Morgunblaðið - 03.04.1980, Side 27

Morgunblaðið - 03.04.1980, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980 27 Þetta gerðist 3. apríl, skírdag 1979 — Menachem Begin fer til Kaíró fyrstur ísraelskra forsæt- isráðherra. 1978 — Bandaríkjamenn hætta við að smíða nifteindasprengju. 1974 — 1,648 farþegum bjargað af „Queen Elizabeth 11“ sem var tvo daga á reki á Atlantshafi. 1967 — Brezkir hermenn berjast í heilan dag við leyniskyttur og hermdarverkamenn í Aden. 1964 — Bandaríkin og Panama taka aftur upp stjórnmálasam- band. 1949 — Vopnahlé milli Araba og ísraelsmanna. 1948 — Bandaríkin úthluta 5,33 milljörðum dala til 16 Evrópu- ríkja. 1941 — Þjóðverjar taka Beng- hazi. 1936 — Bruno Hauptmann líflátinn fyrir ránið og morðið á barni Charles Lindberghs flug- kappa. 1930 — Ras Tafari verður Haile Selassie keisari af Abyssiníu. 1929 — Persar undirrita Lit- vinov-bókanirnar þar sem stríði er hafnað. 1860 — Pretoria verður höfuð- borg Transvaal. 1833 — Tilraun byltingarmanna til að leggja undir sig þingið í Frankfurt bæld niður. 1794 — Danton dæmdur. 1776 — Rússar falla frá kröfum til Holstein samkvæmt Kaup- mannahafnarsamningnum við Dani. 1742 — Prússar missa Olmutz og herför Friðriks II á Mæri fer út um þúfur. 1693 - Karl XII tekur sér alræðisvöld í Svíþjóð. 1559 — Friðarsamningur Frakka og Spánverja undir- ritaður. 1512 — Beyazid II Tyrkjasoldán fær syni sínum Selim II völdin. 33 — Jesús krossfestur. Afmæli. George Herbert, enskt skáld (1593-1633) - Washing- ton Irving, bandarískur rithöf- undur (1783—1859) — James Hertzog, suður-afrískur stjórnmálaleiðtogi & hermaður (1865—1942) — Marlon Brando, bandarískur leikari (1924--) — Doris Day, bandarísk leikkona (1924---) - Hinrik IV Eng- landskonungur (1367—1413). Andlát. 1897 Jóhannes Brahms, tónskáld. Innlent. 1882 tilkynning lands- höfðingja um stofnun þjóð- skjalasafns — 1261 fundurinn í Laugarási — 1262 Sighvatur og Þorvarður sættast að Iðu — 1817 Brak finnst úr póstskipi íslands sem fórst við Öndverðanes — 1901 Kosningasigur vinstri manna í Danmörku — 1939 Fyrsta gengisfellingin — 1917 c. Magnús Stephensen landshöfð- ingi. Orð dagsins. Hin sanna auðlegð mannsins er hið góða sem hann lætur af sér leiða í lífinu — Múhameð, arabískur spámaður (570-632). Þetta gerðist 4. apríl, föstudaginn langa 1975 — Rúmlega 100 af 243 víetnömskum munaðarleysingj- um og 25 fullorðnir fórust með bandarískri flutningaflugvél eft- ir flugtak frafSaigon. 1969 — Fyrsta hjartaígræðslan í Houston, Texas. 1968 — Martin Luther King myrtur í Memphis, Tennessee. 1964 —Makarios erkibiskup seg- ir upp samningnum frá 1960 um Kýpur og harðir bardagar brjót- ast út. 1955 — Bretar gera samning við Irak og ákveða að vera aðili að Bagdad-sáttmála Tyrklands og Iraks. 1949 —Atlantshafssáttmálinn undirritaður í Washington. 1933 — Bandaríska loftskipið „Akron“ hrapaði í Atlantshaf og 73 fórust. 1932 6 Próf. C.G. King einangrar „C“ — vítamín. 1919 — Sovétlýðveldi stofnað í Bæjaralandi. 1917 — Öldungadeild Banda- ríkjaþings samþykkir stríðsyf- irlýsingu gegn Þjóðverjum. 1912 — Kínverskt lýðveldi stofnað í Tíbet. 1844 — Þjóðverjar hertaka Suð- vestur-Afríku, Togoland og Kamerún. 1826 — St. Pétursborgar-bókan- ir Breta og Rússa um Grikkland. 1794 — Danton líflátinn. 1660 —Breda-yfirlýsing Karls II af Englandi um umburðarlyndi í trúmálum. 1618 — Richelieu kardináli rek- inn í útlegð í Avignon fyrir leynimakk með Marie de Medice drottningarmóður. 1611 — Kristján IV Danakon- ungur segir Svíum stríð á hend- ur. 1581 — Elízabet I slær Francis Drake til riddara. Afmæli. Grinling Gibbons, ensk- ur myndhöggvari (1648—1721) — Nicolan Antonio Zingarelli, ítalskt tónskáld (1752—1837). Andlát. 1490 Matthias Corvinus, konungur Ungverjalands — 1617 John Napier, stærðfræðingur — 1774 Oliver Goldsmith, rithöf- undur — 1817 André Masséna, hermaður. Innlent. 1897 Hið íslenzka prentarafélag, elzta starfandi verkalýðsfélagið, stofnað — 1456 Marcellus Skálhoitsbiskup fær Vestmannaeyjar að léni — 1588 d. Friðrik II — 1856 Prentfrels- islögin koma til framkvæmda — 1875 Gos á sprungum í Mývatns- öræfum — 1940 Gamanleikurinn „Stundum og stundum ekki“ bannaður — 1949 Bjarni Bene- diktsson utanríkisráðherra und- irritar Atlantshafssamninginn — 1956 Alþýðubandalag stofnað — 1965 Mánaðarlangt flug- mannaverkfall hefst — 1968 „Haförninn" festist í ís við Melrakkasléttu — 1952 d. Sig- urður Kristjánsson bóksali — 1958 d. Victor Urbancic — 1908 f. Bjarni M. Gísiason. Orð dagsins. ímyndunarafl er mikilvægara en þekking — Al- bert Einstein, þýzkættaður eðlis- fræðingur (1879—1955). Betri horf- ur í Bogota Bojíota, Kólombíu. 26. marz. AP. BATNANDI horfur cru nú á því að samkomulag náist um lausn gislanna í sendiráði Dóminík- anska lýðveldisins í Bogota i áframhaldandi viðræðum full- trúa kólombískra yfirvalda við skæruliða, sem hertóku sendiráð- ið fyrir mánuði. Skæruliðarnir létu þrjá gisla lausa i gær, eg hafa þá sleppt 26 manns, en halda enn 29 gislum. þar á meðal Diego Asencio sendiherra Banda- ríkjanna og 18 öðrum erlendum sendimönnum. ( , Það eru skæruliðasamtök, sem nefna sig M-19, sem tóku sendiráð Dóminíkanska lýðveldisins 27. febrúar sl., meðan þar stóðu yfir veizluhöld. Hafa skæruliðarnir krafizt þess að 28 vinstrisinnaðir fangar verði leystir úr haldi í skiptum fyrir gíslana í sendiráð- inu. Talsmenn ríkisstjórnarinnar hafa svarað þessari kröfu með yfirlýsingu um að engir pólitískir fangar séu í haldi í Kólombíu, og að stjórnarskráin heimili ekki að glæpamönnum sé sleppt úr fang- elsum. Yfirvöld hafa hins vegar boðið skæruliðunum í sendiráðinu að þeir verði fluttir óhultir til Kúbu eða Panama, verði gíslunum sleppt, og er það boð nú í athugun. Hér er um nokkra eftirgjöf að ræða, því áður hafa yfirvöld verið því fylgjandi að skæruliðarnir fengju að flytjast til annars lands í Latnesku Ameríku. Gunnar Bjarnason — Minningarorð Gunnar Bjarnason bifreiða- stjóri var fæddur að Öndverðanesi í Grímsnesi 25. júní 1924. — Hann missti föður sinn ungur að árum og ólst upp hjá móður sinni, sem hélt áfram búskap eftir að bóndi hennar féll frá. Var Gunnar þar á heimilinu unz hann fluttist hingað til Reykjavíkur og hóf hér störf. Hér í bænum kynntist hann fyrri konu sinni, Sigríði Guðrúnu Jónsdóttur frá Akureyri. Þau bjuggu alla sína búskapartíð að Langholtsvegi 142 hér í bænum,— Þeim varð tveggja barna auðið, en þau eru Anna, sem er gift Þráni Tryggvasyni og Jón Kr. , sem er giftur Kristrúnu Pétursdóttur. Attu þau Gunnar og Sigríður barnaláni að fagna. — Hefur ætíð ríkt mikill kærleikur milli barn- anna og foreldra svo og tengda- barna. Samgangur milli heimil- anna var góður og börnin og barnabörnin tíðir gestir á Lang- holtsveginum. Við Gunnar vorum miklir og einlægir vinir. — Ég tel mig ekki hafa átt betri vin. Mér verða t.d. ætíð minnisstæðir veiðidagar okk- ar Gunnars, akstur við Sog. Þá var oft glatt á hjalla í tjaldinu hjá okkur. Voru þá oft með okkur sameiginlegir vinir okkar, þeir Olgeir Sigurðsson og Svavar Magnússon. — Þeir félagar létu heldur ekki sitt eftir liggja. Eins og gengur og gerist þegar starfsdegi lýkur hjá þeim, sem hætta verða fyrir aldurs sakir, vill það oft fara svo að nokkur tími líður milli þess, sem fundum gamalla samstarfsmanna og vina ber saman. — En síðast bar fundum okkar Gunnars einmitt saman 1. marz síðastl. í skrifstofu Bæjarleiða. Þar á stöðinni störf- uðum við báðir um langt árabil. Við ræddum þá við Jón Bárðarson og man ég hve mikla ánægju ég hafði af því að hitta Gunnar svo glaðan og reifan, sem hann var þennan dag. Hann lét gamanyrði fjúka og glettist við okkur Jón, eins og hans var vani ef svo bar undir. Ekki átti ég þá von á því, að svo bráður endir yrði á lífshlaupi hans. — 17 dögum síðar var Gunnar allur. Við gamlir vinir hans og sam- starfsmenn vissum að vísu, 'áð hann gekk ekki heill til skógar, en eigi að síður kom fráfall hans okkur öllum nokkuð á óvart. Nú þegar leiðir hafa skilizt í bili, kemur skiljanlega ótal margt í hugann, endurminningar frá margra ára samstarfi og vináttu, sem aldrei bar nokkurn skugga á. — Við þær munu bæði ég og aðrir vinir Gunnars geta yljað sér um ókomin ár, því minnisstæður verð- ur hann okkur öllum meðan við erum hérna megin moldar. Börnum Gunnars tengdabörn- um og öllum aðstandendum hans sendi ég mínar innilegustu samúð- arkveðjur, og konu hans, Maríu Arnadóttur, votta ég dýpstu sam- úð. Vini mínum bið ég Guðs bless- unar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt“ Sæmundur G. Lárusson ÞU AUGLYSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐENU Fjjúsiðtil EVROPU og ferðist um á eigin bíl Ferðaskrifstofan Úrval býöur nú í samvinnu við Eimskip bílflutninga til 7 borga á meginlandi Evrópu. Hér er um vikulegar ferðir að ræða. Þið afhendið bílinn í Reykjavík og komið sjálf flugleiðis á ákvörðunarstaö sama dag og bílnum er skipað upp, eða fyrr. Þannig getið þið skipulagt ferðina sjálf, farið hvert sem ykkur dettur í hug, gist þar sem þið viljiö og kynnst þjóöunum betur. Þetta er stórkostlegur ferðamáti sem víkkar sjóndeildarhring ykkar. Verð báðar leiðir (miðað við gengi 11.3. '80): Bifreið Kr. 160.000,- Hjólhýsi Kr. 160.000,- Tjaldvagn Kr. 85.000.- Innifalið er útskipun og uppskipun. # Kaupmannahöfn • Moss (Oslo) • Gautaborg • Hamborg Ajrtwerpen (Luxemborg) •Rotterdam • Felixtowe (London) Allar nánari upplýsingar um hagstæð flugfargjöld og annað varðandi ferðalag á eigin bíl um Evrópu veitir .... ARA FERDASKRIFSTOFAN URVAL VIÐ AUSTURVÖLL SÍMI 26900

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.