Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980 Stykkishólmur: J.C. beitir sér fyrir umræðum um atvinnutækif æri unglinga Stykkishólmi 18. rnarz. J.C. HREYFINGIN heldur 22. mars. n.k. hátíðlegan. Af því tilefni hefir J.C. Stykkishólmur ákveðið að beita sér fyrir almenn- um borgarafundi í félagsheimii- inu þann dag kl. 14. Einkunnar- orð J.C. í ár er tækifæri fyrir born. Fréttaritari Mbl. átti stutt við- tal við Robert Jörgensen yfirkenn- ara, formann J.C. dagsnefndar og spurði hann um tilhögun þessa dags og áform þeirra J.C. manna hér. Róbert sagði að þeir myndu beita sér fyrir umræðum um atvinnutækifæri fyrir unglinga í Stykkishólmi á sumri komanda, og á þann fund verður boðið sérstaklega sveitarstjórnar- mönnum, forsvarsmönnum fjölda fyrirtækja, sem og almennum borgurum. „Teljið þið horfur í atvinnumál- um unglinga hér í bæ tvísýnar?" „Já, segir Róbert, „ og okkur Flugfélagið Ernir flýgur ekki eftir tímaáætlun FRAMKVÆMDASTJÓRI Flug- félagsins Arna á Isafirði hafði samband við fréttaritara blaðs- ins og óskaði eftir að koma á framfæri leiðréttingu við frétt blaðsins um málefni flugfélags- ins i blaðinu í gær. Þeir auglýsa ekki að þeir fljúgi frá Isafirði kl. níu að morgni eins og kom fram í frétt blaðsins í gær, enda er það ólögmætt. Heldur auglýsa þeir ferðir snemma að morgni. Hins vegar hafa flestar flugvélarnar farið um níuleytið, þótt áhittingur sé. Þá er gert ráð fyrir lágmarksþátttöku í hverju flugi, þannig að ef ekki fæst næg þátttaka fellur flugið niður. Fréttaritari biðst afsökunar á þessum augljósu mistökum. Úlfar. ísakstur á Leir- tjörn á sunnudag BIFREIÐAÍÞRÓTTAKLÚBBUR Reykjavíkur mun á sunnudag gangast fyrir keppni í ísakstri og „ís-crossi“ og er þetta annað sinn á þessum vetri, sem slík keppni fer fram á Leirtjörn við Úlfars- fell. Slík keppni hefur verið árlegur viðburður í starfsemi klúbbsins frá árinu 1977, en þetta mun vera fyrsti veturinn, sem unnt er veðráttu vcgna að halda keppnina tvisvar sinnum á vetri. I fréttatilkynningu, sem Morg- unblaðinu hefur borizt er gerður greinarmunur á ísakstri og „ís-crossi“. Þar segir að bílum í ísakstri sé skipt í tvo flokka, annars vegar bíla, sem aka á nagladekkjum og hins vegar bíla, sem aka á keðjum. Bílarnir eru ræstir með vissu millibili og sá vinnur, sem fer tvo afmarkaða hringi á sem skemmstum tíma, án þess að fara út fyrir merkta braut. „Is-cross“ er hins vegar kappakst- ur, þar sem gerðar eru meiri öryggiskröfur, en jafnframt er hjólbarðaútbúnaður bílanna ekki ákveðinn með sama hætti og í ísakstri, þar sem aðeins er leyfi- legt að nota viðurkenndan útbún- að. Til þess að auðvelda áhorf- endum að fylgjast með keppninni á sunnudag verður hún stytt, þ.e. undanriðlar í „ís-crossi“ fara fram um morguninn, en hinn eiginlegi ísakstur hefst klukkan 14. „ís-cross“-keppnin verður síðan klukkan 15. Hayek á málþingi FÉLAG frjálshyggjumanna heldur málþing 5. apríl nk., sem er laugar- dagurinn fyrir páska. Málshef jandi verður Friedrich A. Hayek, nóbels- veiðlaunahafi í hagfraeði og einn kunnasti stjórnmálahugsuður tutt- ugustu aldar, og ræðir hann um efnið: „The Muddle of the Middle““ — miðju-moðið eða hugtakarugling svonefndra „miðjumanna“. Hayek kemur hingað til landsins í boði félagsins, en flytur einnig fyrirlest- ur í Viðskiptadeild Háskólans. Málþingið verður kl. 14.00 í hiiðarsal Hótel Sögu. Með því að tala þeirra, sem geta sótt það, er mjög takmörkuð. eru þeir, sem hafa áhuga á þvi beðnir að hafa sam- band við Skafta Harðarson í dag og á morgun í síma 85298 til að láta skrá sig. Aðgangur að inniföldum kaffiveitingum kostar 10 þús. kr. fyrir utanfélagsmenn, 6 þús. fyrir finnst þörf a að kanna þetta sem nánast í tíma, því nú fer skólum senn að ljúka og það er gott að fá vitneskju sem fyrst um hvað í boði er. Það er öllum til góðs að sem gleggst mynd fáist af ástandinu og því viljum við koma hreyfingu á þetta mál, því það er víst að fjöldi unglinga býðst nú á vinnumarkað- inn hér.“ „Hvernig hugsið þið ykkur formið á þessum borgarafundi?" „Við verðum með þrjá fram- sögumenn, sem munu ræða þessi mál á sem breiðustum grundvelli. Menn sem hafa kynnt sér aðstæð- ur hér. Eftir framsöguerindin verða svo að sjálfsögðu umræður og er þess vænst að sem flestir taki þátt í þeim.“ Fréttaritari. Skógræktarfélagið og J.C. Reykjavík: Kynning á útivistar- svæðinu í Öskjuhlíð í dag Laugardaginn 22. marz kl. 13.30 mun Skógræktarfélag Reykja- víkur og J.C. Reykjavík gangast fyrir kynningu á útivistarsvæðinu við Öskjuhlíð. Þar munu skóg- ræktarmenn ræða við almenning um útivistarsvæði borgarinnar og svara fyrirspurnum. Þetta er fyrsti liður í viðleitni J.C. Reykjavík til að kynna borgurum hin ýmsu útivistarsvæði innan borgarinnar, síðar verður fjallað um t.d. Laugardalinn og Heið- mörk. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir fjölskylduna til útivistar án langra ferðalaga og ættu sem flestir að taka með sér kaffisopa ef veður leyfir. Undirbúning á þessu verkefni hefur J.C.-dagsnefnd J.C. Reykjavík haft með höndum. (Fréttatilkynning) *st:.rt. Vegamál voru mjög til umræðu á borgarafundinum * Isafjörður: Borgarafundur um bæjarmál í FYRRAKVÖLD, fimmtudag, var haldinn borgarafundur á ísafirði um málefni bæjarfélags- ins. Fundarboðandi var bæjar- sjóður og fluttu fulltrúar allra flokka sem aðild eiga að bæjar- stjórninni framsöguerindi. Þeir voru Guðmundur Ingólfsson for- seti bæjarstjórnar fyrir Sjálf- stæðisflokkinn, Guðmundur Sveinsson fyrir Framsóknar- flokkinn, Sturla Halldórsson fyrir Óháða og Aage Steinsson fyrir Alþýðubandalagið. Fundurinn, sem var mjög fjöl- mennur, var haldinn í gagnfræða- skólanum. Fóru fram miklar og málefnalegar umræður um bæj- armálin, að sögn Guðmundar Ing- ólfssonar, og tóku 26 til máls, auk bæjarfulltrúanna. Rætt var um framkvæmdir bæjarins og fór mikill tími í umræður um hrein- lætis- og umhverfismál. Kom þar fram, að bæjarfulltrúar bíða í ofvæni eftir því hver verður framtíð Olíumalar h.f. en það er eina fyrirtækið í landinu, sem getur selt Vestfirðingum olíumöl og malbik. Framtíð félagsins velt- ur nú alfarið á afstöðu ríkisvalds- ins, svo sem kunnugt er. Jón Þórðarson, forstjóri Steypustöðv- arinnar á Isafirði, flutti ræðu á fundinum og gat yfirgripsmikilla athugana sem hann hefur látið gera á möguleikum steypu í vega- gerð. Hann hefur nú þegar átt viðræður við forráðamenn Vega- gerðar ríkisins og ráðherra um þessi mál. Hugmyndir hans byggj- ast á notkun nýrrar tegundar steinsteypu sem notuð hefur verið með góðum árangri í Þýskalandi síðustu ár. Að sögn Guðmundar Ingólfssonar kemur vel til álita fyrir bæjarsjóð að nýta þennan möguleika við sumar aðstæður. Jón hefur boðað til fundar með framámönnum um þessi mál á ísafirði í næstu viku. Málefni dráttarbrautar á ísa- firði voru einnig til umræðu. Virðist sem samstarfsgrundvöllur sé að skapast með M. Bernharðs- son h.f. skipasmíðastöð og bæj- arsjóði í þeim málum. Nú er hafin endurbygging gömlu smábáta- dráttarbrautarinnar, sem var á Torfnesi, á athafnasvæði dráttar- brautarinnar í Neðstakaupstað og er jafnvel gert ráð fyrir að hægt verði að taka hana í notkun á þessu vori. Þá liggja nú fyrir áætlanir um byggingu 60 metra viðlegukants við dráttarbrautina vegna nýsmíða og viðhalds stórra skipa. Áætlaður kostnaður er um 170 milljónir króna. Fyrirspurnir voru gerðar um neysluvatn bæjar- búa en það hefur verið mjög slæmt. Guðmundur Ingólfsson sagði að ekkert yrði af fram- kvæmdum þetta árið, en unnið væri að undirbúningi við að leysa þetta vandamál með lang- tímaáætlun, enda er sú fram- kvæmd mjög kostnaðarsöm. Bæj- arfulltrúar voru mjög ánægðir með fundinn og töldu mikilvægt að eiga á þennan hátt gott og málefnalegt samstarf við íbúa bæjarinns. Fundinum lauk um miðnætti. Úlfar J. C. Akureyri 10 ára: Eldyarnardagur í tilefni afmælisins félagsmenn, en skólanemar fá sér- stakan afslátt. Félagsmenn ganga fyrir. JUNIOR Chamber Akureyri verður 10 ára á sunnudaginn og minnist afmælisins með því að gangast fyrir cldvarnardegi á Akureyri á laugardag. Þá verður upplýsingarit um eldvarnir og rétt viðbrögð við eldsvoðum borið í hvert hús á Akureyri og ná- grenni endurgjaldslaust. Slökkvilið Akureyrar mun efna til sýnikennslu í meðferð hand- slökkvitækja á bílastæðinu vestan við slökkvistöðina kl. 14 á laugar- dag, og félagar í JC munu annast sölu á reykskynjurum. Þá hefur nefnd innan félagsins látið gera vegvísa með götukorti af Akureyri, en þar eru ýmis fyrirtæki og stofnanir merkt inn á. Vegvísunum verður komið fyrir við akstursleiðir til bæjarins. Einnig hefur verið efnt til ritgerðarsamkeppni í efstu bekkj- um grunnskólanna á Akureyri í vetur um efnið „Unglingurinn og vímugjafinn". Niðurstöður munu birtar bráðlega og verðláun af- hent. JC Akureyri mun minnast 10 ára afmælis síns með hófi á Hótel KEA á laugardagskvöld, en einnig hefir félagið gefið út veglegt afmælisrit. I félaginu eru nú 66 félagar, þar af 5 konur. Nýlega var stofnað nýtt JC-félag á Akureyri, sem ber nafnið Súlur og er 28. JC-félagið á íslandi. í því er 1200. félaginn, en stofnendur eru 25, þar af 16 konur. Forseti Súlna er Haukur Ingólfsson. Stjórn J.C.A. 1979—1980. Aftari röð frá vinstri: Ragnar Tryggvason, meðstjórnandi, Helgi Guðmundsson, gjaldkeri, Július Snorrason, fráfarandi forseti, Kári í. Guðmann, ritari, Jóhannes Axelsson, mcðstjórnandi. Fremri röð frá vinstri: Már Jóhannsson, varaforseti, Lárus Ragnarsson, forseti, Trausti Jóhannsson, varaforseti. (Á myndina vantar Árna B. Pétursson, varaforseta.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.