Morgunblaðið - 22.03.1980, Page 35

Morgunblaðið - 22.03.1980, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980 35 Teikning aí stöðvarhúsi Bessagtaðaárvirkjunar. Ari Björnsson, Egilsstöðum: Bessastaðaár- virkjun í Fljótsdal Fyrirspurn til iðnaðarráðherra Raforkumál Austfirðinga hafa verið mikið til umræðu síðastliðin sex ár. Rannsóknir hafa staðið yfir í rúman áratug. Menn ætla því að þessum rannsóknum fari að ljúka, enda mun kominn fast að milljarður í þann kostnað, svo ætla mætti að niðurstöður væru svo ljósar að hefjast mætti handa við byggingu orkuversins. Haustið 1974 var haldinn á Eiðum aðalfundur sambands sveitarfélaga á Austulandi, og má segja að þar hefi verið lagður grundvöllur að fyrsta áfanga Fljótsdalsvirkjunar. Þá var Gunn- ar Thoroddsen iðnaðarráðherra og sat hann fundinn á Eiðum, síðan er vitað að Gunnar Thoroddsen var ævinlega hlynntur virkjun í Fljótsdal, enda lög um Bessa- staðaárvikjun sett þegar hann var orkumálaráðherra árið 1974. Alþýðubandalagið lýsti yfir stuðningi við málið, og þegar vinstristjórn var mynduð haustið 1978 fá Austfirðingar orkumála- ráðherrann. Hjörleifur Gutt- ormsson hefur verið eindreginn stuðningsmaður virkjunarfram- kvæmda í Fljótsdal og kemur það meðal annars glöggt fram í grein hans „Bessastaðaárvirkjun og svik ríkisstjórnarinnar" sem birtist í Austurlandi 16. febr. 1978 og segir þar í upphfi orðrétt: „Austfirðingar eru að vonum orðnir langleitir eftir efndum á fyrirheitum ríkisstjórnarinnar um framkvæmdir við Bessastaða- árvirkjun, sem Gunnar Thorodd- sen vakti vonir um á aðalfundi SSA þegar haustið 1974. Síðsum- ars 1975 var látið að því liggja eftir miklar rannsóknir á Fljóts- dalsheiði, að framkvæmdir hæfust að vori 1976, eða svo skildu menn skyndiákvörðun um meiriháttar vegalagningu upp á heiðina í ágúst 1975. A árinu 1976 var hins vegar ekki krónu að finna til undirbún- ings Bessastaðaárvirkjunar, ef frá er talinn rekstur húsnæðis á Grenisöldu. Á síðasta ári vöknuðu stjórnvöld upp við að rannsóknum væri ekki lokið vegna virkjunar- innar, ekki síst með hliðsjón af stórvirkjunum jökuiánna. Þeim rannsóknum lauk sl. sumar og í haust lágu niðurstöður og rann- sóknir um fjárveitingar á borðum valdamanna. Hönnuðir voru á einu máli um, að ekkert stæði 'í vegi fyrir frekari framkvæmda- undirbúningi. Samt veitti ríkis- stjórnin ekki krónu til verksins í ár, þótt enn verði að vænta þess að ráðherrarnir sjái að sér og standi við gefin heit. Hætt er þó við að það verði ekki annað en katta- þvottur íljósi kosninga". Þegar Hjörleifur Guttormsson varð orku- og iðnaðarráðherra í vinstristjórninni 1978, töldu Aust- firðingar að virkjun í Fljótsdal væri komin í höfn. Forystumenn í orkumálum höfðu lýst því yfir að hagkvæmasti virkjunarkostur væri í Fljótsdal eftir að Hraun- eyjafossvirkjun væri byggð. Síðan gerist það að í fjárlaga- frumvarpi Tómasar Arnasonar var á árinu 1980 ætlaður 1,5 milljarður króna til Bessastaða- árvirkjunar sem fyrsti áfangi í Fljótsdalsvirkjun. Síðustu daga Hjörleifs í iðnaðarráðuneytinu ákveður hann Bessastaðaárvirkj- un sem fyrsta áfanga í Fljótsdals- virkjun. Eftir að vinstristjórnin fór frá, tók Bragi Sigurjónsson við rðherraembætti Hjörleifs og aft- urkallar heimild fyrirrennara síns um virkjun. Þá efnir Hjörleifur til blaðamannafundar 15. október og segir frá þessum fundi í Þjóðvilj- anum 16. okt. orðrétt: „Hjörleifur Guttormsson fyrr- um iðnaðarráðherra sagði á blaða- mannafundi í gær, að hann hefði tekið þessa ákvörðun eftir að starfshópur sérfræðinga í raf- orkumálum hefði skilað áliti þar sem fram kemur að Bessastaðaár- virkjun, er hagkvæmasta virkjun- in í landinu þegar Hrauneyjar- fossvirkjun er fullbúin. Vegna breyttra viðhorfa sé nauðsynlegt að næsta virkjun á eftir Hraun- eyjarfossvirkjun, komist í gagnið árið 1985. Vænlegasti kosturinn í því sambandi telur hópurinn vera 1. áfanga Fljótsdalsvirkjunar, sem verður Bessastaðaárvirkjun. Nú þegar er lokið undirbúningi að virkjun Bessastaðaár og þar er gert ráð fyrir að hún verði aðlöguð fullnaðarvirkjun Jökulsár íFljóts- dal. Rafmagnsveitum ríkisins er falið að reisa og reka virkjunina". Hvað er nú í veginum fyrir því að hafist verði handa, og virkjað í Fljótsdal. Væri nú æskilegt að fá um það skýlaus svör frá Hjörleifi Guttormssyni orku- og iðnaðar- ráðherra, hvað hann ætlast fyrir í þessu máli. Ari Björnsson Egilsstöðum Sölu- og skiptimarkaður frímerkjasafnara á Ak- ureyri í dag kl. 14—17 FÉLAG frímerkjasafnara á Ak- ureyri hefur ákveðið að taka upp þá nýbreytni að efna til sölu- og skiptimarkaðar, og verður hinn fyrsti í dag að Hótel Varðborg milli kl. 14-17. Á þessum markaði verða til sölu eða skipta frímerki, mynt, jólamerki og póstkort, svo að eitthvað sé nefnt. Áður hefur félagið haldið upp- boð á slíku efni, en gerir nú tilraun með breytt fyrirkomulag á sölu eða skiptum slíkra söfn- unargripa. Þessi markaður er öllum op- inn, og vafalaust geta margir gert þar góð kaup til uppfyll- ingar í söfn sín. Brlflge Umsjón: ARNÓR RAGNARSSON Bridgefélag Hafnarfjarðar Laugardaginn 8.3. ’80 fór BH austur á Selfoss og keppti þar við heimamenn á sex borðum. Keppnin fór í alla staði mjög vel fram og var hin ánægjulegasta. Úrslit aðalkeppninnar: Sævar Magnússon — Örn Vigfússon 16—4 Aðalsteinn Jörgensen — Haraldur Gestsson 16—4 Kristófer Magnússon — Gunnar Þórðarson 17—3. Magnús Jóhannsson — Bjarni Jónsson 20—0. Jón Gíslason — Garðar Gestsson 5—Bridgefélag Hafnarfjarðar 74 stig. Bridgefélag Selfoss 26 stig. Úrslit sjötta borðs: Vilhjálmur Einarsson — Leif Österby 13—7. Síðastliðinn mánudag hélt Barometerinn svo áfram. Staðan að loknum 10 umferðum: Hörður Þórarinsson — Halldór Bjarnason 137 Dröfn Guðmundsdóttir — Erla Sigurjónsdóttir 120 Aðalsteinn Jörgensen — Ásgeir Ásbjörnsson 118 Magnús Jóhannsson — Bjarni Jóhannsson 102 Stefán Pálsson — Ægir Magnússon 68 Kristófer Magnússon — Björn Eysteinsson 58 Friðþjófur Einarsson — Halldór Einarsson 51 Ingvar Ingvarsson — Ægir Björgvinsson 45 Ragnar Halldórsson — Jón Pálmason 43 Einar Sigurðsson — Gísli Hafliðason 28 Stórmót BR Stórmót Bridgefélags Reykja- víkur hefst í dag klukkan 13 á Hótel Loftleiðum, en spilarar eru beðnir að mæta kl. 12.45 í síðasta lagi. Mótið verður með hefðbundnu sniði og sitja gest- irnir fast og er það gert til þess að áhorfendur fái betur fylgzt með meisturunum. Staðan í sveitakeppni sem stendur yfir hjá BR er þessi þegar 9 umferðum af 13 er lokijk Sveit Óðals 147 Jónasar P. Erlingssonar 142 Hjalta Elíassonar 116 Ágústs Helgasonar 114 Sigurðar B. Þorsteinss. 110 Keppninni lýkur nk. miðviku- dag. Bridgefélag kvenna Nú er lokið þremur umferðum af fimm í parakeppni Bridgefé- lags kvenna. Þrjátíu og sex pör taka þátt í keppninni og er spilað í þremur riðlum. Efstu tólf pör eftir þrjár umferðir skipa A-riðil í fjórðu umferð og eru þau þessi: Dóra — Guðjón 601. Sigrún — Magnús 574 Kristjana — Guðjón 563 Unnur — Eggert , 558 Gunnþórunn — Þórhallur 558 Kristín — Jón 557 Halla — Jóhann 553 Sigrún — Ríkharður 546 Ingibjörg — Sigvaldi 534 Ósk — Dagbjartur 530 Sigríður — Jóhann 530 Lilja — Jón 524 Meðalskor eru 495 stig. Bridgefélag Breiðholts Sl. þriðjudag var spilaður eins kvölds tvímenningur og var spil- að í tveimur 10 para riðlum. Úrslit í A-riðli: Helgi Skúlason — Leifur Karlsson 127 Guðmundur Aronsson — Jóhann Jóelsson 125 Helgi Magnússon — Sigurjón N. Ólafsson 114 Úrslit í B-riðli: Guðbjörg Jónsdóttir — Jón Þorvaldsson 120 Ragnar Magnússon — Sigurður Erlendsson 119 Jón Ásmundsson — Erna Hrólfsdóttir 116 Nk. þriðjudag hefst firma- keppni félagsins og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Spilað er í húsi Kjöts og fisks í Seljahverfi. Barðstrendinga- félagið í Reykjavík Eftir 15. umferð Barómeters- keppninnar er röðin þessi: Sigrún Straumland — Kristín Kristjánsdóttir 100 Ragnar Björnsson — Þórarinn Árnason 79 Baldur Guðmundsson — Þorvaldur Lúðvíksson 72 Helgi Einarsson — Málfríður Lórange 63 Ragnar Þorsteinsson — Eggert Kjartansson 62 Hermann Ólafsson — Sigurður Kristjánsson 42 Sigurbjörn Ármannsson — Hröðmar Sigurbjörnsson 40 Föðurnöfn Að gefnu tilefni eru blaða- fulltrúar sem senda þættinum fréttir beðnir að hafa föðurnöfn spilara með. Þrásinnis hefir ver- ið haft samband við umsjónar- mann þáttarins til áréttingar þessu og er það skiljanlegt með þá sem vilja fylgjast með frétt- um frá öðrum félögum en því sem þeir spila hjá. Karl Árnason forstöðumaður S.V.K.: Af hverju IKARGUS? I Morgunblaðinu, miðvikudag- inn, 19. mars 1980 skrifar Magnús H. Skarphéðinsson vagnstjóri S.V.R. grein um strætisvagnakaup S.V.R. og í henni kemst hann þannig að orði, að „Kópavogskaup- staður geri snöggtum lægri gæða- kröfur en S.V.R. geri í dag“. Því er til að svara að á árunum 1976— 1978 keypti Kópavogskaupstaður fyrir S.V.K. þrjá Leylarid vagna, fullbúna frá Leyland D.A.B. sem eru verksmiðjur í Danmörku, þessir vagnar hafa reynst sérlega vel. Samkv. þeim tilboðum sem S.V.R. bárust hljóta þeir að vera mjög góðir, ef ekki bestir, þar sem verðið var með því hæsta eða um 78 milljónir hver vagn. Þegar kom í ljós að S.V.R. hafði borist tilboð frá IKARUS verksmiðjunum sem er frá 22—40 milljónum lægra en önnur tilb. vaknaði áhugi í Kópa- vogi um að fylgjast með. Það er nú svo að S.V.K. er lítið fyrirtæki ög getur ekki staðið fyrir útboði eins og S.V.R. til að kaupa frá einum upp í þrjá vagna og hafa því notfært sér að ganga inn í þau boð sem S.V.R. hefur fengið, og þá til viðbótar með samkomulagi við báða aðila, síðan 1974. Vegna hins óvenjulága tilboðs frá IKARUS verksmiðjunum í Ungverjalandi kom fljótlega upp sú aðstaða að Reykjavíkurborg Karl Árnason ákvað að senda menn þangað til að kynna sér tilboð, byggingu og útbúnað þeirra vagna sem boðnir eru, var þá farið fram á það að fulltrúi frá Kópavogskaupstað fengi að slást í förina, með tilliti til þess að S.V.K. myndi notfæra sér þetta tækifæri til að endur- nýja hluta af vagnakosti sínum. Var leyfið fúslega veitt og ég undirritaður valdist ttil fararinn- ar. Mér gafst mjög gott tækifæri til að skoða og kynna mér byggingu og búnað IKARUS vagnanna. Eg fór með því hugarfari að skoða þetta mjög vel þar sem mikið er í húfi fyrir fyrirtæki eins og S.V.K. að kaupa nýja tegund af vögnum, og gerði mér grein fyrir því að eitthvað hlaut að vera innifalið í hinum mikla vérðmun milli tilboð- anna. En við þessa nákvæmu skoðun og eftir þær viðræður sem við áttum við tæknimenn verksmiðj- anna, sannfærðist ég um það að sá búnaður sem felst í endanlegu tilboði, og möguleikum á breyting- um gegn aukagreiðslum eins og alltaf er, reyndist alls ekki vera sá munur sem upphæðirnar gefa til kynna, heldur þvert á móti. Ég tel að engin áhætta sé fólgin í því fyrir Kópavogskaupstað að kaupa bíla af IKARUS gerð fyrir S.V.K. Ég tel mig fyllilega dóm- bæran á þann búnað sem í boði er, sökum menntunar minnar og reynslu á þessu sviði og þarf ekki á aðstoð Magnúsar H. Skarphéð- inssonar vagnstjóra S.V.R. að halda við ákvarðanatöku mína. Læt ég þetta vera útrætt mál frá minni hendi, en tilefnið var gefið. Kópavogi, 20. mars 1980. Karl Árnason forstöðumaður S.V.K.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.