Morgunblaðið - 15.04.1980, Page 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL' 1980
Lyf og matvæli
send flóttamönnum
Leiðtogar ættflokka funda — Um fimmtíu leiðtogar um tólf ættflokka í Afganistan á fundi sem þeir
héldu í Sayd Karam um skæruhernaðinn gegn ríkisstjórn Afganistans.
Rússar vegnir
úr launsátri
Islamabad. 14. apríl. AP.
AFGANSKIR uppreisnarmenn sögðu í dag að þeir hefðu
stöðvað sovézkan skriðdrekaflokk með því að koma af stað
skriðuföllum með dýnamíti og fellt marga sovézka hermenn
úr launsátri.
Miami 14. apr. AP.
LEIÐTOGAR kúbanskra útlaga
í Miami bjuggust til þess í
morgun að senda flota smábáta
áleiðis til Kúbu með mat og lyf
Svíkja stórt
undan skatti
Ósló, 14. apríl. Frá Jan Erik
Laure fréttaritara Mbl.
NORÐMENN svíkja að
minnsta kosti sem nemur 485
milljörðum íslenzkra króna
undan skatti á ári hverju, og
þrátt fyrir ýmsar aðgerðir
yfirvalda hafa tilraunir til að
draga úr cða koma í veg fyrir
skattsvik lítinn árangur bor-
ið.
Nú hefur norska kirkjan
gengið í lið með skattyfirvöld-
um, því á árlegum biskupa-
fundi voru skattsvikin til um-
ræðu. Niðurstaða fundarins
varð sú, að prestum landsins
skyldi fyrirskipað að taka
skattsvikin til umræðu í stól-
ræðum sínum. Sagði í ályktun
biskupafundarins, að skatt-
svik væru siðferðislegt vanda-
mál. Að borga ekki skatt sem
skyldi væri merki um skort á
samábyrgð og óhlýðni við
réttvísina. Einnig væri það
merki um skort á manngæzku
og náungakærleik.
Wa-shinKton. 14. apríl. Frá önnu Bjarna-
dóttur, fréttaritara MorgunblaðKÍns.
EDWARD Kennedy reiddi vel af í
prófkosningum demókrata í Ari-
zona og Alaska á laugardaginn.
Hann sigraði Jimmy Carter í
báðum ríkjunum. en Carter jafn-
aði sigur Kennedys með því að
sigra í prófkjöri flokksins í
Suður-Karólinu, Virginíu og
Washingtonríki sama dag.
Carter stendur mun betur að
vígi en Kennedy í keppni þeirra
um útnefningu demókrataflokks-
ins. Kennedy fagnaði mjög sigrin-
um í Arizona, sem kom á óvart.
Hann sagði á blaðamannafundi í
Pennsylvaniu á sunnudag, að
efnahagsmál Bandaríkjanna væru
í slíkri óreiðu, að hann tryði ekki
öðru en demókratar útnefndu
hann, sem hefði boðað efnahags-
stefnu, sem gæti leyst vanda
þjóðarinnar.
Forkosningar verða haldnar í
Pennsylvaniu í næstu viku.
Istanhul. 14. apríl. AP.
YFIRMENN tyrkneskra ör-
yggismála greindu írá því um
helgina að þeir hefðu hand-
tekið 604 grunaða hryðju-
verkamenn og komið höndum
yfir mikið magn af vopnum
og hvers kyns skotfærum.
Tilkynnt var að 101 þessara
yrði leiddur fyrir rétt sakaður
um morð og manndráp á póli-
tískum andstæðingum. Hinir
verða sakaðir fyrir árásir, rán
og skemmdarstarfsemi af nán-
ast öllum toga að því er lögregl-
an sagði.
Lögreglan fann um helgina
vopnaverksmiðju í Giresun, bæ
við Svartahafið, og voru þrír
menn handteknir fyrir vopna-
smyg’.
’lgina voru nær tveir
,gi> n.anna drepnir víðs vegar
' óeirðum og nólitísk-
handa þeim 10.800 væntanlegu
kúbönsku útlögum sem hafast
nú við á lóð sendiráðs Perú í
Havana við illan kost. Samtíma
því héldu heilabrot manna þar
áfram um hvernig hjálpa mætti
á annan hátt fólkinu, en ekki er
búizt við að öllu fleiri en 2000
fái að koma til Miami. Útlaga-
leiðtogarnir í Miami sögðu að
bátarnir myndu ekki fara inn
fyrir tólf mílna landhelgi Kúbu,
en hafa uppi hvít flögg og biðja
kúbönsk skip á þessum slóðum
að taka við birgðunum.
Um þrjú þúsund Kúbumenn
fóru um helgina af sendiráðslóð-
inni til að fá vegabréf til útlanda,
en síðan verður fólkið að bíða
nokkra hríð unz það fær að fara
úr landi. Perú, Spánn, Costa Rica
og Bandaríkin hafa lofað að taka
við flóttamönnum, en ekki er
vitað hversu margir fá hæli á
hverjum stað. Um fimm hundruð
manns sem leituðu hælis á sendi-
ráðslóðinni hafa ákveðið að fara
hvergi úr landi og snúa til síns
heima.
ERLENT
Kennedy hefur eytt miklum tíma
og fjármunum þar og harðri
keppni er spáð milli hans og
Carters um fulltrúana 185, sem
ríkið sendir á landsþing demó-
krata í sumar.
um átökum sem hrjáð hafa
Tyrkland nú um langa hríð svo
sem kunnugt er.
Hnetuolía
á bílana?
Brasilíu. 14. apríl. AP.
TILRAUNIR sem gerðar hafa
verið með hnetuolíu sem bifreiða-
eldsneyti í Brasilíu hafa borið
góðan árangur. í rúman mánuð
hefur gasolía á nokkrum almenn-
ingsvögnum verið blönduð hnetu-
olíu, þannig að 30 af hundraði
rúmmáls eldsneytisins er hnetu-
olía, og hefur komið í ljós, að
engar breytingar þarf að gera á
hreyflum vagnanna. Þá hefur
brennsla þessarar eldsneytis-
blöndu ekki haft nein vandamál í
för með sér.
Talsmaður samtakanna
Jamiat-I-Islami sagði að þessi
atburður hefði gerzt fyrir hálfum
mánuði í skarðinu Chapchal ná-
lægt Dar-I-Suf, kolanámusvæði í
Samangan-héraði, um 240 km
norðaustur af höfuðborginni
Kabul.
Talsmaðurinn sagði að 600
Rússar hefðu fallið, 40 brynvarðir
bílar orðið undir skriðunni og 340
teknir herfangi. Hins vegar er
ekki hægt að staðfesta fréttina og
uppreisnarmenn hafa áður látið
mjög ýktar tölur fara frá sér.
Vestrænum blaðamönnum er
meinað að fara til Afganistans.
Önnur samtök, Hezbi-Islami,
sögðu jafnframt frá árás upp-
reisnarmanna í síðustu viku á
Chigha Sarai, virki stjórnarinnar
og höfuðborg austurhéraðsins
Kunar.
Samkvæmt einni frétt kveiktu
uppreisnarmenn í húsum kunnra
félaga marxistaflokksins, stálu
peningum að verðmæti um hálf
milljón króna, 120 sovézksmíðuð-
um Kalashnikov-rifflum og öðr-
um birgðum. Sagt var að 42
afganskir hermenn hefðu verið
teknir til fanga.
Aðstoðarutanríkisráðherra
Bar.daríkjanna, Warren Christo-
pher, sagði í gær að sovézkir
herforingjar í Afganistan bæðu
um stöðugt fleiri hermenn vegna
erfiðleika sem þeir ættu við að
stríða, jafnvel þótt talsvert meira
en 100.000, sennilega 110.000,
Rússar væru nú í landinu. „Rúss-
ar eiga við heilmikla erfiðleika að
etja í Afganistan,“ sagði Christo-
pher í sjónvarpsviðtali.
54 dóu í
flugslysi
Florianopolis, Brasilíu,
13. apr. AP.
FIMMTÍU og fjórir létust þegar
brasilísk farþegavél hrapaði til
jarðar i lendingu og sprakk i loft
upp. Mikil rigning var og hvass-
viðri þegar slysið varð. Vélin,
Boeing 727, var að koma tií
lendingar á eynni Florianopolis
skammt fyrir utan Rio de Jan-
eiro.
Fjórir komust lífs af og segja
björgunarmenn það algert krafta-
verk og nánast óskiljanlegt.
Vélin var í eigu innanlandsflug-
félags sem heitir Transbrasil.
Þetta er mesta flugslys í sögu
Brasilíu.
Þremur mínútum fyrir slysið
hafði flugstjórinn samband við
flugturninn og virtist þá allt með
felldu.
Úlfaldar
í stað
ökutækja
Newport, Delaware, 14. april. AP.
SCARAN nokkur í Newport i
Dealware i Bandaríkjunum
hefur leyst þau vandamál sem
spretta af hækkandi eldsneyt-
isverði á sinn eigin hátt: hann
er búinn að losa sig við bílinn
sinn og ríður nú keikur á
úlföldum sínum úr og í vinnu.
Hefur hann fest kaup á þrem-
ur úlföldum, Sheik, Shebu og
úlfaldakálfi sem heitir Nur
og búið um þá i bilskúrnum.
Hann segir að sig dreymi
um að eignast smátt og smátt
fleiri úlfalda og halda jafnvel
úlfaldakappreiðar um þver og
endilöng Bandaríkin til að
kynna fólki mikla kosti þess-
ara ágætu dýra. Hann fæðir
dýrin á heyi og höfrum og
segir kostnaðinn ekki vitun á
við að reka bíl.
Og öðru hverju þegar úlfald-
arnir fá heimþrá fer hann með
þá til heimabæjar þeirra í
New Jersey og leyfir þeim að
ærslast þar í sól og sandi, að
hans sögn.
Þetta gerðist
Tyrkland:
604 handteknir
1979 — Minnst 100 fórust í
páskajarðskjálfta í Vestur-Júgó-
slavíu.
1975 — Bardagar umhverfis
Fhnom Penh, Kambódíu.
1974 — Herbylting í Níger,
Vestur-Afríku, og Hamani Diori
forseta steypt af stóli.
1%9 — Norður-Kóreumenn
skjóta niður bandaríska könnun-
arflugvél yfir Japanshafi og 31
fórst.
1959 — Castro Kúbuleiðtogi
kemur í vináttuheimsókn til
Washington.
1953 — Þjóðernissinnar fá
hreinan meirihluta í kosningum
í S-Afríku.
1942 — Georg konungur VI
sæmir Möltu Georgskrossinum.
1927 — Chiang Kai-shek mynd-
ar stjórn í Nanking í Kína.
1923 — Insúlín, uppgötvun
kanadíska læknisins Frederick
Banting, sett á markað.
1920 — Morðin, sem Sacco og
Vanzetti voru líflátnir fyrir,
framin.
1891 — Katanga-félagið stofnað
undir forystu Leopolds Belga-
konungs til að nýta koparnámur.
1888 — Bændur gera uppreisn í
Rúmeníu.
1856 — Bretland, Frakkland og
Austurríki ábyrgjast fullveldi &
sjálfstæði Tyrkjaveldis.
1797 — Flotauppreisn við Spit-
head, Englandi.
1715 — Prússland, Saxland,
Pólland, Hannover og Danmörk
mynda bandalag gegn Svíþjóð og
stríði lýst yfir.
1689 - Loðvík XIV af Frakk-
landi segir Spánverjum stríð á
hendur.
69 — Rómverski keisarinn
Ottó framdi sjálfsmorð.
Afmæli. Leonard Euler, svissn-
eskur stærðfræðingur (1707—
1783) — John Lothrop, banda-
rískur sagnfræðingur (1814—
1877) — Henry James, banda-
rískur rithöfundur (1843—1916).
Andlát. 1764 Madame de
Pompadour, hjákona Loðvíks XV
Frakkakonungs — 1888 Mathew
Arnold, skólamaður.
Innlent. 1785 Lagður niður Skál-
holtsskóli og fluttur stóll — 1120
Ólafur Hildisson veginn að und-
irlagi Hafliða Mássonar — 1209
Bardagi Hólum — 1702 Jarðar-
bókanefnd stofnuð — 1776 Lög
um nýbýli — 1803 Reykjavík
gerð að sérstöku lögsagnarum-
dæmi og bæjarfógeti skipaður —
1810 f. Brynjólfur Pétursson
1768 d. Bjarni sýsl. Pétursson —
1851 Hafnað til bráðabirgða að
veita íslandi verzlunarfrelsi —
1854 Lög um verzlunarfrelsi —
1858 Dómsmálaráðuneyti hafnar
niðurskurðaráformum amt-
manns nyrðra — 1866 d. Magnús
sýsl. Stephensen — 1916 d. Jónas
Guðlaugsson — 1931 Ráðherr-
arnir Einar Árnason og Jónas
Jónsson biðjast lausnar og Sig-
urður Kristjánsson skipaður
ráðherra — 1954 d. Sigurjón Á.
Ólafsson alþm. — 1867 f. Bjarni
Sæmundsson — 1953 d. Knud
Ziemsen borgarstjóri — 1901 f.
Óskar Gíslason. — 1909 f. Frið-
jón Skarphéðinsson.
Orð dagsins. Hirðirinn reynir
alltaf að sannfæra sauðina um
að hagsmunir þeirra fari saman
— Stendahl, franskur rithöfund-
ur (1783-1842).
Kennedy vinnur tvenn-
ar prófkosningar