Morgunblaðið - 22.03.1980, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980
23
Rússar þjarma
að Júgóslövum
Jane Fonda
Jack Lemmon
Belgrad, 21. marz. AP.
SOVÉTRÍKIN og fylgiríki
þeirra hafa hleypt af stokkunum
herferð til að þjarma að óháðri
stefnu Júgóslavíu með þrýstingi
að sögn talsmanns júgóslavn-
eska utanríkisráðuneytisins,
Mirko Kalezic, i dag.
Hann benti á gagnrýni frá
Víetnömum sem hann sagði að
hefði verið endurtekin í Sov-
étríkjunum og í Tékkóslóvakíu og
Búlgaríu, traustustu banda-
lagsríkjum Rússa í Austur-
Evrópu.
Hann kvað bersýnilega á ferð-
inni árás á Júgóslavíu, sem opin-
berir víetnamskir aðilar ættu
frumkvæði að, en ekki blaðadeil-
fjallaði meðal annars um ugg
Júgóslava út af Afganistan.
I grein í víetnamska flokks-
málgagninu var því haldið fram
að Júgóslavar væru „að slást í
hóp með skaðræðisöflum undir
yfirskini hlutleysisstefnu". Júgó-
slavar voru jafnframt sakaðir um
að „ganga erinda bandarískrar
heimsvaldastefnu og kínverskrar
útþenslustefnu."
Sovézka blaðið „Za Rubezom“
hefur sakað júgóslavneska leið-
toga um „virkan stuðning við
stefnu valdablokkar heimsvalda-
sinna og Kínverja og hlutdeild í
áróðursstríðinu gegn Sovétríkj-
unum“.
Kalezic gagnrýndi þessi um-
mæli og athugasemdir hans voru
fyrsta opinbera svarið frá Júgó-
slavíu við þessum ásökunum.
Hann sakaði Víetnama, sem hafa
dregið taum Kúbu, um samsæri
um að „etja saman Júgóslövum
og öðrum óháðum og vinveittum
ríkjum“. Eitt erfiðasta verkefni
júgóslavneskra leiðtoga er að
viðhalda áhrifum landsins í
hreyfingu óháðra ríkja án Titos.
Fonda og Lemmon
verðlaunuð fyrir
„China Syndrome44
Katalóníukosningarnar:
London, 21. marz. AP.
JANE Fonda og Jack Lemmon,
aðalleikararnir í kvikmyndinni
„Kjarnaleiðsla til Kína“ sem
hefur verið sýnd í Reykjavík
undanfarið, fengu í dag verð-
laun sem bezta leikkona og bezti
leikari frá Brezku kvikmynda-
Veður
Akureyri -3 snjóél
Amsterdam -3 heiðríkt
Aþena 16 heiórlkl
Barcelona 14 skýjað
Berlín 2 heiðríkt
BrUssel 5 skýjað
Chicago 15 skýjað
Denpasar 31skýjað
Dublin 4heiðríkt
Feneyjar 10þokumóða
Frankfurt 5 skýjað
Genf 10 skýjað
Helsinki -6 heiðríkt
Hong Kong 25heiðríkt
Jerúsalem 14 skýjað
Kaupmannahöfr i-2 skýjað
Las Palmas 20 skýjað
Lissabon 15 skýjað
London 3 skýjað
Los Angeles 22 skýjaö
Madríd 11 rigning
Mallorca 16 hálfskýjað
Malaga 14skýjað
Miami 26 skýjað
Montreal 9 skýjað
Moskva -5 skýjað
Nýja Delhi 31heiðríkt
New York 15 rigning
Ósló -1 heiðríkt
París 3 snjókoma
Reykjavík -1 léttskýjaö
Rio De Janeiro 33 bjart
Rómaborg 14 skýjaö
Stokkhólmur -2 heiðríkt
San Francisco 14 bjart
Sydney 29 bjart
Tel Aviv 19 heiðrlkt
Tókýó 13 skýjað
Toronto 14 skýjað
Vancouver 10 skýjað
Vínarborg -1 snjókoma
Ástralía set-
ur sovézk
skip í bann
ÁSTRALSKA stjórnin hefur
ákveðið að banna afgreiðslu á
sovézkum skipum í áströlskum
höfnum frá og með 31. maí og er
þar einkum um að ræða skemmti-
ferðaskip sem koma við í ýmsum
höfnum þar á siglingu um heims-
höfin. Samgönguráðherra Ástra-
líu, Ralph Hunt, tilkynnti bannið
og sagði að bannið næði til allra
sovézkra skipa hverrar gerðar sem
þau væru, þar með talin hafrann-
sóknaskip.
og sjónvarpsakademíunni, sem
veitir árlega viðurkenningu af
margvíslegu tagi.
Mynd Woody Allens „Manhatt-
an“, fékk verðlaun sem bezta
kvikmyndin og einnig fyrir bezta
handritið. Robert Duval fékk
verðlaun fyrir beztan leik í auka-
hlutverki fyrir „Apocalypse Now“
— ein margra Víetnammynda
sem gerðar hafa verið síðustu ár.
Vísindaskáldsögumyndin „Alien"
fékk verðlaun fyrir beztu leik-
mynd, listræna leikstjórn og
beztu hljóðgæði.
Dennis Christopher var úr-
skurðaður efnilegasti nýliði fyrir
hlutverk sitt í „Breaking away“
og Alec Guinnes fékk verðlaun
sem bezti sjónvarpsleikari ársins,
en hann fer með hlutverk meist-
aranjósnarans George Smiley í
mynd BBC eftir sögu Le Carré,
„Thinker, Tailor, Soldier, Spy“.
Þrátt fyrir veikindi Josip Broz
Tito forseta hefur hin samvirka
forysta sem stjórnar landinu gert
harða hríð að Rússum fyrir
innrás þeirra í Afganistan. Vitað
er að síðasta formlega orðsend-
ingin frá Tito af sjúkrabeði
44 kg heróíns
náðust á Ítalíu
Milanó, Ítaliu. 21. marz. AP.
L0GREGLAN í Mílanó kom í dag
höndum yfir 44 kíló af heróíni sem
átti að fara til Bandarikjanna og
var tilbúið til sendingar. Söluverð
þessa varnings mundi hafa verið
um 60 milljónir dollarar.
Þrír bræður, ættaðir frá Sikiley,
tveir þeirra búsettir í Bandaríkjun-
um, voru handteknir vegna þessa
máls. Bandaríska fíkniefnalögregl-
an mun hafa fengið pata af málinu
og var höfð samvinna við ítölsku
fíkniefnalögregluna. Tveir voru
handteknir í Bandaríkjunum, en
þeir eru grunaðir um að hafa átt að
veita heróíninu viðtöku.
Lögreglan segir að heróínið hafi.
fundizt í geymsluhúsi útflutnings-
fyrirtækis skammt frá Malpensa-
flugvelli. Átti að koma því í flugvél í
dag, föstudag. Heróínið var í
málmhylkjum, sem falin voru undir
hljómplötubunkum.
Ingiríður sjötug
Kaupmannahöfn, 21. marz.
Frá Erik Larsen, fréttaritara Mbl.
INGIRÍÐUR ekkjudrottning
Dana er sjötug í dag og hafa
landar hennar minnzt þess á
ýmsan hátt i dag, enda Ingiriður
einkar vel þokkuð af þegnum
sinum.
Hún er sænsk að uppruna, dóttir
Gustavs Adolfs þáverandi krónprins
Svíþjóðar og fyrri konu hans,
Margaretar krónprinsessu. Ingiríð-
ur giftist Friðriki Danaprins árið
1935 og var brúðkaup þeirra ein hin
mesta veizla sem haldin hefur verið
í Svíþjóð og enn í minnum höfð.
Við lát Kristjáns tíunda urðu þau
síðan konungshjón Danmerkur,
Ingiríður og Friðrik 9., og áunnu sér
hylli og virðingu þegnanna með
alþýðlegri og þó konunglegri fram-
göngu.
Dætur þeirra eru þrjár, Margrét
drottning, Benedikta og Anna
María. Síðan Friðrik 9. lézt hefur
Ingiríður sinnt ýmsum sínum einka-
áhugamálum, svo sem blómarækt og
innanhúsarkitektúr dg hún er átta
barnabörnum sínum hin ágætasta
amma.
Ingiriður ekkjudrottning
Sartre sjúkur
Paris, 21. marz. AP.
FRANSKI rithöfundurinn og spek-
ingurinn Jean Paul Sartre var
fluttur í sjúkrahús aðfararnótt
fimmtudags með lungnaveiki.
Sartre er 74 ára gamall.
Franska útvarpið sagði síðdegis,
að hann væri á gjörgæzludeild
Broussaissjúkrahússins, og yrðu
engar tilkynningar gefnar út um
líðan hans að fyrirmælum ástvina
hans.
Sjúkdómur sá sem Sartre þjáist af
heitir á ensku pulmonary edema og
hættir þeim einkum til að veikjast
sem hafa mjög næmt taugakerfi og
þanið, ellegar hafa hjartakvilla.
Þjóðernissinna-
flokkurinn vann
óvæntan sigur
Barcelona, 21. marz. AP.
HÓFSAMUR flokkur þjóðernis-
sinna í Katalóníu vann óvæntan
sigur í þingkosningunum þar í
gær, en allar spár um úrslit
höfðu verið á þá lund að flokkur
sósíalista myndi vinna sigur.
Þegar talin höfðu verið nær öll
atkvæði í kosningunum kom þó í
ljós að Þjóðernisssinnaflokkur-
inn undir forystu bankastjórans
og iðjuhöldsins Jordi Pujol hafði
fengið 43 þingsæti og Sósíalista-
flokkurinn 33 sæti. Kommúnistar
komu þriðju með 25 sæti og
Miðflokkur Adolfo Suarez for-
sætisráðherra fékk átján sæti,
repúblikanaflokkur Katalóníu
fékk fjórtán sæti og Sósíalista-
flokkur Andalúsíu tvö sæti.
Á þingi Katalóníu munu sitja
135 fulltrúar. Pujol vantar 25
sæti upp á meirihluta og hafa
menn haft uppi vangaveltur um
hvort hann muni ganga til sam-
starfs við kommúnista sem hafa
einmitt þá tölu sem þjóðernis-
sinna vantar. I yfirlýsingu Pujols
þegar úrslitin lágu fyrir, neitaði
hann því sem hugsanlegri lausn
að flokkur hans gæti starfað með
kommúnistum, þar sem þeim
væri ekki treystandi.
Á kjörskrá í Katalóníu voru 4.3
milljónir, en 63% greiddu at-
kvæði.
Ástralskt glasa-
barn í vonum
FYRSTA glasabarnið í Ástralíu
mun koma í heiminn í byrjun júní,
að því er fréttir herma. Móðirin er
24 ára gömul og hefur ekki verið
frá því skýrt hvort hún eigi önnur
börn. Tekið er fram að þetta
glasabarn sé ávöxtur af sam-
starfsrannsóknum við Konunglega
kvennaspítalann í Melbourne og
Læknamiðstöð þá sem kennd er
við Viktoríu drottningu.
Þetta gerðist 22. marz
1974 — Kappaksturskempan
Peter Revson ferst í æfingu í
Suður-Afríku.
1962 — Árásir hægrisinnaðra
franskra hryðjuverkamanna á
stjórnarhermenn í Atgeirsborg.
1946 — Jórdania fær sjálfstæði.
1945 — Arababandalagið stofn-
að í Kaíró, Egyptalandi.
1917 — Bandaríkin viðurkenna
bráðabirgðastjórnina í Rúss-
landi fyrst allra ríkja.
1820 — Bandaríska sjóhetjan
Stephen Decatur særist ban-
vænu sári í einvígi við James
Barron flotaforingja nálægt
Washington.
1794 — Bandaríkjaþing sam-
þykkir lög sem banna bandarísk-
um skipum að flytja þræla til
annarra landa.
1765 — Enska þingið samþykkir
stimpillögin sem auka álögur í
norður-amerísku nýlendunum.
1622 — Um 35 Virginíumenn
drepnir í fyrstu fjöldamorðum
Indíána á evrópskum landnem-
um í Norður-Ameríku.
1312 — Páfi leggur niður reglu
Musterisriddaranna.
Aímæli — Anthony Van Dyck,
hollenzkur listmálari (1599 —
1641) — Maximilian keisari I
(1459 - 1519) - Vilhjálmur I
Þýzkalandskeisari (1797 — 1888)
— Robert Andrews Millikan,
bandarískur vísindamaður (1868
- 1953).
Andlát — 1687 Jean Baptiste
Lully, tónskáld - 1832 Johann
Wolfgang von Goethe, skáld &
heimspekingur.
Innlent - 1949 Keflavík fær
kaupstaðarréttindi — 1663 d.
Ragnheiður Brynjólfsdóttir —
1839 Gjaldi af húsgerðarefni
aflétt — 1924 Jón Magnússon
forsætisráðherra í þriðja sinn —
1978 Stjórn Rarik segir af sér.
Orð dagsins — Hin sanna auð-
legð mannsins er fólgin í hinu
góða sem hann lætur af sér leiða
i lífinu — Múhameð, arabískur
spámaður (570—632).