Morgunblaðið - 03.04.1980, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 03.04.1980, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRIL 1980 BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Andstæðingarnir hafa alltaf sagt pass í skemmtilegri úrspils- æfingu en þú ert með spil suðurs, gafst spilið og verður sagnhafi í fjórum spöðum. Norður Suður S. KG109 S. Á8754 H. KD H. Á6 T. ÁG32 T. KD5 L. D104 L. 972 Útspil laufátta. Þú lætur lágt frá blindum, austur fær á gosann, tekur síðan á kónginn en ásinn, þriðja laufið, trompar vestur með tvistinum í stað þess að láta annaðhvort hjarta eða tígul. Og síðan skiptir hann í tígul. Og síðan skiptir hann í tígultíu. Og nú er komið að þér. Þrír slagir eru af nú þegar svo að finna verður trompdrottninguna. Hver á hana? COSPER I embættinu sitji ákveðinn og reyndur maður Menn eru smátt og smátt að taka afstöðu til frambjóðenda við forsetakosningarnar í júní í sumar. Alltaf af og til koma fregnir um skoðanakannanir í blöðum, og þessar fréttir hafa á sinn hátt nokkur áhrif á fylgi einstakra frambjóðenda. Ég er ákveðinn stuðningsmaður Péturs Thorsteinssonar sendiherra við þessar kosningar, og er því eðli- legt að mér sé nokkurt áhyggju- efni, að enn sem komið er hefur Pétur ekki náð nægu fylgi í þessum skoðanakönnunum. Ég verð áþreifanlega var í samtölum við menn, að allir viður- kenna að Pétur er langhæfasti frambjóðandinn. Veldur því fyrst og fremst áratuga störf í utan- ríkisþjónustunni, sem sendiherra og ráðuneytisstjóri, og jafnframt óvenjumikil tungumálakunnátta. Þá viðurkenna allir, að Pétur er maður ákveðinn og því ólíklegur til þess að vera leikfang stjórn- málamanna. Hann er því ekki frambjóðandi þeirra, sem vilja að á Bessastöðum sitji forseti, sem hafist ekki að, en láti stjórnmála- mönnunum alfarið eftir aðferðir í valdatafli þeirra. En þótt menn viðurkenni þann- ig, að Pétur sé hæfastur til þess að gegna forsetaembættinu, óttast menn að aðrir séu ekki þessarar skoðunar því að maðurinn sé lítið þekktur, og eru því tregir til stuðnings. Við þessa kjósendur vil ég segja: Á það að verða megin- regla í íslensku þjóðlífi, að engir menn séu hlutgengir til opinberra starfa nema þeir einir, sem blaðamenn hafa velþóknun á og auglýsa í þáttum sínum. Eiga þeir ágætu menn, sem vinna störf sín án skrums og auglýsinga, aldrei að verða kallaðir til ábyrgðarstarfa, vegna þess að þeir séu ekki þekktir? Kjósendur verða að gera sér grein fyrir því, að völd forseta Islands eru mikil, fyrst og fremst vegna þess að þeim er einungis beitt á örlagastundu. Þess vegna ríður á, að í embættinu sitji ákveðinn og reyndur maður, sem hefur mikla þekkingu á íslensku þjóðlífi, — þekkir og viðurkennir hefðir lýðræðisins, og óhræddur við að beita valdi sínu í þágu þjóðarinnar, en gegn þeim stjórn- málamönnum, sem aðeins hugsa um eigin hag. Hákon Aðalsteinsson Húsavík. • Varð að barni í annað sinn Æ, æ, æ. Skyndilegur kulda fiðringur byrjar í litlu tá suðvest- ur. Kuldinn hríslast upp legginn, leggur lykkju á leið sína, byrjar síðan að færast upp í mjóbakið, nái hann hærra má búast við meiri háttar skjálftahrinu í þess- um furðulega líkama, sem aldrei hefur eðlilegt hitastig, oftast í heitara lagi, en stundum í frost- marki og þá má búast við öllu illu. Ég hringdi því í oboði á nætur- vaktina til að afstýra frekari vandræðum. Engill í konulíki birt- ist. Hún skynjar strax hættuna, enda farin að þekkja þennan „vandræðagrip" sem þarna liggur. Sem sagt, hún hefur snör handtök, hleypur fram, kemur á mettíma aftur með rjúkandi hunangsbland, sem ég sloka í mig. Ég finn vellíðanina streyma um hverja taug, slaka á og er á leiðinni til draumalandsins, þegar skyndilega er kippt í mig af jörðinni, eins og Vestur virðist hafa leyst vandann fyrir okkur. Hann vonast til, að austur eigi tígulkónginn og sjálfur á hann varla trompdrottn- inguna úr því hann trompar. Drottningin er því í austur og við spilum samkvæmt því. En áfallið kemur þegar við tökum á trompkónginn. Austur fylgir ekki — lætur hjarta — einn niður. Norður S. KG109 H. KD T. ÁG32 L. D104 Vestur S. D632 H. G985 T. 1064 L. 83 Austur S. 6 H.107432 T. 987 L. ÁKG65 Suður S. Á8754 H. Á6 T. KD5 L. 972 Auðvitað hefðir þú unnið spilið, hefði vestur ekki trompað þriðja laufið af makker sínum. Það eitt, að hann átti fá lauf jók líkurnar á fleiri trompum á hans hendi en á hendi austurs. Og samkvæmt því hefðir þú tekið fyrst á trompásinn og svínað tvisvar með fullkom*lu öryggi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.