Morgunblaðið - 15.04.1980, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 15.04.1980, Blaðsíða 40
Sími á ritstjórn og skrifstofjj: 10100 PLAST ÞAKRENNUR ^ Sterkar og endingargóðar Hagstætt verð cffij Nýbörg" O Armúla 23 — Sfmi 86755 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRlL 1980 Tillögur sjálfstæðismanna um skattstiga: 9,7 milljarða króna lækkun á skattheimtu ÞINGFLOKKUR sjálfstæðismanna samþykkti i gærkvöldi tillögur Sjálfstæðisflokksins um skattstiga og verða þær kynntar á fundi fjárhags- og viðskiptanefndar efri deildar árdegis í dag. Tillögurnar fela í sér þrjú tekjuskattsþrep einstaklinga; 25% af fyrstu 4 milljónunum, 35% af næstu 4 og 45% af skattgjaldstekjum yfir 8 milljónum króna. Þá leggja sjálfstæðismenn til að eignarskatturinn vérði 0,8% og að tekjuskattur félaga verði 53%. Með þessum tillögum telja sjálfstæðismenn sig lækka fyrirhugaða skattheimtu ríkisstjórn- arinnar um 9,7 milljarða króna, sem sé jafngildi þess að létta af þeim aukaálögum, sem vinstri stjórnin setti á tekjuskatt og eignarskatt haustið 1978 auk þess sem tekjur rikissjóðs lækki sem nemur nýsamþykktri útsvarshækkunarheimild. Þessar tillögur sjálfstæðismanna eru miðaðar við 45% tekjuhækkun milli áranna 1978 og 1979, eins og tillögur stjórnarliðsins, sem Mbl. hefur skýrt frá. Nýrri könnun Þjóð- hagsstofnunar bendir hins vegar til að tekjuhækkunin hafi verið 47- 48%, en hvert prósentustig þýðir um milljarð í auknum skatttekjum ríkissjóðs. Þar telja sjálfstæðis- menn koma 2 — 3 milljarða á móti framangreindu tekjutapi ríkissjóðs og með þeim og heimild í fjárlögum um niðurskurð upp á tvo milljarða króna þurfi til viðbótar að koma niðurskurður upp á um 5 milljarða, sem þeir séu reiðubúnir til sam- starfs við ríkisstjórnina um. STJÓRNARFUNDUR 1 Alþýðu- sambandi Vestfjarða, þar sem rætt var um samkomulagið i Bolung- arvik. Réttsælis við borðið sitja: Bjarni L. Gislason, Gunnar Þórðar- son, formaður Sjómannafélags ísfirðinga, Grimur Jónsson, Rúnar Grimsson, Hendrik Tausen, Flat- eyri, Karvei Pálmason, Hörður Snorrason, Bolungarvik, Jónas Helgason, ísafirði, Guðmundur Ein- arsson, Vélstjórafélagi ísafjarðar og við borðsendann og snýr baki i ljósmyndarann Pétur Sigurðsson, forseti ASV. — Slmamynd Mbl.: Kristján. Atyinnuleysisskrán- ing á Isafirði í gær STÖÐUGUR erill var á bæjarskrifstofum ísafjarðar í gær, þar sem fólk var að láta skrá sig atvinnulaust. Ástæðan er uppsagnir fólks i frystihúsunum á Ísafirði. Sjómannaverkfallið þar hefur nú staðið á togurunum frá 20. marz, en á bátum frá 30. marz. Myndin er tekin í gærmorgun af fólki, sem var að iáta skrá sig atvinnulaust. Alls eru það um 400 manns, sem Isfirðingar finni nú fyrir því, hvernig sagt var upp störfum. Atvinnuleysis- er að lifa af 70 til 80% dagvinnu- bætur eru nú 70% af dagvinnutekjum fyrir einstakiing og 80% til handa fyrirvinnu, svo að búast má við, leysist verkfallið ekki í bráð, að tekjum. Um hádegi í gær höfðu 89 einstaklingar látið skrá sig. Ljósm. Gunnar Deilur um kjarasamninga innan ASV: Bolvíkingar náðu samning- um i blóra við ísfirðinga SAMKOMULAG tókst í gær milli Guðfinns Einarssonar í| Bolungarvík fyrir hönd Útvegsmannafélags Vestfjarða og samninganefndar Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvík- ur um kjarasamning fyrir sjómenn, en eftir að haldinn var fundur í stjórn Alþýðusambands Vestfjarða, munu fulltrúar Verkalýðsfélagsins hafa litið á samkomulagið sem samkomu- lagsdrög, og mun atlunin hafa verið að taka málið upp á breiðari grundvelli, þ.e. milli ASV og Útvegsmannafélagsins. Af hálfu Verkalýðsfélagsins stýrði Karvel Pálmason, alþingis- maður og formaður félagsins við- ræðunum. Samkomulagið fjallar um lengingu fría á skuttogurum yfir nýárið, lengingu þess tímabils á línuveiðum, sem ekki er unnið á laugardögum um einn mánuð ár- lega, styttingu greiðslufrests á uppgjöri hlutaskipta á skuttogur- um um einn dag og á línubátum um 5 daga. Þá urðu aðilar ásáttir um að bera fram tilmæli til stjórnar Aflatryggingasjóðs um endurskoðun á reglum um fæðis- greiðslur — að loðnuskip og skut- Kaupmáttur BSRB Jiefur hækk- að tvöfalt á við ASÍ frá 1976 Þó vantar um 12 kaupmáttarstig til þess að kaup- mátturinn sé jafnhár og við upphaf samninga 1977 SAMKVÆMT útreikningum Kjararannsóknaneíndar hefur kaupmátt- ur taxtakaups opinberra starfsmanna hækkað rúmlegp tvöfalt meira frá því fyrir gerð núgildandi kjarasamninga, en kaupmáttur taxta- kaups ASI-launþcga. Kaupmáttur ppinberra starfsmanna var fyrir árið 1976 90,5, en ASÍ-félaga 95,7 stig. Á árinu 1979 voru sambærilegar tölur 118,4 stig fyrir opinbera starfsmenn, en 109.4 stig hjá ASÍ. Frá því um mitt ár 1977 hefur því kaupmáttur ASÍ hækkað um 13,7 stig á sama tíma sem kaupmáttur opinberra starfsmanna hefur hækkað um 27,9 stig. Þrátt fyrir þetta var kaupmáttur beggja þessara launþegasam- banda um 12 stigum lægri á siðasta ársfjórðungi 1979, en við upphaf samninga. Kaupmáttartölur Kjararann- sóknanefndar eru miðaðar við vísi- tölu framfærslukostnaðar og árs- meðaltalið 1971, sem sett er 100. Þjóðhagsstofnun hefur einnig gert samanburð á þróun kaupmáttar og setur kaupmáttinn í janúar 1977 sem 100, og miðar einnig við vísitölu framfærslukostnaðar. Á fyrsta árs- fjórðungi 1977 er staðan milli ASÍ og BSRB jöfn og er kaupmáttur beggja þá 101,3 stig. Á öðrum ársfjórðungi sígur heldur á ógæfuhliðina fyrir BSRB. Þá er kaupmáttur BSRB 100,9, en ASÍ 101,4. Á þriðja árs- fjórðungi, eftir gerð kjarasamninga, skilur síðan á milli og BSRB kemst langt upp fyrir ASI. Kaupmáttur BSRB verður þá 131,5, en ASÍ 118,5. Ársmeðaltal kaupmáttar BSRB fyrir árið 1979 er 127,2 stig og hjá ASÍ 114,3 stig. Ljóst er af þessu, að kjarasamn- ingarnir, sem undirritaðir voru 1977 og giltu frá 1. júlí hjá opinberum starfsmönnum og frá því um sólstöð- ur hjá ASÍ, voru mun hagkvæmari opinberum starfsmönnum, en laun- þegum innan ASÍ. Kaupmáttur BSRB í júnímánuði 1977 var 104,8 stig, en hækkaði í júlímánuði upp í 134.4 stig. Samsvarandi hækkun hjá ASI var úr 106,0 stigum fyrir júní í 122.4 stig fyrir júlí. Hins vegar ber að geta þess, að miðað við upphaf samninga og síðasta ársfjórðung 1979 vantar ASÍ 11,6 stig til þess að kaupmátturinn sé jafnhár og um sólstöður 1977 og BSRB vantar 12,4 stig miðað við sömu forsendur. togarar, þ.e. skip með langt út- hald, fái hærri greiðslur á dag á fæðiskostnaði. Var talið, að næðist þetta samkomulag, myndu verka- lýðs- og sjómannafélög á Flateyri, Patreksfirði, Suðureyri og Súða- vík fylgja á eftir. Félagið á Þingeyri er ekki í verkfallsaðgerð- um, þannig að þá standa eftir Sjómannafélag ísfirðinga og Verkalýðsfélagið Vörn, Bíldudal, sem boðað hefur verkfall 20. apríl. Gunnar Þórðarson, formaður Sjómannafélags ísfirðinga og Grímur Jónsson, í stjórn þess sögðu í gærkveldi í samtali við blaðamann Morgunblaðsins: „Það, sem gerðist, er að Karvel Pálma- son fer beint af fundi stjórnar ASV til Bolungarvíkur, þar sem hann knýr fram með einhverjum ráðum samþykkt um að gengið skuli til samninga við útvegs- mannafélagið á grundvelli þessara samningsdraga. Við erum furðu lostnir og eigum bágt með skilja til hvers Verkalýðs- og sjómanna- félag Bolungarvíkur gengur til samninga í upphafi. Það er ekkert í þessu samkomulagi, sem við hefðum ekki getað fengið. Það er samþykkt að samkomulagið verði undirritað sem samningar. Þetta breytir ekki afstöðu Sjómannafé- lags ísfirðinga til samninga við útvegsmenn, enda á borðinu skárra en það sem Karvel hefur boðið sem samning. Okkur er það meira en undrunarefni, að Karvel skuli ekki hafa haft hugmynd um, hvað fór fram á síðasta samninga- fundi með útvegsmönnum og a.m.k. annar samninganefndar- maður Bolvíkinga kom af fjöllum, þegar hann sá uppkast Karvels að hugsanlegum samningi. Hvað liggur á bak við þetta hjá Karvel, er okkur óskiljanlegt."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.