Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980 47 r Ljósmynd: RaKnar Axelsson. Mark Christiansen heíur betur í baráttu við Armeníumann. Unglingamót á skíóum REYKJAVÍKURMEISTARAMÓTIÐ á skíðum íyrir unglinga 13-16 fer fram i Hamragili um helgina. Keppendur eru skráðir 180 frá 5 félögum. Það eru Skíðaráð Reykjavikur og skiðadeild ÍR sem sjá um framkvæmd mótsins. Bandarískur sigur gegn slökum Armenum BANDARÍSKU leikmennirnir á íslandi unnu næsta auðveldan sigur gegn slökum Armenum i Laugardalshöll í gærkvöldi, 87— 78. Bandaríkjamennirnir höfðu ávallt undirtökin og sigur þeirra var aldrei i hættu. Þeir höfðu yfirburði á öllum sviðum körfu- knattleiksins en óneitanlega kom það talsvert á óvart hve Armen- arnir voru slakir. Hittu ekki úr einföidustu færum, alla hæð vant- ar i lið þeirra og ef ekki hefði komið til furðuleg dómgæzia sov- éska dómarans þá hefðu Banda- rikjamennirnir unnið mun stærri sigur. Engu likara var en sovéski dómarinn væri — á köflum að minnsta kosti — aðeins til að dæma á bandarisku leikmennina, svo hið sovéska lið mætti halda i við þá. Hörður Túlinius, er dæmdi á móti Sovétmanninum, brá á það ráð að vega upp á móti furðudómum Sovétmannsins svo úr varð á köflum skripaleikur, svo hláturrokur kváðu um Höll- ina á stundum. Það var aðeins í byrjun að jafnræði var með liðunum en þegar fyrri hálfleikur var nærri hálfnaður, náðu Bandaríkjamenn- irnir afgerandi forustu, sem þeir létu ekki af hendi. Náðu að breyta stöðunni úr 16—15 í 24—17. Á 15. mínútu skildu tíu stig, 39—29 og skömmu síðar 45—35 en Armenar náðu að minnka muninn í fimm stig fyrir leikhlé, 49—44. Armenarnir náðu að minnka muninn í eitt stig í síðari hálfleik, 63—62 en í kjölfarið kom góður kafli bandarísku leikmannanna, þeir skoruðu næstu sex stig, kom- ust í 69—62. Mestur varð munur- inn 13 stig, 79—66, 83—70 en lokatölur urðu sem fyrr sagði 87-78. Af annars fremur jöfnu liði bandaríska úrvalsins var Mark Holmes, fyrrum leikmaður Grindvíkinga og nú Hauka, bezt- ur. Hann skoraði 23 stig. Tim Dwyer skoraði 18 stig, John John- son 16, Trent Smock 10, Mark Christiansen 9, Keith Yow 6 og Dakarsta Webster 4. Hjá arm- enska liðinu bar mest á Tuchik- iari, hávöxnum leikmanni. Hann skoraði 26 stig. Annars eru leik- menn hins armenska liðs fremur lágir vexti af körfuknattleiks- mönnum að vera. Hins vegar mjög snöggir en hittnin, í gærkvöldi að minnsta kosti, afleit. Það kann að vera að löng og þreytandi ferðalög t hafi háð leikmönnum Armeníu en allt um það er víst, að íslenzka landsliðið hlýtur að eiga mögu- leika á að sigra gegn þessu liði. H.Halls. Körfuknattleikur um helgina: Landshornaflakk Armeníumannanna ÞÓ AÐ íslandsmótinu í bikar- keppninni i körfuknattleik sé lokið, fer því fjarri, að körfu- knattleiksmenn séu hættir sinum umsvifum. Komið hefur fram að geysisterkt úrvalslið frá Arm- eníu er hér í heimsókn og lék það sinn fyrsta leik hér á landi í gærkvöldi gegn úrvalsliði þeirra Bandaríkjamanna sem her hafa leikið í vetur. En í dag, á morgun og mánudaginn verða einnig leik- ir. I dag leikur liðið gegn íslands- og bikarmeisturum Vals í íþrótta- húsinu í Borgarnesi og hefst leikurinn klukkan 15.00. Pétur Guðmundsson leikur með Valslið- inu og mun bæta töluvert við meðalhæð leikmanna liðsins. Á morgun, sunnudag, berst leik- urinn til Selfoss, en þá mæta Armeníumennirnir íslenska landsliðinu með þá Pétur Guð- mundsson, Jón Sigurðsson, Krist- in Jörundsson og nýliðann Flosa Sigurðsson í fararbroddi. Hefst leikurinn á Selfossi klukkan 15.00. Á mánudagskvöldið verður síðan annar landsleikur í Laugardals- höll og hefst hann klukkan 20.00. Úrslitaleikir í blakinu • íslandsmeistarar Fram í 3. flokki kvenna ásamt þjálfara sínum Guðríði Guðjónsdóttur sem er þekkt handknattleikskona. Ljósm. Rax. Fram sigurvegari í 3. flokki kvenna UM SÍÐUSTU helgi fór fram á Selfossi úrslitakeppnin i 3. flokki kvenna í íslandsmótinu í hand- knattleik. Var hart barist í öllum leikjum og mikill áhugi hjá stúlkunum. Mótið fór vel fram og gekk keppnin ágætlega fyrir sig. Vegna þrengsla var ekki hægt að birta úrslit fyrr en nú. Röð liðanna varð þessi: Fram 11 stig 29—16 Fylkir 9 stig 29—16 ÍR 8 stig 24—20 Víkingur 6 stig 21—23 Þór Ak 4 stig 25—37 FH 2 stig 19—27 Selfoss 2 stig 25—37 En úrslit í einstökum leikjum varð sem hér segir: Fram — FH 4—1, Þór Ak — Víkingur 2—4, Selfoss — Fylkir 2—9, Fram — ÍR 4—0, Þór Ak — FH 2—4, Fjlkir — Víkingur 3—2, Selfoss — IR 4—6, Fram Þór Ak 5—3, Fylkir — FH 6—5, ÍR — Víkingur 9—3, Selfoss — Fram 6—9; Þór Ak — Fylkir 0-5, FH - IR 2-3, Selfoss - Víkingur 3—4, Fram — Fylkir 3-3, Þór - IR 3-2, Selfoss - FH 7—5, Fram — Víkingur 4—3, Fylkir — ÍR 3—4, Selfoss — Þór 3—4, Víkingur — FH 5—2. —þr. ÚRSLITALEIKURINN í íslandsmótinu í blaki fer fram í íþróttahúsi Hagaskólans i dag og hefst hann klukkan 14.00. Þá eigast við Þróttur og Laugdælir. Liðin eru nú jöfn að stigum, en Þróttur með leik meira. Er þetta siðasti leikur Þróttar i deildinni á þessu keppnistímabili, en UMFL á hins vegar eftir að leika gegn ÍS og fer sá leikur fram á Laugarvatni á miðvikudaginn kemur. Þróttur verður því að vinna sigur, tapi liðið er UMFL íslandsmeistari. Vinni Þróttur og tapi UMFL fyrir ÍS, verður Þróttur meistari, en vinni Þróttur og tapi ÍS þarf að fara fram aukaleikur milli Þróttar og UMFL. Gæti það sannarlega orðið athyglisverður leikur. En leikir helgarinnar eru annars þessir: Laugardagur: Hagaskóli kl. 14.00 1. deild karla Þróttur — UMFL Hagaskóli kl. 15.15 1. deild karla Víkingur — UMSE Hagaskóli kl. 16.30 1. deild kvenna Víkingur — ÍMA Með sigri gegn ÍMA væri íslandsmeistaratitillinn í höfn hjá Víkingi í kvennaflokki. Teldist það hörkuárangur miðað við, að kvennadeild félagsins lognaðist út af á síðasta keppnistímabili og sendi ekki einu sinni lið í íslandsmótið. Fjörugur handknattieikur um helgina: Þrír leikir í 1. deild TÖLUVERT verður um að vera i handknattleiknum um helgina, bæði í 1. deild karla og kvenna, auk annarra deilda. Þrír leikir fara fram í 1. deild karla, þar af einn í dag. Fram og FH eigast við í Hafnarfirði og hefst leikurinn klukkan 14.00. HK og Víkingur leiða saman hesta sína á Varmá á morgun klukkan 14.00 og annað kvöld klukkan 19.00 leika Valur og ÍR. Tveir þessara leikja hafa verulega þýðingu, það eru leikir Fram og ÍR. Bæði liðin eru i alvarlegri fallbaráttu og verða að kosta kapps um að fá annað og helst bæði stigin. En handknattleiks- leikir helgarinnar eru þessir: LauKardaKur: IlafnarfjorAur kl. 11.00 1. deild karla FH - Fram HafnarfjörAur kl. 15.15 1. deild kvenna Fll - UMFG Vestmannaryjar kl. 16.30 2. deild karla Týr - KA Höllin kl. 11.00 2. deild karla Þróttur — Þór AK. llöllin kl. 15.15 2. deild kvenna Þróttur — IIK Höllin kl. 18.15 kl. 15.00 3. deild karla óflinn - ÍBK Dalvik 3. deild karla Dalvik — Grótta Akureyrl kl. 15.30 1. deild kvenna Þór — Valur Sunnudaxur: Varmá kl. 11.00 1. deild karla HK - Vikinit Varmá kl. 15.15 2. deild kvenna UMFA - Fylkir Vestmannaeyjar kl. 11.00 2. deild karla Þór Ve. - KA Ilöllin kl. 14.00 2. deild karla Ármann — Þór Ak. Ilöllin kl. 15.15 2. deild kvenna 2. deild kvenna Armann — IBK Höllln kl. 16.15 ÍR - UMFN Hullin kl. 19.00 1. deild karla Valur - ÍR Höllln kl. 20.15 1. deild kvenna Fram — Haukar Höllin kl. 21.15 1. deild kvenna Víkinirur - KR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.