otto Branden- burg í aðalhlutverkum, mynd af djarfara taginu. Barnasýning er svo klukkan þrjú á morgun, en ekki hafði verið ákveðið í gær hvaða mynd þá verður sýnd. Jane Fonda. sem leikur aðalhlut- verkið í myndinni Kjarnaleiðsla til Kína, sem Nýja Bíó í Keflavík sýnir á morgun klukkan fimm. Hér er hún að taka við Oscars- verðlaununum fyrir leik sinn i myndinni Coming Home, en hún hefur einnig verið tilnefnd til þeirra verðlauna fyrir leik sinn í Kjarnaleiðslu til Kína. LIJÐRABLÁSTUR Afmœlis- tónleikar Svans í dag LÍIÐRASVEITIN Svanur verður 50 ára á þessu ári og verða afmælistónleikar sveitarinnar haldnir í Háskólabíói í dag, laugardaginn 22. mars kl. 14. Efnisskrá er mjög fjölbreytt og einleikari með hljómsveitinni verður Einar Jóhannesson klari- nettleikari. Sveitina skipa nú 56 hljóðfæra- leikarar. Einnig kemur fram 18 manna „Big band“ sem er myndað af hljóðfæraleikurum úr lúðrasveit- inni Svani. „Big band“ Svansins hefur víða komið fram að undan- förnu við mjög góðar undirtektir áheyrenda. Lúðrasveitin Svanur. Á afmælistónleikunum mun „Big bandið" koma fram með nýja efnisskrá. Stjórnandi lúðrasveitarinnar og „Big bandsins" er Sæbjörn Jóns- son. I lúðrasveitinni Svani er mikið af ungum og efnilegum hljóðfæra- leikurum sem stunda nám í Tón- listarskólum og jafnframt eru margreyndir hljóðfæraleikarar sem spilað hafa með sveitinni í 30 ár. Nokkrir hljóðfæraleikaranna spila jafnframt í Sinfóníuhljóm- sveit Islands. Þess má svo geta, svona í „forbifarten", að Svansfélagar hafa ákveðið að leggja land undir fót í sumar, og fara í tónleikaferð til Noregs. KARLAKÓRAR Karlakóramót á Selfossi ÞAÐ ER eins gott að vandað hafi verið til byggingar íþróttahúss- ins á Selfossi á sínum tíma, því annars gæti svo farið að þakið fyki af húsinu í dag. Klukkan 16 í dag, laugardag. gengst nefni- lega Katla, samband sunnlenskra karlakóra, fyrir kóramóti aðild- arkóra sinna í íþróttahúsinu. Að þessu sinni munu átta af níu aðildarkórum taka þátt í mótinu, en sambandssvæðið nær yfir allan suðurhluta landsins, frá Breiða- firði til Hornafjarðar. Karlakórarnir sem þátt taka í mótinu eru þessir: Jökull, Höfn Hornafirði, Stefnir Mosfellssveit, Karlakór Reykjavikur, einn þeirra átta kóra sem tekur þátt i kóramóti Kötlu á Selfossi siðdegis i dag. Svanir Akranesi, Þrestir Hafnar- Karlakór Keflavíkur, Karlakór firði, Fóstbræður Reykjavík, Reykjavíkur og Karlakór Selfoss. Sýnir mynd eftir René Clair FJALAKÖTTURINN sýnir í Tjarnarbíói í dag, laugardag, frönsku kvikmyndina „Le Million" (Milljónin) eftir René Clair. Myndin er gerð árið 1931 og fjallar um ferðalag happdrættismiða og leitina að honum. „Le Million" er talin besta mynd René Clair. Atriði úr kvikmyndinni „Le MiIlion“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.