Morgunblaðið - 22.03.1980, Side 48
LAUGARDAGUR 22. MARZ 1980
PlERPOdT
QUARTZ — úr
Þessi heimsþekktu úr
fást hjá flestum úr-
smiöum.
67%
heildar-
Tvöfaldur
asni í
2810 kr
UM HELGINA tekur gildi nýtt
sjússaverð i vínveitingahúsunum i
kjölfar áfengishækkunarinnar á
dögunum og hækkunar á gos-
drykkjum nokkru áður.
Sjússinn af vodka og viskíi kostar
nú 1005 krónur og kostar því tvöfald-
ur vodka í gosdrykk 2810 krónur og
viskí í soda kostar það sama. Sjúss-
inn af gini kostar nú 990 krónur og
kostar því tvöfaldur gin í gosdrykk
2780 krónur. Sjússinn af sénever
kostar 780 krónur og kostar því
tvöfaldur séniver í gosdrykk 2360
krónur. Sjússinn af brennivíni kost-
ar 775 krónur og kostar því tvöfaldur
brennivín í vatni 1550 krónur.
Fengu ekki
kaupið hjá
Karli Marx
í GÆR var þingfest fyrir Sjó- og
verzlunardómi Bolungarvíkur
launakröfumál á hendur útgerðar
vélbátsins Karls Marx ÍS 153 frá
Bolungarvík.
Utgerðin hafði ekki staðið í skilum
með laun tveggja skipverja og sáu
þeir sig tilneydda til þess að höfða
mál til þess að fá launin greidd.
Karl Marx er 11 tonna bátur,
smíðaður í Neskaupstað.
Kaupa ull frá
Nýja-Sjálandi og
selja til Ástralíu
„VIÐ kaupum t.a.m. ull frá Nýja-
Sjálandi, blöndum henni saman
við islenzka ull. vinnum úr band
Jan Mayen:
Viðræður við
Norðmenn um
miðjan apríl
SAMKVÆMT fréttatilkynningu
frá utanríkisráðuneytinu, hefur
verið ákveðið, að viðræður Islend-
inga og Norðmanna varðandi Jan
Mayen fari fram í Reykjavík 14.
og 15. apríl næstkomandi.
og fatnað og seljum síðan til
Astralíu,“ sagði Pétur Eiríksson
frkvstj. Álafoss m.a. á ársþingi
Félags ísl. iðnrekenda sl. fimmtu-
dag.
Pétur sagði frá þessu sem dæmi
um, hvað hægt væri að gera, og að
ástæðulaust væri að ætla annað
en íslenzkur iðnaður gæti náð
fótfestu á erlendum mörkuðum. í
viðtali við Mbl. sagði Pétur, að
Álafoss hefði stundað þessi við-
skipti í meira en 10 ár og hagnað-
ur væri af, a.m.k. á meðan röng
gengisskráning hérlendis
skemmdi ekki fyrir og þrátt fyrir
að flutningskostnaður væri auð-
vitað nokkur þar sem ullin væri
sótt og síðan send aftur sömu leið
yfir hálfan hnöttinn.
Enginn sátta-
Ljúsm. Mbl. RAX.
fundur boðaður
ENGIN ákvörðun hafði í gær
verið tekin um, hvenær boðað
yrði til sáttafundar í sjó-
mannadeilunni á ísafirði, er
Morgunblaðið hafði samband
við Guðmund Vigni Jó-
scpsson, varasáttasemjara,
sem fer með sáttatilraunir í
deilunni. Síðasti sáttafundur
var haldinn á sunnudag og
varð hann árangurslaus.
Verkfallið hófst í fyrradag.
marz, en það er sá dagur, sem
línusjómenn í Sjómannafélagi
ísfirðinga hafa boðað verkfall.
Kröfur yfirmanna á farskipum:
Fela í sér
launahækkun vfirmanna
Samkvæmt lögum skal
halda sáttafund, ef annarhvor
deiluaðila óskar þess eða
sáttasemjari telur það heppi-
legt. Ætíð ber þó sáttasemjara
að gera tilraun til sátta innan
14 sólarhringa frá því er hann
hætti síðustu samningatil-
raunum. Síðasti sáttafundur
var 16. marz og verður því að
halda annan eigi síðar en 30.
YFIRMENN á farskipum
hafa afhent kröfur sínar
vinnuveitendum. Það
gerði samninganefnd Far-
manna- og fiskimanna-
sambands íslands á fundi
með fulltrúum Vinnuveit-
endasambands íslands nú
nýlega. Samkvæmt upplýs-
ingum, sem Morgunblaðið
hefur aflað sér, þýða kaup-
kröfur farmanna í heild
um 67% launahækkun.
Boðaður hefur verið við-
ræðufundur með deiluaðil-
um næstkomandi fimmtu-
dag, þar sem vinnuveit-
endur munu skýra frá
afstöðu sinni til mála.
Loðnuvertíðinni að ljúka:
Útflutningsverðmæti loðnu-
afurða um 19 milljarðar kr.
LOÐNUVEIÐUNUM er um
það bil að ljúka. Aðeins einn
bátur á eftir að fylla kvótann,
sem bátunum var úthlutað.
Er það Jón Kjartansson, SU,
en hann á eftir að fara eina
veiðiferð.
Það liggur ljóst fyrir að
heildarveiðin á vetrarloðnu-
vertíðinni verður um 390 þús-
und tonn. Þar af veiddust 290
þúsund tonn í fyrri lotu veið-
anna en 100 þúsund tonn eftir
að veiðarnar voru heimilaðar
að nýju.
Morgunblaðið kannaði í gær
hvert væri útflutningsverð-
mæti loðnuafurðanna á vertíð-
inni. Samkvæmt útreikning-
um hefur verðmætið verið um
19.000 milljónir króna ef mið-
að er við rúmlega 390 þúsund
tonna veiði. Aætla má að
21.500 tonn af lýsi hafi verið
framleidd að söluverðmæti um
4,3 milljarðar króna og 62.400
tonn af mjöli að verðmæti um
14,2 milljarðar króna. Miðað
er við að um 500 dollarar fáist
fyrir lýsistonnið og 8 dollarar
fyrir hverja próteineiningu
mjöls. Þá má áætla að um 450
milljónir hafi fengist fyrir
frysta loðnu til Japans. Miðað
er við CIF-verð.
Ljósm. Óskar Sœmundsson.
dátarnir hafa fyllt loðnuveiðikvóta sína hver af öðrum undanfarna
daga. Hér sést Hafrún ÍS á leið til lands með síðasta farminn.
Kaupkrafan, sem lögð er
fram er í þrennu lagi: sjálf
kaupkrafan, sem felur í sér
30,2% hækkun, þá hækkun
sjóvaktaálags, sem hefur
um 11% hækkun í för með
sér og loks krafa um hækk-
un yfirvinnugreiðslna, sem
hefur í för með sér um 15%
kauphækkun. Þá eru einnig
kröfur um óskerta vísitölu,
sem komi hlutfallslega á öll
laun. Verðbótakrafan felur
í sér talsvert meiri hækk-
un, en þær verðbótakröfur,
sem Alþýðusamþand
íslands hefur lagt fram.
Sameiginlegar kröfur að-
ildarfélaga Farmanna- og
fiskimannasambands
íslands eru í 17 liðum, en
að auki gerir hvert yfir-
mannafélag sérkröfur fyrir
sig. Engin ákvörðun hefur
verið tekin um vísan þess-
arar kjaradeilu til sátta-
semjara ríkisins.