Morgunblaðið - 11.04.1980, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.04.1980, Blaðsíða 36
PIERPOflT QUARTZ — úr Þessi heimsþekktu úr fást hjá flestum úr- smiðum. FÖSTUDAGUR 11. APRlL 1980 Arnarflug fór í gær með hóp bandarískra leiðangursmanna til Grænlands og munu þeir dveljast við rannsóknir á jóklinum næstu daga en Arnarflug mun sækja þá aftur að viku liðinni. Flogið var með þá til Kulusuk og þar tók þyrla við þeim og flutti áleiðis á jökul. Myndina tók Guðmundur Hilmarsson af Navajo-vél Arnarflugs og á bak við má sjá Dash 7-vél frá Grænlandsflugi. Nærri 15 milljón kr. tjón er olía mengaði saltf arm UM ÞAÐ BIL 400-500 tonna saltfarmur skemmdist af olíu þegar unnið var að uppskipun þess í Þorlákshöfn í fyrradag. Var verið að moka úr lest skips- ins þegar vélskófla rakst í lest- arvegginn og kom við það leki að olíugeymi þar og mengaði olían hluta af saltfarmi skipsins. Að sögn Finnboga Kjeld hjá Saltsölunni hf. er hér um verulegt tjón að ræða, kringum 15 milljón- ir. Skemmda saltið var strax tekið til hliðar en talið er að milli 400 og 500 tonn séu olíumenguð. Skipið, sem er erlent, er búið olíutönkum meðfram lestarveggjum, og þegar vélskóflan rakst á vegginn kom leki að einum tanknum sem olía mun hafa verið í. Tóku menn ekki strax eftir lekanum og því mun nokkuð af skemmda saltinu hafa verið sett saman við óskemmt salt, en Finnbogi taldi tryggt að með því að taka 400—500 tonn frá væri ekkert af mengaða saltinu með. Sagði hann óhapp þetta ekki valda saltskorti þar sem von væri á 2.500 tonna farmi um helgina. Baksíðumynd Myndina tók Ragnar AxelsNon á handafundi. Búmark gegn offramleiðslu í landbúnaði: 10% tekjuskerð- ing hjá bændum Búmarkið eða kvótinn sem bændum hefur verið kynntur að undanförnu til þess að skerða framleiðslu landbúnaðar þýðir um 10% samdrátt í landbúnaðarfram- leiðslu, en það jafngildir að fækka ærgildum í landinu um 150 þús. af þeim liðlega 1700 þúsund sem eru samkvæmt skýrslu bænda í land- inu í dag. Þetta þýðir að meðaltali um 10% tekjuskerðingu hjá bænd- um og miðað við 300 ærgilda bú er hér um að ræða nær 1.2 millj. kr. tekjurýrnun á ári, en á stærri búum getur verið um margra milljóna króna tekjumissi að ræða. Búmarkið miðast við það að skerða framleiðslu sem nemur þeim hluta ofíramleiðslunnar sem ekki er gert ráð fyrir í útflutningsbótum. Utflutningsbætur mega samkvæmt lögum nema 10% af heildarverð- mæti landbúnaðarafurða og miðað við áætlaða framleiðslu á þessu ári nema þær bætur 8,5 milljörðum króna, en hins vegar vantar þá nær 7 milljarða króna til þess að greiða að auki í útflutningsbætur og fram- kvæmd skerðingarinnar á að eyða þeim mismun sem nemur um 9,6% af heildarverðmæti afurða nautfjár- og sauðfjárræktar. Sjá grein um bændafundi á bls. 14 og 15. Mjög marg- ir árekstrar ÁSTANDIÐ í höfuðborgarumferð- inni hefur verið með allra bezta móti að undanförnu en í gær varð breyting á til hins verra og urðu alls 15 árekstrar frá hádegi og fram að kvöldmat. Vill lögreglan hvetja ökumenn til þess að draga úr ökuhraðanum og sýna aðgæzlu. Bráðabirgðaúttekt á aukningu tekna milli ára: Skattheimtan um 3 milljörð- um yfir áætlun KÖNNUN, sem Þjóðhagsstofnun hefur gert á tekjuaukningu manna. milli áranna 1978 og 1979 hefur leitt í ljós, að hún er ekki 45% eins og fjárlög gera ráð fyrir og þær hugmyndir að tekjuskatt- stiga, sem nú eru tii meðferðar á Alþingi, heldur mun landsmeðal- tal vera á bilinu 47 til 48%. Þetta þýðir, að íjárlögin ásamt skatt- stiganum gefa 46,7 milljarða króna eða tæplega 3 milljörðum króna meira, en Alþingi og ríkis- stjórn höfðu gert ráð fyrir. „ÞAÐ hefur ckki verið neinn áhugi hjá sjómönnum hér á Þing- eyri að segja upp samningunum, en við sögðum upp samningum landverkafólksins cins og aðrir,“ sagði Guðmundur Friðgeir Magnússon formaður Verkalýðs- félagsins Brynju á Þingeyri, er Mbl. spurði hann um ástæður þess, að sjómenn á Þingeyri eru einir sjómanna á Vestfjörðum með fasta samninga. „Við höfum yfirleitt haft sam- flot með öðrum félögum á Vest- fjörðum með samningagerð, þótt ekki hafi alltaf verið algjör sam- staða um aðgerðir," sagði Guð- mundur, en hann er jafnframt ritari Alþýðusambands Vestfjarða og hefur sem slíkur setið samn- ingafundi nú í deilunni við Út- vegsmannafélag Vestfjarða. Alþýðusamband Vestfjarða hef- ur beint þeim tilmælum til sjó- Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið aflaði sér í gær, var skattstiginn, sem Morgunblaðið birti í gær, 25% skattur á skatt- gjaldstekjur að þremur milljónum, 35% af tekjum á bilinu 3 til 7 milljónir og 50% á tekjur umfram 7 milljónir, kynntur á sameiginlegum fundi fjárhags- og viðskiptanefnda Alþingis í gærmorgun. Þá vildu stjórnarsinnar hraða afgreiðslu málsins, en stjórnarandstaðan krafðist nákvæmari upplýsinga um tekjuaukningu landsmanna. Vegna manna á Þingeyri að þeir fari í samúðarvinnustöðvun með öðrum sjómönnum á Vestfjörðum 20. apríl n.k. og sagðist Guðmundur ráðgera fund á næstunni til að fjalla um kjaramálin og tilmæli ÁSV. „Ég vonast eftir samstöðu, ekki bara hjá sjómönnum, heldur landverkafólki líka,“ sagði Guð- mundur. HÆKKUN söluskatts um 1.5% var afgreidd sem lög frá alþingi í gærkvöldi með atkvæðum stjórn- arliða gegn atkvæðum þing- manna stjórnarandstöðunnar. þeirrar kröfu var Þjóðhagsstofnun falið verkið. Fyrirhugað er að kynna nefndunum þessar niður- stöður á sameiginlegum fundi ár- degis í dag. Ovissa hefur ríkt um stærð þess- arar tekjuaukningar, þar sem skattframtöl bárust skattstofum mánuði síðar en venjulega og at- vinnurekendur hafa enn ekki skilað framtölum. En samkvæmt bráða- birgðaúrtaki úr nokkrum stærstu bæjum á Reykjanesi og í Reykjavík, bendir allt til þess, að landsmeðal- talið sé 2 til 3 prósentustigum hærra en gert hafði verið ráð fyrir. Því breytast bæði forsendur nýsam- þykktra fjárlaga og skattstigans, sem í meðferð er. Þessar nýju forsendur gefa ríkinu í skatttekjur 2,9 milljörðum króna meiri tekjur en 45%-forsendan og 1,7 milljörð- um króna meira, en sá skattstigi, sem Ragnar Arnalds kynnti upp- haflega og sem mestum úlfaþyt olli. Tillögur um skattstiga, sem að framan er getið, og fjárhags- og viðskiptanefndir Alþingis fjalla nú um, fela í sér 525 þúsund króna persónuafslátt, 150 þúsund króna barnabætur á 1. barn hjóna og 215 þúsund krónur á 2. barn eða fleiri. Bárnabætur einstæðs foreldris eru 280 þúsund krónur á barn. Þá er gert ráð fyrir 65 þúsund króna barnabótaauka á hvert barn undir 7 ára aldri. Lögin munu taka gildi á mánu- daginn, þann 14. april, og gilda útimabundið siðan. Felld var breytingartillaga frá Eiði Guðnasyni um að hækkunin falli niður um næstu áramót. í efri deild Alþingis voru einnig í gærkvöldi samþykkt lög um tímabundið olíugjald til fiskiskipa með atkvæðum stjórnarþing- manna gegn atkvæðum þing- manna stjórnarandstöðunnar. Sjá nánar frétt á blaðsíðu tvö í Morgunblaðinu í dag. Sjómenn á Þingeyri íhuga samúðarvinnu- stöðvun 20. apríl nk. Söluskattshækkun- in orðin að lögum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.