Morgunblaðið - 15.04.1980, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 15.04.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1980 27 Ingólfur meistari í 30 km skíðagöngu Um síðustu helgi íór fram Reykjavíkurmót í 30 km skíða- göngu við skíðaskálann í Hvera- dölum. Reykjavíkurmeistari varð Ingólfur Jónsson Skíðaféjagi Reykjavíkur. Annar varð Örn Jónsson og þriðji Páll Guð- bjartsson. Ingólfur fékk timann 95,32, Örn 99,18 og Páll 106,09 mín. Þá fór fram göngukeppni milli framhaldsskólanna í Reykjavík, gengið var 3x3 km. Hamrahlíða- skólinn sigraði gekk á 42,38 mín. Sigursveitina skipuðu, Guðmund- ur Helgason, Hörður Hinriksson, og Sveinn Guðmundsson. Álfta- mýraskóli varð í öðru sæti fékk tímann 62,06. Sveitina skipuðu Rannveig Helgadóttir Haraldur Snjólfsson og Óskar Ármanns- son. — þr. Þessir ungu piltar í ÍR urðu íslandsmeistarar í fjórða aldursflokki í körfubolta í ár. Árangur þeirra er einstakur á keppnistímabilinu. Þeir töpuðu ekki leik og geta ÍR-ingar verið stoltir af þeim. Þjálfarar liðsins eru þeir Einar ólafsson og Mark Christensen. Ljósm. Guðjón. Tap en Ólafur varð samt meistari — ÞAÐ kom loks að því að ég varð deildarmeistari, sagði ólaf- ur Sigurvinsson í spjalli við Mbl. á sunnudaginn, cn lið hans Sear- ing hefur tryggt sér sigur i 3. deildinni belgísku og flyzt upp í 2. deild. Searing hefur haft ótrúlega yfirburði í deildinni í vetur og árangur þess hefur vakið mikla athygli, en liðið hafði ekki tapað 53 leikjum í röð. En í 54. leiknum á dögunum kom loks tap gegn ná- grannaliðinu Tilleur á útivelli 2:3. Svo undarlega vildi til, að eina liðið sem gat ógnað sigri Searing tapaði einnig þennan dag og það nægði Searing til þess að hreppa titilinn. Sem sagt, daginn sem Searing tapaði fyrsta leiknum í rúmt ár varð liðið meistari! Punktamót Víkings í borðtennis fór fram um síðustu helgi, Krist- ján Jónsson sigraði, Þorfinnur Jónsson varð í öðru sæti og Sigurður Guðmundsson í þriðja. Borðtennisdeild Víkings gengst fyrir opnu punktamóti Víkings- mótið 1980 og verður keppnin haldin í Laugardalshöll aðalsal, hefst keppnin kl. 1.30 (13.30). Keppt verður í öllum flokkum karla og kvenna. Leikinn verður einfaldur útsláttur tvær til þrjár lotur. Þátttökutilkynningar þurfa að berast til Gunnars Jónassonar Krummahólum 4 (5A) s. 77318 eða í verzlunina Austurborg Stórholti 16, s. 23380 í síðasta lagi kl. 12 á hádegi, laugardaginn 19. apríl. Þátttökugjald er kr. 1.500.- og greiðist það í einu lagi frá hverju félagi á mótsstað. Ath. enginn er gjaldgengur í mót þetta nema hafa greitt punktagjald til BTÍ fyrir þetta keppnisár og mun þess gætt af mótanefnd og stjórn BTÍ. Dregið verður um töfluröð kl. 14.00 í herbergi BTÍ í íþfotta- miðstöðinni í Laugardal laugar- daginn 19. apríl. Knattspyrnudeild Breiðabliks gengst fyrir afmælismóti fyrir 6. —5.—4.—3. og 2. flokk pilta þessa dagana, leikið er heima og heiman. Eftirtalin lið leika í keppninni: Breiðablik, ÍK, FH, Haukar, Stjarnan, Breiðablik og ÍK. Tvær síðustu greinarnar í drengjamóti íslands innanhúss fara fram í KR-heimilinu á sunnu- dag og hefst keppnin kl. 14.30. Keppt verður í stangarstökki og kúluvarpi. Kristinn kominn á skotskóna UNGLINGALANDSLIÐIÐ, leik- menn 16—18 ára, fór til Akra- ness á laugardaginn og lék þar æfingaleik við meistaraflokk IA. Heimamenn unnu 3:0, eftir að staðan hafði verið 0:0 í hálfleik. Kristinn Björnsson iék sinn fyrsta leik með Skagamönnum eftir að hann gekk til liðs við þá að nýju og hélt hann upp á daginn með því að skora tvö mörk en þriðja mark ÍA skoraði Sigþór ómarsson. • Þessi tvö gamalkunnu andlit voru á verðlaunapallinum á íslandsmótinu i badminton. Þetta eru þau Lovísa Sigurðar- dóttir og Haraldur Kornelíusson með verðlaun sín fyrir tvenndar- leik. Ljósm. Guðjón. • Aðalstjórn Vals notaði lika tækifærið á árshátíðinni og færði meistaraflokksleikmönnum Vals viðurkenningu, fyrir frábæra frammistöðu i Evrópukeppninni og afhenti öllum leikmönnum, þjálfara og formanni deildarinnar silfurskildi hina veglegustu sem á var letrað: önnur verðlaun i Evrópumeistarakeppninni í handknattl- eik árið 1980. Merki Grosswaldstadt og merki Vals, og nafn viðkomandi leikmanns. Á myndinni er formaður Vals Bergur Guðnason að afhenda verðlaunin, en til hægri má sjá Hilmar Björnsson þjálfara sem nú lætur af störfum hjá félaginu, Gunnstein Skúlason liðstjóra og Bjarna Guðmundsson með silfurskjöldinn. Liósm. Guðjón • Mikil gróska hefur verið i júdó-íþróttinni i vetur, og framundan eru mörg stór verkefni hjá júdó-mönnum þótt ólympiuleikarnir séu stærsta verkefnið en þangað fara væntanlega einir þrir júdó-menn. Á myndinni er hinn ötuíi formaður sambandsins Eysteinn Þorvaldsson i hrókasamræðum við hinn þekkta júdó-kappa Halldór Guðbjörnsson sem búinn er að vera i eldlinunni i mörg ár. • Handknattleiksdeild Vals hefur borist mjög svo höfðingieg gjöf i tilefni góðrar frammistöðu i Evrópumeistarakeppninni i handknatt- leik. Fischer umboðið á íslandi færði deildinni myndsegulbandstæki og upptökuvél, en verðmæti þess mun nema um fjórum milljónum króna. Er það einstakt að íþróttadeild fái svo höfðinglega gjöf. Á myndinni hér að ofan er Sævar Jónsson fulltrúi Fischer að afhenda Þórði Sigurðssyni formanni handknattleiksdeildar Vals gjafabréfið. En afhendingin fór fram á árshátið Vals um síðustu helgi. Ljósm. Guðjón. Handknattleikur ■ — Laugardalshöll ÍR ÍR — Þl í kvöld kl. 18.50 tÓTTUR Aukaleikur um sæti í 1. deild ÞRÓTTUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.