Morgunblaðið - 03.04.1980, Page 1

Morgunblaðið - 03.04.1980, Page 1
112 SÍÐUR 79. tbl. 67. árg. FIMMTUDAGUR 3. APRlL 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. • • LjA6n. Mbl. Krlstján. Deilan um gíslana aftur í sjálfheldu Teheran, 2. apríl. AP. ABOLHASSAN Bani-Sadr trans- forseti sagði i dag að Jimmy Carter forseti hefði ekki gengið að þeim skilyrðum sem hann hefði sett fyrir þvi að stjórnin tæki við vörzlu gislanna i bandarfska sendiráðinu af írönsku námsmönnunum og það yrði ekki gert fyrr en gengið hefði verið að skilmálunum. í Washing- ton var sagt að Carter-stjórnin væri ekki viss um hvað íranir vildu. Bani-Sadr sagði í yfirlýsingu að það skipti ekki máli hvaða skoðanir Carter forseti hefði látið í ljós heldur væri aðalatriðið hvort hann gerði þær ráðstafanir sem krafizt hefði verið. Ef hann gerði það mundi byltingarráðið taka gíslana í sína vörzlu þar til þingið tæki afstöðu til mólsins. Talsmaður Hvíta hússins hafði áður greint frá því, að Kurt Wald- heim, framkvæmdastjóri SÞ, hefði rætt við Bani-Sadr í síma og síðan tjáð Cyrus Vance utanríkisráðherra að íranir biðu nýrrar yfirlýsingar frá Bandaríkjastjórn um hvað fyrir henni vekti. Hann sagi að ekki væri vitað hvað íranir vildu, Bandaríkja- menn vildu vera eins samvinnuþýðir og hægt væri, en takmörk væru fyrir því hvað forsetinn gæti gengið langt. Áður hafði Bani-Sadr sagt á útifundi að byltingarráðið hefði samþykkt að taka gíslana í sína vörzlu þar til nýkjörið þing tæki ákvörðun um afdrif þeirra ef Banda- ríkjastjórn héti því að forðast allar fjandsamlegar aðgerðir og áróður gegn Iran unz nýja þingið tæki ákvörðun sína um gíslana. Ongþveiti i New York New York, 2. apríl. AP. ALLAR ferðir með almenningsvögnum og neðanjarðarlestum lögðust niður í New York í dag vegna mesta samgönguverk- falls í sögu Bandarikjanna, en borgarbúar létu það ekki á sig fá og þúsundir streymdu yfir brýrnar á Manhattan í löngum röðum, fótgangandi eða á reiðhjóli. Samfelldar raðir bifreiða voru á götum inn í borgina á aðalumferðartímanum og umferðin var helmingi meiri en venjulega. Víða mynduðust umferðarhnútar og umferðarþung- inn leiddi til óhappa og slysa sem ollu ennþá meira umferðaröngþveiti. Horfur á því að deilan leysist hafa versnað eftir fund sem yfir- maður flutningamálastofnunar borgarinnar átti með sáttasemj- ara. Lögreglan segir að öllum meiriháttar glæpum hafi fækkað, en ýmsir hafa notað sér ástandið til að heimta tvöfalt verð fyrir leigu á reiðhjólum og gistingu í hótelum. Leigubílstjóri nokkur heimtaði sexfalda greiðslu af sex mönnum sem fengu far hjá honum og Brooklyn-maður sem tók 11 hótel- herbergi á leigu leigði aftur tvö 100 dollara herbergi á 385 og 450 dollara. Kaupsýslumaður líkti ástandinu við brottflutning Breta frá Dun- kirk í síðari heimsstyrjöldinni. Carter vann tvo sigra á Kennedy Milwaukec, 2. apríl. AP. JIMMY Carter forseti sigraði í forkosningunum i Wisconsin og Kansas og gerði að engu vonir Edward Kennedys öldungadeild- armanns um að ná sér aftur á strik í baráttunni um útnefning- una í forseta framboðið. Jafnframt lýsti Edmund G. Brown, ríkis- stjóri, því yfir að hann hefði ákveðið að hætta baráttu sinni. Ronald Reagan sigraði George Bush og John B. Anderson í harðri keppni í forkosningunum í Wis- consin. Reagan sigraði einnig í Kansas og treysti stöðu sína í baráttunni. Reagan sagði að hann væri ánægður með úrslitin, kvaðst ekki vilja lýsa þvi yfir að hann hefði sigrað í baráttunni um út- nefninguna en bætti því við að hann hefði tryggt sér töluvert forskot. Reagan tryggði sér 48 fulltrúa á flokksþing repúblikana í forkosn- ingunum, Anderson 11 en Bush 3. Alls hefur Reagan tryggt sér 340 fulltrúa, Bush 74, Anderson 57. Alls þarf 998 atkvæði á flokksþinginu til að hljóta tilnefningu. Carter hlaut 71 fulltrúa og Kennedy fékk 40 og alls hefur Carter fengið 852 fulltrúa af 1,666 sem hann þarf til að fá útnefning- una. Kennedy hefur fengið 427. Yfirmaður kosningabaráttu Kennedys, Stephen Smith, viður- kenndi að Carter hefði sigrað í Wisconsin og Kansas en spáði Kennedy sigri í forkosningunum í Pennsylvaníu 22. apríl. Carter virðist hafa aukið fylgi sitt vegna frétta um að áfram hafi miðað í þá átt að fá gíslana í Teheran leysta úr haldi. Hjá repú- blikönum fékk Anderson stuðning frá óháðum kjósendum og demó- krötum í Wisconsin, en Reagan fékk fylgi frá íhaldssömum dem- ókrötum. Þótt vonir Andersons um að fá útnefninguna hafi dvínað kvaðst hann ekki vera hættur í baráttunni. Talsmaður Bush sagði að hann hefði staðið sig betur en búizt hefði verið við. Hætt við hjálp við Pakistan Washington, 2. apríl. AP. BANDARÍKJASTJÓRN hefur dregið til baka beiðni sína til þingsins um aðstoð við Pakistan og hætt þar með í raun og veru við baráttu sína til að efla varnir landsins í kjölfar innrásar Rússa í Afganistan. Stjórnin hafði beðið um að Pakist- an yrði veitt 400 milljóna dollara efnahags- og hernaðaraðstoð til tveggja ára, en Zia-Ul-Haq forseti kallaði það smáræði. Bandarískur embættismaður sagði að engar samningaviðræður sem mætti kalla því nafni færu fram milli landanna. Allri aðstoð nema matvælaaðstoð var hætt við iandið í fyrra þar sem talið var að Pakistan- ar væru að smíða kjarnorkuvopn á laun. Hefur hnerrað stanzlaust í 171 dag Sutton ColdHeld. 2. april. AP. EKKI hefur tekizt að lækna hnerra tólf ára gamallar brezkrar stúlku þótt tillögur í þeim efnum hafi komið hvaðan- æfa að úr heiminum. Hefur stúikunni, Triciu Reay, þvi hlotnazt sá vafasami heiður að hafa haft lengur stanzlausan hnerra en nokkur annar, þar sem hún hefur nú hnerrað með að jafnaði 30 sekúndna millibili í 171 dag. Hlé verður þó á hnerranum i svefni. „Eg hef fengið alls kyns ráð- leggingar úr öllum heimshorn- um,“ sagði Tricia í dag. „Mér hefur m.a. verið ráðlagt að borða grillaðar hagamýs og jafnframt að svelta heilu hungri í 30 daga, en ég ætla mér ekki að fara að ráðleggingum af því tagi,“ bætti Tricia við. Hún sagðist hafa reynt mörg ráðanna, en árangur væri enn sem komið er enginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.