Morgunblaðið - 15.04.1980, Side 18

Morgunblaðið - 15.04.1980, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1980 Áhrif söluskattshækkunarinnar: Venjuleg fjölskyldu- bifreið hækkar um 60 þúsund krónur SÖLUSKATTSHÆKKUNIN, sem tók gildi í gær veldur talsverðri hækkun á ýmsum vörum. Morgunblaðið leitaði í gær upplýsinga um hækkanir á helztu heimilistækjum og bifreiðum og er hækkunin allt að 60 þúsund krónum. Þó bar þeim saman, sem Morgunblaðið talaði við, að á vörum nú væri algjört dagverð, þar sem gengisbreytingar væru dag frá degi og fyrirtæki, sem leystu jafnharðan út úr tollvörugeymslu gætu ekki gefið út verðskrár, því að þær úreltust á meðan skrárnar væru sendar í fjölritun. Af þessum sökum treystu menn sér ekki til að áætla, hvað t.d. 2% söluskattshækkun frá í desember hefði breytt verði vará til hækkunar. Cortina-bifreið, sem kostaði fyrir helgi 4.570.000 krónur kostaði í gær 4.650.000 krónur og er hækkunin bæði vegna soluskattshækkunar- innar og gengisbreytinga. Sölu- skattshækkun er af því um 60 þúsund krónur. Sölumaður í Ford- umboðinu kvað algjöra dagprísa vera á bílum, vegna flöktandi geng- is, sérstaklega þeirra sem fluttir væru inn á gengi Evrópugjaldmið- ils. Til ríkisins renna nú af hverjum innfluttum bíl 90% tollur, 50% leyfisgjald og 23%% söluskattur. Hver innflutt eining í verði marg- faldast nú með 3,35. Af því fær ríkissjóður um 60%, framleiðandi bílsins um 30%, innflytjandinn 6%* og mismunurinn eru tryggingar, flutningskostnaður o. fl. Litsjónvarpstæki, 22ja tommu, sem kostaði 788.200 krónur kostar nú um 801 þúsund krónur, hækkar um 12 þúsund, þvottavél, sem kostaði 541 þúsund kostar nú 550 þúsund krónur, hækkar um 9 þús- und, kæliskápur, sem kostaði tæp- lega 404 þúsund kostar nú 410 þúsund hækkar um rúmlega 6 þúsund, uppþvottavél, sem kostaði rúmlega 512 þúsund kostar nú um 520 þúsund, hækkun tæplega 8 þúsund krónur, frystikista, sem kostaði 433 þúsund krónur kostar nú um 440 þúsund, hækkun um 6.500 krónur og myndsegulband, sem kostaði 1.034.400 krónur, kost- ar nú 1.050.000 krónur, hækkun 15.600 krónur. Landsvirkjun dregur úr orkuskömmtun LANDSVIRKJUN ákvað í gærmorgun að draga úr orkuskömmt- un til stórra notenda sem nemur 8 megawöttum. Er skömmtunin nú 29 megawött en var 37. Að sögn Halldórs Jónatanssonar aðstoðarframkvæmdastjóra Landsvirkjunar standa vonir til þess að orkuskömmtunin verði alveg úr sðgunni um eða uppúr næstu mánaðamótum. Þessi aukna orkusala til stór- fyrirtækja mun koma Álverinu og Áburðarverksmiðjunni til góða. Nemur skömmtunin til Isal nú 10 megawöttum en var 16 og skömmtunin til Áburðarverk- smiðjunnar nemur 6 megawött- um en var 8. Skömmtun til Járnblendiverksmiðjunnar verð- ur áfram 7 megawött og skömmtun til Keflavíkurflug- vallar verður áfram 6 megawött. Að sögn Halldórs Jónatans- sonar hefur vatnsyfirborð Þóris- vatns verið óbreytt að undan- förnu og miðlunarþörf hefur minnkað vegna hlýinda og rign- inga á hálendinu. Þá hefur álag vegna almenningsrafveitna minnkað eins og gjarnan gerist á þessum árstíma. Horfur eru á því að vatnsyfirborð Þórisvatns fari frekar hækkandi og rennsli aukist í Þjórsá og Tungnaá. Með þetta í huga taldi Landsvirkjun sér fært að draga nú úr orku- skömmtun sem nemur 8 mega- wöttum. Dregið verður úr skömmtun í áföngum eins og fært þykir. Frá opnun sýningarinnar Norræn vefjarlist II á Kjarvalsstöðum, Kjarvalsstaðir: Fjölmenni við opnun vefjarlistasýningar OPNUÐ hefur verið á Kjarvals- stöðum sýningin Norræn vefj- arlist II en þetta er i annað sinn sem slík sýning er sett upp hér á landi. A sýningunni eru 93 listaverk eftir 87 listamenn frá öllum Norðurlöndunum. Sýninguna opnaði Ingvar Gíslason menntamálaráðherra á laugardag, og einnig flutti ávarp við opnunina Árni Gunnarsson, formaður menningarmálanefnd-, ar Norðurlandaráðs, en fjöl- menni var viðstatt opnunina. Sýningin var vel sótt um helgina og mörg verkanna hafa selzt. Hún er í báðum sölum Kjarvals- staða og er þar m.a. myndvefn- aður, tauþrykk, textílþrykk, batík, ísaumur, rýavefnaður, of- inn skúlptúr og ýmis blönduð tækni. Sýningin er opin daglega kl. 14—22 og lýkur henni 4. maí n.k. Forsetahjónin voru mcðal gesta við opnunina. Farþegaskattur og lendingargjöld Flugleiða í Luxemburg: Gjöldin felld niður í þrjú ár YFIRVÖLD í Luxemburg hafa ákveðið að fella niður farþegaskatta og lend- ingargjöld af Flugleiðum vegna Atlantshafsflugs fé- lagsins fyrir árin 1979, UNG stúika var flutt á sjúkrahús “ í Reykjavík í gær talsvert mikið siösuð eftir árekstur á Vestur- landsvegi laust eftir hádegi í gær. Slysið varð skammt frá Skorholti i Meiasveit, skammt frá Ilafnarmelum við Hafnar- 1980 og 1981, samkvæmt heimildum sem Morgun- blaðið telur áreiðanlegar. Sigurður Helgason for- stjóri Flugleiða kvaðst í fjall, er vöruflutningabifreið og jeppabifreið rákust saman. Dimmt var yfir og mikil snjó- koma er slysið varð. Stúlkan var farþegi í jeppabifreiðinni, sem var á leið til höfuðborgarinnar, en bifreiðin var úr Reykjavík. gærkvöldi ekki geta stað- fest fréttina. Sigurður sagði hins vegar, að gjöld þau sem hér um ræddi væru ekki það há, að þau skiptu sköpum fyrir Atlantshafsflugið, þó vissu- lega væri hér um talverðar fjár- hæðir að ræða. Yfirvöld í Lux- emburg hefðu hins vegar sýnt því mikinn áhuga, að Flugleiðir héldu áfram að fljúga milli Luxemburg- ar og Bandaríkjanna, enda væri þar um að ræða eina Vestur- heimsflug til landsins, og vegna erfiðleika Flugleiða hefði meðal annars verið rætt um niðurfell- ingu fyrrnefndra gjalda. Sigurður kvað Flugleiðir enn skulda hluta þessara gjalda frá árinu 1979, og einnig skulduðu Flugleiðir farþegaskatta og lend- ingargjöld fyrir þetta ár. Þá var Sigurður eirinig spurður, hvort stjórn Flugleiða hefði tekið afstöðu til þeirra skilyrða sem ríkisstjórnin setti fyrirtækinu fyrir því að það fengi ríkisábyrgð sem fyrirtækið á inni frá því Alþingi samþykkti ríkisábyrgð Flugleiðum til handa fyrir nokkr- um árum. Sigurður kvað Flugleið- ir ekki háfa tekið afstöðu til skilyrða ríkisstjórnarinnar ennþá, en þau tóku sem kunnugt er meðal annars til endurráðn- ingar flugliða og að viðhald flug- véla yrði flutt til íslands. Versnandi gjaldeyrisstaða Nettógjaldeyrisstaða bankanna í lok febrúarmánaðar síðastlið- ins var 40,3 milljarðar króna, og hafði staðan versnað í febrúar um 3,9 milljarða króna miðað við gengið i lok mánaðar- ins, að því er Ólafur Tómasson hjá Seðlabankanum tjáði Morg- unblaðinu í gær. Alls hefur gjaldeyrisstaðan hins vegar versnað um 5,2 millj- arða króna frá áramótum, er nettógjaldeyrisstaða bankanna var 45,5 milljarðar króna. Febrúarmánuður nú er svip- aður og hann var í fyrra, en þá versnaði gjaldeyrisstaðan um 3,9 milljarða króna á samsvarandi gengi, en staðan þá hafði hins vegar aðeins versnað um 2,4 milljarða króna frá áramótum á sama tíma. Alvarlegt slys á Vestur lands vegi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.