Morgunblaðið - 22.03.1980, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980
45
þegar málleysingjar eru beittir
órétti.
Þannig er mál með vexti, að
fyrir nokkru var lögreglan send til
okkar að kvöldi og var það út af
hundinum okkar. Átti hann að
hafa verið laus allan þann dag og
hrætt líklega fjölda manns. Þetta
kom eins og reiðarslag yfir okkur,
því að enginn er heima hér hjá
okkur frá morgni og fram eftir
degi. Þegar ég kem svo heim
hleypti ég hundinum út og er hann
alltaf bundinn. Þá kom það líka í
ljós, að hundurinn hafði hrætt
fólk, þegar hann vogaði sér að
segja„voff, voff“ um leið og ein-
hver átti leið um.
Hundar vita miklu meira um
fólk og innræti þess en við. Ef
þeim líkar ekki eitthvað í fari
einhvers þá leyfa þeir sér að segja
„voff, voff“ enda það eina sem þeir
geta sagt.
Það er líklega rétt að taka það
fram að við búum úti á landi og
skal „menningin" vera svo mikil
hér, að ekki einu sinni vel upp
alinn hundur, sem gerir ekki flugu
mein, á rétt á að lifa. En það mun
vera í lagi, þó að maður sofi ekki
fyrir „jarmi" á nóttunni, þegar
blessaðar rollurnar eru að flakka
hér um með lömbin sín á vorin.
Það mun einnig vera í lagi þó
maður eigi fótum sínum fjör að
launa á leið til vinnu, þegar
ótemjur leggja undir sig göngu-
leiðir í bænum. Hundurinn minn
hefur einnig komist í tæri við
þessa ótömdu hesta, því einhverra
hluta vegna hafa þeir dálæti á
lóðinni okkar.
Svo hefur mér ætíð verið það
ráðgáta hvernig foreldrum dettur
í hug að innræta það börnum
sínum að allir hundar bíti og séu
grimmir. Það er ekki til betri
leikfélagi fyrir börn en einmitt vel
uppalinn hundur og ef maður
ætlar virkilega að eignast tryggan
vin þá er hundurinn beztur.
Með þökk fyrir birtinguna
Lydia Jörgensen
Þessir hringdu . . .
• Tekjustofn
sveitarfélaga
Ríkisskattstjóri, Sigurbjörn
Þorbjörnsson, hringdi:
„Vegna fyrirspurnar, sem beint
var til mín í dálki Velvakanda —
þessir hringdu — vil ég upplýsa að
þessi þáttur, þ.e. fasteignagjöld,
fellur ekki undir verksvið ríkis-
skattstjóra. Fasteignagjöld eru
innheimt skv. lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga. Vil ég ráð-
leggja fyrirspyrjanda, Gunnari
Gunnarssyni, að snúa sér til
félagsmálaráðuneytisins, því það
fer með æðsta vald í þessum
málefnum sveitarfélaganna.
• Þakkir til
Gunnars
Ásgeirssonar
Ásgeir Guðnason hringdi:
„Ég vil þakka Gunnari Ás-
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
geirssyni fyrir fræðandi og fleira ámóta athyglisvert í poka-
skemmtilegar greinar í Morgun- horninu og skora því á hann að
blaðinu upp á síðkastið. veita okkur lesendum meira af
Mér býður sínum brunni og tíma með frekari
í grun, að Gunnar hafi margt skrifum."
1930 Hótel Borg 1980
Laugardagskvöld
*—'Sérstök á sinn hátt'“^
• Diskó — íslenzkt
• Rokk og ról
• Gömlu dansarnir
• Sýningaratriði
FOS WEEK ENWNG MARCH 22, 1N0
í kvöld sýnir hinn snjalli
og úthaldsmikli diskó-
dansari Sigurður
Grettir.
Kynnum auk þess í
kvöld „Top 10“ í
Bandaríkjunum skv.
heimildum Billboard.
Plötusnúður kvöldsins Magnús
Magnússon frá „Dísu“ stjórnar
danstónlist fyrir alla aldurshópa.
20 ára aldurstakmark. Persónu-
skilríki og spariklæðnaður skil-
yröi.
Hótel Borg í fararbroddi í hálfa öld, sími 11440.
^Baukne cht
Frystir og kcelir
í einum skóp
Tekur ekki meira rúm en
venjulegur kæliskápur
Alsjálfvirk affrysting í kælirúmi
Ódýr í rekstri
Fáanlegur í lit
Greiðsluskilmálar eða
staðgreiðsluafsláttur
Utsölustaöir DOMUS,
og kaupfélögin um land allt
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavík Simi 38900