Morgunblaðið - 15.04.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.04.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1980 5 Stór stund að taka sæti á Alþingi í fyrsta skipti — segir Einar K. Guðfinnsson Einar K. Guðfinnsson tók í gær sæti á Alþingi. sem vara- maður Matthiasar Bjarnason- ar. Einar, sem ekki heíur áður átt sæti á Alþingi, skipaði íjórða sæti íramboðslista Sjálfstæðisflokksins á Vest- fjörðum við síðustu alþingis- kosningar. Hann er tuttugu og fjögurra ára gamall, og starf- ar nú sem skrifstofumaður á Bolungarvík, en mun á næsta ári ljúka námi i stjórnmála- fræðum við Essexháskóla í Englandi. Blaðamaður Morgunblaðsins hitti Einar að máli í gærkvöldi, og spurði hann fyrst hvernig það væri að taka sæti á Alþingi í fyrsta skipti. „Ég hef nú að vísu ekki nema tveggja klukku- stunda reynslu af þingmennsku enn sem komið er,“ svaraði Einar, „en af þeim litlu kynn- um sem ég hef þegar af þinginu og þingmönnum get ég ekki annað sagt en að mér lítist vel á vistina á Alþingi. Ég er sérstaklega ánægður með hve mér var vel tekið af hinum eldri og reyndari þing- mönnum, hvort heldur það voru flokksbræður mínir eða þing- menn annarra flokka. Það er mikil lífsreynsla að taka sæti á þingi í fyrsta skipti, og það er stór stund þegar gengið er til þinghússins fyrsta sinni, ekki hvað síst fyrir ungan mann, en um leið og mér var þannig innanbrjósts, þá var ég um leið nokkuð kvíðinn, enda veit ég ekki fyllilega að hverju ég var að ganga. En ég hlakka til þess að fá nú tækifæri til að starfa innan veggja Alþingis." — Nú hefur þú um nokkurra ára skeið tekið virkan þátt í stjórnmálum, og Alþingi er helsti vettvangur íslenskra stjórnmála. Kemur þingið þér fyrir sjónir eins og þú áttir von á? „Já, ég get ekki sagt annað. Stjórnmálin eru að mínum dómi fyrst og fremst aðlaðandi vegna þess hve þau taka yfir víðtækt svið. Ekki þarf að minnsta kosti að óttast að störf stjórnmálamanna verði einhæf. Ég get nefnt sem dæmi um þessa fjölbreytni stjórmálanna, að meðal þeirra mála sem voru til umræðu á Alþingi í dag, voru umræður um stofnun úti- bús veiðimálastofnunar á Aust- urlandi, bætta nýtingu í fisk- veiðum og skyldusparnað ungs fólks.“ — Hefur þú ákveðið hvaða mál þú ætlar einkum að láta til þín taka þann tíma sem þú verður á þingi að þessu sinni? „Ég læt vafalaust í mér heyra við umræður um þau mál er upp kunna að koma, en það verður að koma í ljós þegar þar að kemur. Og um efni jómfrú- ræðu minnar hef ég ekki tekið ákvörðun ennþá!" — Alþingi hefur sætt nokk- urri gagnrýni undanfarin ár, og sumir telja að virðing þings og þingmanna sé ekki mikil meðal þjóðarinnar. Telur þú þessa gagnrýni vera á rökum reista? „Það er alveg rétt, að Alþingi hefur oft heyrst gagnrýnt, og ég minnist til dæmis orða úr blaðaviðtali, þar sem sagði að „Alþingi væri höll meðal- mennskunnar." Ég hef sjálfur ekki setið það lengi á þingi að ég gæti kveðið hér uppúr, en tel að minna megi á það sem stundum hefur verið sagt, að þjóðin eigi ekki skilið betri ráðamenn en hún hefur valið sér. Sé eitthvað bogið við störf Alþingis, þá væri fólki ef til vill hollt að líta í eigin barm og gá hvort ekki sé víðar pottur brotinn." — Þú tekur sæti á þingi við nokkuð sérstæðar kringum- stæður innan Sjálfstæðis- flokksins. Virðist þér ástandið innan flokksins vera eitthvað öðruvísi innan Alþingis en þú áttir von á? „Nei. Ég hef fylgst, náið með störfum Sjálfstæðisflokksins, og tel mig þekkja nokkuð vel til innviða hans og mér hefur ekki Einar K. Guðfinnsson. komið neitt sérstaklega á óvart í þessu sambandi hér í dag. Ég sat í fyrsta skipti þing- flokksfund sj álfstæðismanna í dag, og meðal þeirra sem þar sátu var einn ráðherrann í ríkisstjórn Gunnars Thor- oddsens, Friðjón Þórðarson. Ég gat ekki merkt að það andaði köldu í hans garð á fundinum. Vona ég að það sé merki þess að sjálfstæðismenn muni sættast á ný eftir þann óheppilega og að mínum dómi ónauðsynlega ágreining sem upp hefur komið í vetur." Þar með varð samtalið ekki lengra að sinni, enda voru fundir að hefjast á ný í samein- uðu Alþingi eftir kvöldverðar- hlé í gærkvöldi. — AH Eva Knardahl leikur í Nor- ræna húsinu HINN þekkti norski píanóleikari Eva Knardahl heldur tónleika í Norræna húsinu miðvikudaginn 16. april n.k. kl. 20.30. Eva fæddist árið 1920 og kom þegar 11 ára fram opinberlega þegar hún lék einleik með Filharm- onisk Selskap. Eva Knardahl vann sér fljótlega mikið álit sem tónlist- armaður og að lokinni síðari heimsstyrjöldinni dvaldist hún um margra ára skeið í Bandaríkjunum og var meðal annars árum saman fastur einleikari með Minneapolis- sinfóníuhljómsveitinni. Hún sneri aftur til heimalands síns 1967 og settist að í Ósló. Eva Knardahl hefur farið í tónleikaferðir um Evrópu, Sovétríkin og Bandaríkin. Hún hefur áður leikið í Reykjavík þegar hún lék einleik með Sin- fóníuhljómsveit íslands. Á tónleik- unum í Norræna húsinu leikur hún norska og sænska tónlist, m.a. Holbergssvítuna eftir Grieg og píanósónötuna opus 7, mesta píanóverk Griegs. Þursaflokkur- inn í Félags- stofnun í kvöld Félagsstofnun stúdenta í kvöld. þriðjudagskvöld kl. 21.00. Á efnisskrá verður rjóminn af eldra efni sveitarinnar ásamt því nýjasta. Aðgangur er öllum heim- ill, meðan húsrum leyfir. KONUR - HEIMAÞJÁLFUN - KARLAR Byggjum upp stæltan, fituskertan líkama. Æfingakerfið nær til allra líkamshluta. Tveggja mánaða meðhöndlun gerir sumarfríið ánægjulegra. HEIMAÞJÁLFUN INNIHELDUR FLJÓTVIRKT? Það tók Finn Karlsson aðeins 5 mánuði að léttast um 37 kg. Á sama tíma jók hann afl sitt um 50%. Þann 15. september s. 1. var Finnur 133,4 kg. Þann 19. febrúar s. 1. var hann kominn niður í 96,2 kg. í 2 mánuði höfum við æft undir handleiðslu Guðmundar Sigurðssonar, létta vöðvaþjálfun, ásamt þvi að fara eftir persónubundnum ráðleggingum í mataræði. Við fylgdum kerfinu eins og það var sett fyrir okkur og höfum grennst um mörg kíió og aukið afl okkar og þol um allt að 25%. A. Myndskreytt æfingakerfi. B. 2 stk. nylon-húðuð handióð. C. 1 stk. sippiband. D. 1 stk. aðstoðarstöng. E. Persónulegar ráðleggingar í mataræði. F. 1 mánaðar matseðill, vegna persónubundins matarkúrs. G. Listi yir Caloríu-innihald í mat. Verð fyrir konur aðeins kr. 31.900,- Verð fyrir karia aðeins kr. 37.900,- VILTU MEGRAST? Persónulegar ráðleggingar í mataræði. 1 mánaðar sérunninn matseðill sem er uppbyggður sam- kvæmt matarvenjum viðkomandi. Listi yfir Caloríu-innihald i mat. Megrunarkúr þessi er byggður upp á niðurstöðum nýjustu rannsókna. Verð aðeins kr. 12.300,- Megrunarkúr, sem byggður er á persónulegum ráðlegg- ingum, þar sem tekið er mið af matarven jum hvers og eins. Þeir sem notað hafa þennan kúr, hafa losnað við allt að 7 kg. á mánuði, án sultartilf inningar. HEIMAÞJÁLFUN FYRIR KONUR: Helgi Jónasson, fræðslustjóri í Reykjanesumdæmi. Jón Aðalsteinn Jónsson, tækniskólanemi. Óskar Sigurðsson, forstjóri, Reykjavík. HEIMAÞJÁLFUN P. O. Box 4212 Reykjavík Símar 15924 og 36331 Heimaþjálfun ásamt megrunarkur Heimaþjálfun án megrunarkúrs Megrunarkúr HEIMAÞJÁLFUNAR Cellulite-meðferð Verð kr. 31.900,- — 23.000,- — 12.300,- — 31.900,- FYRIR KARLA: Heimaþjálfun ásamt megrunarkúr Heimaþjálfun án megrunarkurs Megrunarkúr HEIMAÞJÁLFUNAR Verð kr. 37.900,- — 29.000,- — 12.300,- Hringið eða skrifið eftir upplýsingabæklingi sem sendur verður um hæl. CELLULITE, (konukeppir) koma á hina ýmsu staði kven- líkamans. Ef þig langar til að losana við Cellulite á auð- veldan hátt, þá hafðu samband við okkur, við getum hjálp- að þér til þess. Það er visindalega sannað, að rétt mataræði ásamt hæfi- legri areynslu eru nauðsynleg til að öðlast hraustan og fagran líkama. Til að ná því marki, býður HEIMAÞJÁLF- UN handlóðatæki ásamt sérunnu mataræði fyrir þig. 20 ára reynsla Guðmundar Sigurðssonar lyftingamanns var höfð til hliðsionar við samnineu kerfisins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.