Morgunblaðið - 22.03.1980, Síða 3

Morgunblaðið - 22.03.1980, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980 3 Menntamálaráðherra um byggingu skóla fyrir vangefna: „Viljum gjarnan að þetta hús Sssr ^•1 jjl LL á skóla fyrir verði skreytt skemmtilega Si Tillaga að 50 ferm veggskreyt- ingu Einars Hákonarsonar til athugunar hjá ráðherra „Listaverkinu á skóiann sem ver- ið er að byggja í Safamýri fyrir vangefin börn hefur ekki verið hafnað. málið er til athugunar og ég mun taka ákvörðun i málinu strax eftir helgi,“ sagði Ingvar Gislason menntamálaráðherra i samtali við Morgunbiaðið i gær- kvöldi þegar hann var inntur eftir ástæðu fyrir þvi að ráðuneytið hefði hafnað því að verkið yrði sett á húsið eins og fram kemur hér á eftir i samtali við aðila að byggingu hússins. „Hér er um að ræða dýrt mynd- verk," sagði menntamálaráðherra, „og málið kom upp löngu fyrir minn dag í ráðuneytinu. Það var fyrst í dag (föstudag) sem málið er lagt fyrir mig og því hefur ekki verið neinn tími til þess að meta það og tek mér tíma til þess um helgina. Við viljum gjarnan að þetta hús verði skreytt skemmtilega og við viljum að sjálfsögðu virða fyrir okkur verkið, listrænt gildi þess og kostn- aðaráætlun." Hugmyndin að umræddu lista- verki er eftir Einar Hákonarson listmálara og þar sem hugmyndin gerir ráð fyrir innfellingum í steypu hússins er brýnt að taka ákvörðun nú pegar þar sem komið er að þeim hluta verksins. Magnús Ingi Ingv- arsson arkitekt sagði aðspurður í samtali við Mbl. í gær að á fundi fyrr í vikunni hefði Magnús Kristinsson formaður Styrktarfélags vangefinna borið skilaboð frá menntamálaráðu- neytinu sem hafnaði tillögunni þar sem þeim þætti verkið of dýrt. Það var rætt um það fyrir nokkuð löngu síðan að fá listaverk á húsið á tvo veggfleti sem snúa að Safamýrinni," sagði Magnús Ingi, „og eru þessir fletir hvor um sig um 4x6 metrar. Það var rætt við ráðuneytið um þetta og því tekið vel, enda er gert ráð fyrir því í lögum að verja megi 2% af byggingarkostnaði til list- skreytingar. Stjórn Styrktarfélags vangefinna og stjórn Lyngáss hafa frá byrjun byggingar þessa húss verið með í ráðum við teikningar og fyrirkomulag hússins og ráðuneytið bað Styrktarfélagið að hafa sam- band við einn eða fleiri listamenn og fá hugmynd að skreytingu hússins. Varð Einar Hákonarson fyrir valinu. Nokkuð skammur tími var til stefnu en Einar brást fljótt og vel við og skilaði hugmynd sem er táknræn fyrir skóla, ástúð og þroska." Byggingarkostnaður á skólanum mun áætlaður 400—500 millj. kr. og samkvæmt því er mögulegt að skreytingin á þessa 50 ferm veggi kosti um 10 millj. kr. Morgunblaðið hafði samband við Einar Hákonarson listmálara og innti hann eftir áliti á gangi máls- ins. Kvaðst hann lítið vilja segja um málið, en fagnaði því að ráðherrann hefði ekki afskrifað málið og teldi húsið nógu merkilegt til þess að bera skreytingu, því að ráðuneytisstjór- inn, Birgir Thorlacius, hefði veri búinn að afneita hugmyndinni og hefði jafnframt sagt sér að það stæði Styrktarfélaginu næst að greiða kostnað við undirbúning verksins, „eins og nokkrum manni detti í hug að rukka slíkt hjálparfélag," sagði listmaðurinn. Ekki náðist í gær í Magnús Kristinsson formann Styrktarfélags vangefinna til þess að spyrja hann um málið. VERKFÆRASÝNING I DAQ KLUKKAN 2—6 BOSCH rafmagnsverkfæri WOLFCRAFT fylgihlutir BRENNENSTUHL Komið sjáiö sannfærist unnai SUDURLANDSBRAUT 16 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 91 - 35200 NAFNNR. 3338 - 2332

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.