Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980 frá borgarstjórn.. .frá borgarstjórn.. .frá borgarstjórn.. . frá borgarstjórn.. .frá borgarstjórn.. Ofstækisfullur sér- trúarflokkur í Alþýðu- bandalaginu opinber- ar sitt rétta andlit — segir Magnús L. Sveinsson Á borgarstjórnarfundi sem haldinn var fyrir nokkru voru nokkrar umræður um svokallaða Höfðabakkabrú, sem tengja á saman Breiðholts- og Árbæj- arhverfi. Fyrir fundinum lá erindi frá framkvæmdaráði varð- andi skiptingu á f járveitingu til þjóðvega í þéttbýli, en þar á meðal var byrjunarframkvæmd til Höfðabakkabrúar að upphæð 200 milljónir króna. Fyrstur borgarfulltrúa tók til máls Björgvin Guðmundsson (A). í upphafi máls síns gerði Björgvin grein fyrir tillögum að skiptingu fjár til þjóðvega í þéttbýli og kom þar fram að til byrjunarfram- kvæmda við Höfðabakkabrú ætti að verja 200 milljónum á þessu ári. Björgvin sagði að fram- kvæmdir við Höfðabakka hefðu verið skoðaðar vandlega, bæði hvað varðaði brúna og veginn og hefði verið haft samráð við um- hverfismálaráð, skipulagsnefnd, borgarráð og aðra aðila um þetta mál. Björgvin sagði þær raddir hafa heyrst að færa ætti brúna neðar, t.d. að Kermóafossi, en það kvað hann óráðlegt, vegna útivist- arsvæðis sem vegurinn þyrfti þá að liggja yfir. Björgvin sagði að þegar atvinnusvæðin í Borgarmýri og á Ártúnshöfða væru fullbyggð þá kæmi Höfðabakkinn að góðum notum. Þegar svo væri komið myndi umferð á Höfðabakka nema um 1700 bílum á sólarhring, og bygging hans væri hagstæð. Björgvin sagði hlutverk Höfða- bakkans margþætt en þó væri megin hlutverk hans að tengja saman hinar fjölmennu byggðir í Breiðholti og Árbæ og koma á sambandi milli Breiðholts og at- vinnusvæðisins á Ártúnshöfða. Þá sagði Björgvin það öryggismál fyrir Breiðholtsbúa að fá veg þennan, því engin væri slökkvi- liðsstöðin í hverfinu og því myndi slökkvilið Árbæjar auðveldlega geta þjónað Breiðholti um stund- arsakir. Björgvin Guðmundsson sagði að undirbúningur hins nýja Höfða- bakka hefði staðið lengi yfir í nefndum og ráðum borgarinnar. „Nú þegar meðferð málsins er komin á lokastig," sagði Björgvin, „berst ósk um að málinu verði vísað til umhverfismálaráðs á ný. Ég tel það fráleitt og er því algerlega andvígur, málið hefur þegar fengið fullnægjandi um- fjöllun umhverfismálaráðs, enda var þá tekið tillit til vissra ábend- inga ráðsins," sagði Björgvin. Hann sagði að í þessu máli toguðust á tvö sjónarmið, sjón- armið þeirra sem vilja greiðar samgöngur, aukið öryggi og lægri flutningskostnað. Hins vegar væri einstrengingsleg sjónarmið um- hverfisverndarmanna. „Ég aðhyll- ist fyrra sjónarmiðið," sagði Björgvin, „og ég vona að svo sé einnig um meirihluta borgar- fulltrúa." Minnisvarði um úrelt um- ferðarskipulag Er Björgvin hafði lokið ræðu sinni kom í pontu Álfheiður Inga- dóttir (Abl), en hún er formaður umhverfismálaráðs. Álfheiður sagði að meirihluti umhverfis- málaráðs hefði komizt að þeirri niðurstöðu að ekki væri tímabært að ráðast í framkvæmdir við Höfðabakkabrú á komandi sumri. Hún sagði að meirihluti ráðsins teldi nauðsynlegt að endurskoða umfang vegarins og brúarinnar með tilliti til náttúruverndar og framtíðarþróunar Árbæjarsafns. Síðan flutti Álfheiður svohljóð- andi frestunartillögu: „Borgarstjórn samþykkir að fresta á þessu ári byrjunar- framkvæmdum við Höfðabakka og brúargerð yfir Elliðaár en sam- þykkir tillögu borgarverkfræðings um skiptingu fjárveitinga til þjóð- vega í þéttbýli að öðru leyti. Felur borgarstjórn borgarverkfræðingi og framkvæmdaráði að gera nýja tillögu um í hvaða önnur verkefni verja skuli þeim 200 milljónum króna, sem í Höfðabakkann voru ætlaðar á þessu ári skv. fyrri tillögu. Jafnframt samþykkir borgarstjórn að við þá endurskoð- un aðalskipulagsins, sem í hönd fer, verði kannað til hlítar, hvort skipulagslegar forsendur fyrir umfangi Höfðabakkabrúar stand- ast enn í dag þannig að hefja megi framkvæmdirnar í fullri vissu þar um á árinu 1981. Reynist forsend- urnar hins vegar þreyttar verði fyrir næstu áramót unnið að hönnun ódýrari og minni teng- ingar milli Árbæjar- og Breið- holtshverfa, þannig að fram- kvæmdir við tengingu þessara hverfa hefjist eigi síðar en á árinu 1981.“ Síðan rakti Álfheiður forsend- urnar fyrir tillöguflutningnum og kom fram í máli hennar að þær forsendur sem fyrir brúargerðinni væru, væru að verulegu leyti brostnar. Nefndi hún þar að aðal- skipulagið stæðist ekki á vissum sviðum, fólksfjölgun væri ekki sú sem ráð hefði verið fyrir gert, Fossvogsbraut væri hæpin, m.a. vegna andstöðu Kópavogs. „Þó flest bendi til þess að Höfðabakkinn verði lítið annað en minnisvarði um úrelt umferðar- skipulag og hrein tímaskekkja er lagt ótrúlegt kapp á þessa fram- kvæmd og manni hlýtur að verða spurn — til hvers?" sagði Álfheið- ur. Álfheiður svaraði spurningu sinni sjálf, að nokkru leyti og nefndi þar öryggissjónarmið. Hún kvaðst ekki vera á móti hverskon- ar tengingu þarna á milli. „Hitt er aftur skoðun okkar,“ sagði hún, „að mun hógværari tenging, minna mannvirki og ódýrara, myndi þjóna þessum öryggis- hagsmunum jafnvel og Höfða- bakkabrúin og einnig anna al- mennri umferð milli hverfanna." Álfheiður sagði að það væri skoðun ýmissa að umferðarþungi frá Breiðholti í átt að atvinnu- svæðunum á Ártúnshöfða væri það mikill að þörf væri á mann- virki sem þessu. Þá benti hún á að allir sérfræðingar sem um þetta mál hefðu fjallað væru sammála um að ef Höfðabakkabrúin væri til í dag þá færu um hana 3500 bílar á sólarhring, en sú umferð réttlætti ekki gerð brúarinnar. Síðan ræddi Álfheiður nokkuð um gildi Elliðaárdals sem útivistar- svæðis fyrir borgarbúa og taldi óþarft að spilla dalnum með þessu mannvirki. Til umf jöllunar í þrjú ár Að máli Álfheiðar loknu tók til máls Kristján Benediktsson (F). Kristján varpaði fram þeirri spurningu hvað myndi gerast eftir eitt ár, ef frestunarbeiðni Álfheið- ar yrði sinnt. Hann sagði að þetta mál hefði verið til umfjöllunar í borginni síðustu þrjú árin og væri það nokkur frestur. Kristján sagði að því hefði aldrei verið mótmælt að þörf væri fyrir þessa brú. Þá benti hann á að innan fárra ára yrðu um 25000 manns búsettir í Breiðholtinu, en eins og kunnugt væri þá væru þar fá atvinnutæki- færi. Það væri mikilvægt fyrir Breiðholtsbúa að fá þennan veg , m.a. til þess að komast skemmri leið til vinnu. Kristjáni fannst % 1 Ólafur B. Thors Albert Guðmundsson Sigurjón Pétursson Markús Örn Antonsson Sigurður Tómasson jmwz/Æ wyy. ■m W K. A im ■ p lil r ' f\ f m Björgvin Guðmundsson Álfheiður Ingadóttir Kristjún Benediktsson Magnús L. Sveinsson Elín Pálmadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.