Morgunblaðið - 11.04.1980, Side 20

Morgunblaðið - 11.04.1980, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1980 Qlíusamningarnir við BNQC: Hin almennu viðskipta- verð („mainstream") jafn- aðarlega hagstæðari MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í gær til Geirs H. Haarde hag- fræðings. ritara olíuviðskipta- nefndar ok hað hann að gera nánari Krein fyrir þeim verð- Krundvelli („mainstream“verð). sem samninKurinn við BNOC miðast við otf samanburði á honum og Rotterdam-verðinu, sem olíukaup okkar hafa mið- ast við að undanförnu. Veitti Geir Mortcunblaðinu eftirfar- andi upplýsingar: Verðmyndun á fullunnum olíuvörum í milliríkjaviðskiptum er einkum með tvennum hætti. Annars vegar er um að ræða hin svokölluðu almennu viðskipta- verð (,,mainstream“verð) olíufé- laganna, sem gilda í föstum olíuviðskiptum, einkum innan eigin sölu- og dreifingarkerfa olíufélaganna. Hins vegar er stuðzt við dagverð á svokölluðum „spotmörkuðum", eins og þeim í Rotterdam, en þessir markaðir hafa yfirbragð óskipulegra upp- boðsmarkaða, og ræðst verð þar eingöngu af framboði og eftir- spurn eftir fullunnum olíum á tilteknum tíma og spám mark- aösaðila á því, hvernig markaðs- öflin muni þróast í framtíðinni. Langstærstur hluti olíuvið- skipta í heiminum fer fram á grundvelli fastra viðskipta, þar sem greidd eru almenn við- skiptaverð. Kostnaður olíufélag- anna af hráolíuöflun, hreinsun og öðrum þáttum vinnslunnar, setur þessu verði eðlilega neðri mörk. Að öðru leyti ræðst verðið af almennri þróun framboðs hráolíu og eftirspurn eftir full- unnum olíuvörum yfir nokkurn tíma. Við eðlilegar aðstæður eru „spotmarkaðirnir" í olíu „af- gangsmarkaðir", þar sem olíu- kaupendur og -seljendur jafna sín í milli framleiðslu og þörfum fyrir einstakar tegundir olíu. Þörf fyrir slíkan markað skapast vegna þess, að olíufélögin geta aldrei skipulagt starfsemi sína svo nákvæmlega, að allir endar nái alltaf saman. Til jöfnunar eru þá seldir og keyptir einstakir farmar á þessum mörkuðum. Þegar nægt framboð er af olíu, er verð á þessum mörkuðum gjarnan ívið lægra en hin al- mennu viðskiptaverð. Hins veg- ar getur verð á þessum mörkuð- um farið hátt upp fyrir hin almennu viðskiptaverð, þegar eftirspurn er umfram framboð, og eru þar engin efri mörk. „Mainstream“verð í eðli sínu stöðugra Það hefur tíðkazt nokkuð í olíuviðskiptum, sem að öðru leyti eru föst og reglubundin, að miða verðin við skráningar á „spotmörkuðum". Þannig hafa Sovétríkin og fleiri selt fullunn- ar olíur, og hefur verið við þessar skráningar miðað í olíu- viðskiptum íslendinga og Sovét- manna, svo sem Curacao, Aruba og Rotterdam, enda þótt við- skiptin hafi að öðru leyti ekki komið nálægt þessum mörkuð- um. Upplýsingar um verðið á Rott- erdam-markaðnum og fleiri „spotmörkuðum" eru teknar saman af Platt’s Oilgram og birtast þar fimm daga í viku. Það leiðir af eðli þessa markað- ar, að ekki er vitað með neinni vissu fyrirfram, hver hin skráðu verð í Platt’s verða á einhverjum tilteknum tíma. Engin sambærileg skráning er hins vegar til varðandi almenna markaðinn, enda eru verð á honum mismunandi og ýmist umsamin milli kaupenda og selj- enda með tilliti til markaðsað- stæðna eða byggð á innri við- skiptum olíufélaganna. Fyrir- tækið Oil Price Assessments Limited (OPAL) í London aflar upplýsinga, sem taldar eru all- nákvæmar, um verð á almennum mörkuðum í Bretlandi, Frakk- landi, Ítalíu, Hollandi, Belgíu og Vestur-Þýzkalandi. Fyrirhugað mun að Svíþjóð bætist í þennan hóp von bráðar. Upplýsingar OPAL birtast ýmist mánaðar- lega eða ársfjórðungslega. Það er ljóst, að þessar verðvið- miðanir eru í eðli sínu ólíkar. Hin almennu viðskiptaverð eru miklu stöðugri, enda tengd hrá- olíuverðunum annars vegar og heildarjafnvægi og þróun olíu- markaðarins hins vegar. Rotter- dam-markaðurinn er óstöðugur enda háður daglegri eftirspurn og framboði, en getur þó verið hagstæður kaupendum, þegar framboð er umfram eftirspurn. Sé um skort að ræða á olíumörk- uðum í heiminum, er hætt við að verð á „spotmarkaði" hækki langt umfram það, sem hráolíu- verð og vinnslukostnaður gefa tilefni til, eins og átti sér stað á árinu 1979. í ljós kom á síðasta sumri, að viðmiðunin við dagverð í Rotter- dam er verulega óhagstæð, þegar misvægi er á olíumarkaðnum og eftirspurn umfram framboð. Reynsla fyrri ára hefur hins vegar einnig sýnt, að Rotter- dam-verð geta legið lítið eitt fyrir neðan hin almennu við- skiptaverð (,,mainstream“verð), þegar jafnvægi er á markaðnum, þótt sá ávinningur sé lítilvægur móts við þann gífurlega mun, sem var milli dagverðanna og hinna almennu viðskiptaverða á síðastliðnu ári. Ljóst er af því, sem hér hefur komið fram, að jafnaðarlega er hagstæðara að fylgja hinum almennu viðskiptaverðum frekar en dagverðum, eins og aðstæður eru í alþjóðlegum olíuviðskiptum og nú horfir. Kemur þar við sögu sá ávinningur, sem gera má ráð fyrir, þegar misvægi er á mark- aðnum, en það segir meir og fyrr til sín á „spotmörkuðunum", eins og áður hefur komið fram. Einn- ig er ljóst, að það er nokkurs virði út af fyrir sig að þurfa ekki að búa við þær sveiflúr, sem „spotmarkaðirnir" eru háðir. Verðin svipuð um þessar mundir Allt síðasta ár var Rotter- dam-verð mun hærra en hin almennu viðskiptaverð en það sem af er þessu ári hafa verðin færst saman enda er nú ástandið á olíumarkaðnum mun eðlilegra en það var í fyrra. Eru verðin nú mjög svipuð. Rotterdam-verð hafa farið lækkandi undanfarn- ar vikur en þó hækkað örlítið aftur allra síðustu daga. Ógjörn- ingur er að spá um það með nákvæmni hvert innbyrðis hlut- fall verðanna verður á einhverj- um tilteknum tíma í framtíðinni. Menntaskólarnir ljúka senn starfsvetri sínum og í gær mátti sjá stúdentsefni Menntaskólans við Sund fara um miðborg Reykjavíkur með ærslum sem tilheyra þeim degi er upplestrarfríið hefst. Ljósm. Kristján. Þorskaflinn í marz- mánuði 92.860 tonn SAMK V/EMT hráðahirgðatölu Fiskifélags íslands varð þorskafl- inn í marzmánuði siðastliðnum samtals 92.860 tonn og er 21 þúsund tonnum meiri en í sama mánuði í fyrra. Þorskaflinn í marz í ár var svipaður og allur botnfisk- afli í marz í fyrra. Aflaaukningin varð um allt land miðað við sama mánuð í fyrra og sömuleiðis mjög mikil aflaaukning þrjá fyrstu mán- uði ársins eins og komið hefur fram í fréttum að undanförnu. Aukningin er þó öll í þorski og er um samdrátt i flestum öðrum fisktogundum að ræða fram til þessa á árinu. Meðfylgjandi er tafla yfir botn- fiskafla fyrstu þrjá mánuði þessa árs, tölur 1980 eru bráðabirgðatölur, en frá 1979 er um endanlegar tölur að ræða, en Fiskifélag Islands heldur þessum tölum saman. Aflinn er talinn í tonnum og miðað er við óslægðan fisk. liotnfiskur Botnfiskur þorskur Þorskur SvaV)i Jan/mar/ Bátar 1980 To>í 1979 liátar Tok 1980 Bátar Tojf 1979 Bátar Toh Surturland 27301 7119 21883 3750 20041 3804 12057 1849 Sudurnes 33813 7312 24157 5552 20518 5313 17225 2757 Hafnarfj/Rvik 3514 19022 3222 11907 3113 13491 2740 5774 Vesturland 22180 7080 17517 5150 21250 5714 15952 3200 Vestfirdir 10010 20132 12402 14973 7305 10837 8743 131% NorAurland 9271 24045 9702 20471 9050 20889 9400 17713 Austfirrtir 12080 10505 12181 8850 8770 0054 9213 0209 Erlendis 030 5549 1851 0970 329 2396 917 3032 119111 101100 102915 77035 90388 74558 70913 537% Samtals 220211__________________________lft0r>.r)0 170910 130709 Mism. aukning 19S0 39664 40237 Auglýst eftir vitn- um að ákeyrslum SLYSARANNSÓKNADEILD lög- reglunnar í Reykjavík hefur beðið Morgunblaðið að auglýsa eftir vitnum að eftirtöldum ákeyrslum í borginni. Þeir, sem geta veitt upplýsingar um þessar ákeyrslur, eru beðnir að hafa samband við slysadeildina í síma 10200. Mánudaginn 24. marz sl. var tilkynnt, að ekið hefði verið á bifreiðina R—48686, sem er Austin Mini, rauð að lit. Atti sér stað við hús nr. 31 við Víðimel, frá kl. 22.00 þann 22. marz og fram til 24. marz á hádegi. Skemmd á bifr. er að vinstra framaurbretti er dældað. Mánudaginn 24. marz sl. var tilkynnt, að ekið hefði verið á bifreiðina R—8979, sem er Volks- wagen, hvít að lit. Átti sér stað á bifr.stæði við Smiðjustíg norðan við Hverfisgötu. Varð fimmtudaginn 20. marz eða föstudaginn 21. marz. Vinstra framaurbretti er skemmt og er mosagrænn litur í skemmd- inni. Föstudaginn 28. marz sl. var tilkynnt að ekið hefði verið á bifr. R—14890, sem er Toyota, grænbrún. Átti sér stað miðvikudaginn 26. marz frá kl. 09.00 til 16.00. Dæld er á vinstri framhurð. Miðvikudaginn 2. apríl sl. var ekið á bifr. G —12742, sem er Ford Escort drapplitaður. Átti sér stað í porti Mjólkurstöðvarinnar við Laugaveg 162, frá kl. 17.00 1.4. til 16.40 þennan dag. Skemmd er á kistuloki hægra megin. Fimmtudaginn 3. apríl sl. var ekið á bifr. R—37271, sem er Volvo fólksbifr. biá að lit. Átti sér stað við Krummahóla 10 Rvík. frá kl. 15.15 til 17.13. Skemmd er á hægra afturljóskeri. Miðvikudaginn 9. apríl var til- kynnt að ekið hefði verið á bifr. R—65847, sem er Skoda rauður að lit. Átti sér stað á bifr.stæði við Landspítalann frá kl. 11.00 til 11.30 þann 8. apríl, þriðjudag. Skemmd er á vinstri framhurð. Með frétt um varanlega gatnagerð á ísafirði i blaðinu i gær urðu myndabrengl. í stað myndar frá þeirri ráðstefnu birtist mynd af samninganefnd Sjómannafélags ísafjarðar. Eru viðkomandi beðnir velvirðingar á mistökunum. um leið og rétta myndin birtist. Er hún af Jóni Þórðarsyni furstjóra steypustöðvarinnar Garðs hf. til vinstri og Gunnari Torfasyni verkfræðingi. En verkfræðistofa Gunnars sá um undirbúning tilboðsins í steypuvinnuna á Djúpveginn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.