Morgunblaðið - 15.04.1980, Side 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRIL 1980
Stemmningin var rafmögnuð
— sagt frá heimsókn á Old Trafford
YFIR páskahátíðina var eins og
venjulega mikið um leiki hjá
liðunum í ensku deildunum i
knattspyrnu. Leikirnir sem
leiknir hafa verið á þessum tima
undanfarin ár hafa gjarnan ráð-
ið miklu um úrslit deildanna og
gat það allt eins farið þannig
einnig nú, vegna þess að talvan
sem dró út leikina á síðastliðnu
hausti, hafði hitt svo skemmti-
lega á að um þessa páska léku
saman efstu liðin í 1. deild,
Manchester United og Liverpool
og einnig léku mörg af ‘efstu
liðum annarrar deildar innbyrð-
is. En úrslit leikjanna urðu þann-
ig að enn berjast 6—7 lið í 2.
deild hatrammri baráttu um þau
3 sæti sem losna í 1. deild að ári
og er það mál manna í Englandi
að úrslit í 2. deild muni ekki
liggja fyrir fyrr en á síðasta degi
mótsins í vor. í 1. deild léku eins
og áður sagði Man. Utd. og
Liverpool og með sigri í þeim leik
hefði Liverpool sennilega gull-
tryggt sigur sinn í deildinni og
áttu þeir möguleika á að ná 8
stiga forystu.
En Manchester sigraði í leikn-
Ray Kennedy (nr. 5) og Jimmy
Nocholl berjast um boltann.
Kenny Dalglish Liverpool
um og nú munar aðeins 4 stigum
og allt getur skeð, þó Liverpool sé
óneitanlega sigurstranglegra.
Undirritaðir blm. Mbl. brugðu
sér til Englands um páskana og
sáu nokkra leiki. Af þeim bar að
sjálfsögðu hæst leikur Liverpool
og United en einnig sáum við leik
Tottenham og Ipswich, Charlton
— Luton í 2. deild og síðan leik
erkifjandanna frá London, Tott-
enham og Arsenal.
Manchester United — Liverpool.
Við hugðum okkur vera snemma
á ferðinni er við mættum á Old
Trafford leikvang Man. Utd., um
þrem og hálfum tíma fyrir leik.
En okkur hafði skjátlast hrapal-
lega því þá þegar hafði mikill
mannfjöldi safnast saman við
völlinn og fór hann ört vaxandi.
Litlu eftir að við mættum á
staðinn dreif að lögreglumenn
gráa fyrir járnum með hunda í
bandi, risastóra og allt annað en
vinalega á svip. Einnig mættu þar
lögreglumenn á hestum, og fang-
elsisbílinn vantaði ekki, ef fjar-
lægja þyrfti einhverja ólátabelgi á
meðan á leiknum stæði.
Fljótlega mættu hinir harð-
svíruðu og margumtöluðu
áhangendur Man. Utd. á völlinn og
hófu þegar óspektir og var greini-
legt að aðrir sem voru a staðnum
voru mjög hræddir við þennan
skríl.
Um 2 klukkustundum áður en
leikurinn hófst voru hlið vallarins
opnuð og þyrptist fólk þegar í stað
upp í áhorfendastæðin og tók að
syngja hástöfum um ágæti sinna
manna.
Þegar svo leikurinn hófst ætlaði
allt um koll að keyra með hrópum
og köllum og var auðséð á öllu að
áhorfendur ætluðu sér að taka
mikinn þátt í leiknum. Þegar
Liverpool skoraði fyrsta mark
leiksins á 14. mín sló dauðaþögn á
aðdáendur United en aðdáendur
Liverpool efldust til muna og
sungu hástöfum um lið sitt auk
þess að gera óspart grín að United
liðinu og áhangendum þess. En
dýrð þeirra stóð ekki lengi því 5
mín. seinna jafnaði United og tóku
áhangendur þeirra þá fljótt við
sér og létu vel í sér heyra.
Þegar á hálfleikinn leið dró
heldur úr stemmningunni þó ekki
sé hægt að segja að hún hafi verið
lítil.
í upphafi seinni hálfleiks var
stemmningin lík og í lok þess
fyrri, en þegar United skoraði sitt
seinna mark á 64. mín ætluðu
áhangendur þeirra að verða vit-
lausir úr gleði og hvöttu lið sitt af
miklum dug og innlifun það sem
eftir var leiksins.
Að leikslokum fögnuðu að-
dáendur United innilega enda var
sigur átrúnaðargoða þeirra í höfn
og mikil spenna komin í toppbar-
áttu 1. deiídar á nýjan leik.
Jafntefli hja
ÍA og Pór
Það var ekki burðugur hand-
knattleikur sem lið Þórs og
Akraness sýndu er liðin leiddu
saman hesta sína fyrir norðan á
föstudaginn. Þór varð í næst
neðsta sæti annarrar deildar í
vetur og Akranes í 2. sæti 3.
deildar, og var leikurinn fyrri
viðureign liðanna um sæti i 2.
deild næsta ár.
Leiknum lyktaði með jafntefli
Knattspyrna
á Akureyri
FYRSTU knattspyrnuleikir vors-
ins á Akureyri fóru fram nú um
helgina. Lið Völsungs frá Húsa-
vík kom í heimsókn og lék
æfingaleiki við heimaliðin Þór og
KA. Þeir léku fyrst við KA á
laugardaginn og sigraði KA
mjög auðveldlega 6:2. Daginn
eftir léku Húsvíkingarnir síðan
við Þór og töpuðu nú enn stærra,
þeir skoruðu 1 mark gegn 9
mörkum Þórsara. ÖIl þessi 3 lið
leika í 2. deild á sumri komanda,
en eins og menn muna þá komu
Völsungar upp úr 3. deild í fyrra.
— sor
27:27, eftir að staðan í leikhléi
hafði verið jöfn 15:15.
Það var allt útlit fyrir að
Skagamenn myndu fara með sig-
ur af hólmi, en þegar örfáar
sekúndur voru eftir bjargaði Sig-
urður Sigurðsson andliti heima-
manna er hann jafnaði með góðu
langskoti.
Eins og áður sagði var leikurinn
mjög slakur, varnirnar lélegar og
markvarsla nánast engin, ÍA náði
forystunni strax í byrjun og hélt
henni fram á 24. mín er Þór náði
að jafna í 11:11. Heimamenn náðu
síðan forystu í fyrsta skipti í
leiknum á 25. mínútu er Arnar
þjálfari þeirra, sem átti sinn
langbesta leik í langan tíma, kom
þeim yfir 12:11. Þeir náðu svo 2
marka forystu, en Skagamenn
gáfust ekki upp og náðú að jafna
fyrir hlé, 15:15. Þórsarar mættu
mjög ákveðnir til leiks í seinni
hálfleik og náðu 3 marka forskoti
eftir 4 mínútur. Þá kom ágætur
kafli hjá gestunum og þeir náðu að
jafna 20:20 þegar 11 mín. voru
liðnar af hálfleiknum. Þeir náðu
svo fljótt forystunni aftur og
héldu henni allt fram á lokasek-
úndurnar þar til Sigurður náði að
jafna eins og áður er sagt. Þeir
sem helst stóðu upp úr meðal-
mennskunni voru þeir Arnar Guð-
laugsson og Arni Stefánsson hjá
Þór og Kristján Ásmundsson hjá
Akranesi. Seinni leikur liðanna
fer fram á Skaganum um næstu
helgi og verður þar örugglega hart
barist. Þessi lið léku einmitt þar í
bikarnum fyrr í vetur og sigruðu
heimamenn í þeim leik. Þokka-
legir dómarar leiksins voru þeir
Einar Sveinsson og Helgi Gunn-
arsson. Mörkin skiptust þannig,
Þór: Sigurður Sigurðsson 6(lv),
Arnar Guðlaugsson 6, Sigtryggur
Guðlaugsson 5, Árni Stefánsson 4
og aðrir færri. ÍA: Kristján Ás-
mundsson 9, Jón Hjaltalín
Magnússon 4, aðrir færri. —sor
Njáll aftur
til Þróttar
NJÁLL Eiðsson sem lék með
knattspyrnuliði KA á Akureyri
siðastliðið sumar, og var einn af
betri mönnum liðsins, heíur nú
ákveðið að snúa aftur til sinna
gömlu félaga í Þrótti Neskaup-
stað og leika með þeim í sumar.
sor
• Þrumuskot Jimmy Case úr aukaspyrnu smýgur rétt framhjá marki
M. Utd. Ljósm. sor.
Á meðan á leiknum stóð voru
allir áhangendur Liverpool látnir
vera í sér bás svo ekki brytust út
slagsmál á vellinum.
Eftir leikinn var áhangendum
Liverpool haldið eftir þangað til
allir United aðdáendur höfðu yfir-
gefið völlinn og fóru þeir þá í
lögregiufylgd út á brautarstöð.
Stemmningin á leiknum var
hreint út sagt frábær og var það
vel að orði komist í einu ensku
blaðanna að stemmningin hafi
verið rafmögnuð.
Tottenham — Arsenal.
Síðastliðinn mánudag léku á
White Hart Lane Lundúnaliðin
Tottenham og Arsenal. Gífurlegur
rígur er á milli áhangenda þessara
liða og bar talsvert á slagsmálum
á meðan á leiknum stóð, en
áhangendur Tottenham komust
inn í búrið þar sem áhangendur
Arsenal voru hafðir og öfugt. Þá
rigndi peningum og öðrum smá-
hlutum yfir Arsenal aðdáendurna
þegar Tottenham var undir í
leiknum.
Vegna evrópuleiks Asrsenal
síðastl. miðvikudag höfðu forráða-
menn félagsins farið þess á leit við
kollega sína hjá Tottenham að fá
þessum leik frestað en það fékkst
ekki. Areenal mætti því með
hálfgert varalið í leikinn, þar sem
nokkrir af snjöllustu mönnum
þeirra voru hvíldir fyrir evrópu-
leikinn. Það hafði þó engin áhrif á
liðið og bar það sigur úr býtum
með 2 mörkum gegn 1. —sor.
Mikill áhugi
í Borgarnesi
Borgaríjarðarmótið 1980 í inn-
anhússknattspyrnu var haldið i
íþróttahúsinu á Akranesi á
skírdag. Mótið var i umsjá Ung-
mennafélaganna Hauks —
Þrasta — Vísis.
Úrslit urðu þessi:
Borgarfjarðarmeistarar:
stig
1. UMF Haukur — Þrestir —
Vísir (A lið) 10
2. UMF Skallagrímur (A lið) 8
3. UMF Skallagrímur (B lið) 4
4. UMF Haukur — Þrestir —
Vísir (B lið) 2
5. UMF Haukur — Þrestir —
Vísir (C lið) 0
Sem gestir kepptu „old boys“
Akranesi og hlutu þeir 6 stig.
H—Þ— V vann til varðveislu
bikar sem Samvinnuskólinn Bif-
röst gaf til þessa móts og var nú
keppt um í annað sinn.
Mikill áhugi er nú hjá
knattspyrnumönnum héraðsins,
m.a. taka 2 lið þátt í íslandsmóti
3. deildar, það eru UMF Skalla-
grímur og nú Haukur — Þrestir —
Vísir í fyrsta sinni. Æfingar eru
byrjaðar af fullum krafti og er
mikill hugur í Borgfirðingum að
standa sig í sumar.
UMSB hefur verið falið að sjá
um riðil í undankeppni knatt-
spyrnunnar fyrir landsmót
ungmennafélaganna 1981. Riðill-
inn verður að öllum líkindum í
Borgarnesi helgina 8. til 10. ágúst
í sumar. I riðlinum eru auk UMSB,
UMSK, HSH og UDN (Dalamenn).
Þess má geta að H—Þ—V hefur
ráðið Andrés Ólafsson fyrrv.
Í.A.mann til að þjálfa liðið og mun
hann einnig leika með liðinu.