Morgunblaðið - 03.04.1980, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980
47
Antwerpen
alla fimmtudaga
Hafóu samband
EIMSKIP
SIMI 27100
Mikill f jöldi að-
komumanna í skíða-
viku á ísaf irði
ísafirdi 1. apríl.
SKÍÐAVIKAN stendur nú yf-
ir í sól og snjó í paradís
skíðamanna á Seljalandsdal.
Nú um páskana nær skíða-
vertíðin hámarki og má
reikna með að allir sem vettl-
ingi geta valdið verði á
skíðum um páskana. Mikill
fjöldi aðkomumanna er hér
nú og er ekki óalgengt að
hvert heimili sé tvöfalt til
þrefalt stærra en venjulega.
Hótelrými er þó á Hótel
Mánakaffi og hjálpræðishern-
um en að auki er nú hægt að
fá svefnpokagistingu i
Skíðheimum.
Miklar skipulagsbreytingar
hafa verið gerðar á rekstri
skíðamannvirkja hér í vetur.
Síðastliðið haust tók bæjar-
sjóður við rekstrinum af
skíðaráði og 1. febrúar var
Guðmundur Marínósson ráð-
inn framkvæmdastjóri í fullu
starfi. Hefur hann unnið við
að endurnýja Skíðaheima. Er
húsið nú orðið mjög vistlegt og
auk gistingarinnar þar hægt
að fá alls konar veitingar. Á
dalnum eru tvær skíðalyftur.
Allar brekkur svo og göngu-
brautir eru troðnar af snjó-
troðara daglega.
Auk skíðaferða og almenn-
ings skíðamóta verður ýmis-
legt til dægrastyttingar svo
sem tónleikar og messugjörðir
í Isafjarðarkirkju og dansleik-
ir í samkomuhúsunum.
Að sögn Friðriks Adolfsson-
ar hjá Flugleiðum áætla þeir
þrjátíu aukaferðir vestur um
páskana þar sem fluttir verða
um 750 farþegar. Auk þess
flýgur flugfélagið Ernir dag-
lega milli Isafjarðar og
Reykjavíkur.
Úlfar.
auglýsjngastofa
(SSS) MYIMDAMÓTA
Adalstræti 6 sími 25810
Hefur þú hugað að verðmætum þínum? Eru
þau öll á einum stað og nógu tryggilega geymd?
Ef ekki, þá ættirðu að snúa þér til okkar. Við
höldum því nefnilega fram að það sé sjálfsögð
öryggisráðstöfun að hafa geymsluhólf í Sam-
vinnubankanum.
Þér standa til boða tvær stærðir af geymsluhólf-
um. Til þess að auðvelda þér aðgang að þeim
höfum við sérstakan starfsmann, sem sér um að
þú komist í hólfíð þitt hvenær sem er á venju-
legum opnunartíma Samvinnubankans.
Það veitir þægilega öryggistilfinningu að vita
af verðmætum sínum í tryggum öryggisgeymsl-
um Samvinnubankans.
Samvinnubankinn
Bankastræti 7 - Sími 20700
Ljósm. (JHar.
Skiðalandið á Seljalandsdal.