Morgunblaðið - 15.04.1980, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1980
Vestfirðingafjórðungur:
Góður af li í
öll veiðar-
færi í marz
GÆFTIR voru góðar hjá bátum og togurum í Vestfirð-
ingafjórðungi allan marzmánuð og var afli góður í öll
veiðarfæri. Togararnir voru á heimamiðum fram yfir
miðjan mánuðinn, en síðari hlutann voru flestir á
Selvogsbanka. Bátaflotinn var á heimamiðum allan
mánuðinn. Þetta kemur fram í yfirliti, sem Mbl. hefur
borizt frá skrifstofu Fiskifélags íslands á ísafirði.
í marz stundaði 41 bátur bol-
fiskveiðar frá Vestfjörðum, reru
17 (27) með línu, 12 (8) með net og
12 (11) með botnvörpu. Heildarafl-
inn í marz var 12.025 lestir og er
heildaraflinn frá áramótum þá
orðinn 30.774 lestir. I fyrra var
aflinn í marz 11.505 lestir og
heildaraflinn frá áramótum 26.805
lestir. Afli línubátanna var nú
2.449 lestir í 298 róðrum eða 8,2
lestir að meðaltali í róðri, afli
netabáta 2.612 lestir og afli togara
6.964 lestir.
Aflahæsti línubáturinn í marz
var Hugrún frá Bolungarvík með
241.6 lestir í 20 róðrum, en í fyrra
var Ólafur Friðbertsson frá Suð-
ureyri aflahæstur linubáta í marz
með 209,5 lestir í 18 róðrum.
Aflahæstur netabáta í marz var
Pálmi frá Patreksfirði með 331,4
lestir í 15 róðrum, en í fyrra var
Garðar frá Patreksfirði aflahæst-
ur með 433,8 lestir í 16 róðrum. Af
togurunum var Guðbjörg frá Isa-
firði aflahæst með 673,8 lestir í 4
löndunum, en hún var einnig
aflahæst í marz á seinasta ári með
561.6 lestir í 4 löndunum.
Stóraukinn rækju-
afli Vestfjarðabáta
RÆKJUVERTÍÐ í Vestfirðingaíjórðungi lauk í marz.
Var þá búið að veiða leyfilegt aflamagn á þeim þremur
veiðisvæðum, þar sem veiðar hafa verið stundaðar í
vetur, þ.e. í Arnarfirði, ísafjarðardjúpi og Húnaflóa.
í marz bárust á land 748 lestir af rækju, 103 lestir á Bíldudal, 549
lestir við ísafjarðardjúp og 96 lestir við Steingrímsfjörð. Hafa þá alls
borizt á land 2.460 lestir af rækju frá áramótum, en fyrir áramót
öfluðust 1.956 lestir. Er rækjuaflinn á haust- og vetrarvertíðinni því
4.416 lestir. í fyrra var aflinn á þessu tímabili 2.891 lest, en þá voru
aðeins veiddar 244 lestir fyrir áramót.
Aflinn skiptist þannig eftir veiðisvæðum:
Arnarfj. 616 lestir — 8bátar( 353 lestir — 8 bátar)
ísafjarðardjúp 2.801 lest — 37 bátar 1.628 lestir — 40 bátar)
Steingrímsfjörður_999 lestir — 14 bátar( 910 lestir — 12 bátar)
4.416 lestir — 59 bátar (2.891 lest — 60 bátar)
beir geta verið plássfrekir i beygjunum og ef ekki vill betur þarf bara að stugga við þeim næsta, enda
fór það svo að einn valt þegar þessir þrír komu ut ur beygjunni. i.josm. Krístínn.
Það er nógur kraftur eftir i þeim gömlu og þessi Peugeout fór
jafnan fram úr keppinautum sinum á stökkbrettinu.
Sigurvegarinn varð Einar Gisiason á þessum Voikswagen og timi
hans 5,12 og i öðru sæti varð Ásgeir Sigurðsson á 5,21 á Simca
1100.
Margmenni á
fyrstu „rally-
cross4‘-keppni
sumarsins
Bifreiðaíþróttaklúbbur
Reykjavíkur stóð fyrir
„rally-cross“ keppni um
síðustu helgi í landi Móa á
Kjalarnesi, hinni fyrstu á
sumrinu. Tóku 19 bílar þátt
í henni, en 11 luku keppn-
inni, hinir ultu út úr henni
af ýmsum ástæðum. eitthvað
brotnaði í bílunum eða gaf
sig, en notaðir eru bílar sem
komnir eru til ára sinna og
tekið úr þeim allt verðmæti
annað en vélin.
Að sögn Ólafs Guðmundsson-
ar hjá BÍKR tókst keppnin hið
bezta. Ahorfendur voru á annað
þúsund og brautin komin í gott
lag fyrir sumarið. Verða haldnar
fimm slíkar keppnir í sumar, hin
fyrsta um miðjan maí, en þessi
keppni um helgina var eins
konar upphitun að sögn Ólafs.
Ólafur sagði að næsta sumar
yrði að finna nýjan stað fyrir
keppni sem þessa þar sem landið
væri ekki laust til afnota lengur
og færu fulltrúar BÍKR til að
kynna sér slíkar brautir í vor.
Fóstbræður syngja fyrir styrktarfélagana
Frumflytja verk
sem Atli Heimir
Sveinsson hefur
samið sérstaklega
fyrir kórinn
Karlakórinn Fóstbræð-
ur heldur samsöngva
fyrir styrktarfélaga sína
16., 17., 18., og 19. apríl í
Austurbæjarbíói kl. 19
alla dagana nema laugar-
dag kl. 17.
I vetur hafa Fóstbræð-
ur bryddað upp á nokkr-
um nýjungum í kórstarf-
inu og hefur um helming-
ur kórmanna æft sér-
staklega nokkur lög sem
flutt verða á samsöngv-
unum.
A undanförnum árum
hafa Fóstbræður frum-
flutt verk eftir íslenska og
erlenda höfunda eftir At-
la Heimi Sveinsson sem
hann hefur samið sér-
staklega fyrir kórinn við
ljóð Þorsteins frá Hamri,
Fenja og Menja. Þá flytur
kórinn sjö lög við Miðald-
akveðskap eftir Jón Nor-
dal og lög eftir Pál ísól-
fsson, Sigfús Einarsson og
Helga Helgason.
Af erlendum höfundum
á efnisskránni má nefna
N.E. Fougsted, B. Carlson
og T, Kuula. í lok sam-
söngvanna syngja Fóst-
bræður Bátsför í Feneyj-
um eftir F. Schubert og
Hirðingjana eftir R.
Schuman.
Einsöngvarar með
kórnum verða Magnús
Guðmundsson og Kristján
Árnason, píanóundirleik
annast Guðrún Kristins-
dóttir og Kristján Þ.
Stephensen, Sigurður
Ingvi Snorrason, Stefán
Þ. Stephensen og Sigurður
Markússon leika með á
blásturshljóðfæri.
Aðstoðarmaður söng-
stjóra við æfingar var
Sigurður Rúnar Jónsson.
Söngstjóri Fóstbræðra
er Ragnar Björnsson.