Morgunblaðið - 15.04.1980, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1980
Jan Mayen viðræðurnar:
Yhmiinefndir fjalla
um fiskveiði, land-
grunn og botn
VINNUNEFNDIR voru skipaðar á viðræðufundum ísicndinga og
Norðmanna í Ráðherrabústaðnum í gær þar sem fjallað er um Jan
Mayen deiluna, en vinnunefndirnar fjalla sérstaklega um fiskveiði-
málin á svæðinu, landgrunnsmálin og botnmál. Fundum verður fram
haldið ki. 11 í dag. Morgunblaðið ræddi í gær við Eyvind Bolle
sjávarútvegsráðherra Noregs og sagði hann að ekki væri neitt nýtt að
frétta í málinu eftir þessar viðræður, en fundurinn í gær hefði þó
verið jákvæður og mál rædd og reifuð frá ýmsum hliðum.
Steingrímur Hermannsson
sjávarútvegsráðherra sagði í sam-
tali við Mbl. að lítið væri hægt að
segja á þessu stigi málsins. Hann
sagði að aðaláherzlan hefði verið
lögð á grundvallarsjónarmið
íslendinga, að ekki væri um neina
samninga að ræða innan okkar
200 mílna og hins vegar um
sögulegan, siðferðislegan og efna-
hagslegan rétt okkar til svæðisins
þar sem við værum svo sérstak-
lega háðir fiskveiðum.
„Við hljótum að ákveða einir
hvað má veiða af okkar fiskveiði-
stofnum sem eru okkur svo mik-
ilvægir þótt samkomulag þurfi að
vera um það hvað verður veitt
utan okkar 200 mílna.“
Steingrímur sagðist ekki bjart-
sýnn á niðurstöður að loknum
þessum fundi, en hann kvað mörg
atriði hafa verið rædd og einnig
hefðu ráðherrar rætt málin sín á
milli. Kvað Steingrímur Norð-
menn sýna vilja til samninga en
mál væru ekki nógu afmörkuð og
ákveðin.
vildu fulltrúar Framsóknarflokks
og Alþýðubandalags í borgar-
stjórn hækka útsvarið upp í leyfi-
legt hámark, það er í 12,1% úr
11%. Því höfnuðu fulltrúar Al-
þýðuflokksins hins vegar alfarið,
Samninganefndirnar i Ráðherrabústaðnum i gær.
Borgarstjórnarmeirihlutinn í Reykjavík:
Nýtir heimild til
útsvarshækkun-
arinnar að hluta
„IIEIMILD sú tii hækkunar útsvara, sem nýlega var samþykkt á
Aiþingi, verður ekki fullnýtt af núverandi meirihluta í borgarstjórn
Reykjavíkur, en endanleg ákvörðun um þetta mál verður tekin á
borgarstjórnarfundi á fimmtudaginn,“ sagði Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
borgarfulltrúi í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gærkvöldi.
Að öðru leyti kvaðst Sjöfn ekki vilja tjá sig um máiið á þessu stigi.
Samkvæmt heimildum sem og knúðu fram málamiðlun þess
Morgunblaðið hefur aflað sér, efnis að aðeins hluti hækkunar-
innar verði nýttur, þrátt fyrir
mikla óánægju framsóknarmanna
og alþybubandalagsmanna. Ekki
hefur hins vegar verið ákveðið
enn, hve mikill hluti hækkunar-
heimildarinnar verður nýttur.
Þórir Baldvinsson.
Lést í um-
ferðarslysi
PILTURINN sem lést i umferð-
arslysi á Borgartúni aðfaranótt
síðastliðins laugardags, hét Þórir
Baldvinsson, til heimilis að Berg-
staðastræti 43A í Reykjavík.
Hann var nýorðinn sautján ára
er hann lést.
Hálfbróðir Þóris, Sævar Jens-
son, fórst fyrir um það bil fimm
vikum, er hann tók út af báti frá
Vestmannaeyjum.
FIMM manns slösuðust
þegar strætisvagn og
sandflutningabíll rákust
harkalega saman á mótum
Vesturlandsvegar og
Höfðabakka klukkan
12.43 í gær. Það voru
vagnstjórinn og fjórir far-
þegar sem meiðsli hlutu en
enginn slasaðist alvarlega.
Ökumaður vörubílsins
slapp ómeiddur. Báðar bif-
reiðarnar skemmdust en
strætisvagninn þó mun
meira.
Strætisvagninn ók suður Höfða-
bakka á móti grænu ljósi að sögn
sjónarvotta en sandflutningabíll-
inn ók austur Vesturlandsveg á
móti rauðu ljósi. Skullu bílarnir
harkalega saman á gatnamótun-
um. Lenti sandflutningabíllinn
framan á horni strætisvagnsins og
svo mikill var krafturinn að hann
sneri vagninum fjórðung úr hring.
Sandflutningabíllinn, sem er af
Scania-gerð var fullfermdur.
Strætisvagninn er af Volvo-gerð
og voru margir farþegar í bílnum í
þessari ferð.
Sjálfstæðisflokkurinn
í Suðurlandskjördæmi:
Fullar sættir í
kjördæmisráði
Þingflokksmálið afgreitt nk. miðvikudag
ÁGREININGUR sjálfstæðismanna í Suðurlandskjördæmi
vegna framboðs í síðustu alþingiskosningum var jafnaður með
fullum sáttum á aðalfundi kjördæmisráðs sem haldinn var í
Vestmannaeyjum s.l. laugardag. Þar voru samþykktar laga-
breytingar um framboð þar sem kveðið er á um að % atkvæða
í kjördæmisráði þurfi til þess að listi sé samþykktur, ella skuli
prófkjör fara fram.
5 slösuðust er strætisvagn lenti í árekstri
Á fundinum var gerð eftirfar-
andi samþykkt um sættir: Aðal-
fundur kjördæmisráðs Sjálfstæð-
isflokksins í Suðurlandskjördæmi,
haldinn í Vestmannaeyjum 12.
apríl 1980, lýsir yfir eftirfarandi:
Að með lagabreytingum sem kjör-
dæmisráð hefur samþykkt í dag og
varðar ákvarðanatöku um fram-
boð flokksins í kjördæminu hafi sá
ágreiningur verið jafnaður sem
reis í kjördæmisráði vegna fram-
boðs við síðustu Alþingiskosn-
ingar. A fundinum lét Helgi
ívarsson bóndi á Hólum í Árnes-
sýslu af formennsku formanns
kjördæmisráðs en við tók Magnús
Jónasson frá Vestmannaeyjum.
í gær var afgreiðsla kjördæmis-
ráðs tekin upp í þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins á þingflokksfundi,
en hann fór fram á það að málið
yrði afgreitt heima í héraði áður
en þingflokkurinn afgreiddi inn-
göngu Eggerts Haukdals í þing-
flokkinn en hann bauð sig fram
sem kunnugt er undir L-lista
merki sl. haust. í samtali við Mbl.
í gær sagði Ólafur G. Einarsson
formaður þingflokks sjálfstæð-
ismanna að hann hefði kynnt
þingflokksmönnum lyktir mála á
aðalfundinum í Eyjum með sam-
þykkt kjördæmisráðs um sættir
og sagðist Ólafur fagna því sér-
staklega að deilurnar skyldu hafa
verið jafnaðar heima í héraði.
Sagðist Ólafur hafa lagt til að
málið um sæti Eggerts i þing-
flokki Sjálfstæðisflokksins yrði
afgreitt n.k. miðvikudag á þing-
flokksfundi. Kvaðst Ólafur hafa
farið fram á þennan frest til þess
að geta rætt við Eggert um
afgreiðslu þessa máls. Kvaðst Ól-
afur telja að skynsamlega hefði
verið haldið á þessu máli á
kjördæmisráðsfundi. „Það er
greinilegur vilji manna til þess að
jafna þessar deilur og ég fagna
því,“ sagði Ólafur.
Erlingur seldi
í Cuxhaven
ERLINGUR GK seldi afla í
Cuxhaven í gærmorgun. Togar-
inn var með 115 tonn og íékk
fyrir aflann 44 milljónir. Er
meðalverðið 380 krónur. Uppi-
staðan í aflanum var karfi.
Frá árekstursstað. Eins og sjá má er strætisvagninn stórskemmdur. LjóHm. MBI. JúIIuh.
Samþykkt í gærkvöldi
að leggja Byggung niður
— faist ekki loð eða fynrheit um loðauthlutu
Á AÐALFUNDI BYGGUNG í Reykjavík í gærkvöldi va
samþykkt tillaga frá stjórn félagsins um að fái félagið ekki ióð t
byggingarframkvæmda á næstunni verði félagið lagt niður o
eignir þess seldar. Þorvaldur Mawby, framkvæmdastjóri Bygj
ung, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að félagið æt
nú eignir upp á um það bil 70 milljónir króna, sem að miklui
hluta til væru fjármagnaðar af viðskiptabanka félagsins. N
þegar ekki væri neitt útlit fyrir að lóð fengist hjá borgaryfirvöli
um í Reykjavík, væri ekki um annað að ræða en að selja eignirns
og hætta.
Tillagan sem lögð var fram á
aðalfundinum í gærkvöldi, og
samþykkt var svohljóðandi:
„Þar sem ekki liggur fyrir
úthlutun á lóð undir bygginga-
framkvæmdir eða fyrirheit um
lóðarúthlutun, þrátt fyrir marg-
ítrekaðar lóðarumsóknir, er ljóst
að félagið getur ekki haldið í
eigu sinni byggingatækjum, sem
það hefur fest kaup á á sl. árum,
bygg
s.s. byggingarkrana,
ingarmótum o.fl.
Rætist ekki úr þessu á næst
unni samþykkir aðalfundu
Byggung, haldinn 14. apríl 198C
að fela stjórn félagsins að ann
ast sölu á eignum þess, jafn
framt því að undirbúa slit fé
lagsins í samræmi við lög e
gilda um byggingasamvinnufé
lög.“