Morgunblaðið - 15.04.1980, Síða 1

Morgunblaðið - 15.04.1980, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 85. tbl. 67. árg. ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Frelsi skert Peking, 14. aprfl. AP. FASTANEFND kínverska þingsins ræddi i dag fyrirhugað afnám stjórnarskrárákvæða sem um tima leyfðu hömlulaust tjáningarfrelsi, mótmælaaðgerðir og veggspjalda- herferð á dögum menningarbylt- ingarinnar 1966 — 69. Miðstjórnin hvatti til þess á fundi sínum í lok febrúar að ákvæðin yrðu strikuð út úr stjórnarskránni þar sem hún taldi að þau gerðu meira tjón en gagn. Jafnframt hvatti nefndin til þess að staðið yrði við hefðbundin stjórn- arskráratriði um frelsi blaða, funda- frelsi og málfrelsi. Korchnoi vill hjálp London, 14. apríl. AP. VIKTOR Korchnoi mun á föstudag eiga viðræður við brezka þingmenn til að fá aðstoð við að fá leyfi fyrir eiginkonu sína og son til að fara frá Sovétrikunum. Korchnoi tekur nú þátt í skákmóti í Englandi, en hefur mælt sér mót m.a. við Avebury lávarð, sem er formaður mannréttindanefndar brezka þingsins. Korchnoi sagði í dag að eina leiðin til að fá konu sína og son, sem situr í fangelsi fyrir að neita herþjónustu, frá Sovétríkjun- um, væri að þrýsta sem mest á sovézk yfirvöld. Hverfur hnerrinn? London, 14. apríl. AP. HEIMSMETHAFINN í að hnerra látlaust, Tricia Reay, 12 ára stúlka frá Sutton Coldfield á Mið-Englandi, sem haft hefur hnerra i 182 daga ætlar í vikunni að haida til Pýrenea- fjalla á landamærum Frakk- lands og Spánar til að fá úr þvi skorið hvort fjallaloftið geti stöðvað hnerrann. Alls konar tilraunir til að lækna hnerrann hafa til þessa engan árangur borið, en vandinn sem Tricia á við að etja er í því fólginn að hún hnerrar að jafn- aði á 15 sekúndna fresti, en þó verður hlé á hnerranum í svefni. Vinstri boðuð í Freetown, Sierra Leone, 14. apríl. AP. NÝI þjóðhöfðinginn í Líberíu, Samuel K. Doe, sagði þjóð sinni í dag að hann hefði orðið að láta ráða William Tolbert forseta af dögum þar sem það hefði verið eina leiðin til að binda endi á „óstjórnlega spillingu.“ Doe, 28 ára gamall liðþjálfi, sagði í fyrsta útvarps- og sjón- varpsávarpi sínu síðan hann tók völdin í byltingu fyrir dögun á laugardag að byggt yrði upp „nýtt þjóðfélag þar sem allir nytu jafn- réttis". Ræðan var krydduð vinstri slag- orðum og henni lauk með vígorðinu „Barátta alþýðunnar heldur áfram" sem Fidel Castro á Kúbu notar oft. Diplómatar segja þó að Doe hafi fullvissað bandaríska fulltrúa í Tilræði við frú Gandhi EFTIR TILRÆÐIÐ — Indira Gandhi forsætisráðherra I fylgd með forseta indverska herráðsins, O.P. Malhotra hershöfðingja, skömmu eftir að hún komst með naumindum lifs af þegar reynt var að ráða hana af dögum. Nýju Delhi. 14. april. AP. INDIRU Gandhi forsætisráðherra sakaði ekki þegar tilraun var gerð til að ráða hana af dögum í dag. Hnífi var fleygt að henni úr mannfjölda af 1.8 metra færi, en hann fór rétt fram hjá frú Gandhi og straukst við lögreglumann sem sakaði ekki. Þrír lögreglumenn yfirbuguðu tilræðismanninn, Ram Bulchand Lalwani frá Baroda, Vestur- Indlandi, og hann var handtekinn og sakaður um morðtilraun. Hnífsblaðið var 15 sentimetra langt. Það eina sem er sagt um tilræðismanninn er að hann sé síðhærður og líti út fyrir að vera menntaður. Svar fékkst ekki við því hvort hnífsblaðið hefði verið eitrað. Árásin var gerð þegar frú Gandhi ætlaði að stíga upp í bíl sinn að lokinni athöfn fyrir utan þinghúsið til að minnast 87 ára afmæli Babasaheb Ambedkar, leið- toga stéttleysingja. Frú Gandhi varð við tilmælum sem.fram komu á fundinum að dagurinn yrði opin- ber frídagur. Ambedkar, sem lézt 1956, var einn af höfundum ind- versku stjórnarskrárinnar. Eftir árásina fór frú Gandhi á fund sem hún hafði boðað til með yfirmönnum hersins og sjónarvott- ur sagði að hún virtist „róleg og í fullu jafnvægi". Leiðtogar allra stjórnmálaflokka mótmæltu til- ræðinu. Charan Singh fyrrum for- sætisráðherra sagði að „ofbeldi gegn stjórnmálaleiðtogum hlyti að valda öngþveiti í landinu". Kamla- pathi Tripathi járnbrautaráðherra kvað tilræðið virðast vera verk Rauði krossinn fékk að ræða við gíslana Gení, 14. apríl. AP. FULLTRUAR Alþjóða Rauða krossins heimsóttu gíslana i bandaríska sendiráðinu í Teher- an i dag eftir að námsmennirnir gáfu utanaðkomandi aðilum í fyrsta skipti leyfi til þess að tala við alla fangana. stefna Líberíu Monrovia, höfuðborg Líberíu, að hann vildi viðhalda góðum sam- skiptum sem landið hefur haft við Bandarikin frá gamalli tíð. Áður hafði Doe tilkynnt að nokkrir fyrrverandi ráðherrar Tol- berts yrðu leiddir fyrir sex manna herdómstól, ákærðir fyrir landráð spillingu og mannréttindabrot. í ræðu sinni talaði hann lítið um utanríkismál, en lýsti því yfir að þjóðin mundi ekki una sér hvíldar „fyrr en hver þumlungur afrísks lands hefði verið frelsaður" — en þar átti hann greinilega við Suð- ur-Afríku. Tolbert var einn örfárra svartra Afríkumanna sem beittu sér fyrir viðræðum við suður-afríska leið- toga til að binda endi á aðskilnað- arstefnuna apartheid. Alþjóða Rauði krossinn hefur lagt áherzlu á að hann fallist því aðeins á að heimsækja gislana ef fulltrúum hans sé frjálst að tala við þá alla, semja skrá um nöfn þeirra og tilkynna ættingjum þeirra um heilsufar þeirra. Seinna var tilkynnt að tveir fulltrúar samtakanna hefðu hitt alla gíslana. Talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins kallaði heim- sóknina til gíslana „dúsu“, en viðurkenndi að hún gæti orðið gagnleg fyrir gíslana og fjölskyld- ur þeirra. Hann kvaðst vona að menn misstu ekki sjónar af þeirri staðreynd að „kjarni málsins væri ekki sá hvort þeir væru við góða heilsu heldur að láta yrði þá lausa." Vestur-Evrópuríki hafa haft samráð sín I milli um áskorun Carters um refsiaðgerðir gegn íran og ættu að geta tekið sameig- inlega ákvörðun á mánudag eftir eina viku þegar utanríkisráðherr- ar Efnahagsbandalagsins koma til fundar í Luxemborg að því er frú Margaret Thatcher forsætisráð- herra skýrði frá í dag í Neðri málstofunni. Hjá henni komu fram fyrstu opinberu viðbrögðin frá Vestur- Evrópu við áskorun Carters og ótilteknum fresti sem hann setti til að verða við henni. Hún sagði þingheimi: „Hlutverk okkar er að sýna bandarísku þjóðinni og Cart- er forseta stuðning." En hún sagði að Carter hefði ekki sett Bretum frest til að taka ákvörðun. Carter sagði í sjónvarpsviðtali í gær að hann hefði sett vinveittum þjóðum ákveðin tímatakmörk til að taka þátt í refsiaðgerðum og vestur-evrópskar ríkisstjórnir hafa látið í ljós undrun á þessum ummælum og borið þau til baka. Frú Thatcher gaf greinilega til kynna að Bretar styddu refsiað- gerðir og stjórnmálaslit þegar hún sagði að „diplómatískar aðgerðir hefðu hingað til ekki borið árang- ur. Þess vegna finnst forsetanum að við verðum að ganga skrefi lengra, í pólitískum og efnahags- legum aðgerðum og okkur er kappsmál að tryggja sem mestan stuðning við það,“ sagði hún. Hún sagði að Bretar mundu halda áfram að veita Bandaríkj- unum „eindreginn stuðning", en kvað mikilvægt að hvað sem yrði gert bæri árangur og nyti almenns stuðnings í heiminum. Jafnframt skoraði kunnur íranskur klerkur á Khomeini trúarleiðtoga í dag að stjórna byltingu í grannríkinu írak og Teheranútvarpið sagði frá sprengjuárás á búðir íranskra flóttamanna hjá landamærunum um helgina. Útvarpið sagði að alls hefðu 17.000 íranir verið reknir frá írak. manna sem væru andvígir lýðræði í landinu. Þetta er fyrsta tilraunin sem mun hafa verið gerð til að ráða indverskan forsætisráðherra af dögum. Frelsisleiðtoginn Mahatma Gandhi var þó ráðinn af dögum 1948 og þegar frú Gandhi var leiðtogi stjórnarandstöðunnar 1977—80 var tvívegis reynt að ráða hana af dögum, í fyrra skiptið í nóvember 1977 þegar hún var grýtt á ferðalagi á Suður-Indlandi og í síðara skiptið í janúar 1978 þegar maður nokkur miðaði skambyssu að henni í Nýju Delhi, en var yfirbugaður áður en hann gat hleypt af. Uggur vegna farar Begins Tel Aviv, 14. apríl. AP. MENACHEM Begin forsætisráð- herra fór frá ísrael í dag til viðræðna við Carter forseta um heimastjórn handa Palestinu- mönnum og sagði að hann mundi aðeins ræða orðalag samn- inganna i Camp David. Tveggja daga viðræður Begins í Washington hafa vakið ugg í ísrael með hliðsjón af fundum þeim sem Carter átti í síðustu viku með Anwar Sadat Egypta- landsforseta þar sem óttazt er að forsetarnir hafi náð samkomulagi sem Begin geti ekki sætt sig við. Begin gaf til kynna að hann mundi leggjast gegn kröfu Egypta um að Palestínumenn í austur- hluta Jerúsalem fái að kjósa til palestínsks heimaþings á vestur- bakkanum og Gaza-svæðinu. Hann svaraði neitandi spurn- ingu um hvort hann væri fáan- legur til að binda endi á landnám á herteknum svæðum. Begin sagði að Gyðingar hefðu „fullkominn rétt“ til að setjast að á fornri ættjörð sinni. Svíar banna vín í veizlum Stokkhólmi 14. apr. AP. SÆNSKA þingið hefur sam- þykkt að hætta að veita sterk vín í veizlum sem ríkið heldur. Svíar eru að sögn AP fyrsta vestræna ríkið sem leiðir slíkt bann í lög. (Þó má vekja athygli á því að í menntamála- ráðherratíð Vilhjálms Hjálm- arssonar var aldrei veitt vín i samkvæmum sem haldin voru á vegum hans ráðuneytis.) Erlendir gestir sem heim- sækja Svíþjóð munu þó ekki verða alveg þurrbrjósta í mannfögnuðum, þar sem utan- ríkisráðuneytið hefur leyfi til að túlka lögin að sínum geð- þótta. Mikil herferð hefur verið í Svíþjóð undanfarið gegn neyzlu sterkra drykkja og því samþykkt frumvarps þess sem að ofan greinir eðlilegt fram- hald þess.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.