Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980 5 Eggert Gislason (lengst til hægri) ásamt fclögum sínum á Njáli, þeim Guðjóni Hannessyni, Baldri Karlssyni og Theódóri Jónssyni. Ljósm. Mbl. RAX „I þessu vegna ánægjunn- ar og hreina loítsins44 „BÁTURINN virtist fara vel í sjóinn en i dag fórum við út fyrir Gróttu og það voru norð- austan 8 til 9 vindstig. Aflinn var hins vegar litill enda litið hægt að draga i norðaustanátt- inni,“ sagði Eggert Gislason, sú landskunna aflakló í gær en hann hefur látið smíða fyrir sig 24 tonna stálfiskibát. — Njáll RE 275. Báturinn fór sína jómfrúarferð á fimmtudag. Eggert á Njál i félagi við Einar Árnason en þeir eiga einnig aflaskipið Gisla Árna. „Ég er nú í þessu vegna ánægjunnar og hreina loftsins. Skipstjóri á móti mér verður Theódór Jónsson. Njáll er lítill, velhannaður alhliða fiskibátur. íbúðir eru aftur í en innangengt er úr stýrishúsi í káetu. Ég tók þátt í hönnun bátsins og fylgdist með smíðinni í Bátalóni en þar — sagði Eggert Gíslason, en hann hef ur látið smiða 24 lesta stál- fiskibát i Bátalóni og fór sína fyrstu veiðiferð í gær eru góðir og duglegir smiðir," sagði Eggert ennfremur. Njáll RE 275 var sjósettur hjá Bátalóni hinn 15. marz síðastlið- inn. „Njáll var hannaður í Báta- lóni og var stefnt að því, að smíða gott sjóskip með breyting- um frá hinu hefðbundna lagi, bæði til vinnusparnaðar og eins með tilliti til kostnaðar við stálsmíðina án þess að draga úr sjóhæfni eða ganghraða bátsins, sagði Þorbergur Olafsson, fram- kvæmdastjóri Bátalóns í samtali við fréttamann Mbl. „Við afhentum fyrir nokkru annan bát, ívið minni en með svipuðu lagi. Það var Guðrún Jónsdóttir SK 103. Eggert lagði sjálfur að mestu línurnar um fyrirkomulag um borð, og það er nýmæli að það er innangengt úr íbúð í stýrishús, sem er yfir vélarúmi. í Njáli RE er 215 hestafla Cummins aðalvél og auk þess er báturinn vel útbúinn fiskleitartækjum og siglingar- tækjum," sagði Þorbergur enn- fremur. Þá sagði hann að áhugi á þessari stærð báta virtist mikill og margar fyrirspurnir hefðu borist. Njáll RE 275 utan á Helgu II i Reykjavíkurhöfn en þar fyrir innan er GísII Árni. Mynd Mbl. RAX. Sýningu Steingríms lýkur á morgun GÓÐ aðsókn hefur verið að mál- verkasýningu Steingríms Sigurðs- sonar og margar myndir hafa selst. Sýning Steingríms er í nýjum sýningarsal að Laugavegi 12, 2. hæð. Gengið er inn frá Bergstaðastræti. Sýningunni lýkur á sunnudagskvöld klukkan 23.30 og hún opnar klukkan 14 í dag og á morgun. Á sýningu Steingríms eru 63 myndir, flestar nýlegar. Þær eru aðallega frá Reykjavík enda fluttist listamaðurinn til borgarinnar í fyrrasumar. íslenski dansflokkurinn á Kjarvalsstöðum: Nýir dansar við tónlist Atla Heimis ÍSLENSKI dansflokkurinn frumsýnir í kvöld klukkan 20 á Kjarvalsstöðum tvo nýja íslenska balletta við tónlist Atla Heimis Sveinssonar. Sýn- ingar verða síðan aftur á morg- un, sunnudag, klukkan 15 og 20, og síðan á mánudags, þriðjudags og miðvikudags- kvöld klukkan 20. I tilefni þessara sýninga hefur dansflokkurinn fengið til liðs við sig söngflokkinn Hljómeyki, og nokkra hljóðfæraleikara, samtals 27 manns. Ballettarnir eru sem fyrr seg- ir tveir, báðir við tónlist Atla Heimis. Þeir eru Litlar ferjur, við ljóð Ólafs Jóhanns Sigurðs- sonar Að laufferjum en dans- höfundur er Ingibjörg Björns- dóttir. Hinn dansinn er svo I call it, við ljóð Þórðar Ben Sveinssonar, en danshöfundur er Nanna Ólafsdóttir. Þar hefur Ásrún Kristjánsdóttir textíl- hönnuður gert búninga, en Kristinn Daníelsson sér um lýs- inguna. Einsöng syngur Rut Magnússon. Þá er á efnisskránni nýtt stutt verk eftir Atla Heimi Sveinsson, sem hann nefnir Allt sem unnt er að segja má segja skýrt, en það er samið sérstak- lega fyrir þessar sýningar. Atli stjórnar sjálfur flutningi tónlistarinnar. í söngflokknum Hljómeyki eru: Rut Magnússon, Guðfinna Dóra Ólafsdóttir, Elín Sigur- vinsdóttir, Áslaug Ólafsdóttir, Ásta Thorsteinsen, Friðbjörn Jónsson, Guðmundur Guð- Atli Heimir Sveinsson brandsson, Rúnar Einarsson og Halldór Vilhelmsson. I Islenska dansflokknum eru: Ásdís Magnúsdóttir, Birgitte Heide, Guðrún Pálsdóttir, Guð- munda Jóhanesdóttir, Helga Bernhard, Ingibjörg Pálsdóttir, Ólafía Bjarnleifsdóttir, Viktor Trutt, Örn Guðmundsson. Hljóðfæraleikarar eru: Mon- ika Abendroth, Pétur Þorvalds- son, Jónas Ingimundarson, Reynir Sigurðsson, Árni Schev- ing. 2 M j í M I ^ ^m ~ ? * m * £ I m Lh ©J Nokkrir dansara tslenska dansflokksins, sem nú um helgina munu sýna á Kjarvalsstöðum. • HUMMEL-íþróttavörur. £ • Skór og fatnaður fyrir börn og futtoröna. • Barnaskíðasett. • REMINGTON-skotvörur, Næg bílastæði m'A'mmen -búðin v ilv V Armúla 38, sími 83555. v

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.