Morgunblaðið - 15.04.1980, Blaðsíða 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1980
Fólk og fréttir í máli og myndum
• Göngufólkið k'Kxur af stað í Bláfjöllum i blíðskaparveðri.
• Halldór Matthíasson, þekktur gönRumaður. fer yfir snjóbrú sem
útbúin var yfir ÞrengslaveK.
Skíðaganga vinsæl
hjá almenningi
Almenningsíþróttir eru alltaf
að aukast, enda útivist og hreyf-
ing það besta sem hægt er að
stunda á KÓðviðrisdögum. Það
hefur mjög færst i vöxt að fólk
hefur fengið sér gönguskíði og
um helgar má sjá hópa af fólki í
Biáfjöllum sem trimmar þar af
miklum krafti á gönguskiíum.
Þetta er fólk á öllum aldri enda
íþrótt sem allir ráða auðveldlega
við. Nú eigi alls fyrir löngu efndi
Skíðafélag Reykjavíkur til
skíðagöngu úr Bláfjöllum yfir i
Hveradali.
Voru skíðagöngumenn ræstir
frá Bláfjöllum og var gengið sem
leið liggur yfir Þrengslaveg og
niður að Skíðaskálanum í Hvera-
dölum. Leið var um 16—20 km
löng.
Veður var mjög gott; sól og logn
og frostlaust. Brautin var mjög vel
merkt, Magnús lyftustjóri í
Hveradölum og Þorsteinn lyftu-
stjóri í Bláfjöllum, sáu um
merkingu og brautarlagningu.
Samtals gengu í brautinni 60
manns. Þegar keppendur komu til
Hveradala voru á boðstólum heit
súpa, djús og kaffi.
Allir sem tóku þátt í göngunni
fengu áritað skjal frá Skíðafélagi
Reykjavíkur.
Klukkan fimm fóru allir þátt-
takendur í rútu til Bláfjalla, þar
sem ökutæki þeirra biðu.
Hér að neðan eru í skráningar-
röð, nöfn þeirra þátttakenda sem
skráðir voru í gönguna frá Blá-
fjöllum.
Auk þeirra bættust 13 manns
við á leiðinni.
Matthías Svrinsson
Halldór Matthíasson
Kristján Snorrason
TryKKVÍ Halldórsson
Svanhildur Árnadóttir
Þorkell Jónsson
Rolant I)ahl Cristiansen
Anna Hulda Sveinsdóttir
bór borsteinsson
Leifur Möller
Páll Jóhannesson
Maria Kristinsdóttir
Cuömundur Pétursson
Per Ture Midtvedt
ÁslauK Bergsdóttir
Hermann Guóbjörnsson
SÍKrún Stefánsdóttir
Kolhrún ÁKÚstsdóttir
Örn Jónsson
Halldóra FriÖriksdóttir
Haraldur Pálsson
Guöhjórvf Haraldsdóttir
Magnús Hallíreösson
Ilaukur Hauksson
Björn TryKKvason
Pétur Ólafsson
bórir ólafsson
Einar ólafsson
Sivfurbjörjf IlelKadóttir
Jón Eiriksson
Tyrfinjíur Tyrfingsson
Dajfmar Kaldal
Sveinn Kristinsson
Injtólfur Jónsson
SÍKriöur Pétursdóttir
Úlfur SÍKurmundsson
Geirharöur borsteinsson
Magnús Guöjónsson
Kristín Einarsdóttir
Kristján Már Sigurjónsson
Pálmi R. Páimason
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
FríÖa Kristinsdóttir
Elin Hannihalsdóttir
Olgeir OlKeirsson
Gunnar Gunnarsson
Snorri Gunnarsson
• Hressingin í skíðaskálanum í Hveradölum var vel þegin. eftir að
göngunni var lokið.
Wiff3ch3imch
QOppin
íhr Partncr fíir
Umzug +$J2*?cf/tÍon
Klimakörper
kalik
tj* * i.jHIKE
I kWá 1
j|t 'flfl .TjF V a m m f
|l wjm v * ^mra
Það eru ekki mörg liðin erlendis sem hafa tvo íslendinga innanborðs. Hér er mynd af liði TV Grambke
Vestur-Þýskalandi, en með því leika tveir kunnir handknattleikskappar þeir Gunnar Einarsson sem er
þriðji frá vinstri í efri röð, og Björgvin Björgvinsson sem er þriðji frá vinstri í neðri röð. Báðir þeirra
koma væntanlega til með að hætta að leika með félaginu eftir að keppnistímabilinu lýkur.
Valsmenn binda miklar
vonir við nýja þjálfarann
STJÓRN knattspyrnudeildar
Vals, boðaði til blaðamannafund-
ar fyrir skömmu þar sem hinn
nýji þjálfari deildarinnar var
kynntur. Þá skýrðu Valsmenn
frá því að vel hefði verið æft hjá
félaginu að undanförnu og ekki
færri en 25 leikmenn æft reglu-
lega. Fyrir sjálft keppnistímabil-
ið verður svo valinn 18 manna
hópur sem mynda mun kjarna
þann sem skipar meistaraflokk i
sumar. Sú nýjung verður tekin
upp á heimaleikjum Vals í sumar
að haldnir verða blaðamanna-
fundir eftir hvern leik með þjálf-
ara og fyrirliða. Knattspyrnu-
deildin hefur gert samning við
Karnabæ um föt á leikmenn
meistaraflokks sem þeir nota á
keppnisferðum og fyrir leiki. Þá
hcfur samningur deildarinnar
við Adidas-umboðið verið endur-
nýjað.
Volker Hofferbert þjálfari 1.
deildar liðs Vals í knattspyrnu,
sem félagið kynnti fyrir íþrótta-
fréttamönnum, er maður ungur að
árum, en með mikla menntun og
reynslu í knattspyrnu.
Volker er fæddur 1. apríl 1949
og því nýlega orðinn 31 árs.
Fæðingarborg hans í V-Þýska-
landi er Darmstadt, en lið þaðan
leikur nú í 2. deild í Bundeslieg-
unni. Faðir Volkers er hermaður
og eins og gjarnt er um-menn í
slíkum störfum stóð heimili fjöl-
skyldunnar á mörgum stöðum,
yfirleitt fá ár í senn.
Volker byrjaði kornungur að
sparka bolta eins og aðrir strákar,
en 10 ára keppti hann fyrst fyrir
ákveðið lið og hefur upp frá því
ætíð leikið með áhugamannaliðum
jafnframt námi sínu. Hann lauk
stúdentsprófi 1968 og þá tók við
2ja ára herþjónusta. Af þeim tíma
eyddi Volker 15 mánuðum við nám
í íþróttakennslu í herskólum.
Árið 1970 innritaðist Volker í
íþróttaháskólann í Köln og lagði
jafnframt stund á nám í landa-
fræði. Hann hlaut diplómu sína í
íþróttakennslu 1976 og 1978 lauk
hann faglega prófinu í landafræði.
í febrúar sl. lauk hann síðan
verklegu hlið landafræðinámsins
og öðlaðist þar með full kennara-
réttindi í því fagi.
I íþróttaháskólanum í Köln var
knattspyrnuþjálfun aðalnáms-
grein Volkers og árið 1977 hafði
hann áunnið sér réttindi til að
þjálfa atvinnumannalið í v-þýsku
knattspyrnunni. Hann hefur hlot-
ið leiðsagnar fremstu manna í
knattspyrnuþjálfun í V-Þýska-
landi m.a. Beisenz og Heddergotts
og hlotið mjög góð meðmæli
þeirra. Frá 1977 hefur Volker
fengist við þjálfun áhugamanna-
liða í V-Þýskalandi og þjálfaði
einnig háskólalið í Köln.
Eiginkona Volkers er Maria
Magdalena Hernandez de Hoffer-
bert frá Mexikó, en hún er einnig
íþróttakennari að mennt.
Valsmenn binda eðlilega miklar
vonir við starf Volkers Hoffer-
berts í þágu félags síns en liðið
verður eins og menn vita fyrir
verulegri blóðtöku á þessu ári, er
frá því hverfa nokkrir lykilleik-
menn.
Volker Hofferbert sagðist hafa
heyrt ýmislegt um íslenska
knattspyrnu áður en hann kom til
íslands. Þá hefði hann séð Pétur
Pétursson leika með liði sínu í
sjónvarpi. Hann sagði að leik-
menn Vals hefðu góða boltatækni,
en enn sem komið væri þyrfti mun
meiri líkamsþjálfun í liðið. Þá
væri það hlutverk sitt að ná fram
í sumar góðri blöndu af eldri og
yngri leikmönnum í liðið þar sem
margir af reyndari leikmönnum
Vals hafa nú horfið á braut.
- þr.
• Meðal skiðagöngufólksins, var Sigrún Stefánsdóttir fréttamaður
við sjónvarpið.
í