Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.03.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980 13 1. grein snertir veruleika hins almenna manns. Mér dettur í þessu sam- bandi í hug grein Aðalsteins Ingólfssonar frá 10. þessa mánað- ar þar sem hann bendir á yfir- þyrmandi lágkúru eins nýstofnaðs bíós þessarar borgar. Þetta er gott dæmi af mörgum sem má nefna um listgagnrýni sem jafnframt tekur á ákveðnum þætti hins daglega veruleika. Hinum al- menna kvikmyndahússgesti er bent á að vara sig á ákveðinni þjónustustofnun svo fremi sem hún bæti sig ekki. Að mínu mati verða þau tvö andstæðu skaut í gagnrýni sem nú hafa verið nefnd að falla saman að einhverju marki í góðri listgagn- rýni dagblaðs. Aristoteles kaílar þessa andstæðu póla pathos; hinn tilfinningalega þátt, sem „ýtir“ við fólki, þann seinni kallar hann logos; hinn vitræna þátt, hina skynsamlegu undirstöðu allrar greiningar á veruleikanum. Hann tengir þessa þætti einum enn sem hann kallar ethos; hinn 'siðræni þáttur í manninum sá sannleiks- leitandi. Ég tel þennan þátt í senn grundvöll og óaðskiljanlegan þeim tveim fyrrnefndu þegar rætt er um góða gagnrýni. dagblaða „... .gagnrýni þarf alls ekki að fjalla um það sem gagnrýnt er .Hún á að lýsa áhrifum þess á gagnrýnandann og gæti því verið jafnsjálfstætt listaverk og skáldsaga. leikrit eða málverk, ef ekki sjálfstæðari en þau.“ Erum við ekki hér komin að kjarna málsins? Getur gagnrýn- andinn lýst öðru en eigin upplifun — sem jafnvel á stundum er svo mögnuð og persónuleg að hún ummyndast í nýtt listaverk. Sem jafnvel fer að lifa eigin lífi meira og minna óháð því sem það er sprottið frá. Sú krafa að gagnrýn- andinn sé þannig gæddur skáld- legum neista er kannski full mikil — hitt er ljóst að einhvern neista verður hann að bera ef hann á að vera fær um að koma hugblæ mjög skáldlegra verka áleiðis til lesenda. Það er svo aftur spurning hve langt gagnrýnandinn má svífa frá sjálfu listaverkinu." Fari hann of langt er hann að vissu leyti kominn í spor sérfræð- ingsins — farinn að skrifa áð mestu fyrir sjálfan sig eða sína líka. Hann má ekki gleyma hinum almenna blaðalesanda sem hann er ráðinn til að skrifa fyrir. Hann verður að segja eitthvað sem En erum við ekki komin inn á hálan ís? Ber að gera þá kröfu til daglegrar umfjöllunnar um list að hún sé í senn skáldleg, hræri strengi í brjóstum manna og sé full af skynsemi hárfínni rökvísi og ennfremur svo kurteisisleg að hún særi engan með ósiðlegum aðdróttunum. Seinasta þættinum má aldrei sleppa, ósiðleg gagnrýni þar sem vegið er að sjálfsvirðingu manna t.d. í söluskyni er ekkert annað en ruddaskapur. Slíkir pennar eiga hvergi heima nema í æsifréttamennsku. Hvað seinni þáttunum viðvíkur þá tel ég að engar fastar reglur séu þar til um, sum verk eru svo skáldleg að áhrifum þeirra á gagnrýnandann verður eingöngu lýst með orðum sem hafa vængi. Önnur verk höfða einungis til heilabarkarins og gega þar af leiðandi tilefni til spekilegrar umræðu. Flest bera í sér þetta tvennt — höfða í senn til hjartans og heilans. En kæru lesendur, hér erum við komin inn á nýtt svið, það hvernig hægt sé að nálgast listaverk. Um það eru ýmsar hugmyndir eins og bent verður á í grein tvö. Eina húsið í smíðum Þarna er verið að Ijúka uppsetningu húss frá Húsein- ingum hf. í Siglufirði, en það tók aðeins fjóra daga. Sagði ljósmyndarinn það að vísu ekki óvenjulegt í augum Siglfirðinga, en hitt er fréttaefni að þetta er eina húsið sem þar mun nú í smíðum. Ljósm. SteinKrímur „Ég söng og fagn- aði góðum gesti“ Gestur E. Jón- asson (Albert), Svanhildur Jó- hannesdóttir (Anna) og Sunna Borg (Oóra). Leikfélag Akureyrar: IIÉRBERGf 213 Leikrit í þrent þáttum eftir Jökui Jakobsson Tónlist: Leifur Þórarinsson Leikmynd og búningar: Magnús Tómasson Leikstjóri: Lárus Ýmir Óskarsson — ÞETTA var nú heldur snubb- ótt og klukkan ekki nema hálf- ellefu, — heyrði ég einhvern segja dálítið vonsvikinn, þegar hljóðlátir leikhúsgestir yfirgáfu gamla Samkomuhúsið á Akur- eyri, eftir frumsýningu á Her- bergi 213. En þannig var um hnútana búið, að ekki var með góðu móti hægt að halda áfram þar sem aðalpersónan var fallin í valinn. Gesturinn, sem áður en langt leið, hafnaði í þeim föstu, þröngu skorðum, sem dálítill kaupstaður getur sett íbúum sínum. Hann fékk ekki rönd við reist, ekki haldið svipnum, en koðnaði niður og þar kom, að hann í örvilnun hengdi sig í ljósakrónunni og tjaldið féll, áður en nýjan gest bar að garði með nýja skipulagsuppdrætti. Og þá var klukkan ekki nema hálfellefu. Óneitanlega var það býsna fyndið á tímum skipulags- væringa á Akureyri, að gestur- inn að sunnan skyldi vera með nýtt skipulag í farangri sínum. Einhvern veginn þótti mér verkið njóta sín næsta vel á þessum stað. Það var heima og menn virtust á báðum áttum, hvernig taka bæri þessari nær- göngulu, en ýktu mynd, sem höfundurinn hefur dregið upp í fremur stuttu verki. Öðru hvoru snýr hann út úr á þann veg, að skopmyndin verður nær sann- leikanum, en raunveruleikinn. Og þó eru myndirnar ekki endi- lega staðbundnar. Þær geta átt við hvaða kauptún sem er, kaup- tún á borð við Reykjavík, Akur- eyri eða Vatnseyri við Patreks- fjörð. „Þú færð aldrei sigrað þinn fæðingarhrepp“, orti Jón úr Vör í lokaljóðinu um Þorpið. „Þú færð aldrei sigrað þinn fæðingarhrepp, stjúpmóðurauga hans vakir yfir þér alla stund. Með meinfýsnum skilningi tekur hann ósigrum þínum, afrekum þínum með sjálfsögðu stolti. Hann ann þér á sinn hétt, en ok hans hvílir á herðum þér.“ Setningarnar um gestina að sunnan hefi ég heyrt frá blautu barnsbeini, sagðar með þeim sérstæða raddblæ, sem leikurum tókst mjög vel að laða fram í þessari sýningu. Heimamenn skildu yfirleitt hlutverk sín til hlítar. Og leikstjórinn, sem er gestur að sunnan, virðist ekki skorta næmleika til þess að hagnýta sér allar aðstæður, enda dregur hann ekki úr þeim þátt- um, sem hér hefur verið vikið að. Lárus Ýmir heitir hann og er Óskarsson; Reykvíkingur með leikstjórnarpróf frá Dramatiska institutet í Stokkhólmi; vel að merkja leikstjórn fyrir kvik- myndir og sjónvarp. Sýning þessi er traustlega unnin, fer næsta vel af stað, en vandinn verður meiri, þegar á líður, því þá stríkkar á reipum. Það tognar á þeim, uns þau sýnst bláþræðir, en þau halda til enda. Umgerðin, leiktjöld Magnúsar Tómassonar, (sem einnig er gestur að sunnan) hæfa mjög vel og skiptir sam- vinna hans og ljósameistarans, Ingvars B. Björnssonar, miklu máli, því ljósin gefa virðulegri sviðsmynd þann fölbleika lit, sem er nauðsynlegur að baki svartra klæða gammanna, sem toga gestinn á milli sín. Gestur E. Jónasson fer með eina karlhlutverkið, hinn gest- komandi Albert, og nær ágætum tökum á því. Hér er þó einmitt nokkur hætta á, að leikarinn freistist til öfgaleiks, en hann gengur hvergi of langt. Framan af heldur hann í jöfnum hlutföll- um þeirri furðu og því granda- leysi, sem annarlegar aðstæður kalla fram hjá aðkomumanni, en síðar, eftir hina undarlegu end- urfæðingu, uppgjöf og örvænt- ingu fórnardýrs. Hefur Gestur sótt í sig veðrið að undanförnu og fer nú á kostum, svo ástæða er til að óska honuip til ham- ingju með árangurinn. Sunna Borg leikur Dóru, eiginkonu Pét- urs, af skilningi, en þeim óstýri- láta þrótti, sem framan af jaðrar við að gera hlutskipti persón- unnar ótrúlegt, en réttlætist þegar á líður og ímyndunar- martröðin færist í aukana. Sól- veig Halldórsdóttir er örugg Lelkllst eftir BOLLA GÚSTAVSSON Svanhildur Jóhannesdóttir (Anna), Guðrún Alfreösdóttir (Stella), Sunna Borg (Dóra), Gestur E. Jónasson (Albert), Sólveig Halldórsdóttir (Lov- ísa) og Sigurveig Jónsdóttir (frú Lovísa). leikkona og Lovísa, dóttir Pét- urs, verður minnileg í meðförum hennar, eðlileg og snögg svip- brigðin og tilsvörin. Samleikur hennar og Gests er bráðskemm- tilegur og sannur. Svanhildur Jóhannesdóttir leikur Önnu, systur Péturs, í þeirri tilbrigða- litlu tóntegund og litleysi, sem hæfa. Svipbrigði og hreyfingar leyna þó ekki gremjunni, sem kraumar undir. Guðrún Alfreðs- dóttir er nýr leikari hjá L.A. og fer með hlutverk stellu, viðhalds Péturs. Það dylst ekki, að Guð- rún er menntaður leikari, en af einhverjum ástæðum féll hún ekki eðlilega inn í myndina. Það virðist hún finna sjálf, svo nokk- ur spenna verður henni fjötur um fót og leikinn vantar lifandi sveiflu, eins og stundum er sagt um málverk. Það er ef til vill erfiðara að koma aðvífandi inn í þessa sýningu, en aðrar? Sigur- veigu Jónsdóttur vantar ekki þessa sveiflu og dregur ekki af sér í hlutverki Lovísu, móður Péturs. Hún er sönn og hressileg túlkun sinni á þessari gustmiklu frú, sem magnar andrúmsloftið, sparar ekki litinn. Manngerðin tengir verkið Akureyri, fremur en nokkur önnur í sýningunni, í henni birtast margar sögulegar persónur. Það má með nokkrum rétti segja, að þessi sýning sé í skemmsta lagi, ef menn meta skammtinn eins og rétt dagsins á Bautanum. I bókmenntum hafa komið fram ritverk, sem eru á mörkum þess að flokkast með smásögum eða þá skáldsög-. um, eru of langar til þess að teljast til þeirra fyrrgreindu og heldur stuttar til þess að flokk- ast með þeim síðarnefndu. Þann- ig er því háttað um snilldarverk eins og Gamla manninn og hafið eftir Hemingway. Þetta hefur þó ekki talist neitt vandamál, enda verður list ekki talin í blaðsíð- um, rúmmáls- eða flatarmáls- einingum eða þá tímalengd. Her- bergi 213 er of langt verk til þess að flytja það með öðru eins og stundum er gert við einþáttunga. Ekki verður það talið til stór- brotinna leikhúsverka, en það er eigi að síður frumlegt, kunnáttu- samlega samið og ber greinilegt svipmót höfundar síns. Það á að minnsta kosti sögulegt erindi hingað norður. Leifur Þórarins- son hefur samið dálítið tónverk fyrir knéfiðlu, sem fellur mæta- vel að leikritinu og mun að líkindum fylgja því áfram eins og eðlilegur dráttur í myndinni og búningsbót. Það kemur sífellt betur í Ijós, hvert happ það er fyrir mótun atvinnuleikhúss L.A. að hafa fengið Odd Björnsson sem leik- hússtjóra. Það ræður engin fálmkennd tilviljun því, hvert hann leitar fanga um verkefni og hann er fundvís á leikstjóra, sem bera með sér hressandi andblæ inn í leikhúsið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.