Morgunblaðið - 03.04.1980, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 03.04.1980, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980 35 Gunnar Olafsson skipstjóri — Minning Fæddur 24. ágúst 1890 Dáinn 24. febrúar 1980 Nýlega er látinn, í hárri elli, föðurbróðir minn, Gunnar Ólafs- son, fyrrverandi skipstjóri. Hefur útför hans farið fram frá Foss- vogskapellunni í Reykjavík. Er ég hugsa til kynna minna af frænda mínum, eru mér efst í huga tveir þættir, sem mér virtust hvað ríkastir í fari hans, en þeir voru: Að skulda engum neitt og að standa í skilum við alla og svo að geyma ekki til morgundagsins, það sem hægt var að gera strax. Þessir mannkostir mættu sannar- lega vera meira ríkjandi í okkar fari í dag. Gunnar Ólafsson var fæddur í Ólafshúsi í Njarðvíkum 24.8 1890 og var hann næst elstur 10 barna þeirra hióna Elínar Þorsteinsdótt- ur og Ólafs Jafetssonar og eru fjögur systkinin eftirlifandi. Öll hafa þau náð háum aldri, ef frá er talin Ólöf, er dó tæpra tveggja ára. Lengst af bjuggu þau hjón í Ólafshúsi, sem nefnt var eftir föður Gunnars. Það hús var upp- haflega byggt af Bárumönnum, sem notuðu húsið sem fundarhús. Einnig voru þar geymdar vörur Pöntunarfélags þeirra, en Báran var sjómanna- og verkamannafé- lag í Keflavík. Ljóst er að húsið hefur þjónað miklu hlutverki fyrir síðustu aldamót, þegar þjóðin var að vakna til vitundar um bætt lífskjör sín. Sjómenn og verka- menn stofnuðu þar líka Pöntun- arfélag svo þeir þyrftu ekki að lúta einokun Duus verslunarinnar. Fyrir nokkrum árum reit Marta Valgerður Jónsdóttir, ættfræðing- ur, sannverðuga lýsingu á foreldr- um Gunnars og ætt í ritið Faxa í Keflavík, er hún nefndi „Minn- ingar frá Keflavík." Verður hér á eftir birt lýsing hennar með litlum viðauka. Vafalaust mun lýsing þessi og ættartal, svo langt sem það nær, verða afkomendum Gunnars og öðrum ættingjum kærkomin lesn- ing, á þessum tímum ættfræði- áhuga. Ólafur faðir Gunnars var sjó- maður að atvinnu, bæði á opnum skipum og þilskipum. Hann var dugnaðarmaður, drengur góður og óvílinn. Kona hans var Elín Þor- steinsdóttir, mikil myndarkona og forkur dugleg til allrar vinnu, jafnt innanhúss sem utan. Börn þeirra voru átta og öll í foreldra- húsum um aldamótin. Við mann- tal 1901 var elsta barnið 16 ára, en yngstir ársgamlir tvíburar. Þetta var stór hópur til að framfleyta í þá daga, því ekki voru þá neinir styrkir eða fríðindi, öðru nær, fólki var jafnvel álasað fyrir að eiga börn, ekki síst af hrepps- nefndum og fyrirsvarsmönnum hvers byggðarlags. Það veitti því ekki af að vinna til hins ýtrasta. Gengu konur þá til útivinnu, til þess að drýgja tekjurnar. Elín gekk að fiskvinnu, þegar voraði og stóð við fiskþvott daginn út og daginn inn, hvernig sem á stóð fyrir henni. En mikil þrekraun var það fyrir konu, að standa við þvottakassann hvernig sem viðraði og þvo og bursta salt og óhreinindi af hverjum fiski, og það þurfti að gjöra mjög vei. Fyrst á vorin varð oft að byrja vinnu á því að brjóta klakann á þvotta- kössum, því þeir voru hreinsaðir og fylltir á kvöldin eftir vinnu. Varð því margri konunni hroll- kalt, þegar byrjað var á að vinna. Það voru því ekki nema dugleg- ustu konur sem stunduðu þessa vinnu og alltaf þótti það ill nauðsyn. En þessi vinna var best borguð af þeirri vinnu er þá fékkst. Var þetta ákvæðisvinna og gat orðið góð daglaun hjá þeim fljótustu. Elín var ágætlega vel verki farin í kvenlegri vinnu, húshaldi öllu og handavinnu, enda var hún alin upp á fyrirmyndarheimili, þar sem var heimili foreldra hennar, þeirra Þorsteins bónda í Ytri-Njarðvík, Bjarnasonar og konu hans Guðrúnar Guðmunds- dóttur. Var þetta æskuheimili hennar mikið menningarheimili, eins og svo mörg heimili í Njarðvíkum voru. Þær voru fjórar systurnar, sem uxu þar upp: Ólöf, Oddbjörg, Ingiríður og Elín, allar fríðleiksstúlkur, sem báru yfir sér svip hefðarkvenna. Ólöf giftist Agli bónda á Þóru- stöðum á Vatnsleysuströnd, bróð- ur Guðmundar í Landakoti, Odd- björg varð kona Jónasar bónda í Ytri-Njarðvík, Jónassonar, Ingi- gerður giftist ekki og Elín kona Olafs Jafetssonar, sú sem hér er fjallað um. Elín var fædd í Þórukoti í Ytri-Njarðvík 31. mai 1859. For- eldrar hennar voru þremenningar að frændsemi, því að Þorsteinn faðir hennar var sonarsonur Guð- rúnar Sighvatsdóttur, systur Jóns dbrm. í Ytri-Njarðvík Sighvats- sonar, en Guðrún móðir hennar var dótturdóttir Jóns Sighvats- sonar. Bjarni faðir Þorsteins bjó fyrr á Efri-Rótum og þar fæddist Þor- steinn, en flutti suður í Njarðvík- ur eftir að hann missti fyrri konu sína, Ólöfu Þorsteinsdóttur 15. febrúar 1834. Síðar bjó Bjarni í Ytri-Njarðvík með seinni konu sinni, Ingigerði yngri Jónsdóttur, Sighvatssonar. Var hann þar hreppstjóri og virðingarmaður og titlaður Signor. Bjarni var Mangússon bóndi í Efra Holti undir Eyjafjöllum 1816 Bjarnasonar og konu hans Guð- rúnar Sighvatsdóttur. Móðir Þorsteins og fyrri kona Bjarna föður hans var Ólöf Þor- steinsdóttir bónda í Vallnatúni undir Eyjafjöllum 1816 Hinriks- sonar. Kona Þorsteins í Ytri Njarðvík og móðir Elínar var Guðrún Guð- mundsdóttir stúdents og verslun- arstjóra í Hafnarfirði fædd 12. okt. 1787, d. 1850, Péturssonar í Bygggarði, Guðmundssonar; var Guðmundur stúdent albróðir Arnleifar, konu Péturs skipherra í Ytri-Njarðvík, Jónssonar, sem voru foreldrar húsfrú Önnu í Höskuldarkoti. Systir þeirra Guð- mundar og Arnleifar var Guðrún móðir Elínar húsfreyju í Stapa- koti í Innri-Njarðvíkum, móður Sæmundar óðalsbónda á Minni- Vatnsleysu Jónssonar. Móðir Guð- rúnar og kona Guðmundar stúd- ents var Ingigerður eldri Jóns- dóttir dannebrogsmanns í Hösk- uldarkoti. Ólafur Jafetsson var fæddur á Kálfatjörn 18. ágúst 1847, voru foreldrar hans þar húshjón, en brátt fluttust þau að Fjósakoti í Kálfatjarnarhverfi og bjuggu þar lengi, en þau voru Jafet ísaksson og kona hans Ingveldur f. 19. júlí 1822 í Ásmúla í Holtum, dáin 9. júni 1863 í Fjósakoti, Jónsdóttir bónda í Ásmúla í Holtum, svo í Norðurkoti á Vatnsleysuströnd (1845), síðast á Ytri-Ásláksstöðum í sömu sveit, f. 1774, dáin 14. apríl 1856, Andréssonar bónda í Nefs- holti í Holtum Jónssonar. Seinni kona Jóns á Ytri Ásláks- stöðum og móðir Ingveldar var Ástríður f. 1783 á Efra-Flagbjarn- arholti á Landi, dáin 22. apríl 1853 á Ytri Ásláksstöðum, Grímsdóttir. Jafet faðir Ólafs var fæddur í Skildinganesi við Reykjavík árið 1821, dáinn 16. mars 1894. ísak faðir hans var sonur Gunnars hreppsstjóra á Korpúlfsstöðum, Gizzurarsonar. (P.Z.: Vík. 133). Áður en Ólafur kvæntist eign- aðist hann son með Herdísi Magn- úsdóttur bónda í Minni Vogum, Hallgrímssonar prests í Görðum við Akranes, Jónssonar. Sá sonur hét Jafet, f. 18. júni 1873 í Miðengi á Vatnsleysu. Hann varð skip- stjóri og mikill dugnaðarmaður, hann var meðeigandi með Guð- mundi Torfasyni og Thor Jensen að fiskiskútu þeirri er hann var skipstjóri á, hét Sophie Wheatley. Það skip fórst með allri áhöfn upp við Mýrar í hinu mikla mann- skaðaveðri 7. apríl 1906. Kona Jafets var Margrét, f. 23. ágúst 1872 í Höskuldarkoti Pét- urssonar, var Ólöf, f. 23. marz 1834, d. 12. ágúst 1889, Erlends- dóttir smiðs og skipara í Ytri- Njarðvík, f. 9. janúar 1795, d. 18. sept. 1839, Magnússonar sjálfs- eignarbónda á Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd, f. um 1761, d. 24. ágúst 1825 Guðmundssonar. Magnús var bróðir Ólafs í Ás- garði, föður Guðlaugs sýslumanns. Kona Magnúsar var Margrét Erlendsdóttir frá Snorrastöðum í Laugardal. Er nú mikill frænd- garður kominn frá þeim Brunn- astaðahjónum. Frú Margrét jónsdóttir, ekkja Jafets skipsstjóra, bjó langa ævi í Reykjavík. Hún andaðist þar 22. febrúar 1951. Einkadóttir þeirra er Ólöf Jónína Jafetsdóttir, skrif- ari í Reykjavík, nú látin. Bjuggu þær mæðgur saman, þar til frú Margrét andaðist. Börn þeirra Elínar og Ólafs Jafetssonar eru:Guðrún Steinunn Ólafsdóttir, giftist Sigurði Ólafs- syni, kennara í Hafnarfiði, sjá kennaratal, bæði látin. Kristín Ólafsdóttir. Maður Magnús Guðmundsson, skipstjóri, útgerðarmaður, Akranesi, bæði látin. Gunnar Ólafsson, skipstjóri í Reykjavik, kona hans Ása Kristín Jóhannesdóttir, dáin. Egill Ólafsson, skipstjóri í Reykjavík, kona Ragnheiður Stefánsdóttir, bæði látin. Guðrún Ólafsdóttir, ógift í Ytri-Njarðvík. Ólína Ólafs- dóttir, maður Elías Benediktsson, skipstjóri og útgerðarmaður, Akranesi, dáin. Árný Ólafsdóttir, maður Eiríkur Þorsteinsson, véla- maður frá Höfnum. Sigfúsína Ól- afsdóttir, maður Brynjólfur Nik- ulásson, skipstjóri Akranesi, látin. Ólafur Jafetsson andaðist í Landakotsspítala 2: júlí 1908. Að sjálfsögðu lagðist þá þunginn af framfærslu yngri barnanna á herðar Elínar, en hún stóðst þá raun með prýði. Hún lifði langa avi, andaðist á Akranesi hjá Kristínu dóttur sinni 7. júní 1944. Elín var trygg kona og vinföst og einkar góð og hjálpsöm þeim, er minnimáttar voru. Eins og fyrr segir voru bræð- urnir tveir, systurnar sex auk háifbróður, öll unnu þau á heimil- inu þegar þau höfðu aldur til. Ekki voru þeir bræður háir í loftinu þegar þeir voru farnir að hjálpa til við útgerð föður síns, eða hand- leika byssu, það skorti því aldrei matföng í Ólafshúsi þó marga munna væri þar að fæða. Ólafur Jafetsson gerði út bát frá Keflavík og var þá sótt fremur stutt, rétt innst í Garðsjóinn og svo inn að Vogastapa. Var þetta fjögurra manna far, voru vertíðarmenn ráðnir upp á 50 krónur yfir vertíð, giltu svo há laun aðeins um þaulvana, duglega menn. Óvan- ingar fengu helmingi lægri laun. Inni í þessu var frítt fæði og húsnæði til 11. maí, er vertíð lauk. Þegar börnin höfðu aldur til, dreifðust þau elstu í vinnu- mennsku. Bræðurnir leituðu sér atvinnu í Reykjavík, þar sem von var um betri afkomu og skipakost- ur stærri. Algengasti ferðamáti vertíðarmanna á skútuöld var að fara fótgangandi frá Keflavík, höfðu menn pjönkur sínar í sjó- poka, einnig þáru menn matar- kistil sinn, sem geymdi viðbit og kæfu, sem var ætluð til matar á vertíð. Skútulífið var harður skóli sem stælti menn í baráttu þeirra við óblíð náttúruöfl. Þar lærðu ungir menn að hagræða seglum og nema allt sem þeir þurftu síðar á að halda, til að verða fullgildir sjómenn. Eftir að Gunnar hafði stundað sjómennsku um nokkurt skeið innritaðist hann í Stýrimanna- skólann og lýkur þaðan prófi árið 1922. í fjölda ára var Gunnar með ýmsa báta og kann ég ekki nöfn á þeim öllum. Þó get ég nefnt Sæfarann og Hrefnu, auk þess var hann um tíma fiskilóðs á enskum togurum, sem Heljer útgerðarfé- lagið gerði út. Hann talaði góða ensku og átti marga einlæga vini meðal Englendinga. í kringum 1930 eignast hann Freyjuna, sem var 30 tonna bátur, var það happaskip. Gunnar fiskaði mikið í Bugtinni með dragnót og þekkti þar marga fiskislóð, þó engin væri þá fisksjáin. 24. júní 1916 kvæntist Gunnar Ásu Kristínu Jóhannesdóttur mikilli atgjörviskonu, bjuggu þau á ýmsum stöðum í Reykjavík, þá fyrst í Vesturbænum en síðar á Lokastíg 4. Gunnar og Ása Kristín eignuð- ust 10 börn, þrjú þeirra dóu í bernsku. Þau sem upp komust eru: Guðrún, Jóhannes, Sólveig, Ása, Gunnar, Ólafur og Hrafnhildur. Öll eru frændsystkini mín gift miklum heiðursmönnum og kon- um, sem eru góðir þegnar og gjaldendur íslenska ríkisins. Börn þeirra skipta orðið tugum. Konu sína missir Gunnar 1942 aðeins 47 ára, yngsta barnið þá enn í vöggu og Gunnar og Hrafn- hildur á barnsaldri. Það sýndi sig þá, eins og ævinlega, hve mikið kærleikur og samheldni systkina fær áorkað. Yngsta barnið Ólaf tekur Guðrún systir hans í fóstur og hefur alið upp, sem sitt barn. Hrafnhildur og Gunnar vistast um tíma hjá systrunum Krístínu og Ólínu, sem voru búsettar á Akranesi og veit ég hann stóð ævinlega í mikilli þakkarskuld við systur sínar. Gunnar hélt heimili með börn- um sínum að Lokastíg 4 eftir að hann varð ekkjumaður. Síðar byggði hann sér hús við Skógar- gerði 3 hér í bæ, þar sem hann bjó í sambýli við tvö börn sín og tengdabörn. Þótt leiðir okkar frænda lægju ekki saman seinustu æviár hans, er hann mér eftirminnilegur frá fyrri tíð, þegar ég, lítill dreng- stauli, var í fylgd föður míns og var í heimsókn hjá frændfólkinu, eða þegar við áttum erindi niður að höfn í verbúð, þar sem Gunnar hafði geymslu fyrir útgerð sína. Mörgum árum síðar lágu leiðir okkar saman, er Gunnar fær úthlutað lóð. Mikil vöntun var þá á smiðum til starfa og aðstoðaði ég hann þá við uppslátt á sökklum hússins. Hvorugur hafði þá feng- ist mikið við smíðar, en allt blessaðist þetta og fór vel. Húsið stendur enn og hefur verið heimili þriggja fjölskyldna. Gunnar gat verið funi í skapi og var þá stundum stórorður og skeytti þá lítt hver fyrir varð og er mér ekki grunlaust um að stund- um hafi sviðið undan. En hann kunni líka þá list að vera fljótur til sátta og ætti það að nægja til að sýna gott hjartalag hans. Og engan mann þekkti ég hjálpsam- ari ef eitthvað var að, hann var mikill greiðamaður og vildi hvers manns vanda leysa. Börnum og barnabörnum var hann gleðigjafi og gladdist yfir framförum þeirra. Og vel kunni harin við sig um- kringdur börnum sínum, barna- börnum og ættingjum á hátíðar- stundum. Ég er ekki hræddur um sálar- heill frænda míns, því ég veit að hjartahlýjan, gjafmildin til þeirra er minna máttu sín, gnæfa eins og lýsandi viti yfir mannanna verk. Siglingunni miklu er lokið, sjó- ferðin er á enda. Vegferðin mikla tekin við, sem enginn okkar kemst hjá að feta. Guðmundur Egilsson Einbýlishúsalóðum úthlutað í Hólahverfi Á FUNDI borgarráðs á föstudaginn var fallist á eftirfarandi tillögur lóða- nefndar um úthlutun á byggingarrétti fyrir ein- býlishús í Hólahverfi í Reykjavík: Klapparberg 1: Sveinn Guð- mundsson, Norðurbrún 8. Klapp- arberg 3: Gísli Magnússon, Hof- teigi 28. Klapparberg 5: Bryndís Steinþórsdóttir, Austurbrún 4. Klapparberg 7: Haukur Gunnars- son, Laugarnesvegi 37. Klappar- berg 9: Ásbjörn Björnsson, Suður- hólum 6. Klapparberg 11: Guðrún Sigurðardóttir, Vesturbergi 98. Klapparberg 13: Bjarni Þorvalds- son, Hrísateigi 32. Klapparberg 15: Páll Hannesson, Hrafnhólum 4. Klapparberg 17: Þórir Sigur- björnsson, Stóragerði 23. Klappar- berg 19: Haukur L. Friðriksson, Grensásvegi 26, Klapparberg 21: Einar S. Hjartarson, Reykja- víkurvegi 29. Kl'apparberg 24: Egill Gestsson, Miðstræti 5. Klapparberg 25: Björn Gústafs- son, Vesturbergi 122. Klapparberg 27: Ágúst Þórðarson, Austurbergi 8. Klapparberg 29: Ægir Jónsson Kríuhólum 2. Klapparberg 31: Hallgrímur Ólafsson, Stelkshólum 10. Klapparberg 2: Skúli Guð- brandsson, Hraunbæ 150. Klapp- arberg 4: Pétur Ágústsson, Dúfna- hólum 2. Klapparberg 6: Stefán Vagnsson, Hraunbæ 2. Klappar- berg 8: Einar Ö. Einarsson, Eyja- bakka 9. Klapparberg 10: Kristján Ö. Jónsson, Suðurhólum 8. Klapp- arberg 12: Guðmundur H. Hann- esson, Þórufelli 12. Klappar- berg 14: Sigurður G. Þorsteinsson, Arahólum 4. Klapparberg 16: Ás- geir H. Eiríksson, Krummahólum 6. Lágaberg 1: Úlfar Þorláksson, Maríubakka 12. Lágaberg 3: Júlíus Jónsson, Dalseli 12. Lágaberg 5: Haraldur Lýðsson, Fellsmúla 12. Lágaberg 2: Jón S. Hallgrímsson, Bræðraborgarstíg 1. Lágaberg 4: Sigurður R. Guðjónsson, Hæðar- garði 50. Lágaberg 6: Eysteinn Pétursson, Eyjabakka 11. Lága- berg 8: Gunnar Gestsson, Klepps- vegi 76. Neðstaberg 1: Óli H. Jónsson, Grænuhlíð 22. Neðsta- berg 3: Rúnar Gunnarsson, Kóngs- bakka 4. Neðstaberg 5: Finnbogi G. Kristjánsson, Maríubakka 10. Neðstaberg 7: Gunnar A. Ingvars- son, Bústaðavegi 107. Neðstaberg 9: Erlendur Eysteinsson, Ból- staðahlíð 62. Neðstaberg 11: Björn Ólafsson, Arahólum 4. Neðstaberg 13: Óskar G. Sigurðsson, Holtsbúð 35, Garðabæ. Neðstaberg 2: Inga S. Ingvadóttir, Æsufelli 2. Neðsta- berg 4: Reynir H. Jóhannsson, Hraunbæ 38. Neðstaberg 6: Árni M. Björnsson, Dalalandi 3. Neðstaþerg 8: Jóhann Diego Arn- órsson, Espigerði 18. Neðstaberg 10: Sævin Bjarnason, Asparfelli 10. Neðstaberg 12: Baldur H. Jónsson, Tómasarhaga 55. Neðsta- berg 14: Gunnar H. Magnússon, Miklubraut 76. Neðstaberg 16: Eiríkur Briem, Hraunbæ 180. Neðstaberg 18: Ólafur Jóns- son, Flúðaseli 74. Neðstaberg 20: Karl Kreidler, Suðurhólum 8. Neðstaberg 22: Svavar Magnús- son, Asparfelli 12. Neðstaberg 24: Björgvin H. Kristinsson, Jórufelii 2.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.