Morgunblaðið - 15.04.1980, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.04.1980, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1980 Sýning á verkum úr Sonie Henie — Niels Onstad safninu: Frá opnun sýninKarinnar í Norræna húsinu. Á myndinni má sjá ýmsa kunna einstaklinga sem tengdir eru menningu og listum, stjórnmálum og bæjarstjórnarmálum i Kópavogi, en lista- og menningarsjóóur Kópavogs stendur fyrir sýningunni. Ljósm. Mbl. Ól.K.M. Fjölmenni sótti sýn- inguna fyrsta daginn FJÖLMENNI var við opnun sýningar á verk- um úr Sonia Henie-Niels Onstadsafninu í Norræna húsinu á sunnudag, en við það tækifæri tók Ólaf- ur K. Magnússon ljós- myndari Mbl. meðfylgj- andi myndir. A sýningunni, sem stendur yfir í tvær vikur, eru sýndar frummyndir verka ýmissa af helztu meisturum málaralistar- innar á þessari öld, þ.á m. eru myndir eftir Picasso, Miró, Munch, Matisse, Bonnard, Ernst, Klee, Villon, og Dubuffet. Það er Lista- og menningar- sjóður Kópavogs sem stendur fyrir sýningunni, en frumkvæði að sýning- unni og forgöngu að því að fá hana hingað hefur haft Prank Ponzi listfræðing- ur. Samkvæmt upplýsing- um sem fengust í gær í Norræna húsinu skoðuðu hundruð manns sýning- una á sunnudagskvöld og skömmu eftir opnun í gær var fólk farið að streyma að. Forsætisráðherrahjónin voru á meðal gesta við opnun sýningarinn- ar. Forsetahjónin koma til sýningarinnar ásamt sendiherra Noregs á íslandi, Ánne-Marie Lauritzen. Fjársöfnun fyrir bókagjöf til Patocka háskólans í Prag í FYRRADAG var haldinn fund- ur í Félagi áhugamanna um heimspeki, þar sem Eyjólfur Kjalar Emilsson héit fyrirlestur um frummyndakenningu Plat- ons. Á fundinum kvaddi Þor- steinn Gylfason sér hljóðs með eftirfarandi málaleitan: Patockaháskólinn í Prag heitir í höfuðið á Jan Patocka, sem var um langt skeið prófessor í heimspeki við Karlsháskóla, en hafði látið af embætti þegar hann lézt í lögreglu- höndum, háaldraður, eftir að hafa átt aðild að mannréttindayfirlýs- ingu þeirri sem kennd er við árið 1977. Hér er þó naumast um háskóla að ræða í venjulegum skilningi þess orðs, heldur miklu fremur félag áhugamanna um heimspeki. Stór hluti félagsmanna er ungt verkafólk, margt undir tvítugsaldri. Það kemur reglulega saman á fundi eins og þann sem hér er haldinn til að hlýða fyrir- lestrum um heimspeki og rökræða þá. Frumkvöðull þessarar starfsemi er Julius Tomin, ungur heimspek- ingur sem er sérfróður um gríska heimspeki. Hann fær ekki starf við sitt hæfi í heimalandi sínu; að vísu var honum boðið starf við að þýða gríska heimspeki á tékknesku, en með því skilyrði að hann ræddi aldrei um heimspeki við ungt fólk. Hann hafnaði boðinu, og kaus heldur að starfa sem iðnverka- maður auk þess sem hann veitir Patockaháskólanum forstöðu. í maí 1978 skrifaði Julius Tomin fjórum háskólum — Oxford, Har- vard, Freie Universitát í Berlín og Háskólanum í Heidelberg — og fór þess á leit að kennarar í heimspeki við þessa skóla kæmu í heimsókn sem óbreyttir ferðamenn til Prag; lét hann þess getið áð í landinu væri mikil gjaldeyrisþörf og ferða- fólk því afskaplega vel séð af stjórnvöldum. Þegar þangað kæmi bað hann svo um að haft væri samband við sig og gestirnir flyttu síðan fyrirlestra fyrir Patockalið- inu. Háskólinn í Oxford brást við þessu erindi í fyrra, og hefur síðan skipulagt ferðalög margra heim- spekinga til Prag, þar sem gestum er vel fagnað. Við þekkjum það af eigin raun úr okkar félagi hvílíkur giftufengur það er að fá góða gesti úr öðrum löndum. Fyrstu ferðalangarnir sneru aft- ur með mikil tíðindi. í Prag höfðu þeir kynnzt næsta einstæðum eld- móði hins unga áhugafólks um heimspeki, og því sem meira var: rökræðum með hærra risi en víðast annars staðar, jafnvel við fremstu heimspekideildir veraldar. En þeir sögðu líka frá öðru: meðlimir Patockaháskólans eru því sem næst bóklausir. Þeir hafa ekki aðgang að bókasöfnum, né heldur selja bókabúðir heimspekirit; með mestu herkjum hefur þeim tekizt að grafa upp í Prag einhverjar bækur eftir William James en varla mikið meira. Þeir heimspek- ingar sem síðar hafa Iagt leið sína til Prag hafa af þessum sökum haft með sér bækur; Þjóðverji nokkur fór með átta eintök af ritum Berkeleys, stúdentar í Oxford sendu tíu eintök af verkum Humes. Og er nú komið að erindi mínu við þennan fund. Það er helzta lífsskilyrði Patockaháskólans að meðlimir hans eignizt sómasam- legan bókakost. I stórum löndum er erfitt að safna fé til lítilla málefna; ég þekki það sjálfur frá Oxford að naumast líði vika án þess maður sé beðinn að láta eitthvað af hendi rakna til einhvers göfugs málefnis. En hér á Islandi held ég sé hægara um vik, þó ekki væri nema fyrir þennan blómlega félagsskap Félag áhugamanna um heimspeki. Mér virðist það verðugt verkefni þessa félags okkar að senda nú félögum okkar í Prag, fyrir milligöngu heimspekideildarinnar í Oxford, myndarlega bókagjöf. Eg vildi mega ljúka máli mínu með því að rekja ný tíðindi af Patockaháskólanum. Frá því hefur verið sagt í blöðum, síðast í Morg- unblaðinu á föstudaginn var, að fyrir fáum vikum var enski heim- spekingurinn William Newton- Smith frá Balliol College í Oxford handtekinn í Prag og gerður land- rækur fyrir þær sakir, að því er virtist, að hafa flutt fyrirlestur um skynjunina. Anthony Kenny, hinn mikilvirki heimspekingur sem mörgum okkar er að góðu kunnur, er nú rektor Balliol College; hann taldi sér skylt að krefja tékkneska sendiráðið í London skýringa á þessari meðferð á einum starfs- manni garðsins, og gerði það mið- vikudaginn 26ta marz síðastliðinn. Hann vildi vita hvað Newton- Smith hefði gert sem bryti í bág við hegningarlög tékkneska ríkisins, og fékk þau svör ein að hann hefði vikið frá handriti sínu í fyrirlestr- inum, hvernig sem yfirvöldum var nú kunnugt um það. Kenny benti á að í engri grein tékkneskra hegn- ingarlaga væri fyrirlesurum um skynjunina bannað að víkja frá handriti sínu. Þá féllst tékkneski sendifulltrúinn, dr. Telicka að nafni, á að ef til vill hefði öryggis- lögreglan verið einum of áköf við skyldustörfin. Sama kvöldið og þetta samtal fór fram, fyrir rúmum tveimur vikum, réðst öryggislögreglan inn á mál- stofu Patockamanna í einkaíbúð í Prag og handtók þar 27 manns og hélt 8 þeirra í yfirheyrslum í tvo sólarhringa. En nú ganga allir lausir, að ég bezt veit, og starfið heldur áfram. Og það vantar bæk- ur. Þess má geta að lokum að Félag áhugamanna um heimspeki hefur farið þess á leit við skattayfirvöld að framlög til Patockasöfnunarinn- ar verði frádráttarbær til skatts. Eg hef orð skattstjórans í Reykjavík fyrir því að allar líkur séu til að vel verði brugðizt við þeirri málaleitan. (Flutt af Þorstcini Gylfasyni á fundi Félags áhugamanna um heimspeki sunnudaginn 13. apríl 1980.) Patockasöfnunin Félag áhugamanna um heimspeki Pósthólf nr. 7022 Póstútibú R7 Neshaga 16,107 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.